Tíminn - 02.11.1991, Page 2
2
HELGIN
Laugardagur 2. nóvember 1991
95 SERÍAN
FJÖLHÆF
DRÁTTARVÉL
C'
ÁSl m
Járnhálsi 2 . Sími 91-683266
110 Rvk . Pósthólf 10180
Kröfur til vinnu með dráttarvélum eru fjöl-
breyttar og þú munt sjá að CASE International 95
sería getur ráðið við flest verk.
Dráttarvélarnar eru frá 45 til 90 hestafla, 2
gerðir af húsi, 2 eða 4 hjóla drif, 2 hraðar á vinnu-
drifi og 4 gerðir af gírkössum, m.a. vendigír og
skriðgír.
Ræöiö valbúnaö við okkar menn á þessa
gæðadráttarvél sem fæst á heimsins besta verði
og fylgt úr hlaði með okkar góðu þjónustu!
k:i:iii
HEILSUGÆSLAN í REYKJAVlK
Læknaritari óskast í 50% starf við heilsugæslustöð-
ina í Mjódd, Álfabakka 12.
Upplýsingar um starfið gefur hjúkrunarforstjóri í síma
670440.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á viðkomandi
heilsugæslustöð og á afgreiðslu Heilsuverndarstöðv-
ar Reykjavíkur, Barónsstíg 47.
Umsóknum skal skila til hjúkrunarforstjóra eða
starfsmannastjóra heilsugæslustöðva í Reykjavík
fyrir kl. 16 föstudaginn 8. nóv. n.k.
GALDRA-
MAÐUR
hverjum hún síðan burt sofnaði. En
tveim nóttum þar eftir hafi kýr hjá
fyrrgreindum Jóni dáið og ekki hafi
hann séð annað tilefni til hennar
dauða en svartan blett í gegn um
skinnið, holdið og mörinn og inn til
vambar. En ei segist fyrr greindur Jón
vitað hafa, eður vita, hvort það sé af
áður greinds Þórarins völdum eður
ei.“
Sambýlishjón Þórarins, Bjami Jóns-
son og Brit Eysteinsdóttir, báru það að
orðasenna hefði orðið út af hundi, og
hafi þá Þórarinn sagt að Brit „skyldi ei
sér til óvilja taka þó eitthvað hennar
bam yrði málstamt." Brá svo við þann
sama dag að barn þeirra Britar og
Bjarna „missti málið og þar eftir var
allur hálfur líkaminn, fóturinn, hönd-
in og hálfur munnurinn dauður, hvar
eftir þetta barn lifði þrjú dægur, og
eftir þessum fyrirfram skrifuðum lík-
indum þá segjast þau hér helst grun-
semd á hafa að Þórarinn Halldórsson
hafi þessum barnsins veikleika ollað.“
Halldóra Aradóttir á Laugabóli bar
það að sex vikum fyrir jól 1664 hafi
„leigukýrin af uppblásningi kreinkst,
hvar fyrir hún segist sent hafa á tvo
næstu bæi eftir mönnum, greinda kú
að skoða, og hafi komið Jón Einarsson
á Hrafnabjörgum, Bjami og Þórarinn
frá Bimustöðum og hafi áður greinda
kú skoðað, hvar til Þórarinn hafi þá
svarað að hann hefði þær lækningar,
ef glettingar væri á kúm, mundi henni
batna, takandi pappírsblað úr bók og
fór út í fjós og skrifaði þar nokkuð á,
en hvað verið hafði, segist hún ei vita,
og hafi hann það í trefli bundið um
háls á fyr greindri kú, svo henni þess
krankleika að þremur nóttum liðnum
batnaði."
Framsóknarvist
veröur spiluö n.k. sunnudag 3. nóvember kl. 14.00
I Danshúsinu Glæsibæ, Álfheimum 74.
Veitt veröa þrenn verölaun karta og kvenna.
Haraldur Ólafsson lektor flytur stutt ávarp I
kaffihléi.
Aðgangseyrir kr. 500. Kaffiveitingar innifaldar.
Framsóknarfélag Reykjavlkur.
Garöabær og
Bessastaöahreppur
Aðalfundur Framsóknarfélags Garðabæjar og Bessastaðahrepps
veröur haldinn mánudaginn 4. nóvember aö Goöatúni 2 kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf, kosning fulltrúa á kjördæmisþing,
önnur mál.
Kópavogsbúar —
Nágrannar
Spiluö veröur framsóknarvist að Digranesvegi 12 n.k. sunnudag 3. nóv-
ember kl. 15.00.
Góö verölaun. Kaffiveitingar.
Freyja, félag framsóknarkvenna.
Reykjavík -
Létt spjall á
laugardegi
Laugardaginn 2. nóvember veröur léttspjallsfundur.
Umræöuefni: Borgarmálefni I vetrarbyrjun.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi mun innleiöa
spjalliö.
Fundurinn veröur haldinn aö Hafnarstræti 2, Sigrún
3. hæð, og hefst kl. 10.30. Fulltrúaráðlð.
Aðalfundur miðstjórnar
Framsóknarflokksins
Aðalfundur miðstjómar Framsóknarflokksins veröur haldinn I
Borgartúni 6 Reykjavík, laugardaginn 16. nóvember n.k.
Dagskrá nánar auglýst síðar.
Framsóknarflokkurinn
Nokkru seinna veiktist svo dóttir
hennar Hallfríður Sveinsdóttir „með
veikleika dofa um sig alla upp undir
brjóst, með velgju eður klígju, hvar
eftir hún strax lagðist." Tveim nóttum
seinna var sent eftir Þórami og kom
hann þegar og strauk um „líkama
greindrar stúlku með lesningum eður
bænum og síðan skrifaði nokkuð á
blað, en hvað verið hafi segist greind
Halldóra ei vita og hafi Þórarinn sér
skipað það með trefli fyrir stúlkunnar
brjóst að binda, hvert blað hún segir
að ónýst hafi; þar eftir hafi hann um
eik beðið, hverja hann hafði með sér
haft og skipað Jón son sinn eftir að
senda, og að liðinni þeirri nótt hafi
pilturinn það sótt og segir hann Þór-
arinn hafi sér svo fyrir sagt, að snúa
þeim stóra staf upp en þeim smáa nið-
ur og bannað að láta koma undir ber-
an himin, og hafi skipað að láta heita
við eld og láta hvorki brenna né
brotna og hvorki við þau hafa spott né
spé, því gott væri á spjaldinu. Síðan
skyldi það um dragast stúlkunnar lík-
ama, þar hún veikust væri. Þar eftir
Þorláksmessu fyrir jól hafi Þórarinn
aftur komið og skoðað greinda stúlku
og sagt að hennar veikleiki væri af
manna völdum, með brennugaldri
gert, meinandi þetta að einum manni
í þessari sveit. í fimmta sinni, milli
áttadags og þrettánda, kom greindur
Þórarinn og var þá reiðulegur og
byrstur og fór svo aftur af stað. í sjötta
sinn kom Þórarinn um Þorraleyti og
heimti þetta spjald aftur, en Jón Þor-
kelsson vildi það ei af höndum láta, og
fór svo Þórarinn af stað með þungu
geði og nógum hugmóð. Og eftir
þessu öllu segist greind Halldóra hafa
fullan og allan grun um að áður téður
Þórarinn hafi valdur verið í veikleika
þessarar sinnar dóttur, Hallfríðar
Sveinsdóttur, og gefur honum fulln-
aðar áburð hér um það framast hún
má að lögum og með góðri samvisku
gera.“
Dómsmenn fundu og Þórarni það til
foráttu að hann hefði strokið úr sýsl-
unni og klippt af sér hár og skegg svo
að hann yrði torkennilegri og að hann
hefði tekið hest af fátækri ekkju og
ekki skilað honum aftur. Að lokum
dæmdu þeir að Þórarinn væri rétt
tækur „hvar sem hittist, undir jám og
fjötur, til síns máls frekari prófún og
rannsaks", en skutu þó málinu undir
úrskurð Þorleifs lögmanns Kortsson-
ar. Stóð ekki á honum að samþykkja
þetta.
Þórami var lýst á Alþingi 1666 og
„heiðurs verður yfirvaldsmaður"
Kristófer Rön tók hann fastan í Mið-
görðum í Staðarsveit 10. nóv. sama ár.
Var hann þá sendur milli sýslumanna
þangað til hann kom að Eyri í Seyðis-
firði. Sat hann þar nú í fangelsi þang-
að til annan í jólum, að kunningi hans
hjálpaði honum til að strjúka. Fór
Þórarinn nú huldu höfði suður á land
og nefndist Þorsteinn Þórólfsson.
Komst hann þá alla leið suður í Rang-
árvallasýslu, en „erlegur heiðursmað-
ur“, Gísli Magnússon á Hlíðarenda,
náði honum „fyrir herrans náðarsam-
lega tilhlutan" (eins og stendur í
málsskjölunum) 1. febrúar 1667. Var
hann nú fluttur vestur sýslumanns-
flutningi og kom til Eyrar mánuði
seinna. Sat hann þar í „varðhaldi og
fangelsi".