Tíminn - 09.11.1991, Blaðsíða 8

Tíminn - 09.11.1991, Blaðsíða 8
16 Tíminn Laugardagur 8. nóvember 1991 Renault Clio RT tekinn til kostanna: Sprækur og ríkulega útbúinn smábíll Bílaumboöiö kynnti fyrr á þessu ári nýjan smábíl frá Renaultverk- smiöjunum, Renault Clio. Bíllinn er nýr frá grunni og stefnt til höf- uðs smábflum eins og Daihatsu Charade, Fiat Uno, Opel Kadett og fleirum. Nú í vikunni gafst Tímanum kost- ur á að reynsluaka Clionum í einn dag, og það verður að segjast eins og er að niðurstöðurnar komu nokkuð á óvart — þægilega á óvart. Bfllinn, sem við fengum til prufu, var dýrari geröin, Renault Clio RT, með 80 hestafla 1400 cc. vél, fimm gíra kassa, rafdrifnum rúðum, fjar- stýrðri samlæsingu, snúnings- hraðamæli, topplúgu og öðrum búnaði, sem yfirleitt er ekki staöal- búnaður í bflum af þessari stærð. Bíllinn er gefinn upp fyrir að vera fimm manna, en hætt er við að þröngt yrði á þriðja manni í aftur- sætinu, a.m.k. ef hann væri ekki þeim mun grennri. Á hinn bóginn fer mjög vel um tvo í aftursætinu og eitt af því fýrsta, sem maður tekur eftir þegar sest er inn í Clioinn, er hversu mikið hefur verið lagt í að innrétta bílinn smekklega. Eins og í öðrum frönskum bílum eru sætin mjög þægileg, þykk og vel bólstruð, þó án þess að vera of mjúk eins vildi brenna við hjá Frökkunum hér á ár- um áður. Rúmgóður, en há sæti Eini gallinn, sem ég fann á bflnum, fólst samt sem áður í innréttingunni, en hann var ekki stór. Bæði bílstjóri og farþegar sitja óvenju hátt í Clion- um. Þetta hefur vissulega sína kosti, menn sjá betur yfir en í bílum af þessari stærð almennt og fæturnir eru ekki krepptir niðri við gólf. Á móti kemur sá galli að fyrir hávaxna er höfúðið fullnálægt þakinu og þá sér í lagi aftur í bílnum. Þó svo að það ylli engum vandræðum, fannst mér líka að efri pósturinn á framrúðunni væri full nálægt sjónlínu ökumanns ef sætisbakið var framarlega. Það skal tekið fram að bíllinn er alls ekki þröngur að innan, þvert á móti hefur hann heldur meira innanrými á hæð, lengd og breidd en keppinautar í sambærilegum stærðarflokki. Þessir gallar eru þó mjög léttvægir þegar á heildina er litið, enda ekki að ófyrirsynju að 60 sérfræðingar bíla- tímarita ffá 17 löndum kusu Clioinn Bíl ársins 1991 með yfirburðum. Það fyrsta, sem tekið er eftir þegar maður sér bflinn, er hversu vel hefur tekist að samræma sportlegt og fallegt útlit og góða plássnýtingu og straumlínu- lögun. Það er þægileg tilfinning að setjast undir stýri, framsætin styðja vel við og ökumaður kemst auðveld- lega og hindrunarlaust að öllum stjómtækjum. Þá fær Clioinn sér- stakan plús fyrir hversu gott fótarým- ið er frammí. Vökvapúðamir gera gæfumuninn Ennþá stærri plús fær bíllinn þegar vélin er ræst. Þrátt fyrir að hún sé ekki stærri en hún er, er hún ótrúlega þýðgeng og að því leytinu nánast sambærileg við hvaða átta gata rokk sem er. Galdurinn á bak við þetta er sá, að hreyfillinn hvflir á vökvapúðum og það kæmi ekki á óvart þó að þessi frágangur ætti eftir að verða almenn- ur í framtíðinni. í akstri er Clioinn kattlipur í borgar- umferðinni, krafturinn er yfirdrifinn, snúningshringurinn alveg mátulegur og fjöðrunin svarar skemmtilega þeg- ar taka þarf krappar beygjur án of mikils fyrirvara. Þrátt fyrir „smæð“ sína liggur bfllinn skemmtilega vel á vegi, en aðeins varð vart við að hann væri yfirstýrður á lausum malarvegi, þ.e.a.s. kastaði afturendanum út und- an sér í beygjum. Ef svoleiðis kerr.ur fyrir, er vandamálið leyst með því að leggja á bflinn á móti og gefa inn til að rétta hann af. Nóg er aflið, 80 hest- öfl í rúmlega 800 kílóa bfl. Yfirburðir Hljóð og varmaeinangrun Cliosins er með miklum ágætum; ökumaður og farþegar verða lítið sem ekkert var- ir við hvin frá dekkjum í akstri og vindgnauð heyrðist ekki þrátt fyrir að einu sinni á reynslutímanum væri farið frjálslega í kringum lög um há- markshraða á vegum úti. Því miður gafst ekki tími til þess að reyna bflinn almennilega í langkeyrslu, en þær vísbendingar, sem fengust á þeim eina degi sem bfllinn var prófaður, gáfu fyrirheit um að þar myndi bfll- inn gefa keppinautum sínum langt nef. Farangursrýmið í Clio er 265 lítrar, sem telst ágætt meðal smábfla. Við það bætist að aftursætisbakið er tví- skipt og hægt að fella hluta þess fram fyrir frekari flutning. Ekki spillir fyrir að hurðimar eru stórar og auðveit að ganga um þær. Renault Clio er fallegur, aflmikill og þægilegur, ríkulega útbúinn smábfll, með marga kosti stærri bfla. Verðið er viðráðanlegt, eða um 870 þúsund krónur, sé miðað við staðgreiðslu (ódýrasta útfærslan kostar rúmar 700 þúsund krónur). Bensíneyðslan er lít- il, gefin upp fyrir að vera tæpir fimm lítrar á stöðugum 90 km/klst. akstri á hundraðið, en rúmir sex í blönduðum akstri. Þeir, sem eru að leita sér að því besta í þessum stæröarflokki, ættu að skoða Clioinn áöur en þeir ákveða kaup á einhverju öðru. FJALLABILL A FINU VERÐI Lada Sport er ódýr 4 manna ferðabíll sem treysta má á jafnt sumar sem vetur. Aldrifið og læsta drifið gera bílinn mjög öruggan og stöðugan í akstri. Hann er með 1600 cnf vél og er fáanlegur bæði með fjögurra og fimm gíra skiptingu. Farangursrými má stækka með því að velta fram aftursæti. Lada Sport er fjallabíllinn í ár. 2 LAOA SPORT BIFAEIOAR S LANDBUNAOARVELAR HF. Armúla 13108 Reykjavík Símar 6812 00 & 312 36

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.