Tíminn - 11.06.1991, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 11. júní 1991
Tíminn 15
Knattspyrna — Samskipadeild:
FJÖRUGAR LOKAMÍNÚTUR
Það var heldur leiðinlegur leikur og
grófur, sem leikinn var á Víkingsvelli
við Stjömugróf á sunnudagskvöld, er
Víkingar fengu KR-inga í heimsókn.
Fjögur mörk á síðustu 20 mín. Ieiksins
voru þó sárabót fyrir þá áhorfendur
sem lögðu leið sína á leikinn. KR-ing-
ar mega vel við una, en 1-4 sigur þeirra
— eftir tvo sigra í Los Angeles um helgina
r,11991
hlNBA
PIAYDFFS-
Chicago Bulls er nú aðeins einum
sigri frá því að tryggja sér sigur í
bandarísku NBA- körfuknattieiks-
deildinni, eftir að hafa lagt Los
Angeles Lakers tvrvegis að velli í Los
Angeles um helgina. Chicago hefur
3-1 yíir í viðureigninni og liðið fær
nú þrjár tilraunir til þess að tryggja
sér titilinn. Lið, sem hefur verið 1-3
undir í úrslitum deildarinnar, hefur
aldrei náð að sigra.
Á föstudagskvöld vann Chicago 8
stiga sigur á Lakers 96-104 í fram-
lengdum leik. Leikurinn var gríðar-
lega spennandi. Staðan eftir fyrsta
leikhluta var jöfn 25-25, en í leikhléi
var Chicago 1 stigi yfir 47-48. Lakers
náði mjög góðum kafla í þriðja leik-
hluta, komst í 67-54 og var 72-66 yf-
ir þegar fjórði leikhluti hófst. Chic-
ago jafnaði 74- 74 og eftir það var
leikurinn í járnum. Besti maður La-
Michael Jordan er af mörgum
talinn fremsti íþróttamaður
heims í dag. Það, sem hann
hefur hingað til vantað uppá
enn frekari frama, er sigur í
NBA-deildinni. Nú er sá sigur í
sjónmáli.
kers í leiknum, Vlade Divac, kom La-
kers 2 stigum yfir 92-90, þegar 11
sek. voru eftir. Michael Jordan átti
síðasta orðið fyrir Chicago og jafnaði
leikinn 92-92 þegar 3 sek. voru eftir.
í framlengingunni hafði Chicago yf-
irburði, hittni Lakers var engin og
Jordan fór á kostum og tryggði liði
sínu 96-104 sigur. Jordan var stiga-
hæstur í liði Chicago með 29 stig,
Horace Grant gerði 22 og Scottie
Pippen 19 stig. Sam Perkins gerði 25
stig, Divac gerði 24 stig og Magic
Johnson 22 fyrir Lakers.
Annað tap Lakers í Forum
Á sunnudag gerðu flestir ráð fyrir að
Lakers næði að hefna fyrir tapið og
jafna metin í viðureigninni, en svo
fór þó ekki. Enn var það Vlade Divac
sem hélt Lakers á floti með stórleik.
Hann gerði 11 stig í fyrsta leikhluta
og Lakers leiddi 28-27. Chicago náði
fljótlega yfirhöndinni og var 44-52 yf-
ir í leikhléi. í þriðja leikhluta hafði
Chicago yfirburði, hittni Lakers var
engin og þegar fjórði leikhluti hófst
hafði Chicago 58-74 yfir. Lokatölur
voru 82-97.
Vlade Divac gerði 27 stig, Magic
Johnson 22 og James Worthy 12.
Fyrir Chicago skoraði Michael Jord-
an 28 stig, John Paxson 15, Horace
Grant og Scottie Pippen 14 hvor og
Bill Cartwright 12.
James Worthy varð að yfirgefa völl-
inn vegna ökklameiðsla í þriðja leik-
hluta og sömu leið fór Byron Scott í
fjórða leikhluta. Scott skoraði í þriðja
leikhluta sína fyrstu körfu í 115 mín.
í leikjunum gegn Chicago. Ekki er
víst að þeir félagar Worthy og Scott
geti leikið með á miðvikudagskvöld
(aðfaranótt fimmtudags að ísl. tíma),
vegna meiðslanna.
Það var góður varnarleikur Chicago
sem gerði gæfumuninn sem fyrr.
Liðið hélt Lakers í 36,6% skotnýt-
ingu í leiknum.
„Nú höfum við góða möguleika á að
klára dæmið, við höfum þrjú tæki-
færi til að vinna einn leik,“ sagði
Jordan eftir leikinn, en hann lék
meiddur á tá, en lét það ekki hafa
mikil áhrif á sig. „Það átti enginn von
á því að við myndum ná slíkum yfir-
burðum gegn jafn frægu og virtu liði
eins og Lakers. Jafnvel við sjálfir átt-
um ekki von á því að komast 3-1 yfir,“
sagði Jordan.
En Magic Johnson, sem fjórum
sinnum hefur orðið meistari með La-
kers, er bjartsýnn þrátt fyrir að útlit-
ið sé svart. „Við getum ekki gert neitt
VALSMENN Á TOPPINN
Valsmenn sigruðu Framara 0-1 í slök-
um leik á Laugardalsvelli í gærkvöld í 1.
deðdinni í knattspymu. Sigurmark Vals-
manna gerði Ágúst Gylfason þegar
stundarijórðungur var til leiksloka.
Fyrri hálfleikur var með því daufara sem
sést hefúr lengi. Bæði liðin fengu þó færi
til að skora, en sóknir Fram voru hættu-
legri. Bjami Sigurðsson bjargaði vel á
38. mín. er hann varði skot Péturs Am-
þórssonar. í síðari hálfleik voru það Vals-
menn sem voru líklegri til að skora og
markið kom á 75. mín. Birkir Kristins-
son missti boltann eftir homspymu og
Ágúst Gylfason skoraði af stuttu færi.
Stuttu síðar sleppti Eyjólfur Ólafsson,
dómari leiksins, vítaspymu á Val, er
Steinar Guðgeirsson var felldur í víta-
teignum. En það voru Valsmenn sem
voru nær því að skora og áttu þeir skot í
þverslá þegar 10 mín. voru til leiksloka.
Síðustu mín. leiksins var mikil pressa á
mark Vals, en vöm þeirra var sterk og
stigin þrjú vom í höfn.
Menn leiksins, Fram: Enginn. Valun
Bjami Sigurðsson og Ágúst Gylfason.
Eyjólfur Ólafsson átti þokkalegan dag í
dómgæslunni. BL
Knattspyrna — Unglingalandslið:
ÍSLAND MÆTIR WALES
í MOSFELLSBÆ í KVÖLD
— tveimur leikjum í 1. deild frestað af þeim sökum
í kvöld mætir íslenska unglinga-
landsliðið í knattspymu liði Wales-
búa í Mosfellsbæ, en leikurinn er
liður í Evrópukeppni.
íslenska liðið, sem þjálfað er af
Herði Helgasyni, hefur verið valið
og er það skipað eftirtöldum leik-
mönnum:
Markverðir
Friðrik Þorsteinsson Fram
Eggert Sigmundsson KA
AÖrir leikmenn
Óskar Þorvaldsson KR
Flóki Halldórsson KR
Auðunn Helgason FH
Einar Baldvin Árnason KR
Sturlaugur Haraldsson ÍA
Pálmi Haraldsson ÍA
Þórður Guðjónsson ÍA
Rúnar Sigmundsson Stjörnunni
Arnar Arnarsson Fram
Helgi Sigurðsson Víkingi
Kári Sturluson Fylki
Kristinn Lárusson Stjörnunni
Rútur Snorrason ÍBV
Hákon Sverrisson UBK
Úrslit leikja í riðlinum hafa verið
þessi:
Ísland-England................2-3
Belgía-Ísland.................1-1
Wales-England.................0-1
England-Wales.................3-0
Wales-Belgía..................1-1
England-Belgía................0-0
Leikurinn í kvöld hefst kl. 20.00.
Dómari verður Styrbjörn Óskarsson
frá Finnlandi.
Vegna leiksins hafa Stjarnan og
UBK óskað eftir að leikjum þeirra á
morgun í 1. deild, verði frestað.
Mótanefnd KSÍ hefur orðið við þeim
óskum. Leikur Stjörnunnar gegn
Víði verður því á fimmtudagskvöld
kl. 20 og leikur UBK gegn FH á
föstudagskvöld á sama tíma.
BL
þeir ekki betur en á sunnudagskvöld.
Fýrri hálfleikur var drepleiðinlegur.
Ragnar Margeirsson kom KR yfir með
skallamarki eftir homspymu á 40.
mín. og var það í eina skiptið í hálf-
leiknum sem hætta var í vítateigum
liðanna.
Síðari hálfleikur var öllu skárri og
bæði lið fengu marktækifeeri áður en
Víkingar jöfnuðu leikinn á 68. mín.
Helgi Sigurðsson drengjalandsliðs-
maður, sem kom inná sem varamaður
fyrir Tomislav Bosnjak, var felldur inn-
an vítateigs og Guðmundur Steinsson
skoraði af öryggi úr vítinu, 1-1.
Þar með var tónninn gefinn og síð-
ustu 15 mín. leiksins var mikið fjör á
vellinum. Á 74. mín. skaut Gunnar
Skúlason rétt yfir úr góðu feeri frá víta-
teig. Guðmundur Hreiðarsson, mark-
vörður Víkinga, bjargaði vel með út-
hlaupi á 76. mín. og upp úr næstu
sókn Víkinga varði Ólafur Gottskálks-
son vel frá Guðmundi Steinssyni. í
næstu sókn KR var Pétur Pétursson
felldur í vítateig og úr vítaspymunni
skoraði hann sjálfur 1-2.
Áfram sóttu KR-ingar. Eftir þunga
sókn á 83. mín. átti Gunnar Skúlason
laust skot á mark Víkinga og viti
menn, inn fór knötturinn 1-3. Á sömu
mín. varði Ólafúr mjög vel gott skot
Helga Sig. og aftur stuttu síðar frá
Guðmundi SL Tveimur mín. fyrir
leikslok bmnaði Atli Eðvaldsson upp
hægri kant, gaf vel fyrir markið á
Ragnar Margeirsson sem skallaði í
netið 14.
Leikurinn var grófur, eins og fleiri
leikir nú í sumar, og þrír leikmenn
þurftu að fara af leikvelli meiddir.
Áberandi er hve algengt slíkt hefur
verið í þeim leikjum sem búnir eru, en
vonandi minnkar harkan og knatt-
spyman mætti gjaman batna.
Menn leiksins, Víkingur: Atli Helga-
son. KR: Ólafur Gottskálksson, Atli
Eðvaldsson og Ragnar Margeirsson.
BL
var heldur stór miðað við gang leiks-
ins. Víkingar, sem virtust líklegir til að
blanda sér í toppbaráttuna, virðast
ekki líklegir til afreka í sumar, leiki
Guðmundur Steinsson Víkingur á
hér í höggi við Þormóð Egilsson
KR-ing. Viðskiptum þeirra lauk
með því að Guðmundur lá eftír og
vildi fá vítaspymu. Hægra megin á
myndinni fylgist Gunnar Oddsson
KR-ingur með framvindu mála
Tímamynd Pjetur
annað en reynt að leika betur og von-
andi hitt úr einhverjum skotum. Við
stöndum andspænis dómsdegi.
Keppnistímabilið er búið ef við töp-
um einum leik enn. Við verðum að
finna einhverja lækningu við því sem
að er,“ sagði Magic Johnson.
CHICAG0 MEISTARAR?
Knattspyma - SAMSKIPADEILD:
Hálftíma fjör
Úrslitin í leik FH og ÍBV á
laugardaginn réðust fyrsta
hálftíma leiksins. Hörður
Magnússon kom FH yfir með
skallamarki, eftir aukaspyrnu
Andra Marteinssonar á 8. mín.
Eyjamenn misnotuðu víta-
spyrnu á 27. mín. er Hlynur
Stefánsson skaut framhjá.
Hlynur var aftur á ferðinni á
29. mín., gaf þá á Leif Haf-
steinsson sem jafnaði leikinn
1-1 og þar við sat.
Fyrsta mark
Víðismanna
Víðismenn gerðu sitt fyrsta
mark í 1. deildinni í sumar á
laugardaginn er þeir tóku á
móti Breiðabliksmönnum í
Garðinum. Ekki dugði það til
sigurs, þar sem Blikar skoruðu
tvívegis.
Grétar Steindórsson kom
Blikum yfir í lok fyrri hálfleiks,
en Steinar Ingimundarson
jafnaði fyrir Víði um miðjan
síðari hálfleik, en sigurmark
Blikanna gerði Willum Þórs-
son.
KA fékk sín
fyrstu stig
KA-menn unnu sinn fyrsta
leik á sunnudagskvöldið og
fengu einnig sín fýrstu stig í
deildinni. Það voru Stjörnu-
menn úr Garðabæ sem urðu að
lúta í Iægra haldi gegn norðan-
mönnum, sem skoruðu eitt
mark gegn engu. Sigurmarkið
gerði Erlingur Kristjánsson
með skalla í fyrri hálfleik. BL
Knattspyrnuúrslit
1. deild kvenna
ÍA-Þór ...................7-0
KR-Týr ...................6-0
Þróttur Nes.-Breiðablik...1-2
2. deild kvenna:
Sindri-Súlan ............11-0
4. deild karla:
Einherji-Austri...........5-2
Sindri-KSH ...............1-1
Höttur-Leiknir ...........0-0
Mjólkurbikarkeppnin:
1. umferö
ÍR-ÍBK....................0-4
2. umferö
ÍA-Árvakur ...............5-0
Stokkseyri-ÍK.............1-9
Haukar-Grótta.............6-3
Víkverji-Þróttur R........1-4
Bolungarvík-Fylkir .......0-5
KS-Þór ...................1-6
Reynir Á.-Tindastóll .....1-2
Dalvík-Völsungur..........2-1
Kormákur-Leiftur .........0-1
Erlend úrslit
• Tottenham mátti þola stórt
tap um helgina í Japan 4-0 fyrir
landsliði heimamanna.
• Juventus gerði markalaust
jafntefli gegn bandaríska lands-
liðinu í New Haven í Connect-
icut um helgina.
• London Monarchs sigraði
Barcelona Dragons 21-0 í úr-
slitaleik heimsdeildarinnar í
amerískum fótbolta WLAF,
„World Bowl“, á Wembleyleik-
vanginum í London á sunnudag
og varð því fyrst liða til að fagna
sigri í þessari nýju deild.
• Liverpool hefur áhuga á að
kaupa þá Dean Saunders og
Mark Wright frá Derby County.
• Terry Venables hefur fengið
tölvujöfurinn Suger í lið með
sér, en þeir hyggjast kaupa Tot-
tenham Hotspur. Ef af verður er
óvíst hvort Paul Gascoigne
verður seldur til Lazio á Ítalíu.
BL