Tíminn - 23.10.1991, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Miðvikudagur 23. október 1991
Miðvikudagur 23. október 1991
Tíminn 9
Samningurinn um evrópskt efnahagssvæði
Samningamenn Evrópubandalagsins og EFTA lýstu yfír miklnm fognuöi í fyrri-
nótt, þegar samningar um evrópskt efnahagssvæði voru í höfn, efdr 16 klukku-
stunda þóf. Evrópska efnahagssvæðið verður stærsta einstaka markaðssvæði
heimsins og teygir sig fírá norðurheimskautsbaug til Miðjarðariiafs.
Pertti Salolainen, utanríkisviðskipta-
ráðherra Finnlands sem gegnir for-
mennsku í EFTA, sagði eftir fundinn að
þessi samningur markaði tímamót.
Hann skapaði stærsta og samtengdasta
markaðssvæði í heiminum.
Á lokasprettinum var einkum tekist á
um þrjú vandamál: fríverslun með fisk,
greiðslur í þróunarsjóð til fátækari EB-
landa, og vöruflutninga um Alpana. Um
tíma leit út fyrir að andstaða Grikkja við
samkomulag um flutning um Alpana
myndi standa í vegi fyrir samningum og
sama gilti um kröfu Spánverja um heim-
ild til að fjárfesta í íslenskum sjávarút-
vegi.
„Við höfum fundið lausnir á öllum þeim
ágreiningsatriðum sem skildu okkur að,“
sagði Frans Andriessen, aðalsamninga-
maður EB. Hann bætti við að samkomu-
lagið nú væri ekki byggt á eins veikum
grunni og það samkomulag, sem þeir
töldu vera í augsýn í júní í sumar; þvert á
móti væru þeir vissir um að samningarn-
ir væru í höfn. Salolainen sagði að Vest-
ur-Evrópa hafi nú sýnt fram á að hún
gæti leyst sín eigin mál, og með samein-
uðu átaki gæti hún nú stuðlað að frekari
uppbyggingu í austurhluta álfunnar.
Samkvæmt samkomulaginu um EES
munu EFTA-ríkin taka upp hundruð
lagabálka frá Evrópubandalaginu og gera
þau að sínum eigin, en flest þessara laga
snerta viðskipti og samkeppnisaðstöðu í
víðum skilningi. Að sögn samninga-
mannanna er enn eftir talsverð vinna við
að fínpússa samninginn, áður en hægt er
að leggja hann fyrir þjóðþing þeirra 19
ríkja, sem aðild eiga að EES- samkomu-
laginu.
Reuter-fréttastofan birti í gær útdrátt úr
texta samkomulagsins og birtist hann í
heild hér á eftir, og er reynt að fara eins
nálægt enska textanum og kostur er.
VÖRUVERSLUN:
Flæði þeirra vara, sem framleiddar eru á
EES, skal vera frjálst um efnahagssvæðið
frá og með 1993, án tollahindrana, stað-
bundinna skatta eða gjalda sem mis-
muna varningi, og með auðveldari landa-
mæraeftirliti. Vaming má stöðva af ör-
yggis- eða heilbrigðisástæðum, en EB og
EFTA verða að koma sér saman um fyrir-
komulag til að flokka vömr, bæði varn-
ing sem kemur frá EES og annars staðar
frá. Samkvæmt samningnum em ríkis-
einokunarfyrirtæki útlæg. Sérstakar ráð-
stafanir hafa verið gerðar vegna landbún-
aðar- og sjávarafurða, orku, kola og stáls.
FLÆÐIVINNUAFLS OG ÞJÓNUSTU:
Frá og með 1993 eiga einstaklingar
hvaðan sem er af svæðinu að geta búið,
starfað og boðið fram þjónustu sína um
allt svæðið. Til að ýta undir þessa þróun,
munu EFTA-ríkin samræma löggjöf sína
í félagsmálum lögum sem gilda í EB.
Starfsréttindi, sem tekin eru gild í einu
landi EES, skulu tekin gild alls staðar á
EES. Sviss, sem hefur haft stranga lög-
gjöf um innflytjendur, hefur fimm ára
aðlögunartíma til að uppfylla þessar regl-
ur.
FLÆÐI FJÁRMAGNS:
Á þessu sviði mun starfsemi gefin frjáls,
þar á meðal bankastarfsemi, trygginga-
starfsemi, fjarskiptastarfsemi, upplýs-
ingastarfsemi og samgöngur. Hins vegar
eru settar hömlur við fjárfestingu í fast-
eignum og beinni fjárfestingu í EFTA-
ríkjunum.
SAMKEPPNISAÐSTAÐA:
EFTA-ríkin munu taka upp reglur EB
um samkeppni, þar á meðal reglur gegn
hringamyndun og misnotkun á yfir-
burðastöðu, samruna og sameiningu, og
ríkisstyrki. EFTA mun setja á laggirnar
sérstaka eftirlitsstofnun, sem fylgist með
því að fyrirtæki á þeirra svæði fari að
settum reglum. EFTA-ríkin munu setja
inn í löggjöf þjóða sinna þau Iög, sem
gilda í EB varðandi atvinnurekstur, neyt-
endavernd, menntun, umhverfismál,
rannsóknir og þróunarstarf og félagslega
þjónustu.
VERSLUN MEÐ LANDBÚNAÐARVÖRUR:
Samkvæmt EES-samkomulaginu er
EFTA-ríkjunum heimilt að halda sínum
eigin landbúnaðarstefnum, og þurfa þau
ekki að ganga inn í sameiginlega land-
búnaðarstefnu EB. Þó munu báðir aðilar,
EFTA og EB, vinna að því að auka freisi í
viðskiptum með landbúnaðarafurðir,
einkum með tilliti til ákvarðana sem
teknar verða í GATT-viðræðunum, þeim
hluta sem kenndur er við Uruguay. Á
tveggja ára fresti fari fram endurskoðun,
sem miði að því að fella niður viðskipta-
hömlur á þessu sviði, í fyrsta sinn árið
1993.
VERSLUN MEÐ SJÁVARAFURÐIR:
Á lokastigum samninganna var ákveðið
að Noregur og ísland myndu fá tollfrjáls-
an aðgang að EB- mörkuðum frá 1993
með sumar fisktegundir, s.s. þorsk og
ýsu, og frá 1997 með aðrar tegundir.
Noregur náði ekki að tryggja betri að-
gang að þessum mörkuðum fyrir við-
kvæmari eða umdeildari tegundir, s.s.
lax, sfld, makrfl og rækjur. Samkvæmt
samkomulaginu munu spænsk og portú-
gölsk skip fá heimild til að veiða allt að
11.000 tonnum af þorski í norskri land-
helgi fram til ársins 1997, en þessu hafa
aðilar í norskum sjávarútvegi mótmælt,
þó heimildin nemi einungis þriðjungi
þess sem Spánverjar höfðu upphaflega
krafist.
Norðmönnum og íslendingum tókst að
koma í veg fyrir að ákvæði kæmi inn í
samninginn sem heimilaði spænskum
útgerðarmönnum að fjárfesta í fiskiskip-
um þessara landa, þrátt fyrir að Evrópu-
dómstóllinn hafi fyrr á þessu ári hrundið
breskum lögum, sem bönnuðu Spánverj-
um að ná sér í breskar fiskveiðiheimildii
með því að skrá skip sín í Bretlandi.
FLUTNINGABÍLAR f ÖLPUNUM:
EB hefur gert samkomulag við Austur-
ríki um að skera niður umferð flutninga-
bfla um 60% á 12 árum. Sambærilegui
samningur við Svisslendinga hljóðar upp
á að flytja þorra framleiðslu EB í gegnum
landið með Iestum í stað flutningabfla.
Fjöldi laga og reglugerða, sem gilda í EB,
verður tekinn upp og settur inn í löggjöf
einstakra EFTA-þjóða, þar á meðal reglur
EB sem opna fyrir samkeppni í flugi.
STOFNANIR OG YFIRSTJÓRN:
Evrópska efnahagssvæðið lýtur stjórn
sérstaks ráðherraráðs EES, sem hittist
a.m.k. einu sinni á sex mánaða fresti.
Dagleg stjórn verður hins vegar í hönd-
um sérstakrar nefndar embættismanna .
frá EFTA- ríkjunum og framkvæmda-
stjórn EB.
Þá munu báðir aðilar setja á fót sjálf-
stæðan sameiginlegan dómstól, sem
verður í tengslum við Evrópudómstól
Evrópubandalagsins í Lúxemborg. Þessi
dómstóll mun fást við ágreiningsefni,
sem koma upp í tengslum við EES, og öll
ágreiningsefni vegna samkeppnisað-
stöðu. Hvert EFTA-ríki mun tilnefna
einn mann í dómstólinn, en átta dómar-
ar sitja í honum fullskipuðum á hverjum
tíma. Þrír verða frá EFTA-ríkjum, en
fimm frá EB.
FJÁRFRAMLÖG:
EFTA-ríkin hafa fallist á að lána 1,5
milljarð ECU (1,8 milljarð dollara) á 3%
vöxtum, og 500 milljón ECU (600 millj-
ón dollara) í styrki í sjóð til hjálpar fá-
tækari EB-ríkjunum: Spáni, Portúgal,
Grikklandi og lrlandi. Fé þetta verður að
nota til verkefna á sviði umhverfís- og
menntamála. - BG
Eyjólfur Konráö Jónsson, formaður utanríkismálanefndar:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvennalista:
Líst þokkalega Ortalag samnings
a sammnginn
ins skiptir máli
Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður ut-
anríkismálanefndar, sagði að sér sýndist
að niðurstaða samninganna hefði orðið
betri en útlit var fyrir á mánudag. „Mér
líst betur á þetta í dag en í gær,“ sagði
Eyjólfur Konráð. Hann sagðist telja að
samningamenn íslands hefðu haldið fast
fram málstað íslands í samningunum, og
sagði mikilvægt að í samningnum væri
ekki gert ráð fyrir að EB fengi einhliða
veiðiheimildir í íslenskri lögsögu.
Eyjólfur Konráð sagðist ekki gera at-
hugasemd við málsmeðferð utanríkisráð-
herra á lokastigum samninga. Samkomu-
lag hefði orðið um að ráðherra héldi fund
með utanríkismálanefnd þegar hann
kæmi til landsins og eftir að hann hefði
kynnt ríkisstjórninni samninginn.
Eyjólfur Konráð sagðist efast um að rétt
sé að bera samninginn undir þjóðarat-
kvæði. Kjörnum fulltrúum þjóðarinnar
væri treystandi til að taka ákvörðun í
þessu mikilvæga máli. Eyjólfur Konráð
tók þó fram að hann útilokaði ekki að
samningurinn yrði lagður undir atkvæði
þjóðarinnar.
„Það liggur fyrir að meginkrafa íslend-
inga um tollfrjálsan aðgang fyrir íslensk-
an físk hefur ekki náð fram að ganga. Það
hefur hins vegar náðst verulegur árangur
í því að lækka tolla, en það er nauðsynlegt
að fá að vita um hvernig tollalækkunin
kemur til framkvæmda. Sama má segja
um fyrirvarana t.d. um fjárfestingu í orku-
lindum og sjávarútvegi. Það skiptir máli
hvernig þeir eru orðaðir í samningnum.
Þá skiptir máli hvernig eftirliti er hagað
með skipum EB sem koma til með að fá að
veiða í íslenskri lögsögu, og einnig hvort
að ákvæðið um veiðiheimildirnar er í
sjálfum EES-samningnum eða hvort það
er í tvíhliða samningi íslands við EB.
Hvernig svo sem þessum þáttum er fyrir-
komið breyta þeir ekki eðli samningsins.
Kvennalistinn lagði á sínum tíma til að
farið yrði í tvíhliða viðræður við EB frekar
en viðræður við EES, og við höfum alla
tíð lýst yfir andstöðu okkar við að ísland
gerist aðili að slíkum samningi,“ sagði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvennalista.
Ingibjörg Sólrún gagnrýndi harkalega
hvemig utanríkisráðherra hefur komið
fram við utanríkismálanefnd Alþingis á
meðan á þessum viðræðum hefur staðið.
Ekki hefði verið fylgt ákvæðum laga um
samráð við nefndina og nefndarmenn
orðið að láta sér nægja upplýsingar úr
fjölmiðlum.
Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins: Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins:
EES er ekki lausn á
öllum okkar vandamálum
„Ég hef ekki séð þennan samning, svo ein-
kennilegt sem það kann að virðast Sam-
kvæmt lögum á nefndin að vera ríkis-
stjóminni til ráðuneytis um öll meiriháttar
utanríkismál. Þrátt fyrir þetta höfum við á
þremur fundum ekki fengið einn einasta
staf um þá samningavinnu sem unnin hef-
ur verið í Lúxemborg,“ sagði Steingrímur
Hermannsson, formaður Framsóknar-
flokksins.
,Afþví, sem ég hef séð, sýnist mér að sjáv-
arútvegshluti samningsins sé betri en útlit
var fyrir. Tollfrelsi fæst fyrir ferskan fisk,
sfld og saltfisk. Ég hef ekld enn fengið svar
við því hvort unnar sjávarafurðir em toll-
frjálsar, en það skiptir mjög miklu máli.
Vaxtarbroddur íslensks atvinnulífs liggur í
því að selja á erlendan markað sjávarafurð-
ir tilbúnar á pönnuna.
Ég vil einnig fá að sjá hvað við þurfum að
borga fyrir þetta. Ég fagna því að útlend-
ingar íá eldd að fjárfesta í veiðum eða
vinnslu, en hvað um landakaup? Hvemig
getum við haft stjóm á fólksflutningum til
landsins? Em landbúnaðarafurðimar með
í þessu? Þannig get ég haldið áfram að
spyrja. Ég vil fá svör við þessum og fleiri
spumingum áður en ég segi hug minn til
þessa máls.“
Ert þú óánægður með hvenúg að samn-
ingum var staðið á lokastigum samninga?
„Ég er mjög óánægður með að utanríkis-
málanefnd skuli ekki hafa verið upplýst um
málið. Ég hefði talið að það hefði verið gott
fyrir-utanríkisráðherra að vera í stöðugu
sambandi við utanríkismálanefhd, þannig
að hún hefði getað beint til hans vissum at-
hugasemdum og spumingum eins og ég
hef hér varpað ffam.
Það, sem við fáum núna, er samningur
sem er fullffágenginn. Honum verður ekki
breytt Við getum ekki annað gert en annað
hvort að samþykkja hann eða hafna hon-
um.
Telur þú að það eigi að bera þennan
samning tmdir þjóðaratkvæði?
Við fáum ekki allt fyrir
ekkert í EES-samningum
„Ég hef mikið hugleitt það að undanfömu
og mér finnst það koma til greina. En þá
verður samningurinn líka að liggja mjög
skýrt fyrir og kynna þarf hann vel fyrir
þjóðinni, kosti hans og galla. Þetta er tví-
mælalaust stærsti samningur sem íslend-
ingar hafa gert Hann er miklu meira en
viðskiptasamningur, eins og utanríkisráð-
herra hefur kallað hann, því að hann tekur
til svo margra annarra sviða en viðskipta.
Hvað sem hver segir, erum við með samn-
ingum að afsala okkur vissum sjálfsákvörð-
unarrétti. Ég tek ekki undir það að við sé-
um að afsala okkur fullveldinu, en við er-
um að takmarka það að vissu leyti.
Mér finnst bera dálítið mikið á því hjá
stjómvöldum að þau treysta mikið á þenn-
an samning sem lausn allra okkar vanda-
mála. Því fer víðs fjarri að hann geri það.
Hann getur beinlínis verið okkur hættu-
legur, ef við sjálfir verðum ekki duglegir að
hafa frumkvæði í atvinnumálum. Ef þessi
samningur tekur gildi. er enn mikilvægara
að íslendingar sjálfir byggi upp atvinnu-
rekstur í þessu landi og haldi fast á eigin
málum. Ef við gerum það ekki, sogumst
við inn í þetta mannhaf þar sem við höfum
ákaflega takmörkuð áhrif,“ sagði Stein-
grímur.
„Það getur enginn svarað því hér og nú
hvort þetta er góður samningur eður ei.
Þetta em mjög bamalegar yfirlýsingar hjá
utanrfldsráðherra þegar hann segir að ís-
lendingar hafi fengið allt fyrir ekkerL Evr-
ópubandalagið em mjög harðsvímð hags-
munasamtök og þau em þekkt fyrir að vilja
ætíð fá eitthvað fyrir sinn snúð. EB er að fá
í þessum samningum stórkostleg réttindi
hér á landi, sem það hefur ekki haft áður.
Það fær að fjárfesta hér á landi nánast eins
og það vill, ef sjávarútvegurinn er undan-
skilinn. Það fær rétt til að kaupa hér dali og
firði,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins.
Ólafur Ragnar sagði að öryggisákvæði
samningsins væm óljós. Ekki væri ljóst
hvort eða hvemig íslendingar gætu komið
í veg fyrir að hér hefjist stórfelldur inn-
flutningur erlends vinnuafls, eða að út-
lendingar kaupi hér lönd og dali. Hann
benti á að EB geti gripið til gagnráðstafana
ef íslendingar grípi til öryggisákvæða og
enginn viti í hvers konar formi þær gagn-
ráðstafanir verði.
„Það er ljóst að meginkröfu íslendinga um
frjálsan markaðsaðgang fyrir fisk var hafn-
að. f staðinn fengu íslendingar tollalækk-
anir sem vissulega em mikilvægar, en ég
hef ekki fengið að sjá það á blaði hvað þær
em miklar. Em þær fyrir allar fullunnar
sjávarafurðir? Geta menn sett upp verk-
smiðjur á íslandi og framleitt fiskrétti toll-
frjálst inn á markaði EB? Er sfld, önnur en
saltsfld, tollfrjáls?
Við höfum haft bókun 6, sem hefur veitt
okkur sterka stöðu á EB- markaði fyrir
okkar sjávarafurðir. Norðmenn hafa ekki
haft þessa bókun 6. Það er búið að tala mik-
ið um að Norðmenn séu að fóma miklu fyr-
ir okkur í þessum samningi. Menn gleyma
því hins vegar að Norðmenn em að fá í
þessum samningi jafnrétti fyrir sínar sjáv-
arafurðir á mörkuðum EB, sem þeir hafa
ekki í dag. Samkeppnisstaða Norðmanna
mun styrkjast gagnvart íslenskum sjávaraf-
urðum.
Ef Alþingi samþykkir þennan samning,
þrengir það gífurlega svigrúm íslenskra
stjómvalda til að taka sjálfstæðar ákvarðan-
ir í efnahagsmálum. Alþingi og íslensk rík-
isstjóm væri ekki nema svipur hjá sjón
hvað varðar möguleika til að taka sjálfstæð-
ar ákvarðanir í efnahagsmálum. Menn geta
síðan deilt um það hvort í þessu felist full-
veldisafsal eða ekki.“
Ólafur Ragnar sagði furðulegt hvemig ut-
anríkisráðherra hefur komið fram við ut-
anríkismálanefhd á lokastigum samning-
anna. Nefndinni hafi verið haldið fyrir utan
málið og henni ekki gefnar upplýsingar,
þrátt fyrir að eftir þeim væri leitað. Hann
sagði framkomu ráðherrans vekja tor-
tryggni um að hann hafi eitthvað sem hann
vilji fela fyrir nefndinni.
Ólafur Ragnar sagði að í samningnum
væm plúsar og mínusar. Dæmið þyrfti að
gera upp, þegar allar staðreyndir málsins
lægju fyrir. Hann sagði að Alþýðubandalag-
ið myndi móta afstöðu sína til samningsins
á næstu dögum og vikum, eftir að fram hafi
farið umræða og kynning á eftii samnings-
ins í ýmsum stofnunum flokksins.
-EÓ