Tíminn - 24.10.1991, Side 3
Fimmtudagur 24. október 1991
Tíminn 3
Endanlegum frágangi lokiö á langri bíómynd og fjórum sjónvarpsþáttum:
Hvíti vikingurinn
tilbúinn í víking
Eftir nær þriggja ára starf og 420
milíjóna króna útgjöld er „Hvíti vik-
ingurinn" endanlega tilhiíinn að
leggja i víking. Um er að ræða 130
mmútna langmynd, sem verður
frumsýnd í Háskólabíói þann 1. nðv-
ember n.k. og víða í Noregi viku síð-
ar, og einnig flóra sjónvarpsþætti,
samtals rúmlega 300 mmútur, sem
verða sýndir á næsta ári. Mynd
Hrafns Gimnlaugssonar, „Hvíti vik-
ingurinn", er framleidd af Filmeffekt
A/S fyrir norrænu sjónvarpsstöðv-
arnar. Þetta er stærsta samstarfs-
verkefni Norðurlandanna aOra á
þessu sviði og mesta stórvirki ís-
lenskrar
Kvikmyndagerðar.
Hvíti víkingurinn er saga um ástir,
valdafíkn og ástríður á tímum mikilla
þjóðfélagsbreytinga. Hin foma ásatrú
er á undanhaldi og ný trúarbrögð að
ryðja sér til rúms, hinn hvíti siður.
Leikurinn hefst í Noregi árið 999
f.Kr., á dögum Ólafs TVyggvasonar, og
berst síðan til íslands og víða um
Norðurlönd. Hvíti víkingurinn er
ekki sagnfræðilegt verk eða tilraun til
heimildasmíði, heldur skáldverk um
einstaklinga og örlög þeirra í ölduróti
tímans. Askur og Embla eru peð í
valdatafli konungs og fyrir þeim
liggja þungar raunir.
„Eg hef kosið að nota komunga leik-
ara í hlutverk Asks og Emblu, vegna
þess að þeir hala eitthvað við sig sem
flestir hafa glatað um tvítugt... tryllta
glóð í augum ... dulúðugt yfirbragð.
Þeir eru nægilega óreyndir til að
halda að allt sé mögulegt Um það
fjallar Hvíti víkingurinn," segir Hrafn
Gunnlaugsson, sem er höfúndur
sögu og leiktexta og leikstjóri mynd-
arinnar. Hrafn valdi líka alla leikara,
sem flestir em íslenskir, sem og töku-
staði myndarinnar. Umhverfi, bún-
inga og tíðaranda sköpuðu Ensio Su-
ominen, Karl Júlíusson og Þór Vig-
fússon. Kvikmyndatökumaður var
Svíinn Tony Forsberg. Sylvia Inge-
marsson klippti myndina í samvinnu
við höfund. Hans- Erik Philip og Egill
Ólafsson sáu um útsetningu og upp-
töku tónlistar, sem er eftir Torgils
Moe og leikstjórann, en leikin af
Norsku sinfóníuhljómsveitinni.
Um þrjú ár em síðan undirbúningur
hófst að Hvíta víkingnum. Fullunnið
handrit lá fyrir sumarið 1989. Upp-
tökur fóm fram haustið 1990. Öll
inniatriði vom tekin í myndveri í
Noregi. Það, sem gerist á Norður-
löndum, er tekið upp á vesturströnd
Noregs, en myndin var að öðm leyti
tekin á íslandi. Alls var kvikmyndað í
um 90 daga. Um 600 manns vom í
stærstu atriðunum. Heildarkostnað-
Sléttuúlf-
arnir fá
platínuplötu
Það er harla fátítt að fyrsta plata
hljómsveitar nái góðri sölu. Þetta
gerðist þó með fyrstu plötu Sléttu-
úlfanna Líf og fjör í Fagradal, en
- hún hefur hlotið frábærar viðtökur
og selst í yfir 7500 eintökum. Núna
nýverið afhentu Kristinn Sigtryggs-
son, framkvæmdastjóri Skífunnar,
og Halldór Bachmann, markaðs-
stjóri Skífunnar, hljómsveitarmeð-
limum platínuplötu rétt fyrir út-
sendingu á fýrsta þættinum af
Óskastund, en Sléttuúlfarnir gerðu
á dögunum samning við Stöð 2 um
að vera húshfjómsveit í þáttunum.
Sléttuúlfana skipa þeir Björgvin
Halldórsson, BJ. Cole, Gunnar
Þórðarson, Gunnlaugur Briem,
Magnús Kjartansson og Tómas M.
Tómasson. -js
ur við kvikmyndina og þáttaröðina
var um 42 milljónir sænskra króna,
þ.e. um 420 milljónir íslenskar. Verk-
ið er að hluta til fjármagnað af einka-
fyrirtækjum og sjónvarpsstöðvum ut-
an Norðurlanda.
Hvíti víkingurinn er leikinn á ís-
lensku. Askur og Embla eru leikin af
16 ára ungmennum, Gottskálk Degi
Sigurðarsyni og norsku stúlkunni
Maríu Bonnevie. Aðrir íslenskir leik-
arar eru m.a. Helgi Skúlason, Egill
Ólafsson, Þorsteinn Hannesson, Bríet
Héðinsdóttir, Sveinn M. Eiðsson,
Gunnar Jónsson, Róbert Amfinns-
son, Flosi ólafsson, María Sigurðar-
dóttir, Edda Björgvinsdóttir, Þráinn
Karlsson og Ámi Tryggvason.
Þessa auglýsingu skaltu lesa vandlega
Allan sólarhringinn, 365 daga ársirisrfeta börn og
unglingar hringt í símaþjónustu Rauðakrosshússins
til að leita aðstoðar eða ráðlegginga...
Áttu í erfiðleikúm V .
Hefurðu áhyggjur vegna einhvers?
Vantar þig einhvem til að tala við ?
£r þér stritt ?
Skilja félagar þínir þig útundan ?
Líður þér ia vegna feimni ?
Viltu ræða viðkvæm mál ?
Vantar þíg upplýsingar um getnaðar-
varnir, kynsjúkdóma, blæðingar,
þungun'eðá fóstureyðingu ?
Nærðu engu sambándi víð foreldra þína ?
Hefurðu orðið að þola ofbeldi ?
Hefurðu orðið fyrir kynferðislegri áreítni
eða kynferðislegu oíbeldi ?
Ertu að gefast upp á drykkjuskap eða
annarri óreglu heima hjá þér ?
Hefurðu ekki lengur stjóm á áfengisneyslu
eða notkun annarra vímuefha ?
Finnst þér þú ekki eiga neitt heimi lengur ?
Átt þú ekki í önnur hús að venda ?
Áttu í erfiðleikum í skóla ?
Svariröu eínhverri spumingu játandí, gæti þaö
breytt miklu fyrir þíg að hringja í okkur.
ViÖ erum reiðubúín aö hlusta, ræöa viö þig og
reyna aö leysa úr vanda þínum.
SÍMAÞJÓNUSTA RAUÐAKROSSHÚSSINS hefur veríð starfrækt
frá 14. desember 1985 og á þeim tíma hafa yfír 8.000 símtöl átt sér stað
á míllí barna eða unglínga og starfsmanna hússíns.
Símhríngíngarnar koma allsstaðar að á landínu og er SÍMAÞJÓNUSTA
RAUÐAKROSSHÚSSINS fyrst og fremst ætluð ungmennum að 20 ára aldri. Æjp
Nú hefur svokallað grænt númer verið tekið í notkun. Það er fyrir þá sem hringja
frá öðru svæðisnúmeri en 91 og kostar nú jafn mikið að hringja í það og uigÆjyjj
ínnanbæjarsímtal væri að ræða og það skráist ekki á sundurliðaða símreíknínga3^®
og athugíð að ekki þarf að gefa upp nafn eða aðrar upplýsíngar þegar hringt er. W
Grænt númer
Hverjir hringja í
SÍMAÞJÓNIJSTII
RAUÐAKROSSHÚSSINS 1
10%-
n//v a?cz>c? <— a/r? a?a>c? <— cvcvc?
r-r-r-r-w-r-r-r-r- r-SVn/n/O/C?
Hvenær sólarhringsins var hringt í símaþjónustuna árið 1990
Kíwanísklúbburínn KATLA
styrkír þessa auglýsíngu
Alþjóðamarkmíð
Kiwanishreyfingarinncir
árin 1990 - 1993:
„Bömin fýrst
og fremst“
RAUÐAKROSSHUSIÐ
TJARNARGOTU 35,101 REYKJAVIK
Þeir sem búa á höfuöborgarsvæöinu
hringi í síma: 62 22 66
Þeir sem hringja utan af landi hringi í
síma: 99-66 22 (Ekki svæöisnúmer 91)