Tíminn - 13.07.1991, Síða 8
8 Tíminn
Laugardagu 13. júlí 1991 r
Formaður Sölufélags garðyrkjumanna í helgarviðtali Tímans.
Örn Einarsson garðyrkjubóndi að Flúðum í Hrunamannahreppi:
Garðyikjan er ekki á sömu
leið og loðdýr og fiskeldi
„Nei, það er langt frá því að íslensk garðyrkja sé
á leið á hausinn á eftir loðdýrarækt og laxeldi.
Loðdýrin og laxeldið höfðu í upphafi sérstöðu.
Menn voru óspart hvattir út í hvorttveggja með
húrrahrópum og hávaða, enda átti þetta að
bjarga íslenskum landbúnaði. í greinamar var
veitt Qármunum, þar á meðal fjármunum okkar
garðyrkjubænda sem greiðum inn í Stofhlána-
deildina, því Stofnlánadeildin, auk ýmissa opin-
berra sjóða, var sá aðili sem dældi í þessar nýju
greinar peningum án þess að nokkur vitneskja
íslensk garðyrkja hefur verið við lýði sem at-
vinnugrein í 50 ár og rúmlega það. Ferill henn-
ar er skýr, hún hefur spjarað sig fullkomlega, að
mestu án opinberra styrkja. Því er nokkuð hægt
að gera áætlanir um framtíðina. Við erum síður
en svo á leið niður á við á eftir fyrmefhdum
greinum, nema ef einhver stjómvöld óvinveitt
okkur, tækju upp á því að nota okkur sem
skiptimynt fyrir einhverja fisktitti.“
Þetta segir öm Einarsson garðyrkjubóndi og
formaður Sölufélags garðyrkjumanna, sem er í
helgarviðtali Tímans. Öm ræðir um stöðu garð-
yrkjunnar í dag og framtíðarhorfúr í tengslum
við EES- viðræðumar, en í Ijós hefúr komið að
samtök garðyrkjubænda vom ekki höfð með í
ráðum þegar málefni þeirra bar á góma í við-
ræðum EFTA og EB í Brussel.
„Þessar EES-viðræður hafa verið í gangi miklu
lengur en garðyrkjustéttin hefur vitað. Það er
ekki fyrr en fyrst í síðasta mánuði sem garðyrkj-
an og trúlega landbúnaðarráðuneytið fá að sjá
þau gögn, sem verið hafa inni á borðum starfs-
manna utanríkisráðuneytisins frá því um 15.
nóv. sl. í Ijós kom að búið var að vinna málið
miklu meir en nokkum hafði grunað."
— Hvemig verður formanni Sölufélags garð-
yrkjumanna við þegar hann verður þessa var?
„Fyrstu viðbrögðin vom eitthvað á þá leið að ég
hugsaði með mér: Hver andskotinn er að gerast
í þessu þjóðfélagi? Em ráðamenn og ráðuneyti
að vinna hver í sínu homi, án sambands við þau
höfuðráðuneyti sem með málefni greinarinnar
fara? Síðan var vitanlega næsta skref að setjast
að málinu og afla viðbótampplýsinga og gagna.
Þá kom í Ijós tilboðið frá samninganefndinni í
Bmssel um það hvemig EB-skriffinnar hugðust
skipa þessum málum hvað okkur varðaði.
Þetta plagg var þannig unnið að greinilegt var
að þeir höfðu ekkert velt því fyrir sér hvar ísland
er á hnettinum. Allar dagsetningar á opnun og
lokun innflutnings á garðyrkjuafurðum til ís-
lands vom líkastar því sem landið væri á sömu
breiddargráðu og Holland."
— En skiptir þessi listi EB nokkm máli? Er
ekki aðallega um að ræða ávexti sem hvort eð er
em ekki ræktaðir hér, svo og afskorin blóm?
Jú, hann skiptir máli, því það er allt heila
klabbið á listanum. Þeir hafa verið að spá í opn-
un og lokun innflutnings og svo ég nefni dæmi,
þá er lagt til að lokað verði fyrir innflutning á
hvítkáli til landsins í marsmánuði. Það lítur út
fyrir að embættismenn og samningamenn unt-
anríkisráðuneytisins hafi ekkert haft fyrir því að
kynna sér að hvítkál kemur aldrei á markað á ís-
landi fyrr en í fyrsta lagi í byrjun júlí. Þó virtist
ætlunin vera að opna á sama tíma hér eins og
hjá nágrannaþjóðunum. Þessi tillaga hefði bæði
komið niður á blóma- og grænmetisræktinni
hér, þó harðar niður á blómaræktinni. Það lítur
út fyrir að tilteknir spekingar í utanríkisráðu-
neytinu hafi verið í viðræðum við EB, haldandi
það að blómarækt á íslandi færi eingöngu fram
á summm. Opnunardagsetningar fyrir inn-
flutning blóma bám þess að minnsta kosti
merki.“
— Eftir að þið hafið fengið aðgang að málinu,
hvað hefur þá gerst?
„Samband garðyrkjubænda, undir stjóm
Kjartans Ólafssonar formanns þess, hefúr feng-
ið í hendur listann um opnunar- og lokunar-
daga og við emm að fara yfir hann út frá því hve-
nær íslensk framleiðsla er á markaði og hvenær
ekki og þá hvenær mætti opna fyrir innflutning
og hvenær ekki. Við höfum reynt að samræma
þessa hluti við þá hætti í innflutningsmálum
sem þegar em tíðkaðir hér, því samkvæmt bú-
vömlögum er opið fyrir innflutning þegar ís-
lensk framleiðsla er ekki á markaðnum. Hefð-
um við verið hafðir með í ráðum frá upphafi og
menn viljað viðurkenna þær reglur, sem þegar
er miðað við, hefðu garðyrkjumenn auðvitað
ekkert haft út á málin að setja. Það var hins veg-
ar ekki gert, kannski vegna þess að íslensku
samningamennimir vissu ekkert um íslenska
garðyrkju.
Nú er það svo, að ekki em fastar dagsetningar
á því hvenær innflutningur er heimill og hve-
nær ekki. Það er skynsamlegt, þar sem garð-
yrkjumenn hafa stöðugt verið að lengja þann
tíma sem íslenskt grænmeti er fáanlegt Þetta
hefur verið gert með bættri geymsluaðstöðu og
breyttum og bættum aðferðum við ræktun.
Þannig fékkst íslenskt hvítkál fram í mars á
þessu ári, sem áður dugði ekki lengur en fram í
nóvember. Fari svo, að tillögum EB verður tek-
ið, þá em allar fjárfestingar manna í bættri að-
stöðu og ræktun eyðilagðar. Við vinnum nú að
þessum málum og væntum þess að fá eitthvað
um þau að segja framvegis. Fari hins vegar svo,
að sami framgangur verði á málum og í upphafi,
þá sýnist mér að hægt sé að semja um þessi mál
án nokkurrar þátttöku okkar, jafnvel undir lok
þessa mánaðar.
Þess vegna og í Ijósi fyrri reynslu, þá held ég
hins vegar að það sé fúll ástæða til að fylgjast
mjög vel með því og koma í veg fyrii eitthvert
samkomulag andstætt hagsmunum íslendinga.
Þaö er full ástæða til að hafa á sér andvara gagn-
vart evrópskum viðskiptajöfrum, og ég held að
það sé ljóst að íslensk garðyrkja má sín ekki
mikils nema að íslensk stjómvöld styðji við bak-
ið á henni."
— Hversu stór hluti garðyrkjubænda faest við
blómarækt?
.l’að lætur nærri að helmingur rækti blóm og
um helmingur sé í matjurtaræktun. Þá er nokk-
uð um að matjurtaræktendur stundi blandaðan
búskap, það er að segja bæði inni- og útiræktun.
Garðyrkjan hefúr alla tíð verið stunduð af bjart-
sýnismönnum. Faðir minn, Einar heitinn Hall-
grímsson, var til dæmis talinn stórfurðulegur
árið 1944, að hyggjast ætla að framfleyta sér og
fjölskyldu sinni á garðyrkju. Búskap þýddi ekki
að stunda hér í sveit nema með kýr og kindur,
þar sem menn ætu yfirleitt ekki gras. Þá væri
fráleitt að ætla sér að koma „grasinú' á markað
alla leið austan úr Hreppum. En nú hefur sú
breyting orðið á garðyrkjubúskap að matjurta-
ræktunin hefur flust fiær Reykjavíkursvæðinu.
Það eru orðnir tiltölulega fáir aðilar í Hvera-
gerði í matjurtarækt
Sérstaða garðyrkjunnar innan landbúnaðarins
er sú að hún hefur alltaf þurft að bjarga sér sjálf
og garðyrkjumenn ekki að marki verið inni í
styrkjakerfinu. í eina tíð var hægt að fá svokall-
aða girðingastyrki, en garðyrkjubýli eru yfirleitt
ekki stór, þannig að girðing náði kannski 500 m,
svo að um stórar fiárhæðir var ekki að ræða. Þá
fengu menn um tíma styrki til að byggja upp-
eldishús, en það er úr sögunni og garðyrkjan
hefur eftir því sem ég best veit ekki notið neinna
styrkja sem telja, síðustu árin.
Þá hefur verðlagning afurðanna ráðist af mark-
aðsaðstæðum einum. Á síðustu árum hafa
þannig firamleiðendur orðið að taka á sig lækk-
anir í ótal myndum vegna ýmissa stjómvaldsað-
gerða, til dæmis þegar matarskatturinn var sett-
ur 1 Hann lenti ekki á neytendum, heldur kom
út sem verðlækkun til framleiðenda."
— Nú standið þið garðyrkjumenn kannski
frammi fyrir því að fara að keppa á alþjóðlegum
markaði. Getið þið það? Er búið öðruvísi að ís-
lenskri garðyrkju heldur en gert er í grannlönd-
unum?
Já, það er mikill munur á. Ég trúi því ekki að
ríkisstjómir — sama hver á þær — muni láta
það viðgangast að atvinnugrein, sem staðið
hefúr alla tíð á eigin fótum og bjargað sér hjálp-
arlaust, verði allt í einu sett út á gaddinn sem
skiptimynt fyrir einhverja fisktitti sem þarf að
koma suður í lönd. Ég held auk þess að það geti
varla orðið vandræði með að selja ómengaðan
fisk, þó ekki sé gripið til einhverra aðgerða sem
myndu drepa okkur niður. Ég vona að við fáum
að tóra, en garðyrkjubændur eru alveg tilbúnir
að vera í vissri samkeppni við nágrannaþjóðim-
ar gegn því að við fáum sömu rekstrarskilyrði.
Rekstrarskilyrði, sem garðyrkja nágranna-
þjóðanna hefur umfram okkur, felast meðal
annars í fiárfestingu: Garðyrkjubóndi úti í Hol-
landi fær til dæmis 80% ffamkvæmdalán, svo
sem til að byggja gróðurhús. Lánið fær hann til
40 ára. Garðyrkjubóndi á íslandi fær, ef hann er
heppinn, lán úr Stofnlánadeild, með skilmálum
um hámarksstærð o.fl. 50% af matsverði til 20
ára. Síðan eru ýmsir aðrir fiárfestingarliðir sem
við þurfúm að glíma við, vegna smæðar okkar,
sem hér eru dýrari en þar.“
— Em garðyrkjubændur of smáir og e.Lv. of
margir?
„Ég hef lengi sagt að ég sé ekkert því til fyrir-
stöðu að það verði eðlileg grisjun í greininni og
er það ekki svo að þeir hæfustu lifa? Því er ekki
að neita, að mínu áliti, að í greininni eru marg-
ir sem þar hafa ekkert að gera. í sambandi við
fiárfestingaliðina, sem ég var að tala um, þá eru
ótal dæmi um að við séum hér að greiða miklu
hærra verð, vegna smæðar okkar búa, fyrir
ýmsa hluti heldur en útlendir starfsbræður. Ég
get nefnt umbúðir. Við semjum um framleiðslu
á þeim við innlenda aðila, en gætum vitanlega
samið við erlenda framleiðendur og kaupendur
um miklu ódýrari umbúðir, jafnvel merktar er-
lendum grænmetisframleiðendum. Við höfum
þó ekki farið út í það enn. Flutningar á aðföng-
um og afurðum hér eru einnig stór liður, en hjá
Norðmönnum og Dönum eru þeir niður-
greiddir að hluta til og Hollendingar greiða
hreinlega niður þær vörur sem þeir flytja úr
landi.
Þá eru byggingar dýrari hér á íslandi vegna
þess að styrkleikakröfur eru allt aðrar en í ná-
grannalöndunum. Við fáum ekki lán úr stofn-
lánadeild nema með því að byggja hús sem
standast myndu nær öll fárviðri veraldar og eru
miklu dýrari fyrir bragðiö. Ég hef hins vegar
verið hér í 12 ár með gróðurhús, sem flutt var
inn áður en núgildandi byggingarstaðlar tóku
gildi og stenst þá víst enganveginn. Húsið hef-
ur hins vegar staðist þau veður, sem komið
hafa, og ekkert verr en þau sem uppfylla ís-
lenska staðalinn. Það er meðal annars vegna
þessa staðals sem Danir og Hollendingar geta
byggt gróðurhús sín fyrir um 1/3 af því sem við
verðum að kosta til jafnstórra húsa. Fái íslensk-
ir framleiðendur sömu skilyrði og nágrannam-
ir, þá yrðu þeir ekki í neinum vandræðum með
að standa sig í stykkinu."
— Hlýtur ekki garðyrkja á fslandi vegna
hnattstöðunnar að vera á einhvem hátt frá-
brugðin garðyrkju sunnar á hnettinum?
„Hér á íslandi verður að grípa til ýmissa hjálp-
artækja sem síður er þörf á sunnar. f útirækt
reynum við að lengja sumarið, td með því að
nota plast- og akrýldúka til að geta byijað fyrr á
vorin og haldið út lengur fram á haustið, en þar
setja fyrstu næturfrost gjaman strik í reikning-
inn. Þá er stunduð ræktun í heitum görðum,
bæði þeim, sem em heitir frá náttúmnnar
hendi, eða em hitaðir með því að leggja hita-
Iagnir undir þá. í gróðurhúsaræktinni er mun-
urinn minni, einkanlega á vorin. Þá hafa menn
sl. fimm ár verið að koma sér upp kæligeymsl-
um, eins og ég sagði áðan, til þess að geyma
sumaruppskeruna lengur fram á haustið."
— Hvemig hefur þetta sumar verið?
„Mjög gott. Að vísu var ræktunin komin af
stað þegar fárviðrið í vetur skall á og margir
urðu fyrir vemlegum skakkaföllum þá. Hér hjá
okkur eyðilögðust td. 1500 tómatplöntur, sem
er talsverður skellur. Það samsvarar því að
seinka uppskem um mánuð af um 1000 fer-
metmm í gróðurhúsi. En útiræktunin hefur
gengið ágætlega. Menn óttuðust að þurrkamir
myndu valda skemmdum eða draga úr vexti, en
í venjulegum moldargörðum hér er ekki hægt
að merkja að ástandið sé verra en í meðalár-
ferði, nema auðvitað að nú er allt fyrr á ferð-
inni.“
— Hvað með ræktunaraðferðir, uppskem-
magn og hollustu?
„íslensk grænmetisframleiðsla hefur hingað
til að mestu leyti farið fram í jörðinni. Nú em
menn famir að rækta í vökvaupplausn og vikri,
en það hafa grannþjóðirnar gert um árabil og
náð geysilegum árangri í að auka uppskem. Ég
held að það sé merkjanlegur munur á bragði af-
urða eftir því hvort þær em ræktaðar í mold
eða vökva. Hins vegar leiðir vökvaræktunin til
lægra verðs til neytandans. Hann ræður því síð-
an hvora vömna hann kýs og kannski verður
farið út í að sérmerkja vömmar eftir því hvem-
ig þær em ræktaðar.
í íslenskri matjurtaræktun em nú orðið nán-
ast ekki notuð eiturefni. í gróðurhúsum er nú
nánast eingöngu beitt lífrænum aðferðum
gegn meindýmm, það er að segja að gegn skor-
dýmm, sem eyðileggja plöntur og ávexti, er nú
beitt öðmm skordýmm, sem lifa á meindýmn-
um en skaða ekki plöntumar. í útiræktuninni
var áður beitt eiturefnum, td. gegn kálflugu,
en gegn henni var beitt efni, náskyldu Bladan,
sem nú er bannað. Þá var DDT og önnur slík
efhi notuð nokkuð. Nú er beitt öðmm og mun
hættuminni efnum og í mjög litlum mæli, svo
litlum að nánast óhugsandi er að eitthvað sitji
eftir í matjurtum, hvað þá að þau safnist upp.
Hvað gæði framleiðslunnar varðar þá em ís-
lenskir garðyrkjubændur fyllilega samkeppnis-
færir við erlenda starfsbræður og séu greininni
búin sambærileg og sanngjöm skilyrði og
starfsumhverfi, þá emm við fyllilega tilbúnir til
að keppa við erlenda garðyrkju."