Tíminn - 09.11.1991, Blaðsíða 14

Tíminn - 09.11.1991, Blaðsíða 14
22 HELGIN Laugardagur 9. nóvember 1991 Prufusöngur í Borgarleikhúsinu Óperan La Bohéme eftir Puccini verður færð upp í Borgar- leikhúsinu í lok mars 1992 sem samstarfsverkefni Óperu- smiðjunnar hf. og Leikfélags Reykjavíkur. Hljómsveitarstjóri: Guðmundur Óli Gunnarsson. Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir. Hljómsveit: Sinfóníuhljómsveit Óperusmiðjunnar. Sungið verður fyrir í einsöngs- og kórhlutverk í ofangreindri óperu laugardaginn 23. nóvember n.k. á stóra sviði Borgar- leikhússins. Óperusmiðjan hefur einnig önnur verkefni á prjónunum og gildir prufusöngurinn einnig fyrir þau. Söngvarar eru hvattir til þess að taka þátt. Eyðublöð liggja frammi í miðasölu Borgarleikhússins og skal þeim skilað á sama stað fyrir 17. nóvember. Óperusmiðjan Leikfélag Reykjavíkur íjj ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í glugga og útveggjaklæðn- ingu ásamt handriðasmíði fyrir Iþróttamiöstöð í Grafarvogi. Helstu magntölur eru: Útveggjaklæðning um 1.500 fm Gluggir 47 stk. Handrið úr stáli um 215 stk. Heimilt er að bjóða sérstaklega í handriöasmíöina. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15,000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuö á sama stað þriöjudaginn 3. desember 1991, kl. 14,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 i|'f ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í smíði og uppsetningu á þakeiningum og þakfrágangi á íþróttamiöstöð í Grafarvogi. Flatarmál þakeininga er 2.350 fermetrar. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15,000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 3. desember 1991, kl. 11,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frtklrkjuvegl 3 - Stml 25800 „ÚTBOГ Vikur Vík hf. óskar tilboða vegna sölu á 100.000 tonn- um af ræktunarvikri á ári, til útflutnings. Kornastærð 2-6 mm. Afhending þarf að hefjast 1992. Nánari upplýsingar liggja frammi á skrifstofu Vík- ur hf., Knarrarvogi 4, Reykjavík, sími 686919. Ókeypis HÖNNUN ÞEGAR ÞÚ auglýsingar i AUGLÝSIR í Tímanum 680001 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL Búgarðurinn Appeldoorn. Eigandi hans var myrtur, því morðinginn ágirntist eignir hans. Líkið í sjak- alagreninu Bretland og þau lönd, sem eitt sinn töldust til nýlendna þess, þar með talin Bandaríkin, fylgja öll þeirri réttarreglu að maður sé saklaus þar til sekt hans sannast. Þetta hefur orðið til þess að margur morðinginn hefur komist hjá refsingu sökum skorts á sönnunargögnum, listileg- um yfirheyrslum verjenda og hæfi- leika þeirra til að sá fræjum efa- semda í huga kviðdómenda. En þaö er þó sjaldgæft að maður, sem hefur borið gæfu til að verða sýknaður af morðákæru, komi aftur fyrir rétt nokkrum mánuðum síðar fyrir ann- að morð, og þá fundinn sekur. Það er ekki oft sem mað- ur, sem sýknaður hefur verið af morðákæru, er kominn aftur fyrir rétt, fyr- ir annað morð, fáum mán- uðum síðar. Þetta átti sér þó stað í Suður- Afríku á millistríðsárunum. Guðhræddur morðingi Eitt slíkt dæmi er að finna í réttar- sögu Suður-Afríku. Morðinginn, sem um ræðir, hét Stephanus van Wyk. Hann las stöðugt í Biblíunni og vitnaði í hana í tíma og ótíma. Faðir hans var siðavandur hol- lenskur bóndi af gamla skólanum. Sonurinn var svo slægur, óheiðar- legur og illa innrættur að hann skipulagði vandlega annað morð á ókunnugum manni til að hafa af þvf fjárhagslegan ávinning. Á meðan hann beið aftöku sinnar, skrifaði hann bréf til mágkonu sinnar, móður Johns Fredericks Moller, en hann hafði verið sýknað- ur af morði hans aðeins sjö mánuð- um áður. í bréfinu sagði: „Systir Louisa. Ég get ekki komið til þín til að biðja þig að fyrirgefa mér þá sorg sem ég hef valdið þér. Systir, ég drap barnið þitt. Fyrirgefðu mér vegna Jesú Krists. Ég er reiðubú- inn til að deyja og Kristur hefur bætt fyrir synd mína með því að út- hella blóði sínu. Við skulum ekki láta biturleikann ná tökum á okk- ur, heldur skulum við friðmælast og ekki gjalda illt með illu. Hefnd- in er ekki okkar, heldur Guðs. Það var þann 10. janúar 1929 í Bloemfontein, borg í Suður-Afríku, að van Wyk var handtekinn fýrir fjársvik. Hann var látinn koma fyrir rétt í Jóhannesarborg. Áður en hann var handtekinn hafði van Wyk afhent bróðursyni sínum, Freder- ick Moller, sem var skrifstofumaður í hæstarétti borgarinnar, 850 sterl- ingspund. Þessir peningar voru eflaust af- rakstur svikastarfsemi van Wyks. Hluta þeirra átti að nota til að greiða verjanda hans, hluti til að greiða uppihald konu hans, en þriðji hlutinn, og sá langstærsti, átti að geymast þar til hann hefði afplánað þann fangelsisdóm sem hann átti von á. Frændinn svíkur Van Wyk var sekur fundinn, enda verið dæmdur fyrir þjófnað nokkr- um árum áður, og hlaut eins árs fangelsisdóm. Á meðan á fangavistinni stóð frétti VETRARHJOLBARÐAR Negldir Ónegldir Viðurkennd vara á mjög góðu verði Flestar stæröir ísnagla fyrirliggjandi Ármúla 11 - Reykjavík - Sími 681 500

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.