Tíminn - 24.12.1991, Síða 9

Tíminn - 24.12.1991, Síða 9
Þriðjudagur 24. deseember 1991 Tíminn 9 líka með sín börn. Síðan er haldin messa og snæddur hátíðarmatur. Það er reynt að hafa þetta sem heimilislegast, „ segir Stefanía. „Það lítur út fyrir að flest börn geti farið heim, en svo koma ef- laust einhver ný inn yfir jólin. Það er þó vonandi ekki. „ Þann 17.desember voru haldin litlu jól á Landspítalanum fyrir öll börn sem þá voru á spítalanum og einnig þau börn sem oft þurfa að koma í eftirlit. Þá voru foreldrar einnig til staðar, en þeir koma að sjálfsögðu oft í heimsókn. „Á litlu jólunum var boðið upp á ýmis skemmtiatriði, kórar sungu, jólasveinar brugðu á leik og það var dansað í kringum jólatré. Síð- an var drukkið kók og borðuð kaka,“ segir Stefanía. Að sögn Stefaníu hafa börnin einnig dund- að sér við að föndra ýmist jóla- skraut og skartar barnadeildin ýmsum fallegum munum unnum af börnunum. Flest börn komast heim af Landakoti Um 40 börn voru á litlu jólun- um á Landakoti, sem fóru fram í síðustu viku. „Þá var dansað í kringum jólatré og ýmislegt gert til gamans,“ sagði Auður Ragn- arsdóttir, deildarstjóri á Landa- koti í samtali við Tímann. „Við reynum að koma öllum heim, það hafa oft verið hér fleiri en nú verða," segir Auður. Nú stefnir í að aðeins eitt barn þurfi að dvelja á spítalanum yfir jólin. „Það verður reynt að gera jólalegt inni á stofunni hjá honum. Mömmu hans og pabba er boðið að vera með honum og borða með honum. Það verður reynt að hafa þetta eins heimilislegt eins og hægt er.“ GS. Auður Ragnarsdóttir, deildar- stjóri á Landakoti og Sigríður H. Jónsdóttir fyrir framan jóla- tréð á deildinni. Sigríður þarf að vinna vaktina á aðfanga- dagskvöld og kallast því „jóla- hjúkkan".______________________ Kertasníkir í Þjóðminjasafni í dag, aðfangadag kemur Kerta- sníkir, síðasti jólasveinninn til byggða. Hann verður í Þjóð- minjasafninu kl. 11.00. Lúðvík Helgi Sigurðsson er fimm ára og var að smíða þegar blaðamaður heimsótti hann. Hann verð- ur að vera á Landakoti yfir jólin. Þó að Lúðvík finnist það ekkert gaman brosti hann eilítið fyrír Ijós- myndarann. Björgunarsveitin í Bolungar- vík kölluð út á laugardag: Dráttarbátur í vandræðum Björgunarsveitin Ernir í Bolungar- vík var kölluð út á laugardag klukk- an 13.48 til að aðstoða dráttarbátinn Hvanneyri, sem var með pramma í drætti og var komið töluvert vatn í pramman. Hann var staddur undir Grænuhlíð á leið til Súðavíkur. Björgunarsveitin kom til hjálpar vopnuð dælum og komst Hvanneyr- in með prammann heilu og höldnu til Súðavíkur.____-PS Æviskrár MA- stúdenta Út er komið Ijórða bindið af Ævi- skrám MA-stúdenta hjá Steinholt- bókaforlagi í Reykjavík. Bókin inni- heldur æviskrár allra þeirra stúd- enta sem brautskráðust frá Mennta- skólanum á Akureyri á árunum 1964-1968. í æviskránum er leitast við að gefa sem ítarlegast yfirlit um lífshlaup hvers og eins, ætt, upp- runa og fjölskyldu, náms- og starfs- feril, ritstörf, félags- og trúnaðar- störf o.fl. Þá fylgir mynd hverri ævi- skrá, en auk þess eru birtar hóp- myndir af hverjum stúdentaárgangi fyrir sig. Ritstjóri verksins er Gunnlaugur Haraldsson, þjóðháttafræðingur, sem safnað hefur einn öllu efni og búið það til prentunar. Æviskrár MA-stúdenta eru til sölu hjá Steinholt-bókaforlagi að Engja- teigi 9 í Reykjavík, sími 686150. Þeir sem áhuga hafa á að nálgast ritið fyrir jólin geta snúið sér til forlags- ins, en annars verður bókin póst- send til áskrifenda. -j* VlnningsttMur laugatdaginn (Tm 14. des. 1991 í2)(É!? i2' UÍ33} TÍ) V _/ v v VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA : 1. 5a(5 1 2.790.493 2.4 w 3 161.667 3. 4al5 123 6.801 4. 3af5 4.445 439 Heildarvinningsupphæö þessa viku: M1 upplvsingar:sImsvari91 -681511 lukkulína991 002 Desemberverð ó Storno farsímam 5tor«° /A'aC OjV^ Verð gilda til 31. des. 1991. Verðiö er hreint ótrúlegt. Storno bílasími kr. 79.580 stgr. með vsk. Storno burðarsími kr. 84.280 stgr. með vsk. Bíla- og burðarsími kr. 94.760 stgr. með vsk. Burðarsíma íylgir 4 Ah rafhlaða. Takmarkað magn. POSTUR OG SÍMI Söludeildir í Ármúla 27, Klrkjustræti, Kringlunni og á póst- og símstöðvum um land allt

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.