Tíminn - 08.01.1992, Side 2
2 Tíminn
VMSI skorar á aðildarfélög sín að afla sér verkfallsheimildar. Kjaraviðræður hefjast að nýju í næstu viku:
HEFJAST VERKFOLL
í BYRJUN FEBRÚAR?
Framkvæmdastjórn Verkamannasambands íslands hefur skorað á
aðildarfélög sambandsins að afla sér verkfallsheimildar sem allra
fyrst og eigi síðar en fyrir næstu mánaðamót. Búist er við að kjara-
samningaviðræður hefjist að nýju í næstu viku. Snær Karlsson hjá
VMSÍ sagði að ef þær viðræður skila ekki árangri á allra næstu vik-
um, sé líklegt að komi til átaka á vinnumarkaði fljótlega eftir mán-
aðamótin.
í nóvember og desember fóru fram
viðræður milli VMSÍ og vinnuveit-
enda um sérkjör. VMSI sleit þeim
viðræðum eftir að sýnt þótti að þær
myndu ekki skila þeim árangri, sem
vænst var, og að bankarnir væru
ekki tilbúnir til að lækka vexti.
Segja má að óformlegt samkomulag
hafi tekist um að fresta viðræðum
fram yfir jól og bíða eftir afgreiðslu
fjárlagafrumvarpsins og annarra
mikilvægra mála ríkisstjómarinnar.
Allt bendir til að í næstu viku verði
þráðurinn tekinn upp að nýju. Snær
Karlsson sagði að þá myndu fulltrú-
ar VMSÍ gera vinnuveitendum grein
fyrir að ef viðræðumar skiluðu ekki
árangri fyrir næstu mánaðamót,
mætti búast við að aðildarfélög
VMSÍ myndu blása til verkfalla.
Hjörtur Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna, sagði að afstaða
vinnuveitenda væri að miðað við
það efhahagsástand, sem ríkir í
þjóðarbúinu í dag, væri útilokað að
hækka laun. Hjörtur sagði að sér-
kjaraviðræður, sem fram fóru fyrir
jól, hefðu skilað þó nokkmm ár-
angri í vissum málaflokkum. Hann
sagðist telja það skyldu beggja
samningsaðila að setjast niður að
nýju og taka upp þráðinn þar sem
frá var horfið og reyna að Ijúka gerð
nýrra samninga.
„Það er mjög nauðsynlegt að reyna
að fara að koma þessu í höfn. Samn-
ingar hafa dregist of lengi. Óróleik-
inn, sem er samfara því að hafa alla
kjarasamninga Iausa, er sífellt að
aukast. Við viljum sem allra fyrst
fara að setjast við stóra samninga-
borðið og fara að semja af alvöru,"
sagði Hjörtur.
Snær Karlsson sagði að vissulega
hefðu sérkjaraviðræðurnar skilað
einhverjum árangri. Samningsaðil-
ar vissu a.m.k. hver afstaða viðsemj-
endanna væri í einstökum málum.
Eftir sem áður þyrftu mál að hreyf-
ast hraðar.
-EÓ
Miðvikudagur 8. janúar 1992
Samgönguráðherra frest-
ar að skylda fiugfélög fii
að hafa tvo fiugmenn í at-
vinnufiugi með farþega:
Reglugerð
frestað
Samgðnguráðherra hefur
ákveðið að fresta gfldistöku
reglugerðar sem skyldar flugfé-
lög til að hafa tvo flugmena í at-
vinnuflugl með farþega, Káð-
herra gerði þetta vegna þess að
fyrirsjáanlegt var að með þess-
ari breytmgu myndi flug til
niður, og þar með yrði öiyggis-
málum á viðkomandi stöðum
stefnt í voða.
Umrædd reglugerð er ný og
endurbætt þýðing á viðbæti 6 í
stofnunarinnar. Mcð því að hafa
tvo menn í flugvél er stefiit að
því að auka flugöryggi. Reglu-
gerðin átti að taka gildi nú um
áramót, en samgönguráðherra
ákvað að fresta gildistöko henn-
ar um tvö ár eða til 1, janúar
1994, -EÓ
Akranes:
Mikill leki kom
aö níu tonna bát
Slökkviliðið á Akranesi var í gær-
morgun kvatt niður að höfn þar í
bæ, en þar hafði komið leki að níu
tonna bát, Ebba, sem lá þar í höfn-
inni.
Lögreglan á Akranesi hafði tekið
eftir því að viðvörunarljós logaði um
borð í bátnum og tilkynnti eiganda
bátsins um það, en hann fór strax að
vitja um bát sinn. Skömmu síðar
hringdi hann til lögreglu og bað um
aðstoð, svo mikill væri lekinn. Eins
og áður sagði var slökkviliðið á
Akranesi sent til hjálpar; dældu þeir
vatni úr bátnum og varð honum því
bjargað. -PS
Heiðurslaun fyrir kvik-
myndageröarmenn
Samband íslenskra kvikmyndafram-
leiðenda sendi formanni Mennta-
málanefndar Alþingis btéf á dögun-
um þar sem sambandið vekur at-
hygli nefndarinnar á hlut kvik-
myndalistarinnar í íslenskri samtíð.
Kvikmyndaframleiðendur telja að
kvikmyndalistin sé yngst listgreina
og hafi átt á brattann að sækja gegn
aldagrónum listgreinum, sem hafa
þegar skipað sér verðugan sess í
þjóðfélaginu. Þeir benda sérstaklega
á að enginn kvikmyndagerðarmaður
er í hópi þeirra er þiggja heiðurslaun
frá Alþingi, þrátt fyrir þá staðreynd
að á síðari árum hafa komið fram
listamenn á sviði kvikmyndagerðar,
sem hafa getið sér alþjóðlegan orð-
stír.
Kvikmyndaframleiðendur skora á
Menntamálanefhd Alþingis að sjá til
þess að listamenn úr hópi kvik-
myndagerðarmanna verði meðal
heiðurslaunahafa Alþingis. Þannig
verði þessi viðurkenning í takt við
tímann. -js
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund — Dvalarhcimilið Ás/Ásbyrgi;
384 heimilismenn
Heimillsmenn á EIH- og hjúkrunar- stofnununum var töluverð á árinu.
heimilinu Grund og Dvalarheimil- Á Crund komu 39 konur og 28
unum Ási og Áshyrgl voru um ára- karlar, en 12 konur fóru og 9 kari-
mótin samtals 384,276 á Gnudog ar. Þá létust 36 konur og 10 kariar.
108 í Ási og Ásbyrgl. Á Grund voru f Ás! og Ásbyrgi komu 15 konur og
181 kona, en 96 kariar. í Ási ogÁs- 19 karlar, en 16 konur fóru og 26
byrgl voru hinsvegar 42 konur, en karfar. Tvær konur létust í Ási og
66 kariar. Hreyfingin á fóUd í Ásbyrgi. -PS
Klæðskiptingurinn
Madame
Sýningar á leikritinu M. Butterfly
eftir bandaríska höfundinn David
Henry Hwang hefjast á ný í Þjóð-
leikhúsinu nk. fostudagskvöld, en
þær hafa legið niðri yfir hátíðamar.
Leikritið er byggt á fúrðufrétt úr
heimspressunni fyrir fáum árum,
sem vakti verulega athygli: Starfs-
maður í frönsku utanríkisþjónust-
unni hafði haldið við kínverska
dansmey um 20 ára skeið og átt með
henni barn, að því er talið var. Þegar
franska leyniþjónustan hins vegar
fór að athuga málið, komust menn
Butterfly
þar að því að kínverska konan var í
raun karlmaður.
Með aðalhlutverk í M. Butterfly fara
Þór Thlinius, sem leikur kínversku
„dansmeyna", og Arnar Jónsson,
sem leikur Frakkann. Lejkstjóri er
Þórhildur Þorleifsdóttir. Unnur
Guðjónsdóttir stjórnaði kínverskum
dönsum. Leikmynd gerði Magnús
Pálsson og búninga, Helga Rún
Pálsdóttir. Lýsingu annast Björn B.
Guðmundsson, en þýðandi leikrits-
ins er Sverrir Hólmarsson.
—sá
Séð yfir jörðina Skóga, sem er fremst á myndinní.
Höfðingleg gjöf Áskels Jóhannssonar:
Skógrækt færðir Skógar
Áskell Jóhannsson, Kambsvegi 31 í
Reykjavík, hefur fært Skógrækt rík-
isins eignarjörð sína, Skóga á Fells-
strönd í Dalasýslu, að gjöf. Eins og
nafn jarðarinnar bendir til er þar
talsvert skóglendi, og eina skilyrði
gefandans er að jörðin verði friðuð
fyrir öllum ágangi.
Fyrir allmörgum árum var sett upp
skógræktargirðing í landi Staðar-
fells og meðfram merkjum þeirrar
jarðar og Skóga, og mun væntanleg
girðing um land Skóga verða tengd
henni. Árangurinn af skógrækt í
Staðarfellsgirðingunni hefur verið
með ágætum og er hann til vitnis
um mikla veðursæld á þessum hluta
Fellsstrandar. Skógrækt ríkisins tel-
ur mikinn feng vera í þessari gjöf,
bæði vegna heppilegra verðurskil-
yrða og annars.
í Skógum hefur sama ættin setið
frá árinu 1865, er Jónas Jónsson, afi
Áskels, hóf þar búskap. Síðan bjó Jó-
hann, faðir Áskels og þeirra systk-
ina, í Skógum frá 1897 til aéviloka
árið 1951. Eftir það bjuggu þar syn-
ir Jóhanns, fyrst Jónas og síðan þeir
Sigmundur og Áskell, uns þeir
brugðu búi árið 1979. Þá fékk
frændi þeirra jörðina til ábúðar, en
hann brá búi á síðastliðnu hausti.
Bærinn í Skógum hefur frá alda
öðli staðið hátt í hlíðinni, eða um
100 metra yfir sjávarmáli. Þaðan er
afar víðsýnt og fagurt bæjarstæði og
gott, og hefur það hentað þeim bún-
aðarháttum sem tíðkuðust langt
fram á þessa öld. Land það, sem
hentaði til nútíma ræktunar, var
hins vegar meðfram sjónum, drjúg-
langan spöl frá bænum. Þegar land
þetta hafði verið tekið til ræktunar
var bærinn fluttur niður undir sjó.
Nýtt fjós, fjárhús og hlaða voru
byggð og íbúðarhús reist árið 1971.
Þarna eru því nýlegar byggingar og
vel úr garði gerðar. í tilkynningu frá
Skógrækt ríkisins segir að hingað til
hafi skort aðstöðu til að sinna skóg-
ræktargirðingum á þessu svæði og
því bæti þessi gjöf úr brýnni þörf.
„Gefanda Skóga eru því færðar alúð-
ar þakkir fyrir þessa höfðinglegu
gjöf,“ segir í orðsendingu Skógrækt-
arinnar.
Þór Tulinius og Amar Jónsson í hlutverkum sínum í M. Butterfly.