Tíminn - 09.11.1991, Qupperneq 4

Tíminn - 09.11.1991, Qupperneq 4
12 Tíminn Laugardagur 9. nóvember 1991 Skattar ríkissjóðs af bifreiðum á þessu ári eru um þrisvar sinn- um hærri en framlög til vegamála: milljaröa bíleigenda vasa Samkvæmt nýrri áætlun um tekjur ríkissjóðs á þessu ári stefnir í að skattlagning á bif- reiðum verði tæpir 16 milljarðar. Á sama tíma er gert ráð fyrir að heildarútgjöld ríkisins til vega- mála verði einungis um þriðj- ungur af þeirri upphæð eða 5,4 milljarðar. Veigamesti tekjuliður ríkisins af bifreiðum er tollar og gjöld af bensíni, en á þessu ári er gert ráð fyrir að tekjur ríkisins af bensíni verði rúmir sex milljarð- ar. Sú upphæð hefur hækkað um tæplega einn milljarð frá síðasta ári. Tekjur af þungaskatti eru áætlaðar tæplega einn og hálfur milljarður í ár, en voru 1,3 millj- arðar í fyrra. Úrnúlli 1987 í 1,3 millj- arða á næsta ári! Bifreiðagjaldið, nýr skattur sem tekinn var upp árið 1987 og skil- aði þá 200 milljónum króna í ríkissjóð, á að skila ríkinu einum milljarði úr vasa bifreiðaeigenda á þessu ári. I fjárlögum næsta árs er gert ráð fyrir að þessi skattur skili ríkinu 1,3 milljörð- um. Bifreiðagjaldið rennur beint í ríkissjóð, og er að mati margra með ósanngjörnustu sköttum sem lagðir hafa verið á Iands- menn hin síðari ár. Það er miðað við þunga bifreiða, en ekki verð- mæti, þannig að þeir sem eiga verðlítinn þungan bíl eru oft á tíðum að borga verulega pró- sentu af verðmæti bflsins í bif- reiðagjald á hverju ári. Janusareðli stjórnmála- manna Fyrir einungis tæplega tveimur árum virtist núverandi fjármála- ráðherra vera einn harðasti and- stæðingur þessa gjalds. Að minnsta kosti þegar hann mælti fyrir áliti minnihluta fjárhags- og viðskiptanefndar Alþingis í umræðum um bifreiðagjaldið í mars 1990. Hann sagði þar með- al annars: „Það er alveg augljóst hver til- gangurinn er með þessu frum- HAUSTSÝNING JÖTUNS varpi. Tilgangurinn er sá að svíkjast um að láta þá fjármuni, sem koma af umferðinni og af bifreiðum, ganga til fram- kvæmda í vegamálum, en að ná í aukna skatta af bifreiðaeigend- um og láta þá renna til ríkis- sjóðs. Þetta kemur skýrt fram í gögnum frá fjármálaráðuneytinu og sést skýrlega þegar menn líta á það fjármagn, sem á að renna til vegamála, og síðan þá fjár- muni, sem innheimtast af bif- reiðagjöldum, og þá er talað um bifreiðagjald í þrengstu merk- ingu, auk þungaskatts og bens- íngjalds." Þetta sagði Friðrik Sophusson fjármálaráðherra, áður en hann varð fjármálaráðherra. í dag, þegar hann hefur lyklavöldin í fjármálaráðuneytinu, er afstaðan breytt. Heildarskatttekjur af bif- reiðum voru tæplega 12,5 millj- arðar á síðasta ári, en stefna í að verða rúmlega þremur milljörð- um hærri á þessu ári. Og bif- reiðagjaldið illræmda á að hækka umfram verðlag. Þó núverandi fjármálaráðherra liggi vel við höggi að þessu leyti, er hann síður en svo einsdæmi varðandi afstöðu pólitíkusa til bifreiðaskatta eftir því hvort þeir eru í stjóm eða stjórnarand- stöðu. Hann er miklu frekar dæmi um tvískinnung sinnar stéttar í þeim málum. Þegar menn eru í stjórnarandstöðu, blöskar þeim skattlagning á bif- reiðaeigendur, en þegar á hólm- inn er komið ganga hagsmunir fjárvana ríkissjóðs fyrir. Ríkiö sækir 1 Hann er óneitanlega glæsilegur þessi Cadillac, ókrýndurforingi fólksbílanna á bílasýningu Jötuns hf. um síöustu helgi. Á neðri myndinni gefur að líta Isuzu Sportscap, fjórhjóladrifinn pallbíl með löngu húsi og 2,3 4 cyl. 110 bensínvél. NÝR GOLF Á LEIÐINNI illiil

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.