Tíminn - 04.06.1991, Qupperneq 1
sagði Þorsteinn Pálsson um bíla- og bensínskatta
Fyrrum formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Þorsteinn Pálsson, lýsti því yfir á
Alþingi fyrir rúmu ári að hækkun á
bifreiðagjöldum, þungaskatti og
bensíngjaldi, sem þá var fyrirhuguð,
kæmi með mestum þunga niður á
þeim sem kröppust hefðu kjörin og
þyldu síst viðbótarálögur. Nú stendur
til að hækka öll þessi gjöld.
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum fjár-
málaráðherra, segir að vaxtahækkan-
ir ríkisstjórnarinnar hafi komið af
stað óróleika, spennu og verðhækk-
unum í þjóðfélaginu sem ekki sjái fyr-
ir endann á. Hann segir það furðulegt
hvernig Alþýðuflokkurinn hafi yfir-
gefið allt það sem síðasta ríkisstjórn
stóð fyrir og hafi nú gerst þjónn fjöl-
skyldnanna 14. Eina skýringin sem
hann hefur á því er sú að Alþýðu-
flokkurinn sé hinn pólitíski masókisti
á fslandi. « Blaðsiða 5
UNGIR SVEINAR við malbikun í góða veðrinu í gær. Tfmamynd: Arni Bjarna
EES-samningar:
Mikil röskun í
landbúnaðinum
Eitt af markmiðum nýja búvörusamningsins er að draga svo úr framleiðslu
landbúnaðarafurða að jafnvægi verði milli framboðs og innlendrar eftir-
spurnar. Því til staðfestingar verða útflutningsbætur afnumdar. Á ráð-
stefnu Upplýsingaþjónustu bænda í gær komu fram áhyggjur um að aðild
ísiands að EES gæti leitt til alvarlegrar röskunar í íslenskum landbúnaði.
Samningsdrög að Evrópska efnahagssvæðinu fela m.a. í sér tollfrjálsan
innflutning á niðurgreiddum og útflutningsbættum landbúnaðarafurðum
frá Evrópulöndum. íslenskur landbúnaður þyrfti þá að keppa við niður-
greiddar og tollfrjálsar búvörur frá Evrópu. Þetta gæti hreinlega gengið af
íslenskum landbúnaði dauðum nema hann verði styrktur til þess að geta
mætt samkeppni við ódýrar búvörur sunnan úr álfunni.
Baksíða
KAUPSKIPA-
FLOTINN
FLUTTUR
ÚR LANDI
Aðeins 17 skip af 41 íslensku
kaupfarí eru skráð á ísiandi.
Þetta stafar af því að ýmis gjöld
eru miklu hærri hér á landi en
annars staðar. Launakostnaður
vegna íslenskra sjómanna er um
helmingi hærri en t.d. sjómanna
frá Póllandi eða Asíulöndum. Á
íslandi er mönnunarkostnaður
12-40% af tekjum útgerðarinnar.
• Blaðsíða 8
Koma þyngst niður á þeim
sem kröppust hafa kjörin