Tíminn - 05.06.1991, Blaðsíða 16

Tíminn - 05.06.1991, Blaðsíða 16
 F-'.- - ■ , RÍKISSKIP NÚTIMA FLUTNINGAR Halnorfiusmu v TrYggvogotu, S 28822 Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga PÓSTFAX 91-68-76-91 Ií niinn MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ1991 m Vextir á ríkisvíxlum hækka enn frekar. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB: Öslað út í kviks 1 /nd ið Vextir á ríkisvíxlum hækkuðu í gærmorgun í 17%. Hafa þá vext- ir hækkað á ríkisvíxlum um 5% síðan ríkisstjórn Davíðs Odds- sonar tók við völdum í maíbyrjun. Með hliðsjón af þessu er við- búið að bankar hækki vexti sína enn meira en þeir gerðu nú um mánaðarmótin. Þessi vaxtahækkun hefur vakiö sterk viðbrögð forystumanna verkalýðssamtaka. Er á þeim að heyra að gerð kjarasamninga í haust verði miklum erfiðleikum háð; í kjölfar aukinnar verðbólgu sem vaxtahækkunum muni fylgja og þar með minnkandi kaupmætti muni verkalýöshreyfingin gera mun hærri kröfur. Líkur á samn- ingi í anda þjóðarsáttar fara nú minnkandi með degi hverjum. „Nú er að koma fram það sem við sögðum fyrir um og kváðumst ótt- ast þegar vextir á ríkisvíxlum voru hækkaðir í byrjun maí. Þá sögðum við að vaxtahækkun myndi leiða af sér frekari vaxtahækkanir og verð- bólgu. Þetta er að ganga eftir núna,“ segir Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. „Það er verið að keyra hér upp verðbólgu og það er hægt að setja samasemmerki milli verðbólgu og kaupmáttarskerðing- ar. Við ætlum okkur ekki að búa við kaupmáttarskerðingu. Þvert á móti eigum við innstæðu og við ætlum að ná í þá innstæðu." Ögmundur bendir á að vaxtastig- inu í landinu hefur verið kippt upp. Ástæðan fyrir því sé að veru- legu leyti sú að ríkið sé að keppa við sjálft sig. „Ríkið og kerfið allt saman er að reyna að krækja sér í peninga sem eru af skornum skammti," segir Ögmundur. -Hvernig túlkar þú þessar aðgerð- ir? „Þetta er dómgreindarskortur og ber því miður ekki vott um mikla skynsemi og aldeilis ekkert jarð- samband. Ég er ansi hræddur um að þetta einkennist af ofurtrú á markaðslögmál sem kunna að ganga einhvers staðar upp en ganga ekki upp hér nema í ein- hverjum bókum og frjálshyggju- ritum. Þetta gengur ekki upp í ís- lenskum veruleika," segir Ög- mundur. „Menn hafa dæmin fyrir sér frá fyrri árum og það er kostu- legt að menn ætli að fara út í sama farið aftur.“ Ögmundur bendir á að betra sé að bæta ástandið en að gera það verra. „Og menn eru nú að ösla út í kvik- syndið," segir Ögmundur. „Ég er fylgjandi því að menn Iáti ekki stjórnast af einhverjum kennisetn- ingum heldur af skynsemi." í haust verða kjarasamningar lausir. Ögmundur vill engu spá um framvindu mála en segir það mikið hagsmunamál að halda stöðugu verðlagi. „En með þessum aðgerð- um rísa viðsemjendur okkar ekki undir þeirri ábyrgð." Að sögn Snæs Karlssonar, fram- kvæmdastjóra Verkamannasam- bands íslands, er þungt hljóð í fé- lagsmönnum. „Það traust sem byggt var upp milli aðila vinnu- markaðarins og ríkisstjómarinnar í febrúar í fyrra hrynur nú dag frá degi,“ segir Snær. „Það er alveg augljóst að við lendum í veruleg- um erfiðleikum í haust af þessum sökurn." Snær segir víxlverkun vaxta- hækkana greinilega vera á næsta leiti og aukna verðbólgu. Það tor- veldi mjög gerð skynsamlegra samninga. Grundvöllur fyrir samningum í anda þjóðarsáttar er að hans mati að bresta. „Það er enginn vafi á því að í haust vilja menn fá bættar þær hækkanir sem verða á næstu vikum og em langt út fýrir þann ramma sem menn settu sér í fyrra," segir Snær. „Manni sýnist að þeir menn sem þarna ráða ferðinni séu bundnir í kreddukenningar efnahagslífisins og hafa ekki áttað sig á því að það verður að stýra þjóðmálum sam- kvæmt pólitískum markmiðum en ekki einhverjum efnahagslegum kreddum," segir Snær. ,Auðvitað trúir enginn á þessar aðgerðir sem grundvöll fyrir því að menn geri eitthvað af skynsemi í haust." GS. Lífríkið blómstrar Nýlokiö er áriegum vorleiðangri rannsóknaskipsins Bjama Sæ- mundssonar. Athuganir voru gerðar á 93 stöðum kringum landið, bæði á landgrunninu sjálfu og utan þess. í heild sýna niðurstöður þessa leiðangurs gott ástand sjávar og lífrílds á íslandsmiðum. Út- breiðsla hlýsjávar var mun meirí á noröurmiðum en verið hefúr und- anfarin þrjú vor. Auk hefðbundinna rannsókna í vorieiðangri voru taldir hvalir á miðunum umhverfis landið, þör- ungar voru athugaðir á Græn- landssundi og áta fyrir sunnan land. Ennfremur var safnaö kræklingi til mengunarrann- sókna. Loks var hugað aö svo- nefndum setgildrum, en þær hafa um árabil legið djúpt í hafi norð- austan og sunnan við landiö. -sbs. Landsþing FÍB Seilast stjórnvöld enn í vasa bifreiðaeigenda? Dagana 25.-26. maí fór fram 20. landsþing Félags íslenskra bif- reiðaeigenda. Yfir 30. fulltrúar af öllu landinu mættu til þings. í umræðum um stefnumótun félagsins var m.a. fjallað um vegamál, umferðaröryggi, tryggingar og umhverfismál. Þingfulltrúum var tíðrætt um þá áráttu stjómvalda að seilast æ oftar í vasa bifreiðaeig- enda. Fyrirhuguð er hækkun bensín- gjalds og frá næstu áramótum verða allir nýir bfiar að vera útbúnir hreinsikútum sem hækka útsölu- verð bfia að meðaltali um 100 þús- und krónur. Við þessar „umhverfis- vænu“ ráðstafanir fær ríkissjóður meira í kassann með auknum tolla- Ríkisstjórnin ákveður að skipa: NEFND YFIR ÚRSÖGN ÚR HVALVEIÐIRÁÐINU Á fundi sínum í gær ákvað rflds- stjómin að skipa nefnd sér til ráðgjaf- ar um úrsögn úr Alþjóða hvalveiði- ráðinu. Hún skal fara yfir lögfræðileg og þjóðréttarfræðileg atriði málsins. Undirbúa úrsögn, ef af verður, og gera tiUögur að mótun '-amtíðar- stefnu í hvalveiðimálum. Meðal ann- ars hvort koma beri á fót nýrri alþjóð- legri stofnun um rannsóknir og skyn- samlega nýtingu hvala. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanrfldsráð- herra skipa í nefndina. Það verður gert fljótlega. Sem kunnugt er þarf úrsögn úr AI- þjóða hvalveiðiráðinu að liggja fyrir í árslok. Hún tekur gildi 1. júlí 1992. í millitíðinni er ársfundur Hvalveiði- ráðsins. Hart verður lagt að íslending- um að endurskoða afstöðu sína. Er- lend umhverfisverndarsamtök og stjómvöld hafa.þegar lýst yfir and- stöðu við hugsanlega úrsögn. Fjár- hirðar hafsins, sem frægastir eru fyrír að sökkva Hvölum, hóta mótmælum í Evrópu. Fyrir þeirra atbeina er þýsk- um fýrirtækjum heimilt að segja upp 500 milljón króna samningum við Sölusamband lagmetis taki íslending- og skattatekjum af nýjum bifreiðum og auknum tekjum af bensíneyðslu. Áætlað er að bfil útbúinn hreinsikút eyði nálægt 2 lítrum meira af bens- íni miðað við 100 km akstur. Fulltrúar landsþingsins kröfðust þess að 2,4% af þjóðarframleiðslu verði varið til vegamála, eins og samþykkt Alþingis greinir á um. Rík áhersla var lögð á að auka um- ferðaröryggi m.a. með eflingu ný- stofnaðrar rannsóknarnefndar, end- urskoðun reglna um ökunám og stóraukinni umferðarfræðslu. Krafa kom fram um að viðauka við mengunarvarnareglugerð frá 1990 verði breytt á raunhæfan veg. Og hvatt til þess að nú þegar verði gengið frá reglum um lækkun tolla á bfium með mengunarvarnabúnað, til samræmis við hin Norðurlöndin. -JS ar upp á því að veiða hval. Hugsanlega er túlkun einhverra sú að það nái um leið yfir úrsögn úr Hvalveiðiráðinu. Breski sjávarútvegsráðherrann sagði í þingræðu í fyrradag að afstaða ís- lendinga væri óviðunandi og sorgleg. Hann sagðist vonast til þeir sæu sig um hönd, enda vill hann mega telja þá með siðmenntuðum þjóðum, eins og hann kallar það, sem ekki veiða hvali. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra segir þó að enn hafi ekki borið á að erlendir aðilar þrýsti á að íslend- ingar haldi sig innan ráðsins. -aá. Islensk stjómvöld mótmæla atferli sovéskra hersveita Islensk stjórnvöld mótmæla harðlega atferli sovéskra her- sveita f Litháen f fyrradag. í yfirlýsingu frá utanríkisráðu- neytinu segir, að yfirvöld f Sovétríkjunum hafí ítrekað verið vöruð við hvers konar beitingu hervalds í samskipt- um við Eystrasaltsríkin og þeim alvarlegu afíeiðingum sem slíkt getur haft fyrir vin- samleg samskipti við vestræn ríki. Eftir atburðina í Eystra- saltsríkjunum í janúar lýstu stjórnvöld Sovétríkjanna því formlega yfir að þau mundu gera allt sem f þeirra vaidi stendur til að koma í veg fyrir frekari átök og miða að sátt- um í deilunum við Eystra- saltsríkin eftir stjórnmálaleg- um leiðum. „Atferli sovéskra hersveita í gær er ekki í samræmi við þessar yfírlýsingar," segir í yfirlýsingu utanríkisráðu- neytisins. -aá.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.