Tíminn - 25.05.1991, Page 15
Pi!R.<
t
iW rS.
Laugardagur 25. maí 1991
ÍÞRÓTTIR
íþróttir helgarinnar:
Keppni hefst
í 3. og 4. deild
íslandsmótsins
í knattspyrnu
í dag hefst keppni á Islandsmót-
inu f knattspymu, 3. og 4. deild
karla. Þrír leikir vom þó á dagskrá
í gærkvöld, en það vom leikir Dal-
víkur og KS á 3. deild. Ármanns og
Víkverja í 4. deild og Árvakurs og
Gróttu í 4. deild.
Eftirtaldir leikir verða í dag:
3. deild
Kópavogsv. ÍK-Þróttur N. kl.15.00
Ísaíj.völl. BÍ-Völsungur kl.14.00
Ólafsfj.v. Leiftur-Magni kl.14.00
Áskógsvöll. Reynir Á-UMFS. kl.14.00
4. deild A
Þorláksh.v.Ægir-TBR kl.14.00
Njarðv.v. UMFN-Leiknir R. kl.14.00
4. deild B
Varmárvöll. UMFA-Geislinn kl.14.00
Ólafv.völl. Vík.Ól.-Stokkseyri kl. 14.00
4. deild C
Gervigrasv.Árvakur-Grótta kl.14.00
Gervigrasv. Léttir-Snæfell kl.17.00
Grafárv.v. Fjölnir-Hafnir kl.14.00
4. deild D
HvammsLv. Kormákur-SM kl.14.00
Hofsósvöll. UMF Neisti-Þiymur kl. 14.00
Blönduóvöll.Hvöt-HSÞ-b kl.14.00
4. deild E
SeyðisQ.v. Huginn-Valur Rf. kl.14.00
Sunnudagur
Sand.völl. Reynir S.-UMFB kl.14.00
Ath. breytingar frá mótabókl
Af öðmm íþróttaviðburðum um
helgina má nefna unglingamót ÍA
og ESSÓ í sundi sem fram fer á
Jaðarsbakkalaug á Akranesi, en
alls em 360 keppendur skráðir til
keppni.
Þá verður haldið opið golfmót á
Hellu — opna Endurvinnslumót-
ið, á Strandarvelli. Ræst verður út
frákl. 8.00 ídag.
Önnur keppnin á íslandsmótinu í
torfæmakstri verður haldin á Ak-
ureyri í dag. Keppnin verður hald-
in í malamámi Akureyrarbæjar,
ofan bæjarins. Það er Bílaklúbbur
Akureyrar og veitingahúsið Grei-
finn sem halda keppnina. BL
Knattspyma-Dómgæsla:
Enskur dómari
fundar meö hér-
lendum dómurum
Dómaranefnd KSÍ, í samstarfi við
Knattspymudómararfélag Kópa-
vogs, gengst fyrir fundi fyrir lands-
dómara með enska 1. deildar dóm-
aranum David Elleniy. Fundurinn
verður haldinn á ÍSÍ hótelinu á
mánudaginn 27. maí kl. 20.
Á fúndinum verða rædd viðhorf
enskra dómara til þeirra breytinga
sem gerðar hafa verðið á knatt-
spymureglunum nú nýverið. Svo
og hugmyndir um samstarf dóm-
ara og línuvarða, eftirlitskerfi með
dómurum á Englandi, áhrif breyt-
inga á aldurshámarki dómara á al-
þjóðavettvangi á enska dómara og
fleira.
Allir landsdómarar em hvattir til
þess að mæta á fundinn.
Unglinga- og héraðsdómarar:
Á þriðjudaginn 28. maí verður
haldinn árlegur fundur fyrir alla
unglinga og héraðsdómara í KDR
og KDK, þar sem farið verður yfir
helstu atriðin frá landsdómararáð-
stefnunni sem haldin var nýlega.
Dagskrá fundarins verður sem
hér segir:
1. Fyrirmæli sumarsins frá dóm-
aranefnd KSÍ kynnt
2. Umræður. 3. kaffihlé. 4. David
Elleray hinn enski mætir á fund-
inn og sýnir skemmtilegt mynd-
band frá Englandi um dómgæslu
og hvemig tekið er á enskum
dómaramálum.
Allir unglinga- og héraðsdómar-
ar eru hvattir til þess að mæta á
fundinn, sem er mikilvægt vegna
þeirra miklu breytinga sem gerð-
ar hafa verið á knattspymulögun-
um.
BL
Smáþjóðaleikarnir;
Gullin orðin 23
í gærunnust 6 gullverðlaun á
Ólympíuleikum smáþjóða I An-
dorra. Iris Grönfeldt sigraði í
spjótkasti, kastaði 56,20m. Þá
unnu sundmennimir 8 verð-
iaunapeninga í gær. Ragnheiður
Runólfsdóttir vann gull og sama
gerðu íslensku sveitimar í
4xl00m fjórsund.
Helga Sigurðardóttir og Ingl-
björg Arnardóttir unnu silfur-
verðlaun og þau Amþór Ragn-
arsson, Magnús Már Ólafsson,
Ama Þ. SveinbjÖmsdóttir og
Bryndís Ólafsdóttir unnu
bronsverðlaun.
Júdómenn hlutu 6 verðlaun í
gær, þar af 2 gull. Gullin hlutu
þeir Freyr Gauti Sigmundsson
og Eiríkur Kristinsson. Silfur
unnu Sigurður Bergmann,
Halldór Hafsteinsson og Baldur
Stefánsson. Bronsverðlaun
vann Gunnar Jóhannesson. BL
Knattspyrna - Landsliðið:
Leikið í Albaníu
í dag mætir iandsliðið í knatt-
spyrau, skipað leikmönnum 21 árs
og yngri, Albönum ytra. Á morgun
leika síðan A-landslið þjóðanna.
Líklegt byrjunarlið íslands í leikn-
um á morgun er þannig:
Bjarni Sigurðsson, Sævar Jónsson,
Guðni Bergsson, Ólafur Kristjáns-
son, Gunnar Gíslason, Þorvaldur
Örlygsson, Ólafur Þórðarson, Rúnar
Kristinsson, Sigurður Grétarsson,
Eyjólfur Sverrisson og Arnór Guð-
jónsen. Á varamannabekk yrðu því
Ólafur Gottskálksson, Einar Páll
Tómasson, Anthony Karl Gregory,
Hlynur Stefánsson og Andri Mar-
teinsson, sem kom inn í hópinn fyr-
ir Ragnar Margeirsson sem er
meiddur.
BL
Einar Þorvarðarson handknattleiksmarkvörður:
„Ekkert á hreinu hvaö
ég geri næsta vetur“
- hefur verið i viðræðum við Selfyssinga um að taka við þjálfun liðsins
„Það Iiggja engar ákvarðanir
fyrir og því er ekkert á hreinu
hvað ég geri næsta vetur. Þetta
er nokkuð snúið mál og ég ætla
að taka mér góðan tíma til að
ákveða mig,“ segir Einar Þor-
varðarson, markvörður Vals í
handknattleik og aðstoðar-
landsliðsþjálfari, í samtali við
Tímann í gær.
„í dag er það landsliðið sem
gengur fyrir en ég á erfitt með
að segja hvað gerist næstu 2-3
vikurnar."
Hverju mundir þú svara ef Þor-
bergur mundi biðja þig að fara
sjálfan í markið?
„Ég tel það ekki raunhæft fyrir
mig í dag, ekki eins og málin
standa, en ef svo færi þyrfti ég að
fara að æfa með landsliðinu
strax og taka þetta föstum tök-
um eins og áður. Ef ég fer að
spila með landsliðinu mundi það
þýða það að ég færi ekki að
skipta mér af þjálfun næsta vet-
ur, það eru alveg hreinar línur.
Ef ég hins vegar tek að mér
þjálfun kemur alveg til greina að
spila, en ég hef þó ekki mikinn
áhuga á því. Ég yrði þá aldrei
með nema í einhverju aukahlut-
verki.
Framundan eru líka spennandi
verkefni með Valsliðinu svo sem
Evrópukeppni, þannig að það er
margt sem kemur til greina,"
sagði Einar Þorvarðarson.
Þorbergur Aðalsteinsson lands-
liðsþjálfari hefur lýst því yfir að
hann hafi áhuga á því að fá Ein-
ar á ný í mark landsliðsins, en
Einar sýndi það og sannaði í úr-
slitakeppni Islandsmótsins í vor
að hann er enn besti markvörð-
ur landsins. BL
Handknattleikur:
Hallgrímur á
leið í Val?
Hallgrimur Jónasson, mark-
vörður ÍR-inga sem féllu í 2.
delid í vor, mun hafa hug á þvf
að ganga til liðs við Vaismenn
og hefur mætt á æfingar hjá fé-
laginu að undanfómu.
Geir Sveinsson iandsliðsmað-
ur, sem lék á Spáni í vetur, er
líklega á heimleið og fari svo
mun hann að öllum líkindum
leika með sínum gömiu félög-
umíVal.
Þá gætu Vaismenn einnig
misst menn, því Jón Kristjáns-
son mun vera að velta fyrir sér
að halda heim á leið og leika
með KA-mönnum næsta vetur.
Þá er einnig óvíst að Einar Þor-
varðarson leiki áfram með Val.
Ársþing HSÍ um helgina:
Búist við stormasömu þingi
- 45 breytingartillögur við reglugerðir liggja fyrir þinginu
Ársþing Handknattleikssam-
bands íslands verður haldið á
Flughótelinu í Keflavík um helg-
ina, en þingstörf hófust reyndar í
gærkvöld.
Búist er við stormasömu þingi
þar sem óvenju margar breyting-
artillögur liggja fyrir þinginu.
Meðal þess sem breyta þarf að
margra mati er keppnisfyrirkomu-
lagið í 1. deild karla. Menn eru
mjög óhressir með liðið keppnis-
tímabil, enda aðsókn að leikjum
léleg. Sér í lagi var það úrslita-
keppnin sem var algjörlega mis-
heppnuð. Fyrir þinginu liggur til-
laga frá FH um að taka upp úr-
slitakeppni með svipuðu sniði og
þekkt er úr körfuboltanum.
Þá liggja fyrir tillögur frá fram-
kvæmdastjórn HSÍ um leik-
mannaskírteini og tillaga frá ÍBV
og Fram um að leyfa tveim erlend-
um leikmönnum að leika með
hverju liði í meistaraflokki karla
og kvenna.
Rétt til þingsetu eiga 83 fulltrúar
með atkvæðisrétti, auk áheyrnar-
fulltrúa.
Jón Hjaltalín Magnússon, for-
maður HSf, gefur áfram kost á sér
til formennsku, en hann hefur
sætt nokkurri gagnrýni að undan-
förnu. BL
inirrvT ST
Tíminn 27
Námskeið og próf
vegna
löggildingar
fasteigna- og
skipasölu
Fyrirhugað er að efna til námskeiðs og prófa
vegna löggildingar fasteigna- og skipasala sem
hefst í september nk. ef næg þátttaka fæst.
Fyrirkomulag námskeiðs og prófa verður þannig:
Námskeið: Próf:
I. hluti september-desember 1991 janúar 1992
II. hluti janúar-apríl 1992 maí 1992
III. hluti september-desember 1992 janúar 1993
Kostnaður við að taka þátt í námskeiði er nú
áætlaður kr. 120 þúsund fyrir hvern námskeiðs-
hluta, en verður ákveðinn þegar fjöldi þátttak-
enda liggur fyrir. Kostnaður við þátttöku í prófi er
kr. 15.000.
Þeir, sem óska eftir að taka þátt í námskeiðinu
og/eða gangast undir próf, skulu tilkynna það til
ritara prófnefndar, Viðars Más Matthíassonar
hæstaréttarlögmanns, Borgartúni 24, 105
Reykjavík, fyrir 15. júní nk. Innritunargjald, kr.
5000, skal fylgja tilkynningu. Gjaldið er endur-
kræft ef námskeiðið fellur niður eða tilkynnandi
fellur frá þátttöku áður en námskeiðið hefst.
Nánari upplýsingar veitir dómsmálaráðuneytið,
Arnarhvoli, sími 609010.
Reykjavík, 23. maí 1991.
Prófnefnd löggiltra fasteignasala.
Frá Menntaskólanum
við Sund
Laus er til umsóknar staða námsráðgjafa (2/3
staða).
Einnig er laus til umsóknar stundakennsla í sál-
firæði (8 st. v.) og stjömufræði (11 st. v.).
Umsóknarfrestur er til 12. júní n.k.
Umsóknum skal skila á skrifstofu skólans, þar
sem rektor, konrektor og kennslustjóri veita allar
nánari upplýsingar.
Símar 33419 og 37580.
Frá Fósturskóla íslands
Umsóknir fyrir næsta skólaár þurfa að berast
fyrir 4. júní n.k.
Skólastjóri
Bændur
12 ára drengur óskar eftir að komast í sveit í sumar. Hefur áhuga
á hestum. Upplýsingar í síma 91-641874 eftir kl. 17.00.
Til sölu
heyhleðsluvagn af gerðinni KSL-280, árg. ‘82.
Uppl. í síma 98-68858.
GARÐSLATTU R
Tökum að okkur að slá garða.
Kantklippum og fjarlægjum heyið.
Komum, skoðum og gerum verðtilboð.
Upplýsingar í stma 41224, eftir kl. 18.00.