Tíminn - 24.10.1991, Blaðsíða 7

Tíminn - 24.10.1991, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 24. október 1991 Tíminn 7 VETTVANGUR Matthías Björnsson: Fullveldi okkar í stórhættu Við erum hér samankomin til að ræða um aö halda fullveldi okk- ar óskertu á allan hátt Veigamesta málið í dag er baráttan um að- alauðlind okkar, fiskveiðilandhelgina og fiskvinnsluna. Vægast sagt hefur umræðan um Evrópskt efnahagssvæði, EES, og Evr- ópubandalagið, EB, verið til háborinnar skammar, en sumir ráða- menn þjóðarinnar hafa haldið mörgum spumingum leyndum, td. hefur verið spurt: 1. Getum við til lengdar útilok- að erlenda aðila innan EB eða EES frá því að kaupa hlutabréf f fýrirtækjum sem eru í fisk- vinnslu en eiga líka fiskiskip, svo sem Skildi hf. og Fiskiðjunni á Sauðárkróki eða Útgerðarfélagi Akureyringa eða ýmsum öðrum fyrirtækjum. Þessu hefur ekki verið svarað. 2. Felst í atvinnufrelsinu að er- lend fyrirtæki innan Efnahags- bandalagsins, EB, sem taka að sér að reisa raforkuver eða önnur mannvirki á íslandi, geti flutt inn verkamenn, iðnaðarmenn og tæknimenn eins og þau telja hagkvæmast? Ekkert svar, en Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra hefúr ýjað að því að leyfa eigi erlendum einka- fyrirtækjum að reisa orkuver á íslandi. 3. Geta erlendar ferðaskrifstofúr komið hingað með eigin bfla, far- arstjóra og allt það sem þær telja sér henta? Geta þær eða aðrir er- lendir ferðaaðilar innan EB reist hótel á vinsælum ferðamanna- stöðum ef þeir fá tilskilin leyfi frá sveitarfélögum? Getum við ís- lendingar haft nauðsynlegt vald á umhverfismálum ef þetta yrði raunin? Ekkert svar. Hvað verður um Ferðaþjónustu bænda, sem er ný atvinnugrein og hefur gefist vel, og íslenskan hótelrekstur ef þetta nær fram að ganga? 4. Geta ríkisborgarar frá EB- löndunum keypt hér jarðeignir og laxveiðiár á sama hátt og ís- lendingar? Ekkert svar. 5. Er hægt að koma í veg fyrir að útlendingar kaupi sig inn í út- gerð og fiskvinnsluna? Ekkert svar. Hvað viðvíkur þessum ósvöruðu spurningum frá ráðamönnum okkar er stórhætta á ferðinni (og það er kannski þess vegna sem hinu sanna er haldið leyndu), en það er að fullveldi okkar er í stórhættu vegna þess að með samningum um Evrópskt efna- hagssvæði, EES, er komið að hinu svonefnda fjórfrelsi, en það felur f sér að erlendir auðhringar fái fullt frelsi til athafna á landi okkar og ótakmarkaðan inn- flutning á erlendu vinnuafli. Einu megum við ekki gleyma, að lög Efnahagsbandalagsins verða ofar okkar íslensku lögum. Sem dæmi má nefna að Englendingar hafa nýverið glatað sinni land- helgi vegna þess að lög Efnahags- bandalagsins voru æðri lögum Englendinga og þess vegna fá nú spænskir togarar að veiða í breskri landhelgi en sigla með aflann til Spánar; svo koma fleiri erlendir togarar inn í enska land- helgi svo hún verður fljótt þurr- ausin. Annað gott dæmi má taka, en það er að í Danmörku hafa út- lendingar keypt upp stór land- svæði og nú er það orðið stór- vandamál þar og einnig hvað innflutt fólk snertir. Danmörk er í Efnahagsbandalaginu, svo auð- velt er að sjá hvað við íslendingar eigum í vændum. Er það þetta sem sumir íslensk- ir ráðamenn vilja fá yfir sína eig- in þjóð? Ég spyr. Það er hroðalegt til þess að vita að við skulum eiga á okkar landi menn sem vilja steypa okkur í slíka glötun — taka frá okkur frelsið sem við höfum svo lengi barist fyrir. Það er að segja ef þeir ætla að koma okkur inn f Efnahagsbandalagið. Þann 27. júlí sl. er f einu Reykja- víkurdagblaðanna viðtal við Þröst Olafsson, aðstoðarmann Jóns Baldvins utanríkisráðherra, þar sem hann segir meðal ann- ars: „Ég held að það sé ákaflega slæmt veganesti að fara inn í þessar breytingar fullir af hræðslu. Þjóðin mun ekki kom- ast að neinni skynsamlegri nið- urstöðu ef hún verður orðin svo skelfd og hrædd að hún þori ekki neinar ákvarðanir að taka.“ (Ég segi: Eru nokkur undur þótt þjóðin sé á báðum áttum, þar sem hún hefur ekki hugmynd um hvað í raun og veru er að ger- ast, því öllu er haldið leyndu, eins og ég sagði hér að framan.) Síðan segir Þröstur: Ég held nefnilega að öruggasta leiðin til að koma okkur inn f Evrópu- bandalagið, sé sú að eyðileggja möguleikana á samkomulagi um Evrópskt efnahagssvæði, EES. Ef við náum ekki þessu EES-sam- komulagi, sem er vöm gegn Evr- ópubandalaginu, þá verður okk- ur beint eða óbeint þrýst inn í Evrópubandalagið." Tilvitnun lýkur. Þá er Þröstur spurður: ,ýVf hverjum?" Þröstur svarar: ,Af okkur sjálfum, vegna þess að að- dráttarafl bandalagsins verður of mikið og stjómmálamenn stand- ast það ekki.“ Tilvitnun lýkur. Það er alveg út f hött hjá Þresti þegar hann segir að EES-sam- komulag sé vörn gegn Evrópu- bandalaginu, vegna þess að aðild að EES er að minnsta kosti 60% hlutdeildar af fullri aðild að Evr- ópubandalaginu, EB. Þvflík háðung — sem sagt: ís- lenskir stjórnmálamenn ætla, þrátt fyrir allt, að troða okkur inn f bandalag sem við höfum í raun og vem ekkert að gera í, og þetta er aðstoðarmaður Jóns Baldvins utanríkisráðherra sem lætur slíkt frá sér fara. Astæðan fyrir því, að ég segi að við höfum ekkert í slík bandalög að gera, er þessi: Undanfarna daga hafa höfðingjamir í Brússel sýnt sínar hvössu klær þegar smáþjóð á í hlut, eins og við ís- lendingar emm. Þessar þjóðir í Evrópu, sem við höfum haft við- skipti við um aldir, heimta nú höfuðauðlind okkar, fiskimiðin, og síðan land okkar (sbr. Dan- mörk). Með öðmm orðum: þeir em að kúga smáþjóð með alls konar hótunum, svo sem að hækka tolla á fiskafurðum okkar o.s.frv. Við slíka menn er ekki hægt að semja. Þetta em efna- hagslegar þvinganir. Hvar er nú lýðræðið hjá þessum svokölluðu vinaþjóðum, eða em þær orðnar verri en svokallaðir kommúnistar eða nasistar? Á meðan svo er höfum ekkert að gera í EES eða EB. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra hefúr undanfarið staðið sig sérstaklega vel, með okkur andstæðingum EES og EB. í ágætri ræðu, sem hann hélt nýverið úti á Spáni þar sem sjáv- arútvegsráðherrar frá 40 löndum vom staddir, sagði Þorsteinn meðal annars: „Við verðum ætíð að hafa í huga það grundvallarsjónarmið að tryggja varanlegan afrakstur af öllum tegundum sjávardýra. Við megum ekki láta skammtíma- hagsmuni leiða okkur á blind- götu ofnýtingar á þessari við- kvæmu auðlind." Á öðmm stað segir Þorsteinn: „Vegna þess hversu íslendingar em háðir fiskveiðum, er mjög brýnt fyrir okkur að afnumdar verði allar innflutningstakmarkanir á sjáv- arafurðum og vemdartollar. Samkvæmt núgildandi reglum EB njóta sjávarafurðir sömu vemdar og landbúnaðarvömr, sem þýðir að markaðsöfl fá ekki ráðið um verðmyndun og fram- boð í sama mæli og ef um frí- verslun væri að ræða.“ Þá segir Þorsteinn einnig: „Stefna EB brýtur einnig í bága við lögmál frjálsra viðskipta með því að ríki utan bandalagsins hafa ekki jafti- an aðgang að mörkuðum EB. Þetta er sérstaklega ósanngjarnt gagnvart íslendingum, sem leggja enga verndartolla á iðnað- arvömr frá ríkjum Evrópubanda- lagsins, hvað þá fiskafurðir." Til- vitnun lýkur. Þetta er góð lýsing hjá sjávarút- vegsráðherra okkar, hvemig Efnahagsbandalagið ætlar að þvinga okkur, og em það óheið- arlegir viðskiptahættir, það hlýt- ur hver maður að sjá. Þorsteinn sagði einnig: „Um heim allan blása nú vindar frjáls- ræðis í viðskiptum þjóða á milli.“ Tilvitnun lýkur. Þetta er einnig rétt, því öll þjóð- lönd em nú óðum að opnast og því auðvelt fyrir okkur íslend- inga að versla við aðrar þjóðir án nokkurra afarkosta. Við viljum versla við allar Evrópuþjóðir og allar þjóðir heims, en á heiðar- legum viðskiptagmndvelli, án kúgunar eða þvingana. Allir verða að njóta sannmælis og auðvitað Jón Baldvin líka. Nýver- ið hélt Jón Baldvin ræðu hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. í lok ræðu sinnar sagði hann: „Sú stefna Evrópubanda- lagsins að tengja viðskipti og að- gang að auðlindum, er algjörlega óviðeigandi og óásættanleg." Til- vitnun lýkur. Þetta er vel mælt hjá Jóni Baldvin, en síðan bætir hann við: „Sú stefna er þröskuld- ur í vegi fyrir frekari sammna í Evrópu." Tilvitnun lýkur. Hvað á Jón Baldvin við með frekari sammna Evrópu? Ég spyr. Ætlar hann með þjóðina inn í EES — Qórfrelsið eða EB. Ég spyr líka um það. Vill hann kannski það sama og Gylfi Þ. Gíslason, þegar hann sagði á ald- arafmæli Þjóðminjasafns íslands: ,Að treysta sjálfstæði þjóðarinn- ar með því að fórna því.“ „... þess vegna ætlum við að binda kænu smáríkis aftan í hafskip stórveld- is.“ Hafið þið nokkurn tíma heyrt annað eins? En á þessum tíma var hann formaður Alþýðuflokks- ins og menntamálaráðherra í viðreisnarstjóminni. Nú er Jón Baldvin í forsvari fyr- ir alþýðu þessa lands. Ég trúi því aldrei fyrr en á reynir að hann muni gera slíkt hið sama. Jón Baldvin hefur drengilega stutt við bakið á Eystrasaltslönd- unum í sjálfstæðisbaráttu þeirra og ég trúi ekki öðm en að hann standi jafndyggilega við bakið á sinni eigin þjóð þegar til átaka kemur nú á næstunni, hvort við munum glata öllu okkar í hend- ur erlendra auðhringa. Eins og við vitum áttum við hér áður fyrr menn, sem tilbúnir vom til að fara aftan að sinni eigin þjóð í sjálfstæðisbaráttu hennar, en vonandi em þeir horfnir af sjón- arsviðinu. Við sjáum hvað setur og við verðum öll að vera vel á verði. Einmitt núna. Ólafur heitinn Thors, sá mæti stjómmálamaður, hann sagði aftur á móti skýmm orðum þann 10. júní 1962: „Eitt er víst. Við Iátum ekki eftir þumlung af landhelginni við ísland.“ Og frá því má ekki hvika. Enn leyfi ég mér að vitna til Þorsteins Pálssonar ráðherra, en í grein eftir hann í Mbl. 28. sepL sl. segir m.a.: ,Að fulltrúar EB hafi nú á dög- unum áréttað enn á kröfuna um markaðsaðgang og heimild til fjárfestinga í sjávarútvegi, en með frjálsum fjárfestingum gætu fyrirtækin innan EB komist bak- dyramegin inn í okkar fiskveiði- lögsögu." Þá segir Þorsteinn: ,J4enn mega mætavel vita að ís- land verður ekki aðili að þessu samkomulagi ef þessari kröfu verður haldið til streitu. Það er órofa samstaða meðal íslenskra stjórnmálamanna um það og hefur þessari kröfu EB verið svarað með mjög skýrum hætti af aðalsamningamanni okkar.“ Að lokum segir Þorsteinn: „Því hefur verið haldið fram að Efna- hagsbandalagið vildi ljúka þess- um samningum, en hugmyndin um EES var upprunalega frá Efnahagsbandalaginu. Ég vona að á þeim skamma tíma sem eftir er til að ná samkomulagi sjá bandalagið að sér og skilji okkar sjónarmið.“ Tilvitnun lýkur. Nú er Þorsteinn Pálsson búinn að lýsa því yfir og er það alveg rétt hjá honum að það var Efna- hagsbandalagið sem fyrst kom á viðræðum um Evrópskt efna- hagssvæði, en með tilkomu þess er stefnt beint á „frelsin íjögur“ svonefndu eða „fjórfrelsið", en þar er mesta hættan, því í fjór- frelsinu innifelst að erlendar þjóðir fá óheftan aðgang til að fjárfesta t.d. í útgerðinni, fall- vötnunum, orkunni, landbúnaði, ferðaþjónustu, laxveiðiánum og vötnum og að lokum, eins og ég hef sagt áður: bæir, kot og höfuð- ból munu falla f hendur útlend- inga. Fjórfrelsið innifelur í sér einnig ótakmarkaðan innflutn- ing á erlendu fólki af hvaða þjóð- emi sem er, til vinnu hér á landi. Með því ofurfjármagni, sem fjölþjóðafyrirtæki Evrópumark- aðarins ráða yfir, yrði íslenskum fyrirtækjum rutt úr vegi í eigin landi á samkeppnisgrundvelli í þeim greinum sem erlendu fyr- irtækjunum þættu gróðavænleg- ar — og þessu skulum við eldd gleyma. Hvað verður um fs- lenskan atvinnurekstur og ís- lenskt einkaframtak sem við öil sfyðjum? — Þetta mun allt hverfa inn f erlend auðhringafyr- irtæki. Ég vona að Þorsteinn sjávarút- vegsráðherra sé sannspár þegar hann sagði að órofa samstaða væri meðal íslenskra stjómmála- manna, en það munum við sjá síðar. Én ekki er svo að skilja af ummælum Þrastar Ólafssonar hér á undan. Stjórnmálamenn okkar ættu auðvitað að standa saman sem ein órofa heild og segja: „Við mótmælum allir“, bæði EES- og EB-samningum. Mín skoðun er sú og margra annarra að hættulegasti maður- inn í umræðunni, sérstaklega hvað viðkemur EES og fjórfrels- inu, sé Jón Sigurðsson viðskipta- ráðherra, en hann hefur gefið í skyn að hleypa beri svo og svo miklu erlendu fjármagni inn í landið. Hann heldur samningum leyndum og tjáir sig ekki nóg. Hann vill jafnvel selja innlenda banka sem þjóðin á og skila góð- um hagnaði. Þögnin getur verið hættulegust. Enginn frýr þér vits, en meir ertu grunaður um græsku (með öðr- um orðum: Ekki ertu heimskur, en álitinn brögðóttur). Og lítið heyrist f forsætisráðherranum um þessi máll Ég hef nokkuð vitnað í skrif Þorsteins Pálssonar ráðherra, í góðri meiningu, því mér finnst hann hafa haldið mjög samvisku- samlega á málum þjóðar sinnar í öllum þessum átökum um EES ogEB. Eg er alls ekki einn um að halda því fram, það er fjöldinn allur sem álítur það sama; hann er at- hugull og réttlátur stjórnmála- maður, enda staðið sig vel í sínu embætti. Ég er þess fullviss að hann og aðrir stjórnmálamenn taka saman höndum um vernd- un fullveldis okkar. Ef búið er að gefa einhvern ádrátt um gagn- kvæmar veiðiheimildir, þá skora ég hér með á alla stjórnmála- menn okkar að standa saman sem einn maður, breyta sinni skoðun og leyfa alls ekki gagn- kvæmar veiðiheimildir. Við ráð- um ekki við tugi erlendra verk- smiðjutogara komna á okkar mið. Það myndi einnig kosta þjóðina tugi milljóna f landhelg- isgæslu og á því höfum við engin ráð nú, fyrir utan alla frekju er- lendra togara í fiskinn okkar. Að lokum treysti ég öllum ís- lendingum að standa einhuga saman í baráttunni gegn EES og EB. Þess vegna hvet ég alla lands- menn að skrá sig á undirskrifta- lista „Samtaka um óháð ísland", því það verður líka mikill styrkur fyrir þá ráðherra í þessari ríkis- stjórn og aðra stjórnmálamenn sem standa með okkur vörð um fullveldi íslensku þjóðarinnar. Við megum aldrei láta það ger- ast að verða útlendingar á ís- landi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.