Tíminn - 17.07.1991, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 17. júlí 1991
Tíminn 7
VETTVANGUR
Björn S. Stefánsson:
Fæðuöryggi Islendinga
Ég rakti það í blaðinu 21. f.m. („Úr sögu útflutningsbóta land-
búnaðarins“) hvernig komst á sú regla, að bændum var tryggt
innanlandsverð fyrir útfluttar afurðir að vissu marki. Af þeirri
sögu verður samt ekki mikið lært.
Rökin fyrir því, að bændur nytu fulls innanlandsverðs fyrir
nokkra útflutningsframleiðslu, voru þau, að með ríflegri full-
nægingu innlendra þarfa yrði tryggt nægilegt framboð matvæla
þótt harðnaði í árí. Það sjónarmið tengdist því markmiði, að
tryggja bærí þjóðinni með eigin framleiðslu þau matvæli, sem
náttúrleg skilyrði væru til að framleiða hér. Það hafði einróma
stuðning Alþingis árið 1960, þegar ákvæðið um útflutningsbæt-
ur var lögfest, og aftur árið 1985, þegar búvörulögin voru sett.
Allt þetta tímabil hefur verið frið-
ur við Norður-Atlantshaf og ekki
reynt á þá öryggisráðstöfun, sem
felst í fjölbreyttri og ríflegri mat-
vælaframleiðslu hér á landi, ekki
frekar en reynt hefur á þann her-
búnað, sem hér er ætlaður þjóð-
inni til öryggis.
Þótt markmiðum búvörulaga hafi
ekki verið breytt, hefur undanfarin
misseri verið raskað grundvelli
þess búskapar sem skapar þjóðinni
fæðuöryggi. Þar munar mest um
niðurfellingu kjarnfóðurgjalds,
sem búvörulög heimila stjórnvöld-
um að leggja á. Verð á kjarnfóðri á
heimsmarkaði sveiflast mikið. Það
getur orðið svo lágt, að innflutt
kjamfóður verður svo ódýrt, að
ekki borgar sig að köggla gras, að
ekki borgar sig að sá komi, svo að
ég nefni nýmælin í fóðuröflun, en
það sem varðar mestu, að ekki
borgar sig að vanda til heyskapar.
Svo geta komið tímar, að kjam-
fóðurverð fer margfalt upp. Þannig
stendur nefnilega á, að fóðurkom,
sem fer á markað, er ekki nema ör-
lítið brot af fóðuröflun í heimin-
um, og nokkuð af því er aukaafurð Alþingi gerði vorið 1985
staklega varðar miklu, ef að þreng-
ir með aðföng, að tryggja mjólkur-
afurðir og grænmeti. Þrengingar
mundu bitna harðast á fólki þar
sem slík framleiðsla er óveruleg,
fyrst og fremst á höfuðborgar-
svæðinu ásamt Suðumesjum. Þar
eru ungmennin nú um 38.000,
konur á bameignaraldri 37.000 og
gamalmenni 11.000.
Nægar mjólkurafurðir verða ekki
tryggðar, ef á bjátar, nema til sé
ríkulegt fóður í venjulegu árferði.
Ég veit ekkert sem getur verið
auðveldara að skýra fyrir útlend-
ingum um stöðu landsins, og þarf
ekki mikla þekkingu á hnattstöðu
landa til að skilja hversu sérstök
hún er. Það er til að mynda auð-
veldara en að halda fram mikilvægi
þess, að íslendingar fái einir að
sitja að fiskislóðum landsins, þvf
að þá eru gjama borin saman góð
efni íslendinga við þröng kjör sjáv-
arútvegsbyggða annarra Evrópu-
landa, sem ekki mega stunda sjó
við ísland. Menn þurfa líka að vita,
matkornsræktunar. Þess vegna
veldur lítil uppskerusveifla marg-
faldri sveiflu á framboðnu fóðri, og
verðið fer eftir því. Slíkar verð-
sveiflur eru ekki til leiðbeiningar
um varanlegar forsendur traustrar
fóðuröflunar hér á landi.
Oft er vísað til þess, að á heims-
markað séu settar niðurgreiddar
afurðir. Það er einmitt það sem nú
er verið að fást við í GATT- samn-
ingum. Endurbætt GATT-sam-
komulag getur samt ekki breytt
þessu sérkenni fóðurmarkaðar
heimsins.
ísland er mikil matarkista. Fæðu-
öflunin er hins vegar heldur fá-
breytt. Hér eru um 63.000 ung-
menni í ömm vexti (undir 15 ára
aldri), um 58.000 konur á barn-
eignaraldri og um 18.000 gamal-
menni, fólk, sem illa þolir fábreytt
fæði. Fyrir heill þessa fólks sér-
tvær merkar samþykktir
sem varða almannavlöbún-
aö I fæðuöflun. Það setti bú-
vörulög, þarsem stjórnvöld
hafa vegna fæðuöryggis
þjóðarinnar heimíld tíl að
leggja gjald á innfiutt fóður
til þess að treysta innlenda
fóðuröflun. Það setti lög um
almannaviðbúnaö, sem
skeytt var við lög um al-
mannavarnir, þar sem hag-
varnaráði, sem allir ráðu-
neytisstjórarnir skipa, er
ætlað að treysta viðbúnaö á
válegum tímum. Hvort*
tveggja þótti svo sjálfsagt
mál, að um það urðu engar
umræður.
að hér er í vissum skilningi gott
undir bú, en það er búskapur sem
hlýtur þó að vera kostnaðarsamur
vegna legu landsins. Ég er sann-
færður um, að yfirleitt þyrfti ekki
nema nokkurra mínútna mál til að
skýra þetta fyrir útlendingi, svo að
hann skildi, að það væri óvitaskap-
ur að nýta ekki gæði landsins til að
tryggja fæðuöryggi. Það er stutt að
líta til Grænlands. Þar er lítil sem
engin fóðurræktun og engar
mjólkurkýr og ekki garðyrkja. Þar
þyrfti ekki langa stöðvun aðdrátta
til að fólk yrði hungurmorða. Það
er óvitaskapur að gera sér ekki
grein fyrir þessu. Það er vítaverð
vanræksla að kynna ekki þessa
stöðu landsins í þeim samningum
sem nú fara fram um alþjóðavið-
skipti (GATT).
Alþingi gerði vorið 1985 tvær
merkar samþykktir sem varða al-
mannaviðbúnað í fæðuöflun. Það
setti búvörulög, þar sem stjóm-
völd hafa vegna fæðuöryggis þjóð-
arinnar heimild til að leggja gjald á
innflutt fóður til þess að treysta
innlenda fóðuröflun. Það setti lög
um almannaviðbúnað, sem skeytt
var við lög um almannavamir, þar
sem hagvarnaráði, sem allir ráðu-
neytisstjóramir skipa, er ætlað að
treysta viðbúnað á válegum tím-
um. Hvorttveggja þótti svo sjálf-
sagt mál, að um það urðu engar
umræður.
Það liðu nærri 6 ár þar til fréttist
af hagvamaráði. í janúar 1991
sagði frá því, að það hefði komið
saman í fyrsta sinn, en á þeim dög-
um hafði verið ákveðið, að banda-
menn hæfu stríð við írak um Kú-
veit. Þess var getið, að ráðið héldi,
að íslendingar væru vel settir um
m.a. fóður. í sömu andrá mátti
heyra þá frétt frá Ítalíu, að þar
hamstraði fólk mat af ótta við að
stríðið breiddist út. Aðgerðaleysi
hagvarnaráðs hlýtur að sýna, að yf-
irmenn ráðuneytisstjóranna, ráð-
herrar landsins, hafa ekki talið
ástæðu til að framfylgja lögum um
það.
Framleiðsluráð landbúnaðarins á
samkvæmt búvömlögum að meta
og taka tillit til fæðuöryggis að því
leyti sem það varðar landbúnað.
Það boðaði til fundar um málið í
júlí 1986. Þangað vom boðaðir
m.a. þrír fulltrúar hagvarnaráðs.
Tveimur dögum eftir að fundar-
boðið var sent hagvamaráði skip-
aði forsætisráðherra ráðið, þ.e.a.s.
rúmu ári eftir setningu laganna.
Þó þurfti ekki einu sinni að leita
uppi heppilega menn í ráðið, þar
sem í lögunum stendur hvaða
embættismenn skuli skipa það.
Framleiðsluráð óskaði eftir því, að
hagvamaráð sinnti málinu. Annað
hefur Framleiðsluráð ekki gert.
Upptök málsins hjá stjómvöldum
em þau, að landlæknir, sem á sæti
í almannavarnaráði, tók það þar
upp um miðjan 8. áratuginn, og
árangurinn af því urðu lögin um
almannaviðbúnað (hagvarnir) vor-
ið 1985. Við Hákon Sigurgríms-
son, framkvæmdastjóri Stéttar-
sambands bænda, fómm á fund
forsætisráðherra í mars 1986 og
gerðum honum grein fyrir málinu.
Arangurinn varð enginn, eins og
aðgerðaleysi hagvarnaráðs sýnir,
en ráðuneytisstjórinn í forsætis-
ráðuneytinu er formaður ráðsins.
Við Ólafur Ólafsson landlæknir
fómm í júlí 1987 á fund nýs for-
GATT-samningamir um
heimsviðskiptl með matvæll
taka ekki tillit til fæðuörygg-
is. I þeim ráða ferðinni stór-
veldl með fjölbreytta fæðu-
öflun, ríki með herstyrk til
að tryggja fæðuöryggi sitt
og rikl sem eiga stutta að-
drætti. Þótt ástæður íslend-
inga séu auðskýrðar, þarf fella má að almennum reglum um
sætisráðherra og kynntum honum
málið. Síðan sömdum við greinar-
gerð um það. Þar reifuðum við
hvað styrkti fæðuöryggi þjóðar-
innar og hvað veikti það og hvað
væri helst til athugunar í þeim
efnum. Hins vegar mátum við ekki
hvaða hættur væru líklegar, við
töldum okkur ekki kunnáttumenn
á því sviði. Vorið 1989 afhentum
við greinargerðina þremur ráð-
herrum og fórum á fund þeirra til
að fylgja málinu eftir. Það voru
Iandbúnaðarráðherra og heil-
brigðisráðherra og loks dóms-
málaráðherra, enda lýstum við
þeirri skoðun f greinargerðinni, að
aðgerðaleysi stjómvalda í þessum
efnum mætti ef til vill kenna því,
að ábyrgðin væri hjá fjölskipuðu
stjórnvaldi, og töldum líklegra til
árangurs að fela almannaviðbúnað
almannavamaráði, en það er undir
dómsmálaráðherra.
Þeir, sem koma fram fyrir íslands
hönd í alþjóðasamstarfi, bera ís-
lendingum boð um það, sem kraf-
ist er almennt í samskiptum ríkja.
Þeir þurfa Iíka að kunna að kynna
lífshagsmuni íslendinga. Alþingi
setti lög um vísindalega nýtingu
sjávarslóða við ísland árið 1948 og
Iagði þannig gmndvöll að forræði
strandríkja heimsins yfir land-
grunninu. Áður ríktu hér í norður-
höfum leifar Rómarréttar, sem
þrengdi hlut strandbyggja undan
landi. Þeir íslendingar, sem best
þóttust þekkja heiminn í þessum
efnum, vömðu við útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar við ísland, en
vom bornir ráðum. í þessu öðm
lífshagsmunamáli íslendinga er
það enn svo, að nokkrir íslending-
ar, sem teljast þekkja heiminn
hvað best, vilja síst taka tillit til að-
stæðna hér á Iandi.
GATT-samningarnir um heims-
viðskipti með matvæli taka ekki
tillit til fæðuöryggis. í þeim ráða
ferðinni stórveldi með fjölbreytta
fæðuöflun, ríki með herstyrk til
að tryggja fæðuöryggi sitt og ríki
sem eiga stutta aðdrætti. Þótt
ástæður íslendinga séu auðskýrð-
ar, þarf að finna mælikvarða, sem
að finna mælikvarða, sem
fella má að almennum regl-
um um frjáls viöskipti, um
það hverníg megl taka tillit
til þeirra, sem ekki búa við
áðumefndar ástæður til að
tryggja fæðuöryggi sitt. Til
þess þarf bæði vit og vilja.
frjáls viðskipti, um það hvernig
megi taka tillit til þeirra, sem ekki
búa við áðurnefndar ástæður til
að tryggja fæðuöryggi sitt. Til þess
þarfbæði vit ogvilja.
Málflutningur íslendinga í
GATT-samningum væri nú ólíkt
auðveldari, ef eitthvað lægi eftir
hagvamaráð og Framleiðsluráð
landbúnaðarins um fæðuöryggi.
David Keys fornleifafræðingur, fréttaritari Tímans í London:
” GRÍSKA EYJAN SANTORINI:
3700 ARA MUSTERI FINNST
UNDIR FIMM METRA GOSÖSKULAGI
Grískir fomleifafræðingar hafa bor-
ið kennsl á það sem virðist hafa verið
margra hæða hátt frjósemismusteri
— grafið undir fimm metra þykku
gosöskulagi á eyju í miðju Eyjahafi.
Musterið er hluti af heilli 3700 ára
gamalli borg, sem fór á kaf undir
þykkt öskulag eftir milrið eldgos á
seinni hluta 17. aldar f. Kr.
Uppgröftur á eynni á undanfömu ári
hefur gefið nýjar upplýsingar um leir-
keragerð og byggingarstíl, sem gefur
til kynna að dularfull þriggja hæða
bygging, innandyra skreytt fresku af
hálfnakinni konu, hafi líklega verið
trúardýrkunarstaður.
Þessi foma borg á grísku eynni San-
torini, sem til foma nefndist Thera,
grófst undir 50,000 rúmmetrum af
gosösku. Enn eru tuttugu og níu af
þeim þrjátíu hekturum, sem borgin
stóð á, á kafi undir öskunni og bíða
uppgraftar. Ólíklegt er að margir íbú-
anna hafi náð að flýja fyrir gosið — og
flestir af um 12.000 íbúum borgarinn-
ar hljóta þess vegna að hafa farist í
þessu mannskæða eldgosi sem fom-
leifafræðingar álíta nú að hafi átt sér
staðárið 1628 f.Kr.
Byggingin — sem nú er vitað að er
trúardýrkunarmiðstöð — er þekkt
undir nafninu ,Hús kvennanna"
vegna freskanna með kvennamynd-
unum.
Nýjasti fomleifauppgröfturinn í
byggingunni hefur leitt í ljós úrval af
dularfullum og einstæðum leir- og
postulínshlutum — þ.á m. 40 cm
breitt leirborð með einn keilulaga fót,
þakið talkúmi, minna leirborð, fer-
kantað og 40 cm langt þríhymt leir-
ker á þrem fótum.
Þriggja hæða ljósrenna hefur líka
fundist í byggingunni. Hún var opin
til lofts og var ætlað að upplýsa stig-
ann vel og gangana á hverri hæð.
Hin óvenjulega lögun leirhlutanna
og byggingarfræðilegur skyldleiki við
mínóisku trúarbyggingamar á ná-
grannaeyjunni Krít gefa til kynna að
Hús kvennanna hafi gegnt trúariðk-
unarhlutverki.
Auk freskunnar með kvennamynd-
unum í Húsi kvennanna hefur upp-
gröfturinn á niðurgröfnu borginni
líka orðið til þess að stærsta safn
mynda frá bronsöld í Evrópu hefur
fundist. Margir innveggir í bygging-
um borgarinnar em enn þaktir fresk-
um með skipum, húsum, hermönn-
um, Ijónum, hlébörðum, öpum, höfr-
ungum og landslagi. Ein myndin sýn-
ir það sem trúlega er hin mikla borg
Santorini sjálf, eins og hún Ieit út á
17. öld f. Kr. — rétt fyrir eyðilegging-
una í hinu mannskæða eldgosi 1628 f.
Kr.
Á síðustu 15 ámm hefur prófessor
Christos Doumas við Aþenuháskóla
stjómað uppgreftinum. Nú hefur ná-
kvæm skilgreining á þessari fomu
borg verið birt í þriggja binda ritverki,
„Thera and the Aegean World", sem
gefið er út af Thera Foundation í
London.