Tíminn - 12.11.1991, Side 6

Tíminn - 12.11.1991, Side 6
6. Tíminn Þriðjudagur 12. nóvember 1991 Tíminn MÁLSVARI FRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Gíslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Skrlfstofur:Lyngháls 9,110 Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,-, verð i lausasölu kr. 110,- og kr. 130,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Lýst efftir umræðum Réttilega kom fram í máli íslenskra ráðherra á leið- togafundi Atlantshafsbandalagsins í Róm í fyrri viku að umræður um málefni þess séu ekki miklar á íslandi eða „skammt á veg kornnar" eins og forsætisráðherra orðar það. Hér skal ekki reynt að leiða líkum að því hvers vegna þessar umræður liggja svo í láginni sem raun ber vitni. Hér er þó um að ræða málefni sem mjög hefur sett svip á íslensk stjómmál í 40-50 ár, því að vamarmál íslands í nútímaskilningi eiga sér lengri sögu en að þau hafí orðið til með inngöngu íslands í Atlantshafsbandalagið þegar það var stofnað 1949. I ljósi sögunnar má það verða hverjum manni greinilegt, að viðhorfsbreyting íslenskra ráðamanna í vamarmálum landsins kom fram á heimsstyrjaldarár- unum síðari þegar ríkisstjóm íslands taldi óhjákvæmi- legt að taka upp samvinnu við Bandaríkin um vamir landsins, þegar öryggi þess var ógnað frá Evrópu. Fram að þeim tíma höfðu íslensk stjómvöld haldið fast við hlutleysisstefnuna og treyst því að herveldin virtu hana. Hlutleysisstefnan varð fyrir áfalli í styrjöldinni og hefur átt erfitt uppdráttar í íslenskum stjómmálum síðan, þótt upp úr styrjaldarlokum væri samstaða um að halda landinu utan við beinar hervamir, a.m.k. dvöl útlends hers í landinu. Með aðild að Atlantshafsbandalaginu 1949 og vam- arsamningi við Bandaríkin var teningi kastað í þessum málum. Afnám hlutleysisstefnunnar var þá í rauninni staðfest með afgerandi hætti. Deilum um það efni linnti þó ekki nema síður væri, þótt úr þeim hafi dreg- ið eftir því sem árin hafa liðið. Svo verður að líta á að íslendingar hafi með aðild að Atlantshafsbandalaginu gert upp hug sinn um það, að þeir em Atlantshafsþjóð. Raunsæisástæður kreljast þess að þjóðin taki þátt í vamar- og öryggissamstarfi í sínum heimshluta. í því efni hafa íslendingar lagt fram sinn skerf með aðild að Atlantshafsbandalaginu og vamarsamningnum við Bandaríkin. Hinn nýafstaðni leiðtogafundur NATO er kallaður tímamótafundur og er það vissulega. Hann undirstrik- aði þó miklu fremur þau tímamót sem þegar vom komin til sögu með lýðræðisbyltingunni í Sovétríkjun- um og Austur-Evrópu og leiðtogafundir Atlantshafs- bandalagsins hafa áður lagt áherslu á í yfirlýsingum sínum, ekki síst í Lundúnasamþykktinni í júní 1990. Þótt hin nýja Rómaryfirlýsing beri með sér viljann til samstöðu Atlantshafsþjóðanna, er jafnvíst að hlut- verk Atlantshafsbandalagsins er til endurskoðunar, enda þegar ákveðið að útfæra stefnu þess með breytt- um hætti á mörgum sviðum. Viðhorfin em gerbreytt og augljóst að bandalagið er að leita sér að nýjum til- vemgmndvelli. í þessu umróti er nauðsynlegt að íslendingar taki þessi mál til umræðu í því skyni að meta sínar eigin ástæður og stöðu í vamar- og öryggismálum. Með því er hvorki verið að leggja til né spá neinu um að slíkar umræður leiði til gmndvallarbreytinga á íslenskum viðhorfum. En í slíkum umræðum verða menn að vera við því búnir að ýmsum sjónarmiðum verði hreyft. GARRI Bein útsending Geföu henni súpu, sagði maður- inn í franskri framhaldsmynd, sem nú er sýnd í sjónvarpinu. I>að voru hlýlegustu viðtökur, sem hann gat viðhaft, þegar verðandi kona hans kom um langan veg í rigningu til að rífa hann upp úr þunglyndi, sem snerist um sama baslið og Jón Baldvin var í á með- an hann hafði hattinn og var að sigrast á vandamálum EES. f kvikmyndum hafa Frakkar að ein- kenni að éta súpu, þegar eitthvað bjátar á, og skera brauð oni sig af stórum hleifum, sem þeir styðja við brjóst sitt eins og viðar- drumba. Þetta getur að vísu verið leiðigjarnt, en fyrst um þjóðarsið er að ræða verður að hafa það. Hér heima eigum við ekkert sambæri- legt, nema ef vera skyldi bein út- sending í sjónvarpi. Hvergi í heiminum, nema hér, er talað um beina útsendingu. Sjónvarpssend- ing getur ekki verið óbein, eins og þelta orðatiltæki gefur til kynna, nema kannski ef tekið væri upp á þvf að senda út fyrir húshom. Mannalæti? Síðasta beina útsendingin, sem sögur fara af, fór fram á Stöð 2. Þá var sagt að stjóm Þorsteins Pálssonar hefði fallið « beinni út- Sendingu. Hún féil sem sagt ekki í sjónvarpi —- heldur beinni út- sendingu, eins og til að undir- strika að fall hennar hefði verið mikið. öðru hvetju örlar þó á þessu skrítna orðtaki — beinni útsendingu — sem er sérkenni- legt i fjölmiðli sem gerir sér far um að spara textann við öll tæki- færi. Einu sinni voru það alltíð mannalæti á blöðum að eiga einkaviðtöl við menn. Nú er sá siður að mestu aflagður, góðu heilli, enda ekki alveg Ijóst hvað við er átt með einkaviðtali. Sé átt við það að eförprentanir séu bannaðar, er aiveg eins hægt að taka það fram neðanmáls. Einka- viðtöl segja svo sem ekki neitt, nema þá helst að ekki sé um að ræða þriggja manna tal. Þetta var svona rembingur sem blöðin tömdu sér, og er nú aðallega notað í gianstfmaritum, sem hafa ekki af rniklu að státa hvort sem er. Þar birtast stundum einkaviðtöl við og gaura um kytuíf, sem ætti helst að vera einkalegt, en þykir rífandi lesefni. Allt óbeint í útvarpi Nokkurt hlé hefur verið á því tðnnli sjónvarpsmanna, að nú skuli áhorfendur sitja réttir í stól- unum, því um beina útsendingu sé að ræða. Bein útsending er fyrst og fremst innanhússmál, þ.e. mál starfsmanna, en kemur engum öðrum við og síst áhorf- endum. Yrði að gera hlé vegna mistaka, gæti þulur sagt sem svo: Afsakið, við verðum að gera hlé. Við vorum í beinni útsendingu, en það leið yfir viðmælanda. Tilkynn- ingar um beina útsendingu eru ekki í neinu sambandi við sjón- varpsefnið. Stundum er útsent efni teldð upp áður, og yfirleitt gengur það fyrir sig eins og út- sending fari beint út í loftið. Vegna tæknigalla varð i fyrstu að endurtaka heiia og hálfa þætti, væru gerð mistök í upptökunni. Fólk vandist því brátt að Iáta ekk- ert henda og gengu upptökur yfir- leítt snurðulaust fyrir sig. Sá agi, sem skapaðist við óttann við end- urupptöku þátta, þýddi f raun og veru að beinar útsendingar eru engin tíðindi. Að tílkynna um þær er bara kækur og mannalæti, sem eiga ekki við í útvarpssendingum. Alveg er eins hægt að hugsa sér að útvörpin tæku upp á því að til- kynna beinar útsendingar. Það yrdi Ijóta farganið. Eins og frönsk súpa Þessi galii á útsendingum er allt- af fyrir hendi og virðist vera talinn merídlegur af sjónvarpsmönnum. Nú síðast henti það við lok far- mannasamninganna, að viðsemj- endur voru kvaddir í sjónvarpið í lok fréttatíma tíl að skýra frá nið- urstöðum. Það út af fyrir sig var sjálfsagt og rétt. Hins vegar gat fréttastjórinn ekki setið á sér og minntíst á það í tvígang að við- semjendur væru að lala í beinni útsendingu. Lá við að samning- amir sjálfir, eins ágætir og þeir voru, hyrfu í skuggann af þeim miklu tíðindum að sjónvarpið sýndi viðtalið í beinni útsendingu. Auðvitað ber að líta á þetta sem kæk, en hann getur verið hvim- leiður, ekki sfður en súpan hjá Frökkum og athöfnin við að skera brauðið. Garri VITT OG BREITT Ævintýradellan Einn mesti og farsælasti ferðalang- ur allra tíma, Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður, hélt því hiklaust fram að það væru ekki nema fáráð- lingar og fífl sem lentu í ævintýrum og hrakningum. Þá skoðun byggði hann á því að ævintýramennska væri skortur á skynsemi og þekk- ingu á staðháttum. Ekki er hægt að segja annað en að Vilhjálmur hafi lent í ýmsu mis- jöfnu á ferðum sínum um heim- skautalöndin unaðslegu, eins og hann kallaði frerann norður af meg- inlandi Ameríku. En hann reyndi aldrei að sigrast á óblíðum náttúru- öflum, heldur lærðist honum að lifa með þeim og tók innfædda sér til íyrirmyndar að hegða sér sam- kvæmt aðstæðunum hverju sinni, en ekki að ögra náttúrufari með kjánalegu oflæti. Landkönnuðurinn skrifaði ferða- bækur í mörgum bindum og frá- sagnir af lifnaðarháttum Ínúítanna, sem kunnu svo undurvel að hegða sér samkvæmt aðstæðum. En meg- instarf hans var vísindalegs eðlis. í stríði við náttúruöflin Vilhjálmur Stefánsson gekk þess ekki dulinn að íslendingar aðlöguð- ust ekki landi sínu og náttúrufari þess eins vel og eybyggjar íshafsins. Má vel vera að skoðun hans á ævin- týramennsku hafi verið til komin vegna samanburðar á afstöðu Ínúíta og íslendinga til umhverfis síns og með hvaða hugarfari þeir lifðu, ým- ist í sátt og samlyndi við umhverfið eða með því að bjóða öllum vættum byrginn, hvemig svo sem á stendur. En fleira kom til, því Vilhjálmur átti í löngum og ströngum deilum við hinn heimskunna Roald Am- undsen um með hvaða hætti væri hægt að ferðast um heimskauts- svæðin og lifa við þau skilyröi sem þau hafa upp á að bjóða. Hvað sem því líður, stendur það eftir að samkvæmt skoðun Vil- hjálms Stefánssonar eru hrakfarir ekki annað en skortur á þekkingu á náttúmnni og fyrirhyggju. Á íslandi nútímans em stórfeng- legir jeppar með marghjóladrifum og dragspilum í eigu fjölmargra ferðalanga, sem andskotast um landið þvert og endilangt á dýrðar- tækjum sínum og skeyta hvorki um verðurfar né landslag og æða um ófæmmar á milli 400 fjallakofa sem skreyta óbyggðimar. Þar að auki er örtröð á fjallvegum alla daga um vetumætur þar sem djöflast er um í ófærð og snjóflóða- hættu, og geta þúsundir ferðalanga tekið undir með ofstopanum sem kvað við raust: „Ég að öllum háska hlæ..." Fyrirhyggja eða þekking á veður- og náttúmfari er eins fjarri öllu þessu fyrirhyggjusnauða ævintýra- fólki og ævintýrin vom Vilhjálmi Stefánssyni. Hrakfallasaga jeppanna Skelfing em hrakfallafréttir af jeppaferðafólki og öðmm ævintýra- mönnum orðnar leiðigjamar. Helgi eftir helgi tafsa sömu fréttamenn- imir á sömu klisjunum um að svo og svo margir séu horfnir, eða stans- aðir á einhverjum hálendisleiðum eða vegaspottum milli byggðarlaga. Miklir björgunarleiðangrar em gerðir út og settar upp aðalstöðvar með aðskiljanlegustu fjarskiptum, svo em höfuðstöðvar og enn aðrar bækistöðvar og tugir eða hundmð manna em kallaðir upp úr bosum sínum að fara í leitarleiðangur. Ljósvakinn glymur og titrar af ósköpunum lengur eða skemur, og endar þetta oftastnær með því að hrakningsmenn, sem yfirleitt eru bensínlausir að jöklabaki, segjast vera voða fegnir að vera komnir til byggða og hæla björg- unarleiðöngrum einhver ósköp fyrir að rata á heimaslóðum í vondum veðrum. Það þarf mikla púðurkerlinga- og flugeldasölu til að standa undir allri þessari óforsjálni, og þarf að bæta happdrættum við til að hægt sé að koma bensíni til ráðvilltra jeppaeig- enda, sem hvorki vita hvaðan þeir em að koma eða þvert þeir em að fara, þegar dugnaðarlegir björgun- arstrákar finna þá og tosa liðinu til byggða. Sá hetjubragur, sem umlykur allar frásagnir af öllu þessu ferðalaga- mgli í skammdegi þegar allra veðra, nema góðra, er von, er heldur kjánalegur og ættu jeppaeigendur sem aðrir að kynna sér ögn skoðan- ir Vilhjálms landkönnuðar á ævin- týralegum ferðalögum áður en þeir skrifa fleiri kafla í hrakfallasögur sínar. OÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.