Tíminn - 02.11.1991, Síða 6
6
HELGIN
Laugardagur 2. nóvember 1991
„Ég ætla samt ekki að
breyta einum staf í þessu“
iLnan skamms kemur út hjá bókaútgáfunni Hildi bókin „Þá rauð-
ur loginn brann“ eftir Harald Jóhannsson hagfræðing. Hér er um
að ræða viðtöl er höfundur tók við ýmsa framámenn í verkalýðs-
málum á fyrri árum og er þar margt forvitnilegt að finna er kemur
á óvart. Þess á meöai er viðtal við Finnboga Rút Valdimarsson, sem
Haraldur tók á efri árum viðmælandans. Þaö er síðari hluti viðtals-
ins er hér birtist og er þar varpað nokkru ljósi á það, hví Alþýðu-
flokkurinn stóð gegn því að Jónas Jónsson yrði forsætisráðherra í
stjórn þeirrí er Framsóknar- og Alþýðuflokkur mynduðu 1934.
— Þú varst kominn f skóla á Akureyri,
þegar við hurfum síðast frá.
,Á Gagnfræðaskólanum á Akureyri
var ég veturinn 1921-1922.“
— Og síðan á Menntaskólanum í
Reykjavík?
„í þrjá vetur, en efsta bekkinn las ég
utan skóla, því ég var þá illa haldinn af
brjósthimnubólgu og varð ég stúdent
1927, en ekki fyrr en um haustið. Að
prófum loknum kallaði Geir gamli
Zoéga rektor mig til sín til að taka við
prófskírteininu, og sagði hann mér að
ég hefði tekið eitt haesta prófið frá
1904. Að lyktum sótti hann portvíns-
flösku og sagði: „Eigum við ekki að fá
okkur eitt portvínsglas?" Var það síð-
asta sinn sem hann útskrifaði stúdent,
hann dó um veturinn. Hvort sem sú
var ástæðan var prófs míns ekki getið í
ársskýrslu Menntaskólans í Reykjavík.
Mörgum árum síðar, þegar eftir því var
tekið, vildi Einar Magnússon rektor
leiðrétta það, en ég bað hann að láta
það eiga sig.“
— Bjami Benediktsson forsætisráð-
herra mun hafa verið í bekk með þér?
„Við vorum miklir kunningjar og við
Sveinn líka."
— Hafði Bjami Benediktsson þá mót-
aða skoðun á stjómmálum?
„Nei, hann var enn óráðinn. En hann
var mikill aðdáandi Bismarcks, sem
fylgdi nú ekki einvörðungu fram aftur-
haldsstefnu heldur beitti sér líka fyrir
ýmsum félagslegum umbótum."
— Dáði Benedikt faðir hans ekki
Þýskaland?
„Jú, það gerði hann og Bjami frá Vogi
líka. Ég vil rifja það upp að við Bjarni
Benediktsson stóðum fýrir dálitlu upp-
þoti í 5. bekk 1925. Áður fyrr hafi það
verið hefð að gefa skólapiltum frí á
setningardegi Alþingis. Sennilega frá
þeim tíma er fundir Alþingis voru
haldnir í húsi skólans. Þá hefð vildum
við endurvekja, en beiðni okkar um
skólafrí var synjað. Við Bjami skrópuð-
um samt og fómm á áheyrendabekki
Alþingis. Var okkur hótað brottrekstri
og hafði jafnvel verið tekin ákvörðun
um það, en við fómm til Bjarna frá
Vogi. Hann var gamall kennari og
skildi okkur vel. Talaði hann við Jón
Magnússon forsætisráðherra, en hann
átti nú mikið undir stuðningi Bjarna."
Haraldur Jóhannson hag-
fræðingur.
— Þetta er skemmtileg saga.
„Ég varð heimilisvinur hjá þessu fólki
og vei kunnur Baldri Sveinssyni, bróð-
ur Benedikts, en Pétur Benediktsson
var hálfgerður uppeldissonur hans.
Baldur var eiginlega ritstjóri Vísis, þótt
hann skrifaði fremur lítið. En þegar
hann var reiður skrifaði hann manna
Hluti viðtals við Finnboga
Rút Valdimarsson úr nýrri
bók Haraldar Jóhannsson-
ar hagfræðings „Þá rauður
loginn brann“
best. Hann var guðfræðingur að
mennt. í Kanada hafði hann verið
nokkur ár og kynnst vel Stephani G.
Stephanssyni. Baldur bjó á Laugavegi
66, en Benedikt á Skólavörðustíg 11,
þar sem Þorbjörg Sveinsdóttir, systir
Benedikts þingskömngs nafna hans,
hafði áður búið.“
— Fórstu í Háskóla íslands?
„í lögfræði, en þá tvo vetur sem ég las
lög var ég Ifka þingskrifari."
— Þú hefur þá kynnst þingmönnum?
,Já, nær öllum. Mér er minnisstæður
Tryggvi Þórhallsson, síðar forsætisráð-
herra. Hann var aðsópsmikill og góður
fræðimaður. Eitt sinn er ég hafði ritað
upp ræðu eftir Jóni Þorlákssyni, fékk
ég þau boð frá honum að koma og tala
við hann. Ég bjóst við illu, en hann
sagði: ,Ja, ég er nú ekki alveg viss um
að ég hafl komist nákvæmlega svona
að orði eins og þú hefur skrifað, en ég
ætla samt ekki að breyta einum staf í
þessu." Jón Þorláksson var hægur í
öllu sínu fasi og bar ég mikla virðingu
fyrir honum."
— Skrifaðir þú blaðagreinar á þessum
ámm?
„Stundum lék ég mér að taka saman
greinar um innlend efni, m.a. íslands-
banka. Ég kynnti mér dálítið rekstur
bankanna frá 1904 — og ég vil bæta
því við að all nokkmm ámm síðar setti
ég reikning bankanna fram til 1930 í
form sem Þjóðabandalagið hafði látið
gera og fannst mér þá um of hafa verið
hallað á íslandsbanka. Sannleikurinn
er sá að gengishækkun Jóns Þorláks-
sonar var komin langt með að setja
togaraflotann á hausinn."
— Þar kann hann að hafa fetað í fót-
spor Winstons Churchill.
„Eiginlega áttaði TVyggvi Þórhallsson
sig einn manna á gengismálunum,
hafði til þess vit og kjark. Ég bauð hon-
um að skrifa um þau í Alþýðublaðið, en
hann þáði það ekki. Eins og þú veist
hefur hlutunum verið komið svo fyrir í
verkalýðshreyfingunni að ekki má
nefna orðið gengislækkun. En lækkaði
Roosevelt ekki gengið um 25% 1934?“
— Þú fórst til Genfar til náms 1928?
,Já, í alþjóðarétti og fékk til þess heið-
ursstyrk bundinn hæstu einkunnum.
Það var óhemjulega dýrt í Genf, en ég
átti þar fróðlega dvöl og kynntist starf-
semi Þjóðabandalagsins.“
— Lagðir þú líka stund á alþjóðamál?
,Já, ég lagði mig eftir þeim. Að
nokkm þess vegna las ég á næstu ámm
í nokkmm helstu höfúðborgum álf-
unnar, París, Róm og Berlín."
— Þú hefur orðið sjónarvottur að
uppgangi nasismans í Þýskalandi?
„f síðari umferð forsetakosninganna
1932 í april hlaut Hitler hálfa fjórtándu
milljón atkvæða, þótt Hindenburg
væri kosinn, og þremur mánuum síð-
ar, í júlí, var stjóm sósíaldemókrata í
Prússlandi steypt og varð þá ekki um
villst hvert stefndi. í kosningunum í
janúar 1933 fékk Hitler þó ekki hrein-
an meirihluta, heldur þurfti að styðjast
við þjóðemissinna."
— Kynntist þú nokkmm mönnum í
þeim hræringum?
„Ég varð vel málkunnugur Hans Frit-
sche, þá þýskum þjóðemissinna, þó
ekki nasista, en hann skrifaði mjög vel
um alþjóðamál. Nasistum varð hann
síðar handgenginn og varð forstöðu-
maður útvarpssendinga útbreiðslu-
málaráðuneytisins undir Göbbels og
loks einn sakbominganna í Númberg,
en var þar sýknaður af öllum ákæmm."
— Komstu heim 1933?
„Já, og þá um haustið beittum við Sig-
fús Sigurhjartarson okkur fyrir stofn-
un Alþýðuskólans, sem starfaði fram til
1942.“
— Og þú tókst við ritstjóm Alþýðu-
CAB
bensin kr. 1.782.000
dísil kr. 1.875.000
Stgr.verð með ryðvðrn og skráningu
SPORTSCAB bensín kr. 1.641.500
» án vsk. kr. 1.318.500
h » dísil kr. 1.750.000
an vsk kr. 1.405.000
rr».ed rydvörn
í samvinnu við Bílabúð Benna
bjóðum við næstu daga
upphækkaða Isuzu bíla með
skemmtilegum sérbúnaði á
kr. 130.000
kynningarafslætti
LE Li
_
ISUZU er hörkufínn jeppi, aflmikill
með fjórhjóladrifi, mjúkri fjöðrun
og einstaklega rúmgóðu og
vönduðu farþegarými.
Komdu strax og prófaðu gripinn
og finndu muninn.
j
Sérbúnaður:
— 5" upphækkun
— Brettakantar úr gúmmíi
— Gangbretti úr áli
— B.F. Goodrich 32" dekk
— 15x10“ álfelgur
— Ljósabogi á topp með
2 Ijóskösturum
— Grind með 2 Ijóskösturum
að framan
— Slökkvitæki og sjúkrakassi
— Warn M6000 spil
s: 67 00 00 / 67 43 00