Tíminn - 20.09.1991, Síða 5

Tíminn - 20.09.1991, Síða 5
Föstudagur 20. september 1991 Tíminn 5 BSRB ræðir um þjóðartekjur og skiptingu þeirra: Laun sveiflast miklu meir en þjóðartekjur Launahlutfall á íslandi hefur sveiflast mun meira en í öðrum aðild- arlöndum OECD á undanfömum árum. Launatekjur sveiflast raun- ar meira milli ára en tekjur þjóðarbúsins. Launahlutfall lækkar meira en þjóðartekjur á samdráttartímum og hækkar meira en þjóð- artekjur þegar vel árar. Launahlutfall á íslandi er hærra hér á landi en í flestum öðrum aðildarríkjum OECD. Þetta var meðal þess sem kom fram á fundi sem BSRB hélt í gær um þjóðartekjur og skipt- ingu þeirra. Launahlutfall á íslandi frá 1973 til 1991 var að meðaltali 65,9%. Það hefur hins vegar sveiflast mjög mik- ið á tímabilinu. Lægst varð það árið 1984 59,7% og hæst 1988 69,9%. Launahlutfall í öðrum OECD-lönd- um hefur aftur á móti verið nokkuð stöðugt á bilinu 60-63%. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags- stofhunar, varaði fundarmenn við að taka samanburð milli landa of hátíð- lega. Ýmislegt skekkti samanburð- inn. Það skipti t.d. máli hve margir einyrkjar væru á launamarkaði. Hjá þjóðum þar sem bændur væru margir lækkaði Iaunahlutfallið, og það sama gerðist þar sem fram- leiðslutækin væru dýr. Sé launahlutfall í Iöndum OECD skoðað kemur í Ijós að það er hæst í Lúxemborg (yfir 71%), Svíþjóð er í öðru sæti (68%) og ísland í því þriðja (66%). Bretland og Bandarík- in eru á svipuðu róli og Island. Þórður sagði að ísland skæri sig úr hvað það varðar að hér sveiflast launahlutfallið miklu meira en ann- ars staðar. Hann sagði að sveiflurnar væru meiri en sem næmi breyting- um á þjóðartekjum. Launahlutfallið sveiflaðist í samræmi við það hvem- ig áraði í þjóðfélaginu, en launa- hlutíallið lækkaði meira en þjóðar- tekjur þegar illa áraði og að sama skapi hækkaði það meira en þjóðar- tekjur þegar vel áraði. Launahlutfall hefur lækkað nokk- uð stöðugt síðan árið 1988 þegar það var mjög hátt. Það var á síðasta ári tæplega 64%. Því er spáð að það verði á þessu ári í kringum 65%. Á fúndinum var bent á að launa- hlutfallið væri notað í kjarabaráttu. Atvinnurekendur hefðu t.d. bent á það við gerð síðustu kjarasamninga að þetta hlutfall væri óvíða hærra en á íslandi og sagt að það væri 72%. Nú hefði hins vegar komið í ljós að sú tala væri röng og nú væri búið að lækka hana um 6%. Þórður Frið- jónsson sagði að Þjóðhagsstofnun reiknaði út launahlutfall miðað við bestu fáanlegar upplýsingar. Nú væru komnar nýjar upplýsingar um einkaneyslu á árinu 1989 og því hefði launahlutfallið fyrir það ár ver- ið lækkað. -EÓ Haustfundur íslenskra sjávarafurða hf.: Tengsl háskóla og sjávarútvegs íslenskar sjávarafurðir hf. héldu árlegan haustfund sinn í gær. Ræddu menn þar sérstaklega tengsl háskóla og sjávarútvegs og fengu til þess prófessora frá Háskóla ís- lands. Þá var og fjallað um hvernig best má tryggja gæði fisks og hverra breytinga má vænta vegna tilskipana Evrópubandalagsins. Ragnar Árnason, prófessor í fiski- hagfræði, sagði í erindi sínu frá því að með óheftri samkeppni og frjáls- ari viðskiptum yrði þekkingin enn mikilvægari en áður. Þegar öllum forréttindum væri svipt burt gæti hún skilið milli feigs og ófeigs. Hluti þekkingarinnar ætti uppsprettu sína í háskólum, semsagt háskóli ætti að geta gert margt fyrir sjávarútveginn og ekki síst nú á tímum. Ragnar sagði að Háskóli íslands hefði kannski brugðist að því leytinu að taka ekki nægilegt tillit til sérstöðu íslensks atvinnulífs, hlutar sjávarút- vegsins. Áhugaleysið væri enda gagnkvæmt, atvinnulífið hefði ekki sýnt rannsóknum í Háskólanum mikinn áhuga. Ragnar rakti síðan hvernig vísinda- menn hefðu í raun átt frumkvæði að nýju kerfi til stjórnar á fiskveiðum, kvótakerfinu sem væri eina kerfið sem tryggði þjóðhagslegan arð af veiðunum. Þeir hafi ýtt á stjórnvöld að taka upp þetta kerfi, ekki öfugt. Ragnar sagði að ef þetta ætti að vera fyrirkomulagið, að vísindamenn hefðu frumkvæðið en ekki stjóm- völd, væri eðlilegt og nauðsynlegt að stofna sérstakan rannsóknarsjóð, sjóð til að styrkja rannsóknir í sjáv- arútvegi. Það væri nauðsynlegt til að tryggja sjálfstæði háskóla og vís- indamanna. Gísli Jón Kristjánsson, forstöðu- maður Ríkismats sjávarafurða, rakti nýjar reglur sem Evrópubandalagið ætlar að taka upp um eftirlit með innfluttum sjávarafurðum. Magnús Friðgeirsson, forstjóri Iceland Sea- Selá í Vopnafirði virðist á uppleið og sterkir stofnar á leiðinni: 772 LAXAR UPP ÁLAND Alls veiddust 772 laxar í Selá í Vopnafirði í sumar. Er það nánast meðaltalsveiði síðustu ára, en aukning frá því í fyrra, en þá veidd- ust 636 laxar. Svokallað efra svæði árinnar gaf 329 laxa, en það neðra 443. Þyngsti laxinn reyndist 17 pund og veiddist hann á Brúarvöðu. Flestar stengur í ánni í einu eru sjö. Veiðin á neðra svæðinu hófst 28. júní og lauk 10. sept. Þar voru leyfð- ar fjórar stengur. Á efra svæðinu hófst veiðin 10. júní og endaði 16. sept. Þar var veitt á tvær stengur lengst af tímanum. Bestu veiðistaðirnir í sumar reynd- ust vera Fosshylur með 76 laxa, en þar var laxinn heldur smár — mest eins árs fiskur úr sjó. Mesta ársveiði í Selá var 1534 laxar og sagði Helgi Þorsteinsson, tals- maður veiðifélags árinnar, að veiðin í ár gæfi tilefni til bjartsýni um áframhaldandi batnandi veiði, bæði með tilliti til þess að fleiri laxar veiddust og auk þess gæfi mikil gengd smáfisks vonir um að tveggja ára laxinn væri sterkur árgangur. Þá virtust seiði þessa árs einnig gefa fyrirheit um sterkan árgang, sem mun skila sér á næstu árum. —sá Nýr yfirlæknir Júlíus Gestsson laeknir hefúr verið ráðinn yfirlæknir bæklunardeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Júlíus tekur við starfmu af Halldóri Baldurssyni, sem starfað hefur sem yfirlæknir á F.S.A frá árinu 1981 og veitt bæklunardeild sjúkrahússins forstöðu frá stofnun deildarinnar árið 1982. Júlíus Gestsson er fæddur árið 1945. Hann lauk almennu læknis- prófi frá Háskóla fslands árið 1974 og fékk sérfræðingsleyfi í bæklunar- lækningum 1981, eftir sémám í þeirri grein í Svíþjóð. Júlíus hefúr starfað sem sérfræðingur í bæklun- arlækningum á F.SA frá árinu 1981. Eiginkona Júlíusar er Rannveig Guðnadóttir hjúkrunarfræðingur. Vitlaus Grikklandsfáni! Það vakti nokkra athygli á knatt- spymuleik Fram og gríska liðsins Panathinaikos, sem fram fór á Laugar- dalsvelli í fyrradag, að dreginn var að húni einhver ókennilegur fáni þar sem átti að vera gríski fáninn. Vallar- vörður á Laugardalsvelli kannaðist í gær ekki við að nein mistök hefðu ver- ið gerð. Það er venja á íþróttaleikjum þegar eigast við lið frá tveimur lönd- um, að draga að húni þjóðfána keppn- isþjóðanna, auk þjóðfána þess lands sem dómarar eru frá. Áður en Ieikur- inn hefst er þjóðsöngur keppnisþjóð- anna leikinn. Svo illa tókst til á leik Fram og Panathinaikos að dreginn var að húni fáni, sem var hvítur kross á bláum feldi. Gríski þjóðfáninn er hins vegar með bláum og hvítum röndum og með hvítan kross uppi í vinstra horninu. Ýmsum þótti þetta vera óvirðing við hina grísku gesti. -EÓ á mjög hagstæöu veröi Bókið tímanlega -I D /7 Bp Járnhálsi 2 ■ Sími 91-683266 110 Rvk ■ Pósthólf 10180 KIEIIfl Ragnar Arnason, protessor i fiskihagfræði við Háskóla fs- lands, í ræðustól á fundinum í gær. Tfmamynd: Áml Bjama food Corp., bað menn að búa sig undir það versta. Evrópubandalagið ætlaði sér að taka upp sömu siði við fiskverslun og kjötverslun: gera mönnum að breyta vinnsluhúsum fram og til baka og í rauninni nota reglugerðina til að hindra viðskipti. Fleira var rætt á fundi íslenskra sjávarafurða og verður sagt frá því síðar. -aá. 95 SERÍAN

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.