Tíminn - 02.11.1991, Page 9
Laugardagur 2. nóvember 1991
HELGIN
9
og þeir höföu ráö möglandi vinnulýðs-
ins í hendi sér, eins og var í Bretlandi á
síðasta áratug. Veggir voru hlaðnir
umhverfis verksmiðjur og vörður
haföur við hliðin og leitað á starfs-
mönnum. Verkamenn urðu að ganga í
aðskomum buxum til þess að koma í
veg fyrir að þeir feldu eitthvað niðri í
hólkvíðum brókum. Hér er líka komin
ástæðan fyrir því að mannvirkin við
höfnina í Lundúnum voru hönnuð
eins og raun bar vitni með milljóna
punda tilkostnaði í byrjun 19. aldar,
sbr. veggina háu umhverfis Wapping-
hverfið. Með þessum hætti átti að verj-
ast þeim fingralöngu, er stunduðu iðju
sína úti á fljótinu, og á sama tíma var
Thames-lögregluliðinu komið á fót.
Frá silkivefurum til sögunarmanna
og frá klæðskerum til sjómanna liggur
vegur athugana Linebaughs í bók hans
er hann skoðar ensku verkalýðsstétt-
ina í mótun hennar. Á öldinni var
reglu komið á vinnutímann, eftirliti
komið á í verslunum og endurbætur
gerðar á lögreglu og fangelsum. Þessi
þvingaða sköpun öreigastéttar fór
fram með tárum og blóði að vísu, en
hún bar ríkulegan ávöxt. Kannanir
hafa leitt í ljós að draga fór úr þjófnað-
armálum er á öldina leið og á Viktoríu-
tímanum þurftu engir að óttast múg-
uppþot og götuvígi, eins og gerðist
víða annars staðar í Evrópu. „Lögin
mala og merja þann snauða en ríkir
setja lögin," kvað Oliver Goldsmith.
Linebaugh fellst á að lögunum hafi
verið beitt sem vopni í stéttastríðinu
og að kapítalisminn hafi þurft á dauða-
refsingu að halda. Þó er þetta ekki rétt
nema að takmörkuðu leyti. Að vísu
fjórfaldaðist fjöldi þeirra afbrota, sem
refsa mátti fyrir með hengingu. En
fjöldi þeirra, sem sendir voru inn í ei-
líföina með þessum hætti, fór sí-
minnkandi. Þótt hinar opinberu aftök-
ur að viðstöddum manngrúa í TVbum
ættu að hrella fólk til löghlýðni (við af-
tökumar vom vasaþjófar þó iðjusam-
ari en nokkm sinni), þá fór það svo að
árið 1783 vom opinberar aftökur af-
lagðar.
Höföu hengingar því einhverja þýð-
ingu fyrir efnahagslífið? Hér er þörf á
að greina í milli staðreynda og mælgi,
raunvemlegra glæpafaraldra og ótta
við glæpi, sem kannski gerði úlfalda
úr mýflugu.
Voldugir og efnaðir menn gerðu ef-
laust mikið úr hnupli og þörfinni á að
halda uppi lögum og reglu. En eins og
John Gay lætur að liggja í Betlara-
ópemnni: var þama ekki um ágæta
aðferð að ræða til að beina athyglinni
frá glæpum hvítflibbaliðsins í City?
Meðan refurinn Robert Walpole inn-
heimti skatta til að efla baráttuna
gegn óráðvöndum, gein hann yfir bit-
lingum ráðherraembættis síns og
notaði báta flotamálaráðuneytisins til
þess að ferja smyglað franskt koníak
upp Tempsána. Því var það ekki svo að
glæpir og refsigleði færðust f aukana
á öldinni, heldur ríkti ákafúr ótti við
glæpi. Nú á dögum er fólk mjög hrætt
við glæpi vegna þess að mörg höfum
við seint og um síðir eignast sitthvað
sem umtalsverður missir eða tjón
gæti verið að. Eins var það á 18. öld-
inni, en þá vom silfúrskeiðar og vasa-
úr ígildi kreditkortanna og fríðind-
anna.
Ekki leikur á tveim tungum að
vinnulýðurinn var arðrændur með
hraksmánarlegum hætti. En böðull-
inn getur þó ekki kallast að hafa verið
helsta tákn kapítalismans eða fómar-
lömb hans dæmigert úrtak verkalýðs-
stéttarinnar. Nokkrir vom hengdir en
milljónir komust hjá hengingu, ýms-
ir spjömðu sig vel og stöku urðu rík-
ir. Margir vom þeir iðnu og varkáru
borgarar, sem héldu sig réttu megin
við lögin og vegnaði vel. Sagan af
þeim hengdu er samt sem áður gagn-
leg upprifjun um hyemig fór fyrir
mörgum þeim sem kvöm iðnbylting-
arinnar og kapítalismans varð að fjör-
tjóni með margvíslegu móti.
SAMA LÁGA VERDID
NÝ SENDING
ZETOR
VÉLIN - SEM
BÆNDURNIR
ÞEKKJA
Eftirtalinn búnaður innifalinn í verði:
• Rúmgott hljóðeinangrað ekilhús • Öflug miðstöð • Stiilanlegt ökumannssæti
með tauáklæði • Útvarp og segulband • Tveir baksýnisspeglar • Rafdrifnar
rúðuþurrkur að framan og aftan • Rúðusprauta að framan • Inniljós
• Ljóskastarar að framan og aftan • Verkfærasett • Tectylryðvörn í hólf og
gólf • Aurhlífar að framan • Hliðarsláttustífur • Lyftutengdur dráttarkrókur og
sveifludráttarbeisli • 150 amperastunda rafgeymir • Leiðbeiningarsnælda um
viðhald og hirðingu vélarinnar • Vélatengd loftdæla • Tveggja hraða aflúrtak
540/1000 snún. mín.
ZETOR 5211 47 DIN ha....................................... kr. 699.000
ZETOR 6211 59 DIN ha....................................... kr. 781.000
ZETOR 7245 65 DIN ha. 4x4..................................kr. 954.000
ZETOR 7245 65 DIN ha. 4x4 m/Hydrostatic vökvast............kr. 1.010.000
ZETOR 7711 70 DIN ha. m/Hydrostatic vökvast............... kr. 920.000
ZETOR 7745 70 DIN ha. 4x4 m/Hydrostatic vökvast............kr. 1.110.000
ZETOR 7711 79 DIN ha. m/Hydrostatic vökvast............... kr. 1.019.000
ZETOR 7745 79 DIN ha. Túrbó m/öllu ........................kr. 1.197.000
Verðin eru án virðisaukaskatts og skráningar
Bændur athugiö:
Endursala á notuðum ZETOR-dráttarvélum er örugg.
Tökum ávallt notaðar ZETOR-vélar upp í nýjar.
Hafið samband við sölumenn okkar, sem gefa allar nánari upplýsingar.
umboðið
w
íslensk-tékkneska verslunarfélagið hf.
Lágmúla 5, sími 84525, Reykjavík.