Tíminn - 05.06.1991, Blaðsíða 4

Tíminn - 05.06.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn Miðvikudagur 5. júní 1991 tengja Finnar hafa ákveðið að tengja gjald- miðil sinn, markið, við Evrópugjald- miðilinn (ECU) á föstudag. Rolf Kullberg, bankastjóri finnska seðla- bankans, tilkynnti þetta á frétta- mannafundi sem hann hélt í gær. ECU er gjaldmiðill sem miðast við gjaldmiðla aðildarríkja Evrópu- bandalagsins (EB) og tekur hann mest tillit til þýska marksins. Kullberg sagði að raungengi finnska marksins mundi sveiflast á næstu misserum um u.þ.b. þrjú prósentustig en hann sagði að emb- ættismenn í höfuðstöðvum EB í Brússel hefðu gefið í skyn að hægt væri að takmarka þá sveiflu eitt- hvað. Kullberg sagðist telja að sam- tenging gjaldmiðlanna yrði til þess að fjármagn hætti að streyma frá Finnlandi. Forsætisráðherra Finnlands, Esko Aho, sagði að erfiðleikar á mörkuð- um erlendis og hækkandi vextir hefðu knúið ríkisstjórnina til að tengja markið við ECU fyrr en áætl- að hafði verið. Ákvörðun hafði verið tekin um að tengjast ECU í haust. í yfirlýsingu finnska seðlabankans segir að engin tengsl séu, á þessu stigi, milli samtengingar gjaldmiðl- anna og samstarfs á sviði efnahags- mála eða lánsloforða. Hins vegar, segir í yfirlýsingunni, gæti finnski seðlabankinn leitað eftir lánum frá seðlabönkum ríkja EB. Svíar tengdu krónuna sína við ECU þann 17. maí síðastliðinn. Reuter-SÞJ Ríkisstjórn Albaníu segir af sér: Þingkosningar um mitt næsta sumar Rfldsstjórn kommúnista í Al- baníu sagði af sér í gær. Mikiil þrýstingur hafði verið á rflds- stjórninni um að segja af sér en um 350.000 manns höfðu verið í verkfalli í 20 daga. Þá höfðu um 100 námamenn lokað sig inn í námu og verið í hungur- verkfalli í tíu daga þegar forsæt- isráðherrann, Fatos Nano, sá sig tilneyddan til þess að biðjast lausnar fyrir sig og ríkisstjórn sína. Fráfarandi flokkur kommúnista, Verkamannaflokkurinn (PLA), og fjórir stjórnarandstöðuflokkar svo og óháðu verkalýðssamtökin hafa gert með sér samkomulag sem mið- ar að samstarfi þessara aðila við að koma á reglu í landinu, því fátæk- asta í Evrópu. Samkomulagið gerir m.a. ráð fyrir því að mynduð verði bráðabirgðaríkisstjórn með aðild allra samningsaðila og mun hún starfa fram á mitt næsta ár en þá er stefnt á að halda nýjar þingkosning- ar í landinu. Kommúnistar hafa ríkt í Iandinu samfellt í 47 ár eða frá því að harð- stjórinn og stalínistinn Enver Hox- ha komst til valda árið 1944. Þeir hafa hins vegar dregið mjög úr rót- tækri vinstristefnu og reynt að opna landið sem hefur verið mjög ein- angrað. Fyrstu frjálsu kosningarnar fóru fram í landinu fyrir tveimur mánuðum og unnu kommúnistar stórsigur, fengu tvo þriðju hluta þingsæta. Fylgi þeirra var hins veg- ar að mestu í sveitunum og biðu þeir mikla ósigra í borgunum og Um 350.000 manns höfðu verið í verkfalli í 20 daga þegar ríkisstjómin sá sig tilneydda til að segja af sér. vegna þess þótti strax ljóst að ríkis- stjórn þeirra mundi ekki endast lengi. Lýðræðisflokkurinn í Albaníu, sem á rót sína að rekja til mennta- manna, var með mesta fylgið í borg- unum. Leiðtogar hans hafa ítrekað komið í veg fyrir tilraunir Nanos og forsetans Ramiz Alia sem miðaö hafa að því að mynda stjórn í banda- lagi með Lýðræðisflokknum. Sali Berisha, leiðtogi Lýðræðisflokksins, sagði að myndun bráðabirgða- stjórnarinnar fæli ekki í sér brott- hvarf frá stefnu Lýðræðisflokksins. Hann lýsti þessu sem neyðarúrræði og vildi frekar kalla stjórnina stöð- ugleikastjórn en bandalagsstjórn. Ríkisfréttastöðin ATA greindi frá því að óháðu verkalýðssamtökin, sem eru aðilar að bráðabirgða- stjórninni, hefðu samþykkt að banna verkföll meðan stjórnin héldi velli og aflýsa hungurverkföllum um leið og dagsetning hefði verið ákveðin fyrir kosningarnar. Reuter-SÞJ Harðar loftárás- ir ísraelsmanna á Líbanon ísraelskar herþotur gerðu yfír tveggja klukkutíma loftárásir á bækistöðvar skæruliða skammt frá Sidon í Suður-Líbanon í gær. Fjórir menn létust, þar af einn skæruliði, og 28 særðust, þar af 12 börn. Þetta var önnur loftárás ísraels- manna á Líbanon á 24 klukku- stundum en áður höfðu ísraelsk- ar herþotur jafnað við jörðu upp- lýsingaskrifstofu skæruliða rétt austur af Sidon. Þá létust tveir skæruliðar og einn borgari. Herþoturnar vörpuðu sprengj- um á bækistöðvar fjögurra skæruliðasamtaka, þ.á m. stöðvar Frelsishers líbanskra súnníta (PLA) sem stjórna Sidon. Skæru- liðarnir beittu loftvarnarkerfum sínum gegn herþotunum en virt- ust ekki hafa hitt neina. Palest- ínskir skæruliðar sögðu, um það leyti sem loftárásirnar áttu sér stað, að ísraelskar hersveitir og uppreisnarsveitir hliðhollar þeim væru að styrkja stöðu sína nálægt þorpinu Kfar Falous um 10 kfló- metra austur af Sidon. Stjórnmálasérfræðingar sögðu að árásirnar væru svar ísraels- manna við nýgerðum samningi milli Sýrlendinga og Líbana sem gerir ráð fýrir nánu samstarfi ríkjanna í efnahags-, öryggis- og utanríkismálum. Margir hafa vilj- að ganga svo langt að líta á samn- inginn sem innlimun Líbanons í Sýrland en víst er að staða Sýr- lendinga í Líbanon hefur aldrei verið eins góð og einmitt nú. Þeir hafa nú um 40.000 manna herlið í landinu sem hafa yfir tvo þriðju hluta þess á valdi sínu. ísraels- menn, sem hafa hernumið um 15 kílómetra líbanskt land við landa- mæri ríkjanna, segja nýja samn- inginn ógna öryggi ísraels og að herliðið í Líbanon verði ekki dregið til baka. Reuter-SÞJ Fréttayfirlit Addis Ababa, Eþíópíu - Sprenging varÖ í vopnabirgða- stöð stjómarhersins í Addis Ab- aba, höfuðborg Eþíópíu, í gær- morgun. Óttast er að flöldi manns hafi látið liflö. Uppreisn- armenn sem náðu borginni á sitt vald f síðustu viku segja aö stuðningsmenn Mengistus, fynr- verandi forseta landsins, hafi kveikt í stöðinni. Eldar loguöu í eldsneytistönkum og næríiggj- andi húsum ffam eftir gærdegin- um og lá þykkur reykjarmökkur yfír borginni þar sem þrjár míllj- ónir búa. Moskva, Sovétríkjunum - Sovéskir hermenn drógu sig af götum Vilniusar, höfúöborgar Litháens, i gær en aðfaranótt gærdagsins tóku þeir sér stööu við mikilvægar byggingar í borg- inni og kröfðust þess að fá að Ifta á skilríki manna. Þetta atferti hermannanna vakti upp ótta um að þeír ætluðu aö láta til skarar skrföa gegn sjálfstæðissinnuð- um stjómvöldum lýðveldisins. Algeírsborg, Alsír - m mlkfHa átaka hefur komið mllli óeirða- lögreglu og ofstækissínnaðra múslima f Algeirsborg undan- fama daga en múslimamir krefl- ast þess að íslamskt ríki verði stofnaö. Stjómvöld hafa ákveðið að halda fyrstu lýðræðislegu kosningamar í landinu eftir u.þ.b. þijár vikur. I gær skaut lögreglan á mótmælendur en haföi áður látið sér nægja að sprauta vatni og dreifa táragas- hyikjum. Einn maður særðist al- varíega. Shannon, íríandi - Dick Chen- ey, vamarmálaráðherra Banda- nlqanna, sagði í gær að Banda- rikin ætiuðu að selja Sameinuðu arabísku furstadæmunum árás- arþyriur. Þetta er annar vopna- sölusamningur Bandaríkja- manna viö ríki ( Miðausturiönd- um sem Cheney greinir frá síðan George Bush, forseti Bandaríkj- anna, skýrði frá áætlun um tak- mörkun vígbúnaðar í Miðaustur- iöndum. Bonn, Þýskalandi - Sovéski herínn er enn með miklar kjam- orkuvopnabirgðir í Austur- Þýskalandi, að sögn þýsku leyniþjónustunnar, og em yfir- menn hans hræddir við að flytja sum þeirra til Sovétríkjanna þvf þeír óttast aö alvarieg slys geti oróið við flutningana. Nýja Delhí, indiandi - Helsti eríndreki Frelsissamtaka Palest- ínu (PLO) í Indlandi sagði í gær að PLO hefðu varað Rajiv Gand- hi vfð hugsanlegu morðtilræði. Nagasaki, Japan - Þrjátiu manns hafa iátist af völdum eld- gossins í eldflallínu Unzen sem er sunnariega í japanska eyja- klasanum. Karachi, Pakistan - Að minnsta kosti 22 hafa látist af völdum hrtabylgju í Pakistan. Á sunnudag og f gær komst hitinn í 53 stig á celsíus. Á þriðja hundr- að manns hafa verið fluttir á sjúkrahús með sólsting. Peking, Kína - Opinbera fréttastofan Nýja Kína skýrði frá því í gær að Jiang Qing, fyrrum eíginkona Mao Tsetung leiðtoga Kina, hafl fyrírfariö sér 14. maí síðastlióinn. Qíng var fýrst dæmd til dauða en svo var þeim dómi breytt í lífstíðarfangelsi árið 1981.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.