Tíminn - 09.11.1991, Blaðsíða 1

Tíminn - 09.11.1991, Blaðsíða 1
Gilsbakki. Þar bjó síra Magnús Andrésson og útvegaði mönnum lyf þegar ekki náðist til héraðslæknisins, en til hans var langt að sækja. Ofdirfskuferð yffir Tvídægru Frásögnin, sem hér fer á eftir, getur ef til vill ekki kallast ákaflega ævintýraleg, en hún gefur mynd af samhjálp og fögru mannlífi eins og það best gerðist í sveitum á fyrri tíð, en það var sá eiginleiki sem gerði þjóðinni kleift að standast misjafnt árferði og annað sem mót- drægt var, kannski ekki síður en þarfasti þjónninn og hið harðgera sauðfé, svo dæmi séu nefnd. An samhjálparinnar hefði ekkert bjarg- ast. Þótt hún hafi nú tekið á sig mynd félagslegar þjónustu, þar á meðal í heilsugæslu, svo enginn þarf að gera sér erindi yfir snævi- þaktar heiðar eftir læknishjálp, má sagan hér með samt minna oss á gildi hennar í vaxandi firringu nútímaþjóðfélagsins. Frásögnina skráði Magnús Á. Jónsson frá Skarfsstöðum í Hvammssveit. Á seinustu áratugum 19. aldar og nokkuð fram yfir aldamót voru uppi í Fremri-Torfustaðahreppi tveir bræður, Páll og Jóhann Guð- laugssynir. Páll bjó á Þverá fremri, kona hans hét lngibjörg Jóhanns- dóttir. Þau áttu margt barna. Jóhann bróðir hans bjó á Litla- Bakka, kona hans var Margrét Jó- hannsdóttir Vermundsdóttir. Þau áttu tvo sonu. Báðir voru þessir bændur fátækir. Þverá fremri er fremsta jörð í Núpsdal austan Núpsár og næst Tvídægru þeim megin. Hún er kostajörð, að því leyti að landsnytjar eru þar kjarn- miklar, en fannþyngsli leggjast þar mikil í vetrarharðindum sem voru oftast annað hvert ár í búskapartíð Páls. Sameiginlegt var þeim bræðr- um það að þeir voru báðir hinir mestu veiðimenn og fjallafuglar; sóttu þeir mjög silungsveiðar á Arnarvatnsheiði og Tvídægru haust og vor. Þurfti Páll mikilla fanga við fyrir mannmargt heimili og varð silungsveiðin, sem að sumu leyti var ekki alllangt sótt, honum drýgst til afkomu þegar illært var og skepnur urðu gagnsrýrar. Jó- hann bróðir hans sótti ekki síður á fjöllin til silungsveiðanna; hann var og refaskytta og lá oft við á grenj- um á heiðunum. Báðir undu þeir sér best við veiöiskapinn. Þeir voru svo kunnugir heiðunum að orðlagt var að þeir þekktu þar öll kennileiti og gætu ratað þar og rétt farið í myrkri, þoku og svörtustu byljum. Við fjallavötn Ávallt þegar fór að draga nær vori fóru þeir bræður, hvor í sínu lagi, Sagt frá hetjulegri för ungs manns um heiðaslóðir eftir lyfjum á ofanverðri fyrri öld að útbúa með mestu kostgæfni net og veiðifærur og þá stóð hugur þeirra allur til heiðarinnar. Bros- hýran í augum þeirra, er þeir voru að fást við þessa hluti sem átti að nota á vorvertíðinni, gaf til kynna mikla tilhlökkun til þess að komast upp í fjallavíðáttuna, hreina, heil- næma og dásamlega: Fjallavötnin fögru, með óræða veiðimöguleika, brekkur og lautir með blómskrúði og vorilmi. Allt voru þetta kærir vinir er þeir þráðu að hitta eftir margra mánaða aðskilnað. Á eftir árum þeirra voru fjöllin fögru í vorskrautinu, en grimm og torsótt í harðviðrum hausts og vetrar, þeirra kærasta umtalsefni. Þá endurlifðu þeir í minningunum: giftudrjúgar veiðiferðir, torsóttar fjallgöngur, eftirleitir og vetrar- ferðir, þegar litlu mátti muna að harðviðri og hríðarbyljir, sem geis- uðu á fannbreiðum heiðanna, yrðu þeim ofurefli. En öllum, sem þekktu þessa bræður, kom saman um karlmennsku þeirra og æðru- Ieysi í hvers konar erfiðleikum. Fer hér á eftir frásögn, er ég hef að sumu leyti eftir Hirti heitnum Lín- dal á Efra-Núpi og að sumu leyti eftir síra Magnúsi heitnum Andrés- syni á Gilsbakka, sem sannar áræði og ratvísi Páls. Tveir græðarar Einhverju sinni nær miðjum vetri

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.