Tíminn - 05.06.1991, Blaðsíða 14

Tíminn - 05.06.1991, Blaðsíða 14
14 Tíminn Miðvikudagur 5. iúní 1991 Ísland-Tékkóslóvakía í kvöld: „Hentar okkur vel að leika gegn Tékkum“ - segir Sævar Jónsson landsliðsmaður „Mér líst ágætlega á leikinn gegn Tékkum, við verðum að rífa okkur upp eftir slæman leik gegn Albön- um,“ sagði Sævar Jónsson, vamar- maðurínn sterki, um leikinn gegn Tékkum í dag. Aðspurður um tapið gegn Albönum sagði Sævar að það væri ekki eins slæmt og af er látið. „Við höfum allt- af átt einn og einn slæman leik inni á milli í gegnum árin, t.d. 0-6 Ieik- inn gegn A-Þjóðverjum hérna heima, en síðan náð okkur aftur upp og gert góða hluti. Nú er um að gera að gleyma þessum leik gegn Albön- um, nú erum við á heimavelli og því munum við njóta góðs af. Það hent- ar okkur vel að leika gegn Tékkum, þeir eru með háa miðherja og reyna mikið af háum sendingum inn á þá. Okkar styrkur liggur einmitt mikið á því að við erum sterkir í loftinu. Við lékum ágætlega gegn þeim úti þótt við töpuðum 1-0. Við erum með sterkara lið núna en í síðasta leik, reynsla þeirra Atla og Arnórs vegur þungt. Vonandi koma þeir með þann rétta tóninn sem vantaði. Ég reikna með að við spilum svipað og við höfum gert, 4-4-2, en einn varnarmaður nýtist sem sóknar- maður líka, þó má segja að við spil- um sóknarfótbolta. Það verður að vera jafnvægi í liðinu, það þýðir ekki að hafa eingöngu sóknarmenn á miðjunni, en varnarmennirnir mega fylgja meira í sóknina. Við verðum að nýta færin í leiknum og þá helst að skora úr okkar íyrsta tækifæri. Það væri gott að komast yrir og setja pressu á þá, því þeir verða að vinna. Ef við náum að skora úr okkar fyrsta tækifæri þá eigum við góða möguleika. Það væri æðis- legt að vinna þá, en ég vil engu spá um úrslit. Við komum til með að gera okkar besta, náum upp baráttu- anda og svo fylgir hitt á eftir. Stuðn- ingur áhorfenda gæti gert gæfu- muninn," sagði Sævar Jónsson. BL Hverjir byrja inni á í leiknum? Byijunarlið Islands í leiknum í dag verður líklega skipað eftir- töldum leikmönnum: Bjarni Sigurðsson varður í markinu. í vöminni verða Sæv- ar Jónsson, Guðni Bergsson, Atli Gðvaldsson og Gunnar Gíslason. Á miðjunni verða Sig- urður Grétarsson, Þorvaldur Öriygsson, Rúnar Kristinsson og Olafur Þórðarson, en hann er þó meiddur og ekki kemur í jjós fyrr en í dag hvort hann getur leildð með. I fremstu víg- línu verða þeir Amór Guðjón- sen og Eyjólfur Sverrisson. Varamenn verða þá Ólafur Gottskálksson, Einar Páll Tóm- asson, Ólafur Kristjánsson, Hlynur Stefánsson, og Anthony Karl Gregory. BL jíHHppv íWpWf Pji Strákarnir í landsliðinu í knattspyrnu eru ákveðnir í að standa sig vel í leiknum gegn Tékkum í kvöld, en myndin hér að ofan var tekin á æfingu á Laugardalsvelli í gær. Tímamynd; Pjetur VIRÐISAUKASKATTUR Gjalddagi virdisaukaskatts er 5. þessa mánaðar Skýrslum til greiðslu, þ.e. þegar útskattur er hærri en innskattur, og núllskýrslum má skila til banka, sparisjóða eða pósthúsa. Einnig má gera skil hjá innheimtumönnum ríkissjóðs en þeir eru tollstjórinn í Reykjavík, bæjarfógetar og sýslu- menn úti á landi og lögreglustjór- inn á Keflavíkurflugvelli. Bent skal á að bankar, sparisjóðir og pósthús taka aðeins við skýrsl- um sem eru fyrirfram áritaðar af skattyfirvöldum. Ef aðili áritar skýrsluna sjálfur eða breytir áritun verður að gera skil hjá innheimtu- manni ríkissjóðs. Inneignarskýrslum, þ.e. þegar innskattur er hærri en útskattur, skal skilað til viðkomandi skatt- stjóra. Til að komast hjá álagi þarf greiðsla að hafa borist á gjald- daga. Athygli skal vakin á því að ekki er nægilegt að póstleggja greiðslu á gjalddaga. RSK RtKISSKATTSTJÓRI „Engin lognmolla“ - segir Atli Eðvaldsson landsliðsfyrirliði sem telur tékk- neska liðið eitt það sterkasta sem hingað hefur komið „Þetta verður erfiður leikur, Tékk- amir hafa á aö skipa einu því besta landsliði sem hingað hefur komið. Þeir urðu í 5. sæti í síðustu heims- meistarakeppni og þeir verða að ná í tvö stig í þessum leik til þess aö komast áfram upp úr riðlinum. Það væri gaman að verða til þess að svo yrði ekki,“ sagði Atli Eðvaldsson landsliðsfyrirliði um Tékkaleikinn í dag. „Tékkarnir munu ekki leyfa neina lognmollu á vellinum og ekki við heldur. Úrslitin í síðasta leik skipta engu máli núna, það er mikilvægt fyrir okkar og íslenskan fótbolta að við vinnum núna. Við förum í þenn- an leik til þess að gera góða hluti, ég er bjartsýnn og jákvæður og við munum gera þeim eins erfitt fyrir og við getum. Það lið sem vinnur fleiri návígi í leiknum stendur að lokum uppi sem sigurvegari," sagði Atli. Atli lék ekki í Albaníu, var í leik- banni, en hann hafði þetta að segja um úrslitin í þeim leik: ,Ætli strák- arnir hafi ekki dempast niður í döpru landi! Markið var óhapp eða ef til vill klaufaskapur," sagði Atli Eðvaldsson landsliðsfýrirliði, sem í dag setur nýtt landsleikjamet er hann leikur sinn 68. landsleik. BL „Þurfum að taka frumkvæðið strax í upphafi leiksins“ - segir Arnor Guðjonsen landsliðsmaður Amór Guðjónsen leikur nú á ný með landsliðinu, en hann gat ekki leikið með í Albaníu vegna meiðsla. „Það á ekki að breyta öllu þótt það vanti 1-2 leikmenn í liðið, það má ekki vera svo. Hins vegar höfum við Atli verið lengi í liðinu og höfum mikla reynslu," sagði Amór í sam- taliyið Tímann á milli æfínga í gær. „Ég er alltaf bjartsýnn fyrir leiki, við höfum sýnt það að við getum leikið vel. Við verðum að vera sam- taka og hafa fyrir því að ná góðum úrslitum. Ég tel að við þurfum að taka frumkvæðið strax í upphafi leiks, en ekki bíða eftir því að. lenda 0-1 undir." „Það skiptir ekki máli hver skorar, en það er alltaf gaman að skora í landsleikjum," sagði Arnór aðspurð- ur hvort hann ætlaði sér að skora í leiknum í dag. BL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.