Tíminn - 12.11.1991, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 12. nóvember 1991
Tíminn 13
VtEDESTEIN^)
VETRARHJÓLBARÐAR
Negldir
Ónegldir
Viðurkennd vara á mjög góðu verðí
Flestar stærðir ísnagla fyrirliggjandi
Ármúla 11 - Reykjavík - Sími 681 500
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Rannsóknarstöður við
Norrænu stofnunina í kenni-
legri eðlisfræði (NORDITA) í
Kaupmannahöfn
Norræna stofnunin ( kennilegri eðlisfræði (NORDITA) I
Kaupmannahöfn auglýsir tlmabundnar rannsóknarstöð-
urfyrir norræna eðlisfræðinga á næsta ári. Stööumar
enj veittar frá 1. september 1992 og eru til eins árs, en
eru í flestum tilvikum framlengdar a.m.k. eitt ár 1 viðbót.
Við stofnunina eru m.a. stundaöar rannsóknir í stjarn-
eðlisfræði, þéttefnisfræði, kjarneðlisfræði, öreindafræði
og eðlisfræði margbrotinna kerfa.
Þess er vænst að umsækjendur hafi lokið doktorsprófi,
en ungir eðlisfræðingar I framhaldsnámi geta einnig átt
kost á styrk til skemmri dvalar. Umsókn fýlgi staöfest af-
rit prófskírteina, ásamt ítarlegri greinargerð um mennt-
un, vlsindaleg störf og ritsmíðar. Umsóknareyðublöð og
nánari upplýsingar fást i Raunvlsindastofnun Háskól-
ans, Dunhaga 3, 107 Reykjavík. Umsóknir skulu sendar
I tvíriti til NORDITA, Blegdamsvej 17, DK-2100, Köben-
havn Ö, Danmark, fyrir 1. desember n.k. Auk þess skulu
2-3 meðmælabréf send beint til NORDITA.
Menntamálaráðuneytlð,
11. nóvember 1991.
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNlb ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Landsbvggðar-
ÞJÓNUSTA
fyrirfólk, stofnanir og
fyrirtæki á landsbyggðinni.
Pöntum varahluti og vörur.
Samningsgerð, tilboð í
flutninga.
Lögfræðiþjónusta, kaup og
sala bifreiða og húsnæðis.
Okkur er ekkert óviðkomandi,
sem getur létt fólki störfin.
LANDSBYGGÐ HF
Ármúla 5-108 Reykjavík
Símar 91-677585 & 91-677586
Box 8285
Fax 91-677568 • 128 Reykjavík
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
POSTFAX
91-676-444
Hárkollumar færðu þeim ekki frægð heldur dauða.
Tvíburabræður drukkna í á í Róm:
MADONNA MISSIR
TVO GÓÐA VINI
Þeir voru bestu vinir Madonnu f dansskólanum í New York.
Stórstjarnan Madonna er
miður sín þessa dagana.
Ástæðan er sú að tveir
bestu vinir hennar létust í
hræðilegu slysi.
Tvíburabræðurnir Dave og
Tim Jones voru að æfa
dansatriði á árbakka í Róm,
þegar þeir duttu í ána og
sukku til botns með þeim
afleiðingum að þeir
drukknuðu báðir.
Þeir voru báðir með mjög
þungar hárkollur, sem hjálpaði
þeim ekki við að komast upp úr
aftur.
Hinir myndarlegu bræður,
sem voru ekki nema 32 ára
gamlir, voru með Madonnu í
New York-dansskólanum og
voru bestu vinir hennar þegar
hún var bara óþekkt stúlka að
nafni María Ciccone.
Eftir að þeir hættu í dansskól-
anum vegna féleysis, héldu þeir
sambandi við gömlu vinkonuna
og glöddust innilega yfir vel-
gengni hennar.
En það, sem þeir héldu leyndu
fyrir henni, var að þeir voru
staurblankir og voru eiginlega
á götunni. Heimildarmaður úr
herbúðum Madonnu segir:
„Hún kennir sjálfri sér um
hvað hefur gerst. Hún ásakar
sjálfa sig um að hafa aldrei
hjálpað þeim. En þeir sögðu
henni aldrei að þeir ættu ekki
peninga."
Tim og Dave, sem eyddu
sumrinu á Ítalíu og dönsuðu
fyrir fólk til að eiga fyrir mat,
börðust fyrir lífi sínu, en það
tókst ekki.
Franco Carlotti, sem býr ná-
lægt ánni og varð vitni að at-
burðinum, segir: „Þegar þeir
voru að dansa, rann Dave til og
datt í ána. Hann hrópaði á
hjálp og Tim kom honum til
bjargar. Hann stökk út í ána án
þess að taka þessa hárkollu af
sér. Lögreglan segir að þeir hafi
ennþá haldið sér í hvorn annan
þegar lík þeirra fundust."
Þegar bræðurnir komu til
Hollywood, var þeim ráðlagt að
gera eithvað sniðugt til að
vekja athygli á sér. Dave fór út
og kom til baka með mörg kíló
af nælontvinna og þeir gerðu
sér hárkollur úr honum. Þeir
héldu að hárkollurnar myndu
hjálpa þeim við að koma sér á
framfæri.
Sandra Milo, sem er aðstoðar-
kona við þáttagerð í Róm, segir
að þeir hafi lifað eins og um-
renningar á götum Rómar.
Matarlausir og án nokkurrar
vinnu. „Ég gaf þeim peninga og
reyndi að gefa þeim að borða.
Ég reyndi líka að hughreysta þá
og sagði þeim að gefast ekki
upp,“ sagði Sandra Milo.