Tíminn - 13.07.1991, Blaðsíða 3
Laugardagur 13. júlf 1991
Tl mlnn 3
Ríkið býðst tii að kaupa fullvirðisrétt:
Hvetur ríkió til
ofbeitar búfjár?
Skoðanir bænda eru skiptar um það hvort tilboð ríkisins um kaup á
fullyrðisrétti leiði til aukinnar beitar á afréttum. Landgræðslustjórí
segir að þetta verði til þess að þau bú, sem eftir standi, verði lífvæn-
legri. Ráðunautur Búnaðarfélagsins segir að víst sé að skoríð verði
niður um 55.000 fjár í haust og greiðslur vegna þess muni nema að
hámarki um 800 milljónum.
Nýlega birtist í búnaðarblaðinu Frey
harkaleg gagnrýni á tilboð ríkisins um
kaup á fullvirðisrétti út frá beitarleg-
um sjónarmiðum. Þar kemur fram að
ríkið hefúr gert bændum tilboð um
kaup á fullvirðisrétti, sem gildir til 31.
ágúst næstkomandi. Þar býðst ríkið til
að greiða 5000 kr. fyrir hverja sauð-
kind innan fullvirðisréttar, ef fargað er
öllum stofninum, en 3500 kr. ef hluta
af stofninum er fargað. Þessu er fund-
ið það til foráttu að þetta hafi slæm
áhrif á beit Það er skýrt með því að
betra sé að sauðfé skiptist á margar
jarðir en fáar. Með þessu tilboði ríkis-
ins er því, að áliti greinarhöfundar,
verið að stuðla að ofbeit, þar sem fjár-
margir bændur eigi eftir sem áður
margt fé, en hi. ir, sem megi sín lítils í
beitarmálum, týni tölunni.
Hann segir að þau eigi hins vegar ekki
við rök að styðjast. Það segir hann
skýrast af því að með tilboði ríkisins
fari fram eins konar grisjun óhag-
kvæmra búa, en þau hagkvæmari
verði lífvænlegri. Hann segir að beit
verði vitaskuld minni, svari bændur
þessu tilboði. Um ástand afrétta segir
Sveinn að þar sé enn mjög þurrt og
megi lítið út af bera með vind til að
jarðvegsfok verði.
BÆNDUR HVATTIR TIL AÐ
HÆTTA
„Það er ýmislegt til í því, sem Bjöm
segir, því ef beitarálagi er dreift
minnkar hættan á ofbeit," segir Jón
Vikar Jónsson, ráðunautur hjá Búnað-
arfélagi íslands. Jón segir að bak við
tilboð ríkisins sé verið að hvetja
bændur til að hætta alveg búskap, og
þá sérstaklega þá sem hafa hugsað sér
til hreyfings. Hann segir Bjöm kjósa
að horía fram hjá því og þetta sé skoð-
un hans. Jón segir að kaup á fullyrðis-
rétti séu misjöfn eftir landshlutum.
Hann segir tilboð ríkisins felast í því
að kaupa allt að 3700 tonn af kjöt-
framleiðslunni. Hann álítur að það
hafi ekki getað náðst, því magnið sé
svo mikið.
Jón segir að í haust muni eiga sér
stað ákveðin skerðing á rétti eftir
framleiðslusvæðum. Heildarskerðing-
in þá á að nema 900 tonnum skilyrðis-
laust. Jón segir að greiðslur til þeirra,
sem svara tilboðinu, komi til fram-
kvæmda á næsta ári. Jóni sýnist að á
bak við þessi 900 tonn séu um 55.000
fjár Sé reiknað með að um 600 kr. fáist
fyrir hvert kíló og bætur fáist þar að
auki fyrir hverja kind, má því að há-
marki reikna með að ríkið þurfi að
greiða rúmar 800 milljónir kr. fyrir
þennan fullvirðisrétt. -HÞ
Steingrímur
formaður
biaðstjórnar
Á aðalfundl blaðstjómar Tím-
ans, sem haldinn var I gær, var
Steingrímur Hermannsson kos-
inn formaður stjómarinnar.
Guðmundur Bjamason alþing-
ismaður vék úr stjóminni, að
elgin ósk, og var samþykkt að
Steingrímur tæki sæti bans, Var
hann síðan kosinn formaður
einróma.
Fráfarandi formaður, Jón
Kristjánsson alþingismaður, sit-
ur áfram í stjóminni.
í sögu flokks og bíaðs hefur
það lengstum tíðkast að formað-
ur Framsóknarflokksíns hefur
Steingrímur Hermannsson
jafnframt gegnt formennsku f
útgáfustjóm Tímans. Um nokk-
um ára skeið hefur annar hátt-
ur verið hafður á, en nú er aftur
komin sú tið að sami maður
gegnir formennsku Framsókn-
arflokksins og blaðstjómar Tfm-
ans.
Gúmmívinnslan hf. á Akureyri:
SUMAR í RÉTTARHVAMMI
Fyrir skömmu hlaut Gúmmrvinnslan hf. á
Akureyri viðurkenningu Norræns um-
hverfisárs fyrir braubyðjendastarf í end-
urvinnslu. I tilefni þess verður sýningin
„Sumar í Réttarhvammi" haldin dagana
6.-7. júb'kL 13-16.
í fréttatilkynningu frá Gúmmívinnslunni
segir að almenningi gefist kostur á að
skoða fyrirtækið og glæsilegt sýningar-
svæði þar sem framleiðsluvörur Gúmmí-
vinnslunnar verða til sýnis. Fyrirtækið
framleiðir m.a. utanhússgólfefhið GV-reit-
inn og gúmmímottur, sem nota má Ld. í
bása, skip, á vinnustaði og sem dyramott-
ur. Einnig verða til sýnis garðhúsgögn og
leiktæki frá Höldi s.f. og Nissan-jeppar frá
Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarsson-
ar, og bömum verður boðið á hestbak.
Gúmmívinnslan hf. er til húsa í Réttar-
hvammi 1, þ.e. við afleggjarann að Skíða-
hótelinu, og síminn þar er 26776.
hiá-akureyri.
Á EKKIVIÐ RÖKAÐ STYÐJAST
Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri
segist hafa heyrt þessi sjónarmið.
Vegna ferðalaga landsmanna innanlands sem utan:
FÍB MEÐ AUKNA
ÞJÓNUSTU
Nú er tími ferðalaga og því vill Fé-
lag íslenskra bifreiðaeigenda vekja
athygli á aukinni þjónustu. Félags-
menn, sem hyggjast ferðast í eigin
bíl eða bflaleigubíl erlendis, geta
fengið ráðgjöf og leiðbeiningar við
skipulagningu ferðarinnar, ásamt
nytsömum ferðagögnum.
Má þar nefna kort og leiðabækur
sem erlend félög bifreiðaeigenda
gefa út, tjaldbúðaskírteini og al-
þjóða ökuskírteini sem fást á skrif-
stofu félagsins.
Aðild FIB að Alþjóða ferðasamtök-
um bifreiðaeigenda (AIT) tryggir fé-
lagsmönnum margvíslega þjónustu
og neyðarhjálp.
Aðstoð ferðaráðgjafa er án endur-
gjalds fyrir FÍB-félaga og ferðagögn-
in fá þeir á félagsverði.
m
Skútuvogi 10a - Sími 686700
IFYRSTA SÆTI
ÞRJÚÁRÍRÖÐ
í FÖDURLANDIJEPPANNA ERU MENN EKKIIVAFAI
• • • íþrjú ár í röð hefur hið heimsþekkta bíiabiað FOUR WHEELER
metið að bestu og hagkvœmustu kaupin í 5 dyra jeppum séu /'
isuzu Trooper, af 10 sem blaðið prófaði.
isuzu Trooper er nú mest seldi erlendi jeppinn í Bandaríkjunum.
Reynslan afþessum bíl hériendis er frábœr, enda koma hingað
bílablaðamenn frá mörgum löndum Evrópu til þess að prófa hann í
umhverfi sem á við hann.
Isuzu Trooper er ekki bara
góðs fólksbíls.
jeppi, hann hefur líka alla eiginleika
Komdu með fjölskylduna með þér
til okkar og reynsluaktu þessum
trábœra bíl, sem menn meta
svo mlkils í föðurtandl jeppanna!
Verð á þessum frábœru bílum er aðeins frá 2.075.000 kr.
fyrir 5 dyra bíl (sfaðgreiðsluverð).
BÚNAÐUR ER MEÐAL ANNARS:
Zólogl 15 haaHmlkilog spameylin bensinvél með belnnl innspýtlngu eða 2,81
100 ha dlseM með lorplöppu og beM innspýtingu • Aflsiýrt • Mhemiat
með lœsingavara • Framdriísiokur • Iregðulœsing á arturdriS • Samkssing
áhutðum • Ratdritnar rúðuvindut • Sporrieigut • Ralhltuð Iramsaeli
• Úlvarp með segulbandi • Háþrýstpvothjr lyrir dðaHjós • Dagljósabúnaður.
NÚ EINNIG FÁANLEGIR SJÁLFSKIPTIR
ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ.
ÁRLEG ÓKEYPIS SKOÐUN.
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670000 OG 674300