Tíminn - 11.06.1991, Page 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
RftqSSKIP
NTJTIMA FLUTNINGAR
Hatnorhusmu v Tryggvagotu.
S 28822
POSTFAX
91-68-76-91
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
iel
HÖGG-
> DEYFAR
Verslið hiá fagmönnum
varahluti
Hamarsböföa I - s.
!67-6T44
Iíniinn
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ1991
<l
Atlantsál og sex verkalýðsfélög hafa orðið ásátt um kjarasamningsramma þar sem VSÍ á ekki að fá nærri að koma. Þórarinn V. Þórarinsson, framkv.stj. VSl, segir að við verði brugðist:
STRÍÐSYFIRLÝSING
EÐA ÞÁ FRUMHLAUP?
Sex verkalýðsfélög og Atlantsál hafa náð samkomulagi um að
ekkert eitt stéttarfélag geti stöðvað vinnu í nýju, væntanlegu ál-
veri. Einnig skulu væntanlegir kjarasamningar í nýju álveri gilda
í 5 ár. Á móti skal Atlantsál semja beint við verkalýðsfélögin, án
milligöngu Vinnuveitendasambandsins. Samkomulagið er í besta
falli sérstakt. Það er talið mikilvægt skref í átt til þess að nýtt ál-
ver rísi hérlendis í bráð. En hins vegar gæti það hleypt mjög illu
blóði í samskipti verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda.
Vinnudeilur hafa verið tíðar í ál-
veri ÍSAL í Straumsvík. Á stund-
um hefur legið nærri að öll fram-
leiðsla legðist af. Atlantsál vill
með samkomulaginu firra sig
slíkum ósköpum. Tilgangur
verkalýðsfélaganna er hins vegar
tvíþættur. Þeim þykir flest til
vinnandi að fá til sín álver. Og þau
hafa lengi viljað semja við ÍSAL
beint, án afskipta VSÍ.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, segir: ,Að okkar mati er
það afar mikilvæg forsenda fyrir
byggingu álvers að frá því sé
tryggilega gengið hvernig afstaða
er tekin til samninga. Það er al-
veg Ijóst að það verður að vera
með þeim hætti sem samkomu-
lagið kveður á um, að allir starfs-
menn taki sameiginlega afstöðu
til þeirra. Einnig er það jákvætt
innlegg til þess að verksmiðjan
verði raunverulega byggð, að nú
er tryggt að ekki komi til vinnu-
deilna þar fyrstu fimm árin.
Það er hins vegar alvarlegt og
ámælisvert og kann að hafa af-
leiðingar í för með sér, ef þær
lausafregnir, sem við höfum haft,
reynast réttar. Nefnilega þær, að
þessi forréttindi, sem verkalýðs-
félögin ku hafa lofað hinum er-
lendu álfyrirtækjum, séu háð
þeim fyrirvara að Atiantsál gangi
ekki í samtök íslenskra atvinnu-
rekenda.
Ef þetta er rétt hefur verið brot-
ið blað í samskiptum samtaka
launþega og atvinnurekenda. Hin
hefðbundnu viðhorf hafa jú verið
þau að atvinnurekendur skiptu
sér ekki með neikvæðum hætti af
félagsaðild starfsmanna, heldur
höfum við haft í kjarasamningum
forgangsréttarákvæði, sem veita
félagsmönnum verkalýðsfélag-
anna forgang um vinnu í fyrir-
tækjum okkar félagsmanna. Við
höfum beinlínis rekið menn til
þátttöku í verkalýðsfélögum, þó
ugglaust sé það ámælisvert.
Á móti hefur eðlilega komið að
verkalýðshreyfingin hefur ekki
skipt sér af félagsaðild atvinnu-
rekenda fyrr en nú. Við því verður
eðlilega brugðist. Verkalýðshreyf-
ingin býður upp í þann dans að
við krefjumst þess að starfsmenn
félagsmanna okkar séu ekki í
verkalýðsfélagi. Það væru eðlileg
viðbrögð okkar. Annað hvort er,
þetta mjög úthugsað, eða mjög
vanhugsað."
Karl Steinar Guðnason, verka-
lýðsleiðtogi og einn af aðalhöf-
undum samkomulagsins, neitar
að svara því hvort verkalýðsfélög-
in hafi krafist þess að Atlantsál
yrði ekki í VSÍ. Hann segir það
samkomulag milli verkalýðsfé-
laganna og Atlantsáls. Aðspurður
hvort það væri ekki óeðlilegt og
byði heim þeirri hótun Þórarins
V., að VSÍ krefðist þess af félags-
mönnum sínum að ráða ekki fé-
laga í verkalýðsfélögum, sagði
Karl Steinar: „Þeir skulu prófa
það þá.“ - aá.
Vandi loðnuverksmiðja:
Heildarstaðan er
gífurlega erfið
„Heildarstaða loðnuverksmiðja er ábyggilega gífurlega erfið um
þessar mundir," segir Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra fiskimjölsframleiðenda.
Jóni finnst miklu moldviðri hafa
verið þyrlað upp í kringum vanda
Síldarverksmiðja ríkisins, sem mik-
ið hafa verið í fréttum undanfarið.
„Við lentum í náttúruhamförum,
því náttúran í hafmu brást okkur.
Allar loðnuverksmiðjur eiga við
tímabundna erfiðleika að etja, sem
ekki var hægt að sjá fyrir. Þessi ver-
tíð var rothögg fyrir marga í fram-
haldi af síðustu vertíð, sem var lé-
leg,“ segir Jón.
Hann segir Síldarverksmiðjur rík-
isins hafa lent illa í því vegna þess
hvernig þær eru í sveit settar. Jón
segir margar verksmiðjanna njóta
þess að þær séu bundnar öðrum fyr-
irtækjum. Þannig að þegar illa gangi
hjá loðnuverksmiðjunum þá geti
önnur fyrirtæki í eigu sömu aðila
hjálpað upp á sakirnar. Þessu segir
hann ekki vera að heilsa hjá SR, því
þær hafi ekkert annað haldreipi en
loðnubræðslurnar.
Jón segir að ekkert fyrirtæki hafi
fjárfest eins mikið og Síldarverk-
smiðjur ríkisins gerðu á Seyðisfirði
á síðasta ári, þar sem framkvæmdir
kostuðu 525 milljónir.
Um þetta sagði Jón: „Maður getur
verið vitur eftir á. Loðnuvinnsla er
erfiðasta greinin innan sjávarút-
vegsins. Þú veist ekkert þegar lagt er
upp að hausti hversu mikið hráefni
verður til skiptanna og jafnvel ekk-
ert um afurðaverðið." -HÞ
Samband ungra framsóknarmanna:
Tvískinnungi krata mótmælt
Stjóm Sambands ungra fram-
sóknarmanna hefur sent frá sér
ályktun þar sem vakin er athygli á
tvískinnungi forystumann;. Alþýðu-
flokksins í málefnum íslands og
EB. Segir að í umboði til samn-
ingaviðræðna hafí utanríkisráð-
herra umboð til að falla frá öilum
fyrirvörum íslands, öðrum en þeim
sem fjalla um sjávarútvegsmál.
,Jón Baldvin lýsir því síðan yfir á
Alþingi að ekki sé raunhæft að gera
kröfur um niðurfellingu tolla á öll-
um sjávarútvegsvörum og virðist
helst vaka fyrir honum að ganga inn
í EES hvað sem það kostar,“ segir í
ályktun SUF.
Ennfremur segir að öllum megi
það vera ljóst að þrátt fyrir há-
stemmdar yfirlýsingar forystu-
manna Alþýðuflokksins fyrir kosn-
ingar um að aðild íslendinga að EB
komi ekki til greina, sé unnið leynt
og ljóst að því að flytja ákvarðana-
töku í mörgum lífshagsmunamál-
um þjóðarinnar úr landi.
,Alþýðuflokkurinn ætlar sjálfsagt
að nota það sem rök fyrir aðild að
EB að án aðildar höfum við ekkert
að segja um mörg mál er varða þjóð-
félagið miklu. Stjórn SUF telur að
íslendingar fengju engu ráðið um
sín mál þegar að kjötkötlunum í
Brussel væri komið,“ segir að lokum
í ályktuninni.
Davíð Oddsson, borgarstjóri og forsæt-
w isráðherra, opnar Elliðaárnar:
FEKK EINN URRIÐA
Davíö Oddsson, borgarstjóri f Reykjavík, renndi fyrstur fyrir lax
í Elliðaánum á opnunardegi þar f gær. Fyrfr þvf hefur skapast
hefð aö borgarstjórf veiði fyrstur i ánni. Davíö fékk elnn urrföa í
elnu af fyrstu köstunum, en laxinn beít ekki á agnfö f þetta
Skiptl. Timamynd: Pjetur