Tíminn - 11.06.1991, Blaðsíða 2
2. Tíminn
Þriðjudagur 11. júní 1991
Vaxtaákvarðanir ríkisstjórnarinnar koma fram í vísitölunni:
MESTA VERDBOLGA
IHALFT ANNAÐ AR
Skuldir Síldarverk-
smiðjanna:
Ríkis*
sjóður
ábyrgur
„BSRB Iýsir fullri ábyrgð á hendur þeim sem nú hafa hrundið af
stað þeirri verðhækkanaskriðu sem ekki sér fyrir endann á,“ segir í
ályktun formannafundar BSRB sem haldinn var í gær, eftir að Hag-
stofan hafði sent frá sér vísitölu framfærslukostnaðar miðað við
verðlag í byrjun mánaðarins.
Verðbólgan er að aukast, sé miðað
við mælikvarða framfærsluvísitölu,
en verðlag í júníbyrjun reyndist 1,4%
hærra en það var í maíbyrjun og er
ríkisstjómarákvörðun um hækkun
vaxta á húsnæðislánum aðalorsök
hækkunarinnar. Þetta er mesta
hækkun vísitölu ffamfærslukostnað-
ar síðan í febrúar 1990. Vísitalan
reyndist vera 154.9 stig, en sam-
kvæmt eldri grunni mældist hún
379.9 stig.
Hækkun framfærsluvísitölunnar á
milli mánaða nú svarar til 17,7%
verðbólgu á heilu ári, en samsvarandi
hækkun síðastliðna 3 mánuði er
12,8%.
Af 1,6% hækkun vísitölunnar frá
maí til júní skiptir hækkun fjár-
magnskostnaðar vegna íbúðarhús-
næðis langmestu máli, en 0,6%
hækkunarinnar starfar af þessum
eina lið. Aðrir liðir, sem ríkisvaldið
hefur bein áhrif á og ollu hækkun
Lúðvík Geirsson, formaður Blaðamannafélags íslands,
óttast um fordæmisgildi dóms í máli Halls Magnússon-
Dæmt eftir úreltri
19. aldar lagagrein
Dómsniðurstaðan í málinu Ákæru-
valdið gegn Halli Magnússyni er
byggð á hinni margumræddu 108.
gr. almennra hegningarlaga.
Lúðvík Geirsson, formaður Blaða-
mannafélags íslands, segir 108.
greinina löngu úrelta, en hún hljóð-
ar svo:
„Hver, sem hefur í frammi skamm-
aryrði, aðrar móðganir í orðum eða
athöfnum eða ærumeiðandi að-
dróttanir við opinberan starfsmann,
þegar hann er að gegna skyldustarfi
sínu, eða við hann eða um hann út
af því, skal sæta sektum, varðhaldi
eða fangelsi allt að 3 árum. Aðdrótt-
un, þótt sönnuð sé, varðar sektum,
ef hún er borin fram á ótilhlýðilegan
hátt.“
Lúðvík Geirsson sagði að stjórn
Blaðamannafélags íslands hafi á
fyrri stigum þessa máls ályktað þar
að lútandi og talið löngu tímabært
að þessi lagagrein yrði endurskoð-
uð. Hann sagði það alvarlegt mál að
nú á tímum skuli dómar, í svo við-
kvæmum málum sem meiðyrða-
málum, vera grundvallaðir á úreltri
lagagrein. Þar njóta opinberir starfs-
menn sérstakrar verndar umfram
alla aðra þegna í þjóðfélaginu.
Lúðvík Geirsson taldi þessa laga-
grein í raun og veru ekki til annars
en að hefta almenna umfjöllun um
öll gagnrýnisverð mál. Þess vegna sé
mjög brýnt að Alþingi endurskoði
þessa lagagrein og reyndar meið-
yrðalöggjöfina eins og hún leggur
sig. -js
Hraðfrystihús Ólafsvíkur hf. verður lýst gjaldþrota í dag. Ólafs-
víkingar leita leiða úr vandanum. Stefán Garðarsson bæjarstjóri:
„Bjartsýnn á áfram-
haldandi rekstur“
„Ég er bjartsýnn á að við getum
tryggt áframhaldandi rekstur hrað-
frystihússins. Ef við byrjum á núlli
geri ég mér það í hugarlund að við
getum rekið þetta með hagnaði."
Þetta sagði Stefán Garðarsson,
bæjarstjóri í Ólafsvík, í samtali við
Tímann í gær, en í gær var unnið að
stofnun nýs hlutafélags í Ólafsvík,
svo tryggja megi áframhaldandi
rekstur frystihússins. Fyrir síðustu
helgi ákváðu Landsbankinn og
Byggðastofnun að stöðva alla fyrir-
greiðslu við Hraðfrystihús Ólafsvík-
ur hf. Sú ákvörðun kom mjög
óvænt, því bankinn hafði síðustu
mánuði unnið að endurskipulagn-
ingu á starfseminni í samvinnu við
rekstraraðila. En með stöðvun fyrir-
greiðslu eru hraðfrystihúsinu allar
bjargir bannaðar og í dag verður
óskað gjaldþrotameðferðar. Skuldir
Hraöfrystihúss Ólafsvíkur hf. eru
miklar. Landsbankinn er stærsti lán-
ardrottinn; honum skuldar frysti-
húsið yfir 200 milljónir króna og
skuld við Byggðasjóð er röskar 100
milljónir. Auk þess er um að ræða
smærri skuldir við Atvinnuleysis-
tryggingasjóð og fleiri aðila. Saman-
Iagt eru skuldirnar rúmlega 500
milljónir.
A sunnudagskvöld kom bæjar-
stjórn Ólafsvíkur saman til sérstaks
aukafundar vegna málefna hrað-
frystihússins. Á þeim fundi var
ákveðið að óska eftir því við 3 aðila
að þeir, ásamt bæjarstjórn, stofni
hlutafélag um áframhaldandi rekst-
ur í frystihúsinu. Þetta eru Útver,
sem rekur togarann Má, Útgerðarfé-
lagið Túngufell, sem á bátana sem
hafa lagt upp afla sinn hjá Hrað-
frystihúsinu, og loks Verkalýðsfélag-
ið Jökull. Þessir aðilar áttu að gefa
svör, af eða á, í gærkvöld. Ef við-
brögðin yrðu jákvæð sagði Stefán
Garðarsson að stofnað yrði hlutafé-
lag um reksturinn þegar náðst
hefðu samningar við bústjóra þrota-
búsins og fleiri aðila. „Ég er ekki
enn búinn að sjá neina rekstraráætl-
un, en ég geri mér það í hugarlund
að við getum rekið þetta með hagn-
aði. Ef það tekst ekki stöndum við
ekki í þessu, enda á ekki að stofna
nýtt hlutafélag um reksturinn í ein-
hverju bráðlæti," sagði Stefán.
„Verkalýösfélagið mun ekki skorast
undan því að gera það sem í þess
valdi er, til að koma starfsemi í hrað-
frystihúsinu af stað sem allra fyrst.
Hvort það tekst byggist náttúrlega á
viðbrögðum bústjóra, en ég sé ekki
tilgang í að standa gegn því að þarna
sé tekið á móti afla og fólk fái
vinnu,“ sagði Kristján Guðmunds-
son, formaður Verkalýðsfélagsins
Jökuls.
Hraðfrystihús Ólafsvíkur hf. hefur
verið stærsti atvinnurekandi staðar-
ins. Þar hefur um fjórðungur bæjar-
búa unnið, auk sumarfólks.
-sbs.
EKKIATTA - HELDUR
1,3 MILLJÓNIR KR.
í frétt Tímans sl. fóstudag kom það
fram í frétt um söfnunarátak til
styrktar Landgræðslunni að tæp-
lega 8 milljónir hefðu farið í rekst-
ur átaksins og ýmis gjöld.
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri vildi koma því á framfæri að
einungis 1.3 miljónir hefðu farið í
rekstrarkostnað átaksins og gjöldin,
6.5 miljónir, sem um ræðir í fyrr-
nefndri frétt, eru framlög sem Land-
græðslan fékk útgreidd á árunum
1988 og 1990.
Beðist er velvirðingar á því að þetta
kom ekki nægilega skýrt fram í
fréttinni.
vísitölunnar, voru verðhækkun á
áfengi og tóbaki sem ollu 0,1% hækk-
un og bensínhækkun sem olli 0,2%
hækkun vísitölunnar. Verðhækkun
allra annarra þjónustu- og vöruliða
ollu samtals 0,5% hækkun á vísitölu
framfærslukostnaðar.
í áðumefhdri ályktun formanna-
fundar BSRB segir að fyrra mat
bandalagsins á afleiðingum vaxta-
hækkananna að undanförnu hafi nú
sýnt sig að vera rétt. Framfærsluvísi-
talan hækki nú á milli mánaða um
1,4%, sem samsvari nær 18% verð-
bólgu á ári. Helmingur hækkunar-
innar verði rakinn beint til vaxta-
hækkananna. BSRB hefði áður varað
stjómvöld og ráðamenn í fjármagns-
kerfinu við afleiðingum vaxtahækk-
ananna og bent á að þær gengju gegn
forsendum gildandi kjarasamninga.
Með hækkun almennra vaxta og aft-
urvirkum vaxtahækkunum í hús-
næðiskerfmu hafi nú verið vegið að
þeim efnahagsstöðugleika sem aðilar
vinnumarkaðarins komu á með
kjarasamningum sínum. —BG
„Það er ótvírætt að ríkisvaldið
ábyrgist skuldir SR. Þetta er fyrir-
tæki í eigu ríkisins og við teljum að
ríkið hafi skyldur gagnvart því,“
segir Björn Líndal aðstoðarbanka-
stjóri Landsbankans.
I viðtali við Tímann í síðustu viku
sagði Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra, að ekki væri sjálfgefið
að ríkið yfirtæki skuldir Síldarverk-
smiðja ríkisins. Jafnframt kvað hann
ríkisábyrgð þurfa að koma til fyrir
300 af 700 til 800 milljóna króna
skuld fyrirtækisins og að ríkissjóður
þyrfti að yfirtaka um 500 milljónir af
skuldum þess fyrir áramót.
Um þetta sagði Björn Líndal:
„Þetta er fyrirtæki í eigu ríkisins og
ríkið hefur með rekstri þess tekið á
sig áhvílandi skuldbindingar."
Um það hvort niðurstöðu dómstóla
þyrfti til að skera úr um þetta mál
sagði Bjöm að ekki lægi nein afstaða
fyrir af hálfu bankans. Hann kvað
menn vera að ræða málin þessa dag-
ana.
-HÞ
Gesthús eru á tjaldsvæðum Selfossbúa.
Gistihúsabyggð er rísin á Selfossi:
GÓD AÐSÓKN
í GESTHÚS
Nýlega voru teldn í notkun á Sel- mundur sagði eignaraðild
fossi 11 tveggja herbergja smá- sænsku ferðaskrifstofunnar
hýsi á tjaldstæðum bæjarins, í sldpta miklu máli, því farþegar
Rauðholtum, auk 100 fermetra hennar væru stór hluti væntan-
þjónustuhúss. Það er hlutafélag- legra gesta sumarsins, enda færi
ið Gesthús sem stendur að þess- hlutur sænska ferðamanna hing-
um framkvæmdum. aö til lands ört stækkandi. -sbs.
Smáhýsín eru 11 og í hverju
þeirra eru tvö herbergi. Gert er
ráð íyrir tveimur gestum í her-
bergi, en með góðu móti geta þar
sofið fjórir, þannig að heildar-
fjöldi gesta getur orðið 88
manns. Auk þess er hægt að fá
svefnpokapiáss í þjónustuhús-
inu. Einnig munu Gesthús hafa
umsjón með tjaldsvæðum Sel-
fossbæjar, sem hafa verið vinsæl
meðal ferðamanna.
Hluthafar í Gesthúsum eru
ýmsir aðilar á Selfossi, auk
sænsku ferðaskrifstofunnar Is-
landsresebyrán í Stokkhólmi.
Guðmundur Sigurðsson, stjórn-
arformaður Gesthúsa, sagði að
rennt hefði verið blint í sjóinn Ólafur Auðunsson, hluthafi í
þegar farið var af stað með fram- Gesthúsum, ® vinstri og Guð-
kvæmdir. En allt lofaði góðu og mundur Slgunftsson stjómarfor-
mikið væri um bókanir. Guð- maöur. Tímamyndin-sbs.