Tíminn - 27.04.1991, Qupperneq 16

Tíminn - 27.04.1991, Qupperneq 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhusinu v Tryggvagotu, S 28822 POSTFAX 91-68-76-91 Ókeypis auglýsingar fyrir einstakiinga jlf H°GG- ^■> DEYFAR Verslið h]á fagmönnum GS varahlutir Já. Listamaðurinn og friðarsinninn Yoko Ono opnar sýningu á verkum sínum í dag á Kjarvalsstöðum og ber hún yfirskriftina Peace! Friður!: FRIDARBARATTAN ER EKKIVONLAUS „Oh, Yoko“ söng Lennon um konu sína. Hér sést hún við eitt verka sinna á Kjarvalsstöðum. Tímamynd: Ami Bjama í dag verða opnaðar á Kjarvals- stöðum tvær sýningar. í vestur- salnum er stór yfirlitssýning á verkum Qöllistakonunnar Yoko Ono sem ber yfirskriftina Peace! Friður! Þar er að finna 111 lista- verk eftir Yoko Ono frá árunum 1960 til 1990. í austursalnum er yfirlitssýning á verkum lista- manna sem tilheyrðu Fluxus hreyfingunni, en þar er m.a. að finna verk eftir Joseph Beuys, George Brecht, Christo, Robert Filliou, Geoffrey Hendricks, Ge- orge Maciunas, Alison Knowles og Nam June Paik, sem heim- sótti íslendinga um miðjan sjö- unda áratuginn og hélt tónleika á vegum Musica nova sem vöktu mikið umtal, svo ekki sé meira sagt. Yoko Ono verður í dag viðstödd opnun sýninganna, en hún kom til landsins sl. fimmtudag. Á blaðamannafundi sem haldinn var í gær sagðist Yoko ætla að dvelja hér í viku og ætlunin væri að ferðast eitthvað út fyrir borgar- mörkin. Hún hefði áhuga á að skoða Bláa lónið en annað væri ekki ákveðið. Eins og flestir vita þá er Yoko mikil baráttumaður fyrir friði í heiminum. Aðspurð hvort það væri ekki vonlaus barátta sagðist hún alls ekki telja að svo væri. Hugarfarið frá því fyrr á öldum væri stöðugt að breytast í rétta átt, það gerðist að vísu hægar en hún óskaði en hún væri sannfærð um að það myndi takast einn dag- inn. Yoko sagðist hafa heyrt mikið um ísland. Hún sagðist fá mörg bréf frá fólki víðs vegar að úr heiminum, m.a. íslandi. íslensku bréfin væri gáfuleg, vel skrifuð og fjölluðu flest um frið í heiminum. Hún hafi því oft velt því fyrir sér hvers konar land þetta væri og nú fengi hún tækifæri til að komast að því. í kringum 1970 fór Yoko, ásamt manni sínum John Lennon, nokkuð ótroðnar slóðir við að vekja athygli á sjálfri sér, list sinni og baráttunni fyrir friði í heimin- um. Við frumsýningu á kvik- myndinni Rape eftir Yoko í Vínar- borg, mættu þau í stórum hvítum poka og brúðkaupsferðinni eyddu þau í rúminu á Hilton hótelinu í Amsterdam í þágu friðar. Yoko hló þegar hún var spurð hvort hún væri orðin of gömul fyrir slíkt, og bætti svo við að ef hún væri orðin of gömul væri hún líklega ekki hér. Hún sagði að á þessum árum hefði hún verið mun óþolinmóð- ari en hún væri nú. Hún hefði trúað því að hvað sem hún gerði myndi hafa áhrif á heiminn, ekki af því hún væri fræg, sem hún kvaðst ekki hafa verið þá, heldur af því að hún hafi haldið að hvert atriði í heiminum, jafnvel mynd af litlum strák og lítilli stelpu, myndi hafa áhrif til friðar. Þegar hún hafi kynnst John hafi þau samið lagið Now or Never, sem fjallað um Víetnam stríðið, og hún hafi trúað því að útkoma þess myndi örugglega breyta heimin- um og stöðva stríðið. Nú væri hún ekki svona barna- leg, og ekki svona óþolinmóð, hún heföi hins vegar ekki snúið baki við markmiðunum en þetta væri hæg þróun og mun hægari en hún hefði haldið en markmið- ið myndi nást einn góðan veður- dag. Sýning Yoko er að sögn Gunnars Kvaran, forstöðumanns Kjarvals- staða, mjög fullkomið yfirlit yfir verk hennar frá upphafi fram á þessa daga. Yoko tilheyrir Fluxus hreyfingunni sem er vafalítið eitt frumlegasta og djarfasta listform sem fram hefur komið. Þau hafna alfarið öllum hefðbundnum fag- urfræðilegum lögmálum, auk þess sem Fluxus vill afmá öll landamæri milli hversdagslegra hluta og hegðunar og þess sem nefnt hefur verið list með stóru L- i. Yoko var einn af frumkvöðlum Fluxus í New York í byrjun 7. ára- tugarins. Þekktust eru vafalítið leiðbeiningarverk hennar, þar sem hún gefur upp ákveðnar for- skriftir, oftast ljóðrænar og ein- faldar, sem áhorfandinn á að framkvæma, ýmist huglægt eða efnislega. Yoko Ono leggur sig ávallt fram við að storka viðtekn- um listhugmyndum og örva ímyndunaraflið. Sjálf segir hún að allt sé mögulegt í höfðinu á fólki. Það sé hægt að margfalda rýmin og fjarlægir tímar mætist óhindr- að og það sem meira er að aldrei sé hægt að rífa né eyðileggja hug- myndir. Sýningarnar verða opnar frá klukkan 10-20 alla daga og standa þær til 6. júní nk. —SE Tí niiiiii LAUGARDAGUR 27. APRlL 1991 Kaupþing, sparisjóðirn- ir, Búnaðarbankinn og Kaupþing Norðurlands meta greiðslugetu hús-. næðislánþega: Húsbréf allan hringinn Frá og með mánudeginum 29. apríl meta Kaupþing, sparisjóðimir, Búnaöarbankinn og Kaupþing Norðurlands greiðslugetu þeirra sem fá lán í húsbréfakerfinu. Það verk var áður í höndum Hús- næðisstofnunar ríkisins. 21. febrúar sl. samdi hún við banka og sparisjóði um að þeir tækju það að sér. Búnað- arbankinn, Sparisjóðirninr og Kaup- þing ríða á vaðið, hinir bankarnir fylgja á eftir. Nú er létt mjög á Hús- næðisstofnun og skilyrði sköpuð til þess að hún geti unnið önnur verk sín í spekt. Með þessu verður og mikil breyting á þjónustu við lántakendur. Af- freiðslustaðir verða 83 um allt land. ður mat ráðgjafastöð Húsnæðis- stofnunar greiðslugetu allra. Lands- byggðarfólk þarf ekki lengur að sækja til Reykjavíkur heldur getur látið meta sig í næsta banka eða sparisjóði. Með því styttist líka bið- tíminn. Matið tók áður nokkrar vik- ur, nú aðeins 10 daga. Eftirleiðis munu Búnaðarbankinn, sparisjóðirnir og Kaupþing því sjá um alla almenna upplýsingaráðgjöf um húsbréfakerfið, afhenda um- sóknareyðublöð og kynningarefni, aðstoða við útfyllingu eyðublaða, taka á móti umsóknum og fyigiskjöl- um, meta greiðslugetu hugsanlegra lántakenda og segja til um hámarks- verð þeirrar fasteignar sem þeir geta keypt. Fyrir þessa þjónustu verða menn að greiða 3.600 krónur. Húsnæðis- stofnun veitti hana endurgjalds- laust, og fékk vitaskuld til þess fjár- magn frá ríkinu. Þess ber að geta að þjónustan verður nú mun meiri en áður. Fimmtudaginn 2. maí halda Bún- aðarbankinn, sparisjóðirnir og Kaupþing almennan fræðslufund um húsbréfakerfið í Kornhlöðunni, sal Lækjarbrekku. Hann er hugsað- ur fyrir kaupendur og seljendur fast- eigna, núverandi og væntanlega eig- endur húsbréfa. Víst er að í framtíð- inni verða húsbréf ekki síður en spariskírteini ríkissjóðs mjög vinsæl til ávöxtunar. Fundurinn hefst kl. 20:30. -aá. Vetrarmóti Geysis lýkur í dag: Þrjár hryssur stigahæstar Þrjár hryssur eru efstar að stigum á Vetrarmóti hestamannafélagsins Geysis í Rangárvallasýslu að lokn- um þremur mótum af fjórum. Síð- asta mótið fer fram í dag, laugar- dag. Tvær efstu hryssurnar eru báðar frá Árbakka, þær Kleópatra og Sverta í eigu Anders og Lars Hansen á Árbakka. Diljá frá Skarði, í eigu Kristins Guðnasonar, er í þriðja sæti. Fjórða og síðasta vetrarmótið er í dag. Það er haldið á Hvolsvelli og hefst kl. 15. Þar verða veitt verðlaun fyrir árangur á mótunum fjórum sem haldin hafa verið í vetur. Áður en mótið hefst fer fram firmakeppni í deild Geysis á Hvolsvelli og hefst hún kl. 13. Og ef aðstæður leyfa verður einnig keppt í 150 metra skeiði. -sbs. Hryssan Sverta frá Árbakka sem er nú i öðru sætinu á vetrarmóti Geysis. Knapi er hollenskastúlkan Jasja van Veen.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.