Tíminn - 24.10.1991, Page 7
Fimmtudagur 24. október 1991
Tíminn 7
VETTVANGUR
Matthías Björnsson:
Fullveldi okkar í stórhættu
Við erum hér samankomin til að ræða um aö halda fullveldi okk-
ar óskertu á allan hátt Veigamesta málið í dag er baráttan um að-
alauðlind okkar, fiskveiðilandhelgina og fiskvinnsluna. Vægast
sagt hefur umræðan um Evrópskt efnahagssvæði, EES, og Evr-
ópubandalagið, EB, verið til háborinnar skammar, en sumir ráða-
menn þjóðarinnar hafa haldið mörgum spumingum leyndum,
td. hefur verið spurt:
1. Getum við til lengdar útilok-
að erlenda aðila innan EB eða
EES frá því að kaupa hlutabréf f
fýrirtækjum sem eru í fisk-
vinnslu en eiga líka fiskiskip, svo
sem Skildi hf. og Fiskiðjunni á
Sauðárkróki eða Útgerðarfélagi
Akureyringa eða ýmsum öðrum
fyrirtækjum.
Þessu hefur ekki verið svarað.
2. Felst í atvinnufrelsinu að er-
lend fyrirtæki innan Efnahags-
bandalagsins, EB, sem taka að
sér að reisa raforkuver eða önnur
mannvirki á íslandi, geti flutt inn
verkamenn, iðnaðarmenn og
tæknimenn eins og þau telja
hagkvæmast?
Ekkert svar, en Jón Sigurðsson
iðnaðarráðherra hefúr ýjað að
því að leyfa eigi erlendum einka-
fyrirtækjum að reisa orkuver á
íslandi.
3. Geta erlendar ferðaskrifstofúr
komið hingað með eigin bfla, far-
arstjóra og allt það sem þær telja
sér henta? Geta þær eða aðrir er-
lendir ferðaaðilar innan EB reist
hótel á vinsælum ferðamanna-
stöðum ef þeir fá tilskilin leyfi frá
sveitarfélögum? Getum við ís-
lendingar haft nauðsynlegt vald á
umhverfismálum ef þetta yrði
raunin?
Ekkert svar. Hvað verður um
Ferðaþjónustu bænda, sem er ný
atvinnugrein og hefur gefist vel,
og íslenskan hótelrekstur ef
þetta nær fram að ganga?
4. Geta ríkisborgarar frá EB-
löndunum keypt hér jarðeignir
og laxveiðiár á sama hátt og ís-
lendingar?
Ekkert svar.
5. Er hægt að koma í veg fyrir að
útlendingar kaupi sig inn í út-
gerð og fiskvinnsluna?
Ekkert svar.
Hvað viðvíkur þessum ósvöruðu
spurningum frá ráðamönnum
okkar er stórhætta á ferðinni (og
það er kannski þess vegna sem
hinu sanna er haldið leyndu), en
það er að fullveldi okkar er í
stórhættu vegna þess að með
samningum um Evrópskt efna-
hagssvæði, EES, er komið að
hinu svonefnda fjórfrelsi, en það
felur f sér að erlendir auðhringar
fái fullt frelsi til athafna á landi
okkar og ótakmarkaðan inn-
flutning á erlendu vinnuafli.
Einu megum við ekki gleyma, að
lög Efnahagsbandalagsins verða
ofar okkar íslensku lögum. Sem
dæmi má nefna að Englendingar
hafa nýverið glatað sinni land-
helgi vegna þess að lög Efnahags-
bandalagsins voru æðri lögum
Englendinga og þess vegna fá nú
spænskir togarar að veiða í
breskri landhelgi en sigla með
aflann til Spánar; svo koma fleiri
erlendir togarar inn í enska land-
helgi svo hún verður fljótt þurr-
ausin.
Annað gott dæmi má taka, en
það er að í Danmörku hafa út-
lendingar keypt upp stór land-
svæði og nú er það orðið stór-
vandamál þar og einnig hvað
innflutt fólk snertir. Danmörk er
í Efnahagsbandalaginu, svo auð-
velt er að sjá hvað við íslendingar
eigum í vændum.
Er það þetta sem sumir íslensk-
ir ráðamenn vilja fá yfir sína eig-
in þjóð? Ég spyr. Það er hroðalegt
til þess að vita að við skulum eiga
á okkar landi menn sem vilja
steypa okkur í slíka glötun —
taka frá okkur frelsið sem við
höfum svo lengi barist fyrir. Það
er að segja ef þeir ætla að koma
okkur inn f Efnahagsbandalagið.
Þann 27. júlí sl. er f einu Reykja-
víkurdagblaðanna viðtal við
Þröst Olafsson, aðstoðarmann
Jóns Baldvins utanríkisráðherra,
þar sem hann segir meðal ann-
ars: „Ég held að það sé ákaflega
slæmt veganesti að fara inn í
þessar breytingar fullir af
hræðslu. Þjóðin mun ekki kom-
ast að neinni skynsamlegri nið-
urstöðu ef hún verður orðin svo
skelfd og hrædd að hún þori ekki
neinar ákvarðanir að taka.“ (Ég
segi: Eru nokkur undur þótt
þjóðin sé á báðum áttum, þar
sem hún hefur ekki hugmynd
um hvað í raun og veru er að ger-
ast, því öllu er haldið leyndu,
eins og ég sagði hér að framan.)
Síðan segir Þröstur: Ég held
nefnilega að öruggasta leiðin til
að koma okkur inn f Evrópu-
bandalagið, sé sú að eyðileggja
möguleikana á samkomulagi um
Evrópskt efnahagssvæði, EES. Ef
við náum ekki þessu EES-sam-
komulagi, sem er vöm gegn Evr-
ópubandalaginu, þá verður okk-
ur beint eða óbeint þrýst inn í
Evrópubandalagið." Tilvitnun
lýkur. Þá er Þröstur spurður: ,ýVf
hverjum?" Þröstur svarar: ,Af
okkur sjálfum, vegna þess að að-
dráttarafl bandalagsins verður of
mikið og stjómmálamenn stand-
ast það ekki.“ Tilvitnun lýkur.
Það er alveg út f hött hjá Þresti
þegar hann segir að EES-sam-
komulag sé vörn gegn Evrópu-
bandalaginu, vegna þess að aðild
að EES er að minnsta kosti 60%
hlutdeildar af fullri aðild að Evr-
ópubandalaginu, EB.
Þvflík háðung — sem sagt: ís-
lenskir stjórnmálamenn ætla,
þrátt fyrir allt, að troða okkur
inn f bandalag sem við höfum í
raun og vem ekkert að gera í, og
þetta er aðstoðarmaður Jóns
Baldvins utanríkisráðherra sem
lætur slíkt frá sér fara.
Astæðan fyrir því, að ég segi að
við höfum ekkert í slík bandalög
að gera, er þessi: Undanfarna
daga hafa höfðingjamir í Brússel
sýnt sínar hvössu klær þegar
smáþjóð á í hlut, eins og við ís-
lendingar emm. Þessar þjóðir í
Evrópu, sem við höfum haft við-
skipti við um aldir, heimta nú
höfuðauðlind okkar, fiskimiðin,
og síðan land okkar (sbr. Dan-
mörk). Með öðmm orðum: þeir
em að kúga smáþjóð með alls
konar hótunum, svo sem að
hækka tolla á fiskafurðum okkar
o.s.frv. Við slíka menn er ekki
hægt að semja. Þetta em efna-
hagslegar þvinganir.
Hvar er nú lýðræðið hjá þessum
svokölluðu vinaþjóðum, eða em
þær orðnar verri en svokallaðir
kommúnistar eða nasistar? Á
meðan svo er höfum ekkert að
gera í EES eða EB.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra hefúr undanfarið staðið
sig sérstaklega vel, með okkur
andstæðingum EES og EB.
í ágætri ræðu, sem hann hélt
nýverið úti á Spáni þar sem sjáv-
arútvegsráðherrar frá 40 löndum
vom staddir, sagði Þorsteinn
meðal annars:
„Við verðum ætíð að hafa í huga
það grundvallarsjónarmið að
tryggja varanlegan afrakstur af
öllum tegundum sjávardýra. Við
megum ekki láta skammtíma-
hagsmuni leiða okkur á blind-
götu ofnýtingar á þessari við-
kvæmu auðlind." Á öðmm stað
segir Þorsteinn: „Vegna þess
hversu íslendingar em háðir
fiskveiðum, er mjög brýnt fyrir
okkur að afnumdar verði allar
innflutningstakmarkanir á sjáv-
arafurðum og vemdartollar.
Samkvæmt núgildandi reglum
EB njóta sjávarafurðir sömu
vemdar og landbúnaðarvömr,
sem þýðir að markaðsöfl fá ekki
ráðið um verðmyndun og fram-
boð í sama mæli og ef um frí-
verslun væri að ræða.“ Þá segir
Þorsteinn einnig: „Stefna EB
brýtur einnig í bága við lögmál
frjálsra viðskipta með því að ríki
utan bandalagsins hafa ekki jafti-
an aðgang að mörkuðum EB.
Þetta er sérstaklega ósanngjarnt
gagnvart íslendingum, sem
leggja enga verndartolla á iðnað-
arvömr frá ríkjum Evrópubanda-
lagsins, hvað þá fiskafurðir." Til-
vitnun lýkur.
Þetta er góð lýsing hjá sjávarút-
vegsráðherra okkar, hvemig
Efnahagsbandalagið ætlar að
þvinga okkur, og em það óheið-
arlegir viðskiptahættir, það hlýt-
ur hver maður að sjá.
Þorsteinn sagði einnig: „Um
heim allan blása nú vindar frjáls-
ræðis í viðskiptum þjóða á milli.“
Tilvitnun lýkur.
Þetta er einnig rétt, því öll þjóð-
lönd em nú óðum að opnast og
því auðvelt fyrir okkur íslend-
inga að versla við aðrar þjóðir án
nokkurra afarkosta. Við viljum
versla við allar Evrópuþjóðir og
allar þjóðir heims, en á heiðar-
legum viðskiptagmndvelli, án
kúgunar eða þvingana. Allir
verða að njóta sannmælis og
auðvitað Jón Baldvin líka. Nýver-
ið hélt Jón Baldvin ræðu hjá
Sameinuðu þjóðunum í New
York. í lok ræðu sinnar sagði
hann: „Sú stefna Evrópubanda-
lagsins að tengja viðskipti og að-
gang að auðlindum, er algjörlega
óviðeigandi og óásættanleg." Til-
vitnun lýkur. Þetta er vel mælt
hjá Jóni Baldvin, en síðan bætir
hann við: „Sú stefna er þröskuld-
ur í vegi fyrir frekari sammna í
Evrópu." Tilvitnun lýkur.
Hvað á Jón Baldvin við með
frekari sammna Evrópu? Ég
spyr. Ætlar hann með þjóðina
inn í EES — Qórfrelsið eða EB.
Ég spyr líka um það. Vill hann
kannski það sama og Gylfi Þ.
Gíslason, þegar hann sagði á ald-
arafmæli Þjóðminjasafns íslands:
,Að treysta sjálfstæði þjóðarinn-
ar með því að fórna því.“ „... þess
vegna ætlum við að binda kænu
smáríkis aftan í hafskip stórveld-
is.“ Hafið þið nokkurn tíma heyrt
annað eins? En á þessum tíma
var hann formaður Alþýðuflokks-
ins og menntamálaráðherra í
viðreisnarstjóminni.
Nú er Jón Baldvin í forsvari fyr-
ir alþýðu þessa lands. Ég trúi því
aldrei fyrr en á reynir að hann
muni gera slíkt hið sama.
Jón Baldvin hefur drengilega
stutt við bakið á Eystrasaltslönd-
unum í sjálfstæðisbaráttu þeirra
og ég trúi ekki öðm en að hann
standi jafndyggilega við bakið á
sinni eigin þjóð þegar til átaka
kemur nú á næstunni, hvort við
munum glata öllu okkar í hend-
ur erlendra auðhringa. Eins og
við vitum áttum við hér áður fyrr
menn, sem tilbúnir vom til að
fara aftan að sinni eigin þjóð í
sjálfstæðisbaráttu hennar, en
vonandi em þeir horfnir af sjón-
arsviðinu. Við sjáum hvað setur
og við verðum öll að vera vel á
verði. Einmitt núna.
Ólafur heitinn Thors, sá mæti
stjómmálamaður, hann sagði
aftur á móti skýmm orðum þann
10. júní 1962: „Eitt er víst. Við
Iátum ekki eftir þumlung af
landhelginni við ísland.“ Og frá
því má ekki hvika.
Enn leyfi ég mér að vitna til
Þorsteins Pálssonar ráðherra, en
í grein eftir hann í Mbl. 28. sepL
sl. segir m.a.:
,Að fulltrúar EB hafi nú á dög-
unum áréttað enn á kröfuna um
markaðsaðgang og heimild til
fjárfestinga í sjávarútvegi, en
með frjálsum fjárfestingum gætu
fyrirtækin innan EB komist bak-
dyramegin inn í okkar fiskveiði-
lögsögu." Þá segir Þorsteinn:
,J4enn mega mætavel vita að ís-
land verður ekki aðili að þessu
samkomulagi ef þessari kröfu
verður haldið til streitu. Það er
órofa samstaða meðal íslenskra
stjórnmálamanna um það og
hefur þessari kröfu EB verið
svarað með mjög skýrum hætti
af aðalsamningamanni okkar.“
Að lokum segir Þorsteinn: „Því
hefur verið haldið fram að Efna-
hagsbandalagið vildi ljúka þess-
um samningum, en hugmyndin
um EES var upprunalega frá
Efnahagsbandalaginu. Ég vona
að á þeim skamma tíma sem eftir
er til að ná samkomulagi sjá
bandalagið að sér og skilji okkar
sjónarmið.“ Tilvitnun lýkur.
Nú er Þorsteinn Pálsson búinn
að lýsa því yfir og er það alveg
rétt hjá honum að það var Efna-
hagsbandalagið sem fyrst kom á
viðræðum um Evrópskt efna-
hagssvæði, en með tilkomu þess
er stefnt beint á „frelsin íjögur“
svonefndu eða „fjórfrelsið", en
þar er mesta hættan, því í fjór-
frelsinu innifelst að erlendar
þjóðir fá óheftan aðgang til að
fjárfesta t.d. í útgerðinni, fall-
vötnunum, orkunni, landbúnaði,
ferðaþjónustu, laxveiðiánum og
vötnum og að lokum, eins og ég
hef sagt áður: bæir, kot og höfuð-
ból munu falla f hendur útlend-
inga. Fjórfrelsið innifelur í sér
einnig ótakmarkaðan innflutn-
ing á erlendu fólki af hvaða þjóð-
emi sem er, til vinnu hér á landi.
Með því ofurfjármagni, sem
fjölþjóðafyrirtæki Evrópumark-
aðarins ráða yfir, yrði íslenskum
fyrirtækjum rutt úr vegi í eigin
landi á samkeppnisgrundvelli í
þeim greinum sem erlendu fyr-
irtækjunum þættu gróðavænleg-
ar — og þessu skulum við eldd
gleyma. Hvað verður um fs-
lenskan atvinnurekstur og ís-
lenskt einkaframtak sem við öil
sfyðjum? — Þetta mun allt
hverfa inn f erlend auðhringafyr-
irtæki.
Ég vona að Þorsteinn sjávarút-
vegsráðherra sé sannspár þegar
hann sagði að órofa samstaða
væri meðal íslenskra stjómmála-
manna, en það munum við sjá
síðar. Én ekki er svo að skilja af
ummælum Þrastar Ólafssonar
hér á undan. Stjórnmálamenn
okkar ættu auðvitað að standa
saman sem ein órofa heild og
segja: „Við mótmælum allir“,
bæði EES- og EB-samningum.
Mín skoðun er sú og margra
annarra að hættulegasti maður-
inn í umræðunni, sérstaklega
hvað viðkemur EES og fjórfrels-
inu, sé Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra, en hann hefur gefið í
skyn að hleypa beri svo og svo
miklu erlendu fjármagni inn í
landið. Hann heldur samningum
leyndum og tjáir sig ekki nóg.
Hann vill jafnvel selja innlenda
banka sem þjóðin á og skila góð-
um hagnaði.
Þögnin getur verið hættulegust.
Enginn frýr þér vits, en meir ertu
grunaður um græsku (með öðr-
um orðum: Ekki ertu heimskur,
en álitinn brögðóttur). Og lítið
heyrist f forsætisráðherranum
um þessi máll
Ég hef nokkuð vitnað í skrif
Þorsteins Pálssonar ráðherra, í
góðri meiningu, því mér finnst
hann hafa haldið mjög samvisku-
samlega á málum þjóðar sinnar í
öllum þessum átökum um EES
ogEB.
Eg er alls ekki einn um að halda
því fram, það er fjöldinn allur
sem álítur það sama; hann er at-
hugull og réttlátur stjórnmála-
maður, enda staðið sig vel í sínu
embætti. Ég er þess fullviss að
hann og aðrir stjórnmálamenn
taka saman höndum um vernd-
un fullveldis okkar. Ef búið er að
gefa einhvern ádrátt um gagn-
kvæmar veiðiheimildir, þá skora
ég hér með á alla stjórnmála-
menn okkar að standa saman
sem einn maður, breyta sinni
skoðun og leyfa alls ekki gagn-
kvæmar veiðiheimildir. Við ráð-
um ekki við tugi erlendra verk-
smiðjutogara komna á okkar
mið. Það myndi einnig kosta
þjóðina tugi milljóna f landhelg-
isgæslu og á því höfum við engin
ráð nú, fyrir utan alla frekju er-
lendra togara í fiskinn okkar.
Að lokum treysti ég öllum ís-
lendingum að standa einhuga
saman í baráttunni gegn EES og
EB. Þess vegna hvet ég alla lands-
menn að skrá sig á undirskrifta-
lista „Samtaka um óháð ísland",
því það verður líka mikill styrkur
fyrir þá ráðherra í þessari ríkis-
stjórn og aðra stjórnmálamenn
sem standa með okkur vörð um
fullveldi íslensku þjóðarinnar.
Við megum aldrei láta það ger-
ast að verða útlendingar á ís-
landi.