Tíminn - 11.06.1991, Side 9
Þriðjudagur 11. júní 1991
Tíminn 9
Stjórnmálaályktun stjórnar SUF:
Ríkisstjórnin sýnir
ráðleysi og vanmátt
Tímanum hefur boríst eftirfarandi ályktun frá stjórn SUF:
Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna vill vekja athygli á
fálmkenndum tilburðum ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar til að
stjórna landinu.
★ Ríkisstjórnin hækkaði vexti á spariskírteinum og rfldsvíxlum
til að auka hlutdeild rfldssjóðs t sparnaði landsmanna. Bankamir
fylgdu að sjálfsögðu í kjölfarið og hækkuðu vexti til að halda sín-
um hlut gagnvart rfldssjóði. Eftir sitja þeir sem skulda með sárt
ennið en fjármagnseigendur fitna eins og púki á fjósbita.
★ Hækkun vaxta á húsnæðislánum
var næsta afrek ríkisstjómarinnar.
Þar er seilst í vasa ungs fólks sem er
að koma sér upp þaki yfir höfuðið í
stað þess að sækja auknar tekjur til
þeirra efnameiri. Nær hefði verið að
létta pressunni af íslenskum spari-
fjármarkaði t.d. með því að tak-
marka útgáfu húsbréfa eingöngu við
þá sem eru að kaupa og byggja í
fyrsta og annað skipti.
Með þessari vaxtahækkun hafa
sjálfstæðismenn formlega gengið til
liðs við Alþýðuflokkinn í því að
ganga af sjálfseignarforminu í hús-
næðismálum dauðu.
★ Ríkisstjóminni fannst ekki nóg að
gert í árásum sínum á ungt fólk og
beit höfuðið af skömminni með
stórfelldum skerðingum á framlög-
um til Lánasjóðs íslenskra náms-
manna.
★ Næst var ráðist að Iandsbyggðinni
og fyrirskipaður 350 milljóna króna
niðurskurður vegna framkvæmda
við vegagerð í hlutföllunum 14 á
höfuðborgarsvæðinu og 336 á
landsbyggðinni.
Svona aðfarir bitna mjög á smáum
verktökum landsbyggðarinnar og
væri nær að deila niðurskurðinum
jafnar. Til dæmis mætti deila fram-
kvæmdum við Þjóðleikhús og
Bessastaði niður á tvö ár.
★ Þá var eina kosningaloforð sjálf-
stæðismanna, að lækka skatta, svik-
ið og tekið til við stórfelldar gjald-
skrárhækkanir hjá hinu opinbera.
Bifreiðaskattar og bensínskattar
voru auknir og lýst var yfir fullum
vilja til að skattleggja veikindi og elli
fólks í formi aukins lyfjakostnaðar.
Stjóm Sambands ungra framsókn-
armanna vill einnig benda á að það
er ástæðulaust að auka hlutdeild
sjúklinga í lyfjakostnaði. Nær væri
að yfirvöld héldu áfram á þeirri
braut sem fyrri ríkisstjóm markaði,
að lækka álagningu söluaðila og
innflytjenda og ná þannig fram
spamaði.
Með þessum aðgerðum opinberar
ríkisstjóm Davíðs Oddssonar ráð-
leysi sitt og vanmátt til að ráðast að
rótum vandans.
Stjómarmenn í SUF em furðu
lostnir á grátkór sjálfstæðismanna í
fjölmiðlum og leiðist hann reyndar.
Sjálfstæðismenn buðu sig fram til
að taka við landsstjóminni og hefðu
mátt vita að stjómmála em annað
og meira en homsteinar og skóflu-
stungur.
Stjóm Sambands
ungra framsóknarmanna.
Ársrit Kvenréttinda-
félags íslands:
„19. |úní“
komið út
Ut er komið ársrit Kvenréttinda-
félags íslands „19. júní“. Þetta er
41. árgangur ritsins. Það hefur að
geyma greinar og viðtöl um ólík
málefni sem eiga það sameiginlegt
að snerta hagsmuni kvenna á einn
eða annan hátt. M.a. er staða
kvenna í Evrópubandalaginu til
umfjöllunar, „græn fjölskylda"
tekin tali og ástir aldraðra ræddar.
Ritstjóri er Ellen Ingvadóttir
blaðamaður en í ritnefnd voru
Anna Guðmundsdóttir, Bryndís
Kristjánsdóttir, Unnur Stefáns-
dóttir, Vilborg Davíðsdóttir, Erna
Hauksdóttir, Magdalena Schram
og Ellen Ingvadóttir.
-SIS
Kanadíska
lyfjafræðingasambandið:
V-íslendingur
í forsetastól
Emest Stefanson var nýlega kjör-
inn forseti Kanadíska lyfjafræð-
ingasambandsins á árlegri ráð-
stefnu þess í St. John á Nýfundna-
landi.
Emest hefur gegnt starfi sem
framkvæmdastjóri sambandsins
síðustu tvö árin og verið fjármála-
stjóri þess sama tímabil. Hann er
fyrrum forseti Lyfjafræðingafélags-
ins í Manitoba og var kjörinn lyfja-
fræðingur ársins þar í borg árið
1990.
Foreldrar Emest em hjónin Olla
og Stefán J. Stefánsson, sem flestir
er sótt hafa íslendingabyggðir heim
munu þekkja. Þau hjón hafa sýnt
íslandi mikla tryggð og hafa komið
hér tuttugu og fimm sinnum.
:
mim i i ' ■■■; IT"' ^ ■ -f^Í »»».#: ,,.m
ÞESSA DAGANA er verið að Ijúka framkvæmdum við móttökustöðvar Sorpu víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu. Þangað verður
fólk nú að fara þegar það losar sig við msl, annað en húsasorp. Ruslinu verður að skila flokkuðu á móttökustöðvarnar. Á meðfylgjandi
mynd sjáum við móttökustöðina í Ánanaustum. Tfmamynd: Pjetur
Snæfellingar skora á þingmenn og Vegagerð:
ÚTNESVEGUR VERÐI
GERÐUR VETRARFÆR
íbúar á Snæfellsnesi skora á þing-
menn Vesturlands og Vegagerð ríkis-
ins að beita sér fyrir uppbyggingu Út-
nesvegar frá Gufuskálum að vega-
mótum Fróðárheiðar. Þetta kemur
fram í áskorunarbréfi sem tæplega
átta hundruð fbúar Breiðdalsvíkurs-
hrepps, Neshrepps utan Ennis, ÓI-
afsvíkurbæjar og Staðarsveitar hafa
undirritað. Upphaf þessarar áskorun-
ar má rekja til áskorunar lækna í Ól-
afsvíkurhéraði þar sem þeir hvetja
einnig til uppbyggingar Útnesvegar
og tekið verði tillit til vetrarumferðar
á veginum. Þeir vilja að Vegagerðin
annist snjómokstur á vetuma, tvo
daga vikunnar, og óska eftir samstarfi
við Vegagerðina varðandi snjóruðn-
ing utan reglubundins tíma þegar um
bráðasjúkdómatilfelli eða sfys er að
ræða. MéU sínu til stuðnings benda
þeir á að öll læknisþjónusta fari fram
á Heilsugæslustöðinni í Ólafsvík og
jrví sé mjög brýnt að samgöngur inn-
an læknishéraðsins séu sem bestar.
Fólk þurfi að geta komist til Ólafsvík-
ur á daginn og læknar þurfi að geta
farið frá Ólafsvík til annarra svæða í
sambandi við vitjanir.
Finnbogi Lárusson, einn af undir-
búningsmönnum áskorunarinnar,
sagði að ástand vegarins væri ágætt
núna en á vetuma væri vegurinn
mjög sjaldan mokaður. Fróðárheiði
hefði ávallt verið mokuð en langt um
minni snjór væri á Útnesvegi. Litlir
bílar hefðu þurft að snúa við af heið-
inni vegna hálku og þurft því að nota
Útnesveg í staðinn en þá hefði hann
oft verið illfær. Finnbogi sagði að það
vantaði burðarþol í veginn á tveimur
stöðum og þar væri oft mikill aur. Því
hefðu bflar ekki komist veginn vegna
aurs á vetuma. Veginum hefði verið
illa haldið við á síðustu árum og því
væri það mikil og áríðandi samgöngu-
bót að fá veginn lagfærðan.
-UÝJ
Vtnnuskólinn byrjaður:
1700 krakkar
verið ráðnir
Vmnuskólinn í Reykjavík hefur
tekiö tll starfa. Um 1700 krakk-
ar, fæddir 1976 og 1977, hafa
verið ráðnir. Krökkunum er
skipt í 90 hópa og munu vlnna
við hreinsun og snyningu í
borginni, Heiðinörk, Nesjavöll-
um og víðar. Tveir hópareru sér-
staklega sniðnir fyrir fatlaða.
Það er fjórða sumarið sem slflar
hópar eru starfræktir og hefur
það gefist vel. Krakkamir sem
fæddir eru 1977 vinna 4 tíma á
dag og eru með 165 krónur á
tímann. Þeir sem eru fæddir
1976 vinna allan daginn og hafa
187 krónur á tímann.
Vinnuskólinn stendur í tvo
mánuði og hættir 2. ágúst. -SIS
íslensk fréttamynd hlýtur viðurkenningu:
íslensk mynd verðlaunuð
Fréttamynd Sjónvarpsins „Út-
skúfað úr sæluríkinu" fékk
fyrstu verðlaun í flokki heim-
ildamynda um hjálparstarf á
kvikmyndahátíð búlgarska
Rauða krossins í Varna í Búlgar-
íu. Myndin var gerð í Rúmeníu í
febrúar og mars f fyrra og keppti
við 38 myndir frá 16 löndum á
kvikmyndahátíðinni. Hún fór
fram í vikunni sem leið.
Árni Snævarr fréttamaður
gerði myndina ásamt Birnu
Björnsdóttur upptökustjóra og
Þór Ægissyni kvikmyndatöku-
manni.
„Útskúfað úr sæluríkinu" var
einnig valin meðal bestu
mynda á sjónvarpshátíð í Varsjá
í Póllandi í desember síðast-
liðnum.