Tíminn - 11.06.1991, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 11. júní 1991
Erfiðíeikar bæði
innanlands og utan
Nokkrir Austur-Þjóðverjar köstuðu eggjum í Kohl þegar hann kom við í borginni Halle í Austur-Þýska-
landi. Á myndinni sjást öryggisverðir halda aftur af kanslaranum þegar hann ætlaði að ráðast á eggja-
kastarana.
Þegar þýsku ríkin samein-
uðust formlega í október
á síðasta ári virtist
Helmut Kohl, þá kanslari
Vestur-Þýskalands, hafa
alla þræði í hendi sér og
menn bjuggust við sam-
einingin myndi ganga
greiðlega fyrir sig. Nú
hins vegar virðist allt
ganga brösuglega og
menn spyija sig þeirrar
spumingar hvort Kohl
muni takast að leiða sam-
eininguna til lykta.
Vinsældir kanslarans í austur-
hlutanum hafa hrunið í kjölfar
versnandi efnahags og mikils at-
vinnuleysis. Þegar hann var á
ferð í austur-þýsku borginni
Halle, í byrjun maí, köstuðu
nokkrir Austur- Þjóðverjar eggj-
um í hann. Stjórnmálaflokkur
Kohls, Kristilegi demókrata-
flokkurinn, hefur beðið mikla
ósigra í bæjar- og sveitarstjórn-
arkosningum í Vestur- Þýska-
landi. Kosningaósigrana má
rekja til skattahækkana sem
gerðar hafa verið til að fjármagna
sameininguna en eins og kjós-
endum er enn í fersku minni
hafði Kohl lofað að til þeirra
þyrfti ekki að koma. Átök hafa
verið innan ríkisstjórnarinnar og
frjálslyndir demókratar, sam-
starfsmenn Kohls í ríkisstjórn-
inni, vita ekki í hvorn fótinn þeir
eigi að stíga.
Hnignunin er einnig augljós í
utanríkispólitíkinni. Þjóðverjar
hafa verið gagnrýndir harkalega
fyrir að hafa ekki tekið á sig
meiri ábyrgð í Persaflóastríðinu
en raun bar vitni. Einnig virðist
vera talsverður ágreiningur milli
Kohls og utanríkisráðherrans
Hans- Dietrichs Genschers um
stefnuna í utanríkismálunum.
Þetta ásamt miklum erfiðleikum
varðandi sameininguna vekur
upp spurningar hvort raunhæft
sé fyrir Kohl að skipta sér af
heimsmálunum og taka á sig
miklar ábyrgðir þar að lútandi.
Hvort hann sé í stakk búinn til
að gegna forystuhlutverki í Evr-
ópu.
Kanslarinn hefur ávallt verið
talinn hæfileikaríkur stjórnmála-
maður en margir sem þekkja
hann persónulega segja að hann
hafi ofreynt sig. Sameining
þýsku ríkjanna og þingkosning-
arnar á síðasta ári hafi dregið úr
honum allan mátt, bæði andleg-
an og líkamlegan. Kohl komst til
valda á svipuðum tíma og Margr-
ét Thatcher og Ronald Reagan
þegar mikil hægri sveifla var
Þýskalandi, Bandaríkjunum og
Bretlandi á níunda áratugnum.
Nú þegar Thatcher og Reagan
hafa horfið af sjónarsviðinu
spyrja margir sig þeirrar spurn-
ingar hvort tími Kohls sé ekki að
verða útrunninn.
En atburðir síðustu missera
sýna að hann mun ekki leggja ár-
ar í bát án þess að berjast af
krafti. Hann fékk því m.a. fram-
gengt að þýskir hermenn væru
sendir til hjálparstarfa í íran
þrátt fyrir mikla andstöðu í
Þýskalandi gegn afskiptum
landsins af Persaflóastríðinu og
afleiðingum þess. Þá hefur hann
barist hatrammlega fyrir því að
stjórnarsetrið verði flutt frá
Bonn til Berlínar en skoðanir
manna í Þýskalandi eru mjög
skiptar um það mál. Einnig hefur
hann komið á skattahækkunum
til þess að fjármagna sameining-
þenslu hefur hann hækkað vext-
ina, Bandaríkjamönnum, Frökk-
um og Bretum til mikillar
gremju, en efnahagur þessara
þjóða er nú í mikilli lægð.
Kohl þarf ekki að boða til kosn-
inga fyrr en árið 1994 en það eru
samt nokkur mál sem geta orðið
stjórninni að aldurtila s.s. vax-
andi atvinnuleysi í Austur-Þýska-
landi og flóttamannastraumur
frá Sovétríkjunum og Austur-
Evrópu til Þýskalands. Einnig
gætu ósigrarnir í bæjar- og sveit-
arstjórnarkosningunum orðið til
þess að stjórnin springi. En ólík-
legt er taíið að Kohl verði bolað
frá af sínum eigin flokksbræðr-
um þrátt fyrir nokkurn ágreining
innan flokksins. Vandséð er hver
ætti að vera eftirmaður Kohls.
Samkvæmt skoðanakönnunum
hefur Kristilegi demókrataflokk-
urinn nú aðeins 28% fylgi kjós-
enda á móti 38% fylgi jafnaðar-
manna. Um 52% segjast vilja
hinn nýja leiðtoga jafnaðar-
manna, Björn Engholm, sem
kanslara en 46% segjast styðja
Kohl.
Það sem einkum hefur veikt
stöðu Kohls er vanmat hans á
vandamálunum við sameiningu
þýsku ríkjanna. Kohl hefur sagt
trúnaðarvinum sínum að hann
hafi ekki getað ímyndað sér að
tölurnar um efnahagsástandið í
Austur-Þýskalandi gætu verið
svo rangar. Þá hefur gildismat og
kröfuharka Austur-Þjóðverja
komið kanslaranum á óvart.
Oft er litið á uppbyggingu Aust-
ur- Þýskalands sem prófraun á
því hvort hægt sé að reisa Aust-
ur-Evrópu úr öskustónni. Með
örðum orðum, ef Þjóðverjum
tekst ekki að bjarga Austur-
Þýskalandi tekst ekki að bjarga
Austur-Evrópu. Kohl gerir sér
grein fyrir því og því að ferill
hans sem stjórnmálamanns er í
veði.
Þýtt og endursagt úr The New York Times
- SÞJ
una og til að koma í veg fýrir
Konan mfn, móðir okkar og tengdamóðir
Hansína Jónsdóttir
Kambsvegi 33, Reykjavfk
lést af slysförum fimmtudaginn 6. júní
Hafsteinn Guðmundsson
Jónína Hafsteinsdóttir Ármann Einarsson
Guðmundur Hafsteinsson Þórhildur S. Sigurðardóttir
Hafsteinn Hafsteinsson Kristín Magnúsardóttir
Gerður H. Hafsteinsdóttir Runólfur E. Runólfsson
og aðrir vandamenn
i}
Astkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Hjörleifur Magnússon
fv. bæjarfógetafulltrúl
Sigluflrði
lést á Borgarspítalanum laugardaginn 8. júní sl.
Herdís Hjörleifsdóttir
Magnús Þ. Hjörleifsson
Jóhanna Hjörleifsdóttir
Þorkell Hjörleifsson
Edda Hjörleifsdóttir
Guðrún Hjörleifsdóttir
Kristín Hjörleifsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Stefán Ólafsson
Giovanna Hjörleifsson
Geir Pétursson
Stefanía Vigfúsdóttir
Viktor Már Gestsson
Páll E. Ingvarsson
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka
I Reykjavlk 7.-13. júnf er I Árbæjarapóteki
og Laugamesapóteki. Þaó apótek sem fyrr
er nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 aó
kvöldi tll kl. 9.00 að morgni vlrka daga en kl.
22.00 á sunnudögum. Upplýslngar um
læknls- og lyfjaþjónustu eru gefnar I slma
18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátlðum. Sím-
svari 681041.
Hafnarfjörður: Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I slmsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartfma búða. Apó-
tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið I þvl apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja-
fræðingur á bakvakL Upplýsingar eru gefnar I
slma 22445.
Apótek Keflavlkur: Opið virka daga frá k.
9.00-19.00. Laugardaga, helgidaga og al-
mennafrldaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vostmannaeyja: Opið virka daga frá
kl. 8.00-18.00. Lokaö I hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30.
Opiö er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opiö virka daga
til kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekiö er opiö rúmhelga daga
kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Alnæmisvandlnn. Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann vilja styöja smitaöa og sjúka
og aöstandendur þeirra, sími 28586.
Læknavakt fyrir Reykjavfk, Seltjamarnes og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöö Reykjavikur
alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar-
dögum og helgidögum allan sólarhringinn.
Á Soltjamamosi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 og laugard. Id. 10.00-11.00. Lokaö á
sunnudögum.
Vitjanabeiönir, slmaráöleggingar og tlmapant-
anir I sima 21230. Borgarspitalinn vakt ffá kl.
08-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (sími
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuöum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúðir og læknaþjónustu emgefnar I sím-
svara 18888.
Ónæmisaðgerðirfyrirfulloröna gegn mænusótt
fara fram á Hellsuvemdarstöö Reykjavíkur á
þriðjudögum Id. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmisskfrteini.
Garðabæn Heilsugæslustöðin Garöafiöt 16-18
er opin 8.00-17.00, slmi 656066. Læknavakt er I
síma 51100.
Hafnarflörður: Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga Id. 8.00-
17.00, simi 53722: Læknavakt slmi 51100.
Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Slmi 40400.
Keflavlk: Neyöarþjónusta er allan sólarhringinn
á Heilsugæslustöö Suðumesja. Slmi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráögjöf i
sátfræðilegum efnum. Sími 687075.
Landspítallnn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19
til kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadelld: Alla daga vikunnar kl.
15-16. Heimsóknartimi fyrir feður kl. 19.30-
20.30. Barnaspitall Hringsins: Kl. 13-19 alla
daga. Öldrunarlækningadeild Landspítal-
ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu-
lagi. - Landakotsspítali: Alla virka kl. 15 til kl.
16 og kl. 18.30 til 19.00. Bamadeild 16-17.
Heimsóknartlmi annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. - Borgarspítallnn I Fossvogi:
Mánudaga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og
eftir samkomulagi. Á laugardögum og sunnu-
dögum kl. 15-18.
Hafnarbúðir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvfta-
bandið, hjúkmnardeild: Heimsóknartlmi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14-19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavlkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspitali:
Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl.
19.30. - Flókadoild: Alla daga kl. 15.30 til kl.
17. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl.
17 á helgidögum. - Vifiisstaöaspitali: Heim-
sóknarllmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. -
SL Jósepsspftali Hafnarflrði: Alla daga kl.
15-16 og 19-19.30._______________________
Sunnuhllð hjúkrunarheimili i Kópavogi: Heim-
sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavfkurlæknlshéraðs og
heilsugæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólar-
hringinn. Slmi 14000. Keflavlk-sjúkrahúslð:
Heimsóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30.
Um helgar og á hátlðum: Kl. 15.00-16.00 og
19.00-19.30. Akureyri- sjúkrahúsið: Heim-
sóknartlmi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-
20.00. Á bamadeild og hjúkmnardeild aldraðra
Sei 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofusimi frá
kl. 22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akra-
ness: Heimsóknartlmi Sjúkrahúss Akraness er
alla daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavik: Seltjamames: Lögreglan sími
611166, slökkviliö og sjúkrabifreiö sími 11100.
Kópavogur: Lögreglan slmi 41200, slökkviliö
og sjúkrabifreiö slmi 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan slmi 51166, slökkvi-
lið og sjúkrabifreið slmi 51100.
Keflavik: Lögreglan simi 15500, slökkviliö og
sjúkrabill simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjan Lögreglan, slmi 11666,
slökkviliö simi 12222 og sjúkrahúsiö slmi
11955.
Akureyrí: Lögreglan simar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabifreiö slmi 22222.
Isafjörður: Lögreglan sími 4222, slökkviljö simi
3300, bmnasimi og sjúkrabifreiö slmi 3333.