Tíminn - 02.11.1991, Blaðsíða 11
Laugardagur 2. nóvember 1991
HELGIN
11
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
Scotland Road áríð 1936. Þar keypti Haslam morðvopnið og reyndi
einnig að losa sig við sönnunargögn.
unnar þegar þeir mættu til að gefa
yfirlýsingar sínar.
Sönnunargögnin
hrúgast upp
Þegar Haslam var beðinn um að
tæma vasa sína kom ýmislegt í ljós.
Innsiglishringur úr silfri, gullkeðja,
næla og gleraugu, sem allt tilheyrði
frk. Clarkson. Haslam hékk eins og
hundur á roði á þeirri staðhæfingu
að skartgripirnir væru hans lögmæt
eign. En fleira kom til, sem sakfelldi
hann. Lykill, sem hann var með og
hann hélt fram að gengi að bakdyr-
um að húsi föður síns, gekk að
skránni í hurðinni hjá frk. Clarkson.
Hundshár fundust á stígvélunum og
sólar þeirra pössuðu við skóförin
sem fundust á óhreinum tröppum
frk. Clarkson. Eftir að hann var
kærður fyrir morðið á gömlu kon-
unni, sagði Haslam: „Ég er saklaus,
hef ekkert meira um það að segja.“
Réttarhöldin yfir Max Mayer Has-
lam hófust í desember 1936. Hinn
ákærði stóð sperrtur í vitnastúkunni
þegar dómarinn gekk í salinn og
mátti hafa sig allan við að sjá yfir
grindurnar. Barnslegur vöxtur hans
varð enn meira áberandi vegna
hinna hávöxnu lögreglumanna sem
stóðu hvor sínum megin við hann.
Máttlaus vöm
Vömin mátti sín lítils gegn þeim yf-
irþyrmandi sönnunargögnum sem
ákæmvaldið hafði undir höndum.
Sést hafði til hans berja að dyrum
hjá frk. Clarkson skömmu áður en
fjárhagur hans breyttist til hins
betra. Veðmangari vottaði að Haslam
hefði veðsett brúna skó þann 19.
júní. Hvers vegna var maður, sem
átti dýrmæta skartgripi, að veðsetja
skóna sína? Haslam gaf þá skýringu
að hann hefði verið kominn í vanskil
með húsaleiguna.
En það, sem gerði þó gæfumuninn,
var að felgujárnið var rakið til versl-
unarinnar við Scotland Road. Kaup-
maðurinn mundi vel hver keypti
það, enda var Haslam maður sem
ekki hvarf í fjöldann.
Einnig kom fram vitni sem bar að
hafa séð dvergvaxinn mann henda
einhverju niður um niðurfallsrist
við Scotland Road. Ristin var fjar-
lægð og þá kom í ljós kassi undan
úri. Frk. Clarkson hafði átt slíkan
kassa og geymt í honum silfurúr.
Þann 25. júní hafði lögreglunni í
Nelson tekist að safna saman níu
mönnum sem svipaði til Haslam í
útliti, sem var ekki svo lítið afrek. Og
fimm af níu vitnum, sem beðin voru
að bera kennsl á Haslam við sak-
bendingu, þekktu hann án þess að
hika.
Það tók kviðdóm aðeins klukku-
stund að komast að niðurstöðu um
að Haslam væri sekur og fullfær um
að berja gamla konu til bana, þrátt
fyrir smæð sína. Kröftugur efri bol-
urinn bætti upp snúna fótleggina og
lágan vöxtinn.
Haslam var dæmdur til dauða og
hengdur í Strangeways-fangelsinu
þann 4. febrúar 1937, aðeins átta
mánuðum eftir að honum hafði ver-
ið sleppt úr því sama fangelsi.
Bárulaga ál
utan og innan
á fjósið
MEGA bárulaga álið ryðgar ekki né terisL
Auðvett að þrffa. Langtímalausnin sem þú leitaðir að.
Fæst bæði litað og ólitað. Mjög gott verð.
Tækninni fleygir fram og Fendt ryður brautina með sínum frábæra tæknibúnaði,
meðal annars:
Nýjum og byltingarkenndum jafnorkuhreyflum, sem halda fullum afköstum
við lækkandi snúningshraða. T.d. afkastar 309 Turbo enn sínum 90 hö þó að
snúningshraðinn lækki úr 2350 snún/mín. niður í 1850 snún/mín. við álag (26%
vægisaukning). Kostirnir eru:
Færri gírskiptingar = vinnuléttir fyrir stjórnandann.
w Sparneytni = betri brennsla - minni mengun.
w- Hljóðlátur gangur = aðeins 75 dB (A) inni í ekilshúsi.
■*- Viðbragðsfljót kaldræsing.
Mýkra og kröftugra spyrnuátak drifhjóla.
FENDT 300, 70—120 hö, eru með vökvatengsli og aksturseiginleikum sjálfskipts
bíls. Allir með tölvustjórnpúlti, nema 304 Turbo og 305.
Vökvakerfi með 75 l/mín afkastagetu frá tveimur dælum.
Veltistýri með hæðarstillingu. 40 km/klst aksturshraði, hemlar á öllum þjólum.
Vökvalyfta með eins metra lyftisviði.
FENDT 200, 40—75 hö, eru með loftkældum hreyfli og lægra ekilshúsi.
Ýmis aukabúnaður fáanlegur, svo sem aflúttak og beisli að framan, ámoksturstæki
með tveggja tonna lyftigetu og 3,8 metra lyftihæð, lyftutengdur dráttarkrókur o.fl.
Hágæða vélar á hóflegu verði.
Fullkomnir myndbæklingar fyrirliggjandi.
^^búvólar
SlMI: 91 -687050
SlÐUMÚLA 27, REYKJAVlK
1070-
Mega h/f, Engjateigi 5, 105 Reykjavík
á
ALCAN
Pósthólf 1026, 121 Reykjavík.
Sími 91-680606. Fax 91-680208.
SPARAÐU VIÐHALD NOTAÐU ÁL
KRONE
rúllubindivélar
SÉRSTAKT HAUSTILBOÐ
Verð frá kr. 720.000
Erum með örfáar vélar á þessu frábæra verði
Með öllum nauðsynlegum búnaði
Járnhálsi 2 . Sími 91-683266
110 Rvk . Pósthólf 10180