Tíminn - 27.04.1991, Page 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnarhusinu v Tryggvagotu,
S 28822
POSTFAX
91-68-76-91
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstakiinga
jlf H°GG-
^■> DEYFAR
Verslið h]á fagmönnum
GS varahlutir
Já.
Listamaðurinn og friðarsinninn Yoko Ono opnar sýningu á verkum
sínum í dag á Kjarvalsstöðum og ber hún yfirskriftina Peace! Friður!:
FRIDARBARATTAN
ER EKKIVONLAUS
„Oh, Yoko“ söng Lennon um konu sína. Hér sést hún við eitt verka sinna á Kjarvalsstöðum.
Tímamynd: Ami Bjama
í dag verða opnaðar á Kjarvals-
stöðum tvær sýningar. í vestur-
salnum er stór yfirlitssýning á
verkum Qöllistakonunnar Yoko
Ono sem ber yfirskriftina Peace!
Friður! Þar er að finna 111 lista-
verk eftir Yoko Ono frá árunum
1960 til 1990. í austursalnum er
yfirlitssýning á verkum lista-
manna sem tilheyrðu Fluxus
hreyfingunni, en þar er m.a. að
finna verk eftir Joseph Beuys,
George Brecht, Christo, Robert
Filliou, Geoffrey Hendricks, Ge-
orge Maciunas, Alison Knowles
og Nam June Paik, sem heim-
sótti íslendinga um miðjan sjö-
unda áratuginn og hélt tónleika á
vegum Musica nova sem vöktu
mikið umtal, svo ekki sé meira
sagt.
Yoko Ono verður í dag viðstödd
opnun sýninganna, en hún kom
til landsins sl. fimmtudag. Á
blaðamannafundi sem haldinn
var í gær sagðist Yoko ætla að
dvelja hér í viku og ætlunin væri
að ferðast eitthvað út fyrir borgar-
mörkin. Hún hefði áhuga á að
skoða Bláa lónið en annað væri
ekki ákveðið.
Eins og flestir vita þá er Yoko
mikil baráttumaður fyrir friði í
heiminum. Aðspurð hvort það
væri ekki vonlaus barátta sagðist
hún alls ekki telja að svo væri.
Hugarfarið frá því fyrr á öldum
væri stöðugt að breytast í rétta
átt, það gerðist að vísu hægar en
hún óskaði en hún væri sannfærð
um að það myndi takast einn dag-
inn.
Yoko sagðist hafa heyrt mikið
um ísland. Hún sagðist fá mörg
bréf frá fólki víðs vegar að úr
heiminum, m.a. íslandi. íslensku
bréfin væri gáfuleg, vel skrifuð og
fjölluðu flest um frið í heiminum.
Hún hafi því oft velt því fyrir sér
hvers konar land þetta væri og nú
fengi hún tækifæri til að komast
að því.
í kringum 1970 fór Yoko, ásamt
manni sínum John Lennon,
nokkuð ótroðnar slóðir við að
vekja athygli á sjálfri sér, list sinni
og baráttunni fyrir friði í heimin-
um. Við frumsýningu á kvik-
myndinni Rape eftir Yoko í Vínar-
borg, mættu þau í stórum hvítum
poka og brúðkaupsferðinni eyddu
þau í rúminu á Hilton hótelinu í
Amsterdam í þágu friðar. Yoko hló
þegar hún var spurð hvort hún
væri orðin of gömul fyrir slíkt, og
bætti svo við að ef hún væri orðin
of gömul væri hún líklega ekki
hér. Hún sagði að á þessum árum
hefði hún verið mun óþolinmóð-
ari en hún væri nú. Hún hefði
trúað því að hvað sem hún gerði
myndi hafa áhrif á heiminn, ekki
af því hún væri fræg, sem hún
kvaðst ekki hafa verið þá, heldur
af því að hún hafi haldið að hvert
atriði í heiminum, jafnvel mynd af
litlum strák og lítilli stelpu,
myndi hafa áhrif til friðar. Þegar
hún hafi kynnst John hafi þau
samið lagið Now or Never, sem
fjallað um Víetnam stríðið, og
hún hafi trúað því að útkoma þess
myndi örugglega breyta heimin-
um og stöðva stríðið.
Nú væri hún ekki svona barna-
leg, og ekki svona óþolinmóð,
hún heföi hins vegar ekki snúið
baki við markmiðunum en þetta
væri hæg þróun og mun hægari
en hún hefði haldið en markmið-
ið myndi nást einn góðan veður-
dag.
Sýning Yoko er að sögn Gunnars
Kvaran, forstöðumanns Kjarvals-
staða, mjög fullkomið yfirlit yfir
verk hennar frá upphafi fram á
þessa daga. Yoko tilheyrir Fluxus
hreyfingunni sem er vafalítið eitt
frumlegasta og djarfasta listform
sem fram hefur komið. Þau hafna
alfarið öllum hefðbundnum fag-
urfræðilegum lögmálum, auk
þess sem Fluxus vill afmá öll
landamæri milli hversdagslegra
hluta og hegðunar og þess sem
nefnt hefur verið list með stóru L-
i. Yoko var einn af frumkvöðlum
Fluxus í New York í byrjun 7. ára-
tugarins. Þekktust eru vafalítið
leiðbeiningarverk hennar, þar
sem hún gefur upp ákveðnar for-
skriftir, oftast ljóðrænar og ein-
faldar, sem áhorfandinn á að
framkvæma, ýmist huglægt eða
efnislega. Yoko Ono leggur sig
ávallt fram við að storka viðtekn-
um listhugmyndum og örva
ímyndunaraflið. Sjálf segir hún að
allt sé mögulegt í höfðinu á fólki.
Það sé hægt að margfalda rýmin
og fjarlægir tímar mætist óhindr-
að og það sem meira er að aldrei
sé hægt að rífa né eyðileggja hug-
myndir.
Sýningarnar verða opnar frá
klukkan 10-20 alla daga og standa
þær til 6. júní nk.
—SE
Tí niiiiii
LAUGARDAGUR 27. APRlL 1991
Kaupþing, sparisjóðirn-
ir, Búnaðarbankinn og
Kaupþing Norðurlands
meta greiðslugetu hús-.
næðislánþega:
Húsbréf
allan
hringinn
Frá og með mánudeginum 29. apríl
meta Kaupþing, sparisjóðimir,
Búnaöarbankinn og Kaupþing
Norðurlands greiðslugetu þeirra
sem fá lán í húsbréfakerfinu.
Það verk var áður í höndum Hús-
næðisstofnunar ríkisins. 21. febrúar
sl. samdi hún við banka og sparisjóði
um að þeir tækju það að sér. Búnað-
arbankinn, Sparisjóðirninr og Kaup-
þing ríða á vaðið, hinir bankarnir
fylgja á eftir. Nú er létt mjög á Hús-
næðisstofnun og skilyrði sköpuð til
þess að hún geti unnið önnur verk
sín í spekt.
Með þessu verður og mikil breyting
á þjónustu við lántakendur. Af-
freiðslustaðir verða 83 um allt land.
ður mat ráðgjafastöð Húsnæðis-
stofnunar greiðslugetu allra. Lands-
byggðarfólk þarf ekki lengur að
sækja til Reykjavíkur heldur getur
látið meta sig í næsta banka eða
sparisjóði. Með því styttist líka bið-
tíminn. Matið tók áður nokkrar vik-
ur, nú aðeins 10 daga.
Eftirleiðis munu Búnaðarbankinn,
sparisjóðirnir og Kaupþing því sjá
um alla almenna upplýsingaráðgjöf
um húsbréfakerfið, afhenda um-
sóknareyðublöð og kynningarefni,
aðstoða við útfyllingu eyðublaða,
taka á móti umsóknum og fyigiskjöl-
um, meta greiðslugetu hugsanlegra
lántakenda og segja til um hámarks-
verð þeirrar fasteignar sem þeir geta
keypt.
Fyrir þessa þjónustu verða menn að
greiða 3.600 krónur. Húsnæðis-
stofnun veitti hana endurgjalds-
laust, og fékk vitaskuld til þess fjár-
magn frá ríkinu. Þess ber að geta að
þjónustan verður nú mun meiri en
áður.
Fimmtudaginn 2. maí halda Bún-
aðarbankinn, sparisjóðirnir og
Kaupþing almennan fræðslufund
um húsbréfakerfið í Kornhlöðunni,
sal Lækjarbrekku. Hann er hugsað-
ur fyrir kaupendur og seljendur fast-
eigna, núverandi og væntanlega eig-
endur húsbréfa. Víst er að í framtíð-
inni verða húsbréf ekki síður en
spariskírteini ríkissjóðs mjög vinsæl
til ávöxtunar.
Fundurinn hefst kl. 20:30. -aá.
Vetrarmóti Geysis lýkur í dag:
Þrjár hryssur stigahæstar
Þrjár hryssur eru efstar að stigum á
Vetrarmóti hestamannafélagsins
Geysis í Rangárvallasýslu að lokn-
um þremur mótum af fjórum. Síð-
asta mótið fer fram í dag, laugar-
dag.
Tvær efstu hryssurnar eru báðar
frá Árbakka, þær Kleópatra og
Sverta í eigu Anders og Lars Hansen
á Árbakka. Diljá frá Skarði, í eigu
Kristins Guðnasonar, er í þriðja
sæti.
Fjórða og síðasta vetrarmótið er í
dag. Það er haldið á Hvolsvelli og
hefst kl. 15. Þar verða veitt verðlaun
fyrir árangur á mótunum fjórum
sem haldin hafa verið í vetur. Áður
en mótið hefst fer fram firmakeppni
í deild Geysis á Hvolsvelli og hefst
hún kl. 13. Og ef aðstæður leyfa
verður einnig keppt í 150 metra
skeiði. -sbs.
Hryssan Sverta frá Árbakka sem
er nú i öðru sætinu á vetrarmóti
Geysis. Knapi er
hollenskastúlkan Jasja van Veen.