Tíminn - 13.07.1991, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
NUTIMA FLUTNINGAR
Holnarhusinu v Tryggvogotu,
S 28822
s
Jjjármáleruokkarfa9!
©
IIHBflBRÉmMWSKim
SAMUINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRALTT 18, SlMI: 688568
Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga
1 91 SIMI -676-444
Hnilnn
LAUGARDAGUR13. JÚLf 1991
hann kominn í fjórhióladrif sem trygeir öruv.
hann kominn ífjórhjóladrif sem tryggir öruggan akstur.
Einfaldara getur það ekki verið.
1,2 lítra sprœk fjölventla vél, í senn aflmikil og sparneytin.
Tölvustýrð stiglaus sjálfskipting.
Ein sú fullkomnasta sinnar tegundar.
Skemmtilega léttur og lipur innanbœjar, öruggur og mjúkur á mölinni.
Fullkomin sjálfstœð gormafjöðrun á hverju hjóli.
Sparneytin.
Merkið tryggir gœðin.
Sýning um helgina kl. 14-17
Verið velkomin
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
sími 91-674000
Ferðamájaráðstefna á Hótel
Örk í haust:
Opin áhugafólki
um ferðamál
Ferðamálaráðstefna Ferðamálaráðs
verður haldin á Hótel Örk, Hveragerði,
dagana 10. og 11. október næstkomandi.
Ferðamálaráðstefnan er opin öllu
áhugafólki um ferðamál og hefur að-
sókn að henni aukist mikið á undanför-
um árum, samfara miklum vexti ferða-
þjónustunnar.
Halldór Blöndal samgönguráðherra
setur ráðstefnuna kl. 10:00 fimmtudag-
inn 10. okL Eiður Guðnason umhverfis-
ráðherra flytur erindi um ferðaþjónustu
og umhverfismál. Dr. Klaus Lukas,
ferðamálastjóri Austurríkis, ræðir um
breytingar á ferðaþjónustu í Evrópu inn-
an EFTA og EB. Auk þess talar Helgi Jó-
hannsson, formaður Félags íslenskra
ferðaskrifstofa, um ferðaþjónustu utan
háannatíma.
Þessi aðalumræðuefni verða síðan
rædd í hópum. Að því loknu fara fram al-
mennar umræður um ferðamál og af-
greiddar verða ályktanir ferðamálaráð-
stefnunnar. -SIS
Listahátíð í Hafnarfirði lýkur um helgina:
Höggmyndagarð-
ur vígður
Listahátíð í Hafnarfirði 1991 lýkur á
laugardaginn 13. júlí kl. 14:00 með
formlegri vígslu Höggmyndagarðs
Hafnaríjarðar á Víðistaðatúni. Góð að-
sókn hefur verið að viðburðum Lista-
hátíðarinnar og hafa gestir hennar
skipt þúsundum.
í þessum sérstaka garði hefur þeim
höggmyndum verið komið fyrir, sem
smíðaðar voru í alþjóðlegu vinnustof-
unni í Straumi í maí og júní og hafa
verið til sýnis í miðbæ Hafnarfjarðar
undanfamarvikur. Listamennimir, þar
af níu útlendingar, hafa ákveðið að gefa
verk sín til hins nýja Höggmyndagarðs
Hafnarfjarðar. Aætlað hefur verið að
heildarverðmæti verkanna sé á bilinu
200-250 milljónir króna.
í tilefni vígslunnar munu Ólafur G.
Einarsson menntamálaráðherra og
Guðmundur Ámi Stefánsson bæjar-
stjóri flytja ávörp. Af því búnu munu
hafnfirskir kvartettar taka lagið og
einnig verður boðið upp á einsöng.
Sitthvað skemmtilegt verður gert fyrir
bömin og munu m.a. ungir sveinar
leggja sitt af mörkum og sýna gestum
knattspymu, þegar lið 6. flokks FH og
Hauka leika listir sínar á Víðistaðatúni
kl. 15:00. -SIS
1% vinnufærra án atvinnu í júni:
Enn dregur úr
atvinnuleysi
í júnímánuði voru skráðir 30 þúsund at-
vinnuleysisdagar á landinu. Konur voru
án vinnu í 17 þúsund daga, kariar í 13
þúsund. Sem jafngiidir því að 1.400
manns hafi verið atvinnulausir í mánuð-
inum að meðaltali. Það svarar til um 1%
af þeim mannafla sem Þjóðhagsstofnun
áætlar að sé á vinnumarláðnum.
Skráðum atvinnuleysisdögum hefur þá
fækkað um 2.600 frá því í maí og um 16
þúsund frá því í júní á síðasta ári. Það
hefur dregið úr atvinnuleysi á Iands-
byggðinni allri, samtals um 3.200 daga.
Atvinnuleysi hefur hins vegar aukist á
höfuðborgarsvæðinu um 630 daga. At-
vinnuleysi er minnst á Vestfjörðum
0.1%, mest á Norðurlandi eystra 1.7%.
Fyrstu 6 mánuði ársins hafa verið
skráðir 257 þúsund atvinnuleysisdagar á
landinu. Sem svarar til þess að 2.000
manns, eða 1.5% af mannafla, hafi verið
án atvinnu. Þessar tölur er að finna í yf-
irliti Vinnumálaskrifstofú félagsmála-
ráðuneytisins um atvinnuástand. -aá.