Tíminn - 13.07.1991, Page 2
2 Tíminn
Laugardagur 13. júlí 1991
Meðalvextir banka og sparisjóða orðnir óeðlileg viðmiðun utanbankaviðskipta, að mati Seðlabankans:
Vanskilafuglar hækka
vexti hinna skilvísu
Seðlabankinn virðist telja það vafasamt réttlæti, að t.d. hávextir
bankanna á skuldbreytingalánum vegna vanskila skuli fá að spóla
upp vexti hjá grandvörum skiiamönnum, m.a. á lífeyrissjóðslánum
og eftirstöðvaskuldabréfum í fasteignaviðskiptum. Seðlabankinn
segir meðalvexti banka og sparisjóða, eins og hann reiknar þá nú,
nú orðna gjörbreytta viðmiðun frá því sem áður var. Sé því spuming
hvort ekki sé nú orðið nauðsynlegt að hverfa frá þessum meðalvöxt-
um sem viðmiðun í viðskiptum utan banka og sparisjóða, eins og
svo algengt hefur verið til þessa.
í samningum um skuldabréfalán
utan banka og sparisjóða hefur um
langt árabil verið algengt að aðilar
hafi samið um breytilega vexti, sem
miðast skyldu við meðalvexti banka
og sparisjóða hverju sinni, eins og
Seðlabankinn reiknar þá og birtir í
Lögbirtingablaðinu. Þetta hefur
m.a. verið mjög algeng viðmiðun
hjá lífeyrissjóðum við lánveitingar
til félagsmanna og sömuleiðis í al-
mennum fasteignaviðskiptum.
„Slík viðmiðun var e.t.v. eðlileg fyr-
ir nokkrum árum, þegar hver banki
hafði aðeins eina vexti fyrir öll
skuldabréf á hverjum tíma,“ segir
m.a. í forystugrein í Hagtölum
Seðlabankans. Á þessu hafi nú orðið
veruleg breyting. Nær allar banka-
stofnanir hafa nú tekið upp svonefnt
kjörvaxtakerfi. Kjörvextirnir eru þá
lægstu vextir, en á þá koma síðan
mismunandi álagsprósentur (nú allt
að 2,75%) eftir því hversu traustir
lántakendur eru taldir.
.Jóeðalvextir eru nú vegið meðaltal
margvíslegra lána. Svo dæmi sé tek-
ið hafa skuldbreytingalán vegna
vanskila áhrif á meðaltalið, en slík
lán bera hæstu vexti. Ní má spyrja
hvort ekki sé nauðsynlegt að hverfa
frá svona viðmiðun í viðskiptum ut-
Þann 8. júlí síöastíiöinn varö Þorbjörg Grímsdóttir, Skólavöröustíg 24a, 102 ára. Hér er Þorbjörg ásamt son-
ardætrum sínum og tengdadóttur, þeim Fanneyju Stefánsdóttur, Lovísu Bjargmundsdóttur og Eygló Stefáns-
dóttur, á afmælisdaginn sem haldinn varað Droplaugarstööum, en þar dvelst Þorbjörg nú.
an banka og sparisjóða," segir Seðla-
bankinn.
Bankinn segir ýmsar aðrar leiðir
koma til greina og nefnir tvær sem
dæmi.
í fyrsta lagi gætu aðilar samið um
fasta vexti á skuldabréfum. Sérstak-
lega ætti slíkt vel við þegar um vísi-
tölubundin lán er að ræða. Fastir
vextir væru raunar heldur ekki frá-
leitir fyrir stutt óverðtryggð lán.
Vilji menn hins vegar endilega hafa
vextina breytilega mætti t.d. nota
meðaltal af kjörvöxtum banka og
sparisjóða, að viðbættu ákveðnu
(föstu) álagi ellegar að frádreginni
ákveðinni prósentu. Texti slíks
skuldabréfs gæti t.d. verið svohljóð-
andi, sé um vísitölubundið lán að
ræða: „Vextir af láni þessu eru
breytilegir í samræmi við meðaltal
kjörvaxta banka og sparisjóða, eins
og Seðlabankinn birtir það hverju
sinni, að viðbættu 0,5%, nú 8,3%,
að viðbættu 0,5% eða samtals 8,8%
á ári.“ - HEI
—- Lýsið á Ströndum:
LYST EFTIR
TANKSKIPI
Siglingamálastofnun auglýsir nú
eftir tankskipi, sem sást á siglingu á
miðunum út af Vestjörðum þann 30.
júní s.l. Eru getgátur uppi um það
að skipið hafi losað lýsi í sjóinn, sem
síðan hefur flotið á land á Strönd-
um. Siglingamálastofnun vinnur að
rannsókn þessa máls og er þetta að-
eins ein tilgáta of mörgum um til-
urð efnisins. Er nú einnig leitað eft-
ir heimildum um breskt tankskip,
sem sökk út af Strandasýslu á stríðs-
árunum. Er hugsanlegt að það hafi
haft að geyma lýsi, sem nú seytli úr
tönkum þess. Einnig er hugsanlegt
að hafís hafi ýtt lýsinu á undan sér
frá bræðsluverksmiðjum í Síberíu.
Sjómenn telja sig hafa séð hvíta
flekki á sjónum norðan við ísland
skömmu áður en lýsið rak á land í
Strandasýslu.
Enn sem komið er er aðeins um
getgátur að ræða. Að sögn Páls
Hjartarsonar hjá Siglingamálastofn-
un, getur tekið nokkurn tíma að
komast til botns í þessu máli. Lýsið
hefur gengið af mörgum fuglum
dauðum, en Páll segir að flestir fugl-
ar ættu að vera búnir að forða sér
nú. Ekki er þörf á neinum hreinsun-
araðgerðum, þar sem lýsið, að sögn
Páls, eyðist innan tíðar. GS.
Smygl um borð
í Helgafelli
Tollgæslan í Reykjavík kom upp Auk þess fundust 34 karton af vind-
um smygl um borð í Helgafelli á lingum, tíu dósir af skinku og
þriðjudaginn var. Fundust faldir í óverulegt magn af léttu víni.
vélarrúmi 170 lítrar af sterku áfengi. GS.
Nefnd á vegum landbúnaðarráðherra útdeildi í gær rekstrarlánum til sjö aðila í fiskeldi. 28 sóttu um lán og óvíst
er um afdrif þeirra sem ekki fengu úthlutað núna:
UM TUTTUGU FISKELDISFYRIR-
TÆKJUM VERÐUR EKKIHJÁLPAÐ
Nefnd á vegum landbúnaðar-
ráöherra hefur úthlutað 7 aðil-
um, sem stunda fiskeldi, sér-
stökum rekstrarlánum að upp-
hæð 93 milljónir króna. Þeir,
sem um ræðir, eru Silfurlax
hf., Pharmaco hf. sem leigir
og rekur þrotabú íslandslax,
Oslax hf., Straumfiskur hf.,
Strandarlax hf., Silfurstjarnan
hf., og Lækur hf. Pimmtán
umsóknum var hafnað. Einn
aðili lýsti sig gjaldþrota áður
en umsókn hans var afgreidd,
þrír aðilar fá kost á að sækja
aftur um lán til nefndarinnar
seinna á árínu og tveir um-
sækjendur voru beðnir um að
skila frekari gögnum. Alls bár-
ust nefndinni 28 umsóknir.
Alls hefur nefndin yfir að ráða
300 milljónum kr. og ráðstafaði
hún tæplega þriðjungi þeirrar
upphæðar í gær. Afganginum
verður úthlutað síðar á þessu ári
og í byrjun þess næsta, og þá að
öllum líkindum til sömu fyrir-
tækja og fengu úthlutun nú.
Lánin eru verðtryggð og bera 5%
vexti. Þau skulu endurgreiðast á 7
árum, en fyrstu þrjú árin eru af-
borgunarlaus. í fréttatilkynningu
frá nefndinni segir að þau fyrir-
tæki, sem nú fái úthlutað, hafi
framleitt á síðasta ári um helming
eldisfisksins. Eiginfjárstaða fyrir-
tækjanna, sem fengu úthlutun, er
metin jákvæð um 187 mkr., að
fyrirtækinu Pharmaco undan-
skildu.
í ályktun, sem stjórn Landssam-
bands fiskeldis- og hafbeitar-
stöðva sendi frá sér sl. fimmtudag,
segir að stjómin furði sig á vinnu-
reglum nefndarinnar sem sér um
úthlutunina. „Óeðlilega var staðið
að auglýsingum eftir þessum lán-
um, þar sem umsóknarfrestur
rann út áður en vinnureglur voru
mótaðar. öll gögn umsækjenda
voru á borðum starfshópsins áður
en vinnureglur voru mótaðar,"
segir í ályktuninni.
Þá segir þar einnig að það verði
að teljast óeðlilegt að starfsmenn
einstakra fyrirtækja og sjóða, sem
mikilla hagsmuna eiga að gæta,
skuli úthluta þessu fé. „Stjómin
lýsir því starfshópinn með öllu
vanhæfan og telur hann hafa
gengið gegn vilja forsætis- og
landbúnaðarráðherra, sem lýstu
því yfir á fundi með stjórn LFH að
það væri óeðlilegt að endurreist
(gjaldþrota) fyrirtæki fengju fyrir-
greiðslu, í formi sérstakra rekstr-
arlána.
Eiginfjárstaða endurreistra fyrir-
tækja hlýtur að vera jákvæð, sem
og fynrtækja sem selt hafa hluta
eigna sinna til ríkisins. Eiginfjár-
staðan skiptir litlu máli við mat á
rekstrarhæfni og rekstrarskilyrð-
um fyrirtækjanna," segir í álykt-
uninni.
Ennfremur segir að það hljóti
fyrst og fremst að þurfa að taka til-
lit til hvernig tekist hafi til með
eldi til þessa, sem og möguleikum
fyrirtækjanna til framtíðartekju-
öflunar.
í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá
Byggðastofnun, Framkvæmda-
sjóði og Landsbanka íslands. í áð-
urnefndri fréttatilkynningu frá
nefndinni segir að allir, sem voru
tilnefndir og skipaðir af landbún-
aðarráðherra í nefndina, hafi
starfað að þessari úthlutun án
nokkurs samráðs við þær stofnan-
ir sem þeir starfi við.
—SE