Tíminn - 12.11.1991, Qupperneq 8

Tíminn - 12.11.1991, Qupperneq 8
8 Tíminn Þriðjudagur 12. nóvember 1991 Fyrsta vélstjóraþinginu lauk um helgina: VÉLSTJÓRAR VILJA SAM- EINAST í LANDSSAMBANDI I Fyrsta þing vélstjóra var sett á Hótel Sögu síðastliðinn fimmtudag og stóð fram á laugardag. Helstu hagsmunamál stéttarinnar voru á dagskrá, en rík áhersla var lögð á umræðuna um framtíðarskipan féiagsmála vélstjóra. Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafé- lagsins, setti þingið og benti m.a. á í ræðu sinni að átt hafi sér stað van- hugsuð skoðanaskipti að undan- förnu um endurskoðun sjómannaaf- sláttarins til lækkunar. í greinum og viðtölum hefur því verið haldið fram að hér sé um einhvers konar ríkis- styrk til sjómanna að ræða, vegna fjarvista og erfiðrar vinnuaðstöðu. Helgi telur svo ekki vera, slíkrar of- rausnar hafa sjómenn aldrei notið. „Sjómannaafslátturinn á öllum stig- um hefur komið til vegna skorts á sjómönnum eða í framhaldi af kjara- deilum við útgerðarmenn og þar sem íslendingar lifa tæpast án þess að sóttur sé sjór frá þessu landi, hafa stjórnvöld á hverjum tíma komið inn í deiluna til lausnar með því að létta á útgjöldum útgerðanna með þessum hætti," sagði Helgi. Sérstakur gestur þingsins var Leif Dolleris, formaður danska vélstjóra- félagsins, sem flutti ræðu á þinginu. Leif sagði að í Danmörku væri unn- ið að því að sameina alla vélstjóra í Vélstjórafélag Danmerkur, en félag- ar eru nú þegar um 9 þúsund. Nokk- ur hundruð starfsmenn eiga samn- ingsrétt í öðrum samtökum. Þeir hafa komist að því að samtök þau, sem sjá um samningsrétt þeirra nú, gæta einnig hagsmuna annarra fé- lagsmanna og þar sem vélstjórar eru þarna í minnihluta, hverfa þeir í fjöldann og búa við verri kjör en þeim ber, sagði Leif. Mál hér á landi virðast þróast með svipuðum hætti og í Danmörku, en það var samdóma álit þingsins að samstarf allra vélstjórafélaga á land- inu muni styrkja stéttina bæði fé- lagslega og launalega í framtíðinni. Fram kom tillaga um að skipuð yrði nefnd sem skipulegði næsta þing að tveimur árum liðnum og skyldi hún ásamt stjórnum félaganna vinna að samræmingu á vinnureglum og lög- um félaganna. Stefnt verði að því að stofna vélstjórasamband ekki seinna en árið 1993, þar sem öll vélstjórafé- lög og deildir eiga fulltrúa. Jóhanna Eyjólfsdóttir, skrifstofu- stjóri Vélstjórafélags íslands, segir að um sé að ræða Vélstjórafélag Is- lands sem er með félagssvæði á öliu landinu nema á Vestfjörðum, en þar er Vélstjórafélag ísafjarðar. Þá er það Vélstjórafélag Vestmannaeyja og Vélstjórafélag Suðurnesja. Einnig er um að ræða tvær deildir í sjómanna- félögunum í Grindavík og á Akra- nesi, en fulltrúar frá þeim voru ekki á vélstjóraþinginu. Auk þess vinna vélstjórar hjá Reykjavíkurborg. Jóhanna bendir á að Vélstjórafélag íslands er ekki lengur í Farmanna- og fiskimannasambandinu, en hin félögin eru aftur á móti bundin í einhverju sambandi. Jóhanna segir það alveg ljóst að stofnun vélstjóra- sambands taki tíma. Á vélstjóraþinginu var einnig álykt- að vegna stjórnunar fiskveiða og kom þar m.a. fram: 1. Þingið leggur áherslu á að nytja- stofnar á íslandsmiðum eru sam- eign þjóðarinnar. 2. Þingið telur að ekki sé tilefni til að umbylta núgildandi fískveiði- stefnu, en hún þurfi endurskoðunar við með hagsmuni heildarinnar í huga. 3. Þingið fagnar skipun nefndar til rannsókna á smáfiskadrápi og hve miklu af afla sé hent. 4. Þingið lýsir yfir trausti á störf ís- lenskra fiskifræðinga og telur brýnt að auka rannsóknir á vistkerfi sjávar. Fundarmenn á fýrsta þingi vélstjóra. Tfmamynd: Ámi Bjama 5. Þingið fagnar áformum um setn- 6. Þingið hvetur öll vélstjórafélög í gegn því að þurfa að kaupa kvóta fyr- ingu reglna um starfshætti frysti- landinu til að sameinast í að styðja ir útgerðarmenn. -js skipa. þá félaga sína sem standa í baráttu Varaformaður Kennarasambandsins segir samninganefnd ríkisins hafa lítið að bjóða: Vilja viðræður um réttindaskerðingu Lögð fram þingsályktun á Alþingi: Iðnaðarstefnan endurskoöist Stefán Guðmundsson alþingismað- ur hefur lagt fram þingsályktunar- tillögu á Alþingi um endurskoðun iðnaðarstefnu. Tillagan gerir ráð fyrir að Alþingi feli iðnaðarráðherra að koma á fót nefnd, skipaðri full- trúum samtaka iðnaðarins og þing- flokka, er hafi það verkefni að vinna að endurskoðun iðnaðarstefnu með tilliti til breyttra aðstæðna í þjóöfé- laginu og helstu viðskiptalöndum. Arið 1978 skipaði þáverandi iðnað- arráðherra nefnd um iðnþróun, sem hafði það hlutverk m.a. að vera ráð- herra til ráðgjafar um mótun heild- arstefnu í iðnaðarmálum og efla samstarf innan iðnaðarins. Nefndin skilaði skýrslu árið eftir. í greinargerð með þingsályktunar- tillögu Stefáns segir að frá því skýrslan var samin, hafí margt breyst í íslensku þjóðlífi og fleiri breytingar í sjónmáli sem gefi tilefni til að endurmeta stefnuna í iðnaðar- málum. Bent er á nýgerða samninga um evrópskt efnahagssvæði, sem koma til með að hafa víðtæk áhrif á íslenskan iðnað og auka kröfur til hans. Framundan eru breytingar í okkar helstu viðskiptalöndum, sem hvort tveggja í senn munu skapa ný vandamál og nýja möguleika. -EO Landssamband smábátaeigenda fordæmir harðlega ummæli for- manns LÍÚ, sem hann viðhefur á þingi samtakanna varðandi krókaleyfí smábáta. I ræðu sinni ásakar hann ýmsa aðila f þjóðfé- laginu um að vera slitna úr sam- hengi við atvinnulífíð f landinu. Ummæli hans sjálfs um króka- veiðar smábáta benda hins vegar til að formaðurinn sómi sér vel í þeim hópi, því það er staðreynd að yrði sett aflamark á alla krókalcyfisbáta, myndi atvinnu- vegur þessi einfaldlega leggjast af með ófyrirsjáanlegri byggðar- röskun, atvinnuleysi og verð- Á fundi fulltrúaráðs Kennarasam- bands íslands 9. nóvember síðast- liðinn var samþykkt að hafna þeim atriðum í bréfi frá Samninganefnd ríkisins (SNR), sem skerða munu lögbundin og/eða samningsbundin ákvæði sem snerta félagsmenn Kennarasambandsins. Fulltrúaráð- ið telur framsetningu þessara hug- mynda hreina móðgun við félags- menn Kennarasambandsins. Eiríkur Jónsson, varaformaður mætasóun. Sé það skoðun formannsins að vandamál íslensks sjávarútvegs yrðu leyst með slíkum aðgerð- um, sýnir það glöggt sambands- leysi hans sjálfs við undirstöðu- atvinnugrein þjóðarinnar. Það er því orðið tímabært að taka upp þá umræðu, hvort ekki megi rekja vandamál íslensks sjávarútvegs til ofríkis LÍÚ við mótun laga um stjórn fiskveiða. F.h. Landssambands smábáta- eigenda Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda Kennarasambands íslands, segir í samtali við Tímann að SNR hafni öllu því, sem fram kemur í kröfu- gerð Kennarasambandsins. Þar að auki er boðið upp á viðræður um skerðingu á ýmsum samnings- eða lögbundnum réttindum, svo sem líf- eyris- og veikindaréttindum, barns- burðarleyfi og öðru slíku. „í stuttu máli er þetta alfarið höfnun á öllum okkar kröfum og hins vegar óskir um að skerða okkar kjör,“ segir Ei- „Við munum fara vandlega yfir mál- ið og að því loknu verður ákvörðun um framhald tekin,“ sagði Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, í samtali við Tímann í gær um hvort mál Einars Guðmundssonar, fyrr- um umboðsmanns Skeljungs á Nes- kaupstað, yrði kært til RLR. Kristinn varðist frétta af upph ðum þeim, er um er að ræða, en aðspurð- ur um hvort tala sú, sem heimildir Tímans herma (16 milljónir kr.), væri rétt, sagði Kristinn að svo væri ekki. Hins vegar sagði hann að um ríkur. Fulltrúaráðið ítrekar kröfugerð Kennarasambandsins frá 25. sept- ember 1991 og felur kjararáði að halda áfram viðræðum um þau meginatriði, sem þar koma fram. Fulltrúaráðsfundur Kennarasam- bands íslands lýsir enn fremur full- um stuðningi við kjarabaráttu verkafólks í mjólkurbúum og hvetur annað launafólk til slíks hins sama. verulega upphæðir væri að ræða. Kristinn sagði að það gæti vel verið að maðurinn segðist hafa sagt upp störfum, en það væri einnig alveg ljóst að Skeljungur hefði sagt hon- um upp og að nýr umboðsmaður fyr- irtækisins hefði tekið við störfum. Einar Guðmundsson hefur verið umboðsmaður Skeljungs á Nes- kaupstað í fimm ár, en hann rekur einnig, ásamt konu sinni, Gisti- heimilið Hafnarbraut 22 á Neskaup- stað. -PS Yfirlýsing frá Landssambandi smábátaeigenda: FORMAÐUR LÍÚ SAMBANDSLAUS? -js Nýr umboðsmaður tekinn við Skeljungi á Neskaup- stað, vegna gruns um fjárdrátt þess fyrrverandi: Verulegar fjár- hæðir vantar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.