Tíminn - 19.10.1991, Page 13

Tíminn - 19.10.1991, Page 13
Laugardagur 19. október 1991 kui llll Timmn 21 w Flokksstarf W LEIKHÚS Kjördæmis- þing fram- sóknar- manna á Norðurlandi vestra Guðmundur Stefán verður haldið í Félagshelmllinu Miðgarðl f Varmahlfð dagana 26.-27. október n.k Dagskrá: Laugardagur 26. október: Kl. 14.00 Þingsetning og kosning starfsmanna. Kl. 14.10 Umraeður og afgreiðsla reikninga. Kl. 15.00 Ávörp gesta. Kl. 15.15 Stjómmálaviðhorfið. Framsögumaður Guðmundur Bjamason alþingismaður. Kl. 16.00 Kaffihlé. Kl. 16.30 Frjálsar umræður. Kl. 18.00 Kosning nefnda og nefndastörf. Kl. 20.00 Kvöldverður f Miðgarði og kvöldskemmtun. Sunnudagur 27. október: Kl. 10.00 Nefndarstörf. Kl. 11.00 Nefndirskila áliti, umræðurog afgreiðsla nefndarálita. Kl. 12.00 Matarhlé. Kl. 13.30 Sérmál þingsins, byggðamál. Framsögumaður Stefán Guömundsson alþingismaður. Kl. 14.15 Frjálsar umræður. Kl. 15.30 Kaffihlé. Kl. 16.00 Afgreiðsla nefndarálita. Kl. 17.00 Kosningar. Kl. 17.30 Önnur mál. Kl. 17.50 Þingslit. Stjóm KFNV. Aðalfundur Framsókn- arfélags Seltjarnar- ness Aðalfundur Framsóknarfélags Sel- tjarnamess verður haldinn þriðjudag- inn 22. okt. nk. kl. 20.30, á Sex bauj- unni, Eiðistorgi. Á dagskrá eru venjuleg aðal- fundarstörf, þ.á m. lagabreyting- ar og kosning fulltrúa á kjör- dæmisþing. Steingrímur Siv Gestir fundarins, Steingrlmur Hennannsson og Siv Friðleifsdóttir, flytja framsöguerindi. Framsóknarfélag Seltjamamess. KJORDÆMISÞING framsóknarmanna í Vest- fjarðakjördæmi haldiö á Hólmavík 19.-20. október 1991. Dagskrá: Laugardagur 19. október Kl. 13:00 Þingsetning. Kl. 13:10 Kosning starfsmanna þingsins. Kl. 13:15 Skýrslur stjómar, umræöurog afgreiðsla. Kl. 14:00 Ávörp gesta. Kl. 14:30 Kosning nefnda. Kl. 14:40 Stjómmálaviðhorfið — staða og horfur, Steingrimur Hermannsson, fonnaður Framsóknarflokksins. Umræður. Kl. 15:30 Kafflhlé Kl. 16:00 Ávarp þingmanns og varaþingmanns. Kl. 17:00 Almennar umræöur— mál lögð fram. Kl. 19:00 Matarhlé Kl. 20:00 Nefndarstörf. Sunnudagur 20. október: Kl. 09:00 Nefndarstörf. Kl. 11:00 Afgreiðsla mála. 10. 12:00 Hádeglsveróur lO. 13:00 Afgreiösla mála, frh. lO. 14:00 Kjör stjómar og nefnda. Kl. 14:30 Önnur mál. Kl. 15:00 Þingslit. Stjómln. Viðtalstími LFK Unnur Stefánsdóttir, formaður LFK, verður til viötals á skrifstofum Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 20, 3. hæð, miðvikudaginn 23. október kl. 10-12. Framkvæmdastjóm LFK. Unnui Framsóknarvist Fyrsta framsóknarvist vetrarins verður haldin sunnudaginn 20. okt. kl. 14 i Danshúsinu, Glæsibæ, Álfheimum 74. Veitt verða þrenn verölaun karta og kvenna. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi flytur stutt ávarp I kaffihléi. Aðgangseyrir kr. 500.-. Kaffiveitingar innifaldar. Framsóknarfélag Revkjavíkur. Sigrún Höfundur: Sveinbjöm I. Baldvinsson Leikstjórí: Hallmar Slgurösson Leikmynd: Jón Þórísson Lýslng: Ögmundur Þór Jóhannesson Búningar: Jón Þórisson, Aðalheiður Al- freðsdóttir Tónlist: Stefán S. Stefánsson Sýningarstaður: Borgarieikhúsiö, litla svlðlð í fullum ljósum sjáum við konu (Soffía Jakobsdóttir) setjast á sjúkrarúm, ósköp hægt og hljótt. Hún er að fara í rannsókn. Bara rannsókn, sem tekur 1 eða 2 daga. En svo eru venjulegu ljósin slökkt og leikhúskastljósin taka við og ís- kaldur veruleiki sjúkrahússins hell- ist yfir von bráðar. Röntgenskyggn- um er varpað á veggi einni eftir aðra. Læknir gengur hröðum skref- um, rýnir i myndimar en segir fátt. Skyldi leynast hér þetting? Þétting í vefboðarekki gott. Konan á sjúkrahúsinu er móðirin í þeirri fjögurra manna fjölskyldu, sem við fáum að kynnast. Bömin tvö eru nýlega farin að heiman. Son- urinn (Kristján Franklín Magnús) er gmnnskólakennari og drýgir tekj- umar með hljóðfæraleik, en dóttirin (Sigrún Waage) skautar á ölduföld- um heimsfrægðarinnar vestur í Am- eríku og prýðir forsíður gljárita um víða veröld. Faðirinn (Pétur Einars- son) er ósköp þreyttur og mæddur, sem vonlegt er á þessum örlagatím- um. Það er komið að tímamótum í þessari fjölskyldu. Veikindi móður- innar em í forgmnni, en til hliðar er uppgjör systkinanna, sem barist hafa um hylli foreldranna. Við kynn- umst líka þeirri togstreitu, sem verður þegar hugsjónir og eigin- hagsmunir rekast á. Leikurinn gerist í samtímanum og orð eins og misgengi launa og vaxta, kjarabarátta og verkföll em allstaðar nálæg. Spennan í leiknum, sem er reyndar ekki mikil, er byggð upp f kringum töfralyfið sem festist í tolli vegna verkfalls. Lyfið sem hugsan- lega gat læknað móðurina. Reyndar skynja persónumar og áhorfendur að lyfið er aðeins tálvon, en öll sog- umst við að blekkingunni eins og flugur að Ijósi, og ekki síst þegar einhver okkur nákominn á í höggi við illvígan sjúkdóm. Þétting er ákaflega blátt áfram leikrit. Textinn er hreinn og beinn, lítið um orðskrúð. Höfundur þekkir vel til viðfangsefnisins og þannig fær verkið einlægan svip. Það er e.t.v. einlægnin sem er aðall þessa verks. Leikmyndin er mjög vel úr garði gerð. Þótt ekki sé fyrir að fara sama tæknibúnaði á litla sviðinu og því stóra, em hér öll mál haganlega af hendi leyst. Ljós og myrkur skilja að hina ýmsu hluta sviðsins, og hug- myndin að láta röntgenskyggnurnar segja áhorfendum framvindu sjúk- dómsins er snilldargóð. Öll orð eru óþörf. Auk þeirra leikara, sem áður er get- ið, koma við sögu læknir leikinn af Jóni Júlíussyni og segir hann fátt, hjúkmnarkona sem Asa Hlín Svav- arsdóttir leikur og segir hún ekkert, en verk sín vinna þau fumlaust, en blanda sér ekki í fjölskyldumálin að öðm leyti. Sigrún Edda Björnsdóttir er María konan hans Jonna, sæt og blíð en líka hagsýn, og Gestur (Theodór Júlíusson) sem er vaskur verkfallsvörður og hinn traustasti maður í alla staði. Framganga leikara er jöfn og góð, en ekki ýkja átakamikil. Enda býður verkið ekki upp á það. Þótt ekkert komi á óvart í verkinu og átökin ekki mjög stórgerð, Iætur leikritið fáa ósnortna og út af sýn- ingunni trúi ég að margir munu ganga með skerpta dýpt á þeirri hugsun að sjaldnast fer allt eins og óskað er, og í raun og veru emm við leiksoppar almættisins á þessari lífs- göngu. Gísli Þorsteinsson Söngleikur í Keflavík Jóhannes Kjartansson og Hafsteinn Gíslason í hlutverkum ritstjór- anna. Lelkféiag Keflavfkur: Fréttaveitan eftir Ómar Jóhannsson Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson Félagsbió f Keflavik Leikfélag Keflavíkur fmmsýndi sl. laugardag söngleikinn „Fréttaveit- una“ eftir Ómar Jóhannsson, undir leikstjórn Andrésar Sigurvinssonar. Fyrir tveimur ámm samdi Ómar revíu í tilefni af 40 ára afmæli Kefla- víkurbæjar. Sú frumraun þótti tak- ast vel og var mjög vinsæl. Nú er ró- ið á sömu mið: græskulaust grín um samtímapersónur á Suðumesjum í bundnu og óbundnu máli. Uppsetning er á köflum snjöll og leikur oft á tíðum athyglisverður. í svo mannmargri sýningu, sem hér um ræðir, er ekki unnt að nefna nema fá nöfn. En Hafsteinn Gísla- son og Guðný Kristjánsdóttir bera hana uppi ásamt Vigdísi Jóhanns- dóttur, Þór Helgasyni, Rúnari Hannaha, Guðbrandi Sigurðssyni, Jóhannesi Kjartanssyni og Jóhanni Sigurðssyni, núverandi formanni fé- lagsins. Vemlegur fengur verður í nýliðum eins og Ingólfi Árnasyni og Ernu Sigurðardóttur, sem vom stór- skemmtileg í sínum hlutverkum, að ógleymdri Huldu Ólafsdóttur, leik- stjóra og rithöfundi, sem nú brá sér í búning leikara. Á þessu leikári á leikfélagið 30 ára afmæli. Mér er til efs að nokkurt áhugaleikfélag hafi á síðari ámm fmmflutt jafnmörg íslensk leikrit og L.K., og þessi sýning vitnar um áframhaldandi grósku. Svo er að vona að sem flestir leggi leið sína í Félagsbíó. Hilmar Jónsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.