Tíminn - 08.01.1992, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 8. janúar 1992
Tíminn 3
Allt fast í samningamálum starfsmanna ríkisins og verkalýðsfélaganna. Ögmundur Jónasson formaður BSRB:
Skerðingar, niðurrif og
kommissarar í stofnanir
„Það hefur ekkert nýtt heyrst frá samninganefnd ríkisins. Það eina
sem við heyrum fáum við úr fjölmiðlum og það er einungis skerð-
ing á skerðingu ofan,“ segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB,
um stöðuna í samningamálum félaga BSRB. Ögmundur segir að
vissuiega sé þolinmæði fóiks innan bandalagsins á þrotum. Hins
vegar væri erfitt um vik fyrir ríkisstarfsmenn að grípa til svipaðra
aðgerða til að undirstrika kröfur sínar og verkalýðsfélög geta sem
heyra undir almenna vinnulöggjöf.
Bjöm Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ.
Tímamynd: Ámi Bjarna.
Lög um kjarasamninga, réttindi og
skyldur opinberra starfsmanna
væru mun þyngri í vöfum í þessu
tilliti en almenna vinnulöggjöfin.
„Snemma í haust var ákveðið að fé-
lögin leituðu hvert um sig eftir
samningum, en heildarsamtökin
beittu sér í stærri málum og drægju
fram staðreyndir sem stjórnvöld
reyna að sópa undir teppið og á því
sviði hefur verið nóg að starfa und-
anfarið," sagði Ögmundur. „Við höf-
um lagt mat á skerðingu barnabóta,
vaxtahækkanir og lækkun skatt-
leysismarka svo eitthvað sé nefnt og
víst er að ríkisstjórnin hefur með
verkum sínum séð til þess að þeir
sem starfa í samtökum launafólks
hafa haft ærinn starfa upp á síðkast-
ið.
Það er á öllum sviðum sem ríkis-
stjórnin beinir spjótum sínum að
þeim sem síst skyldi: Nú síðast er
það tekjutenging ellilífeyris þar sem
stóreignamenn, sem hafa eignatekj-
ur, sigla áfram lygnan sjó en þeir
sem aðeins hafa tekjur af vinnu
sinni fá að borga brúsann."
Ögmundur sagði að BSRB hefði í
sjálfú sér ekki verið andvígt tekju-
tengingu. Hins vegar verði ekki
Ögmundur Jónasson, formaöur
BSRB.
Tímamynd: Pjetur
hægt að taka þegjandi við tekju-
tengdum niðurskurði á velferðar-
kerfinu. „Það hefur ekkert verið
gert til bóta, heldur virðast stjórn-
völd sérhæfa sig í niðurrifi og það
síðasta; tekjutengdur niðurskurður
á velferðarmálum er okkur að sjálf-
sögðu ekki að skapi.“
Þá er hugmynd ríkisstjórnarinnar
um sérstakt eftirlitskerfi með starf-
semi á vegum ríkisins sérkennileg
að mati Ögmundar. Um verði að
ræða tvöfalt stjórnkerfi sem hvergi
hefði reynst vel né skilað árangri.
„Það er sérkennilegt að í ráðninga-
banninu nú eigi að fara að ráða inn
sérstaka kommissara flokks eða rík-
isstjórnar til eftirlits með óbreytt-
um starfsmönnum ríkisins. Ég tel
þetta vanhugsaða ákvörðun sem
mun ekki skila árangri," sagði Ög-
mundur.
En það eru fleiri en ríkisstarfs-
menn sem eru að tapa þolinmæð-
inni vegna seinagangs í kjarasamn-
ingum. í ályktun stjórnar verka-
lýðsfélagsins Einingar á Akureyri í
síðustu viku er lýst undrun og reiði
yfir viðbrögðum VSÍ, VMS og ríkis-
valds gagnvart sérkröfum Verka-
mannasambandsins. Það algera
áhugaleysi sem þessir viðsemjendur
sýni sé lítilsvirðing við Iaunafólk,
sem hljóti að enda með ófriði á
vinnumarkaðinum áður en langt
um líður. Þess sé krafist að nú strax
verði farið í alvöru viðræður um
sérkjarasamninga svo hægt verði að
hefjast handa við gerð aðalkjara-
samnings af hendi heildarsamtak-
anna.
„Ég held að menn séu sammála
um að krefjast þess að kjarasamn-
ingaviðræður fari almennilega af
stað. Það verður að fara að láta
reyna á hvort þetta hefst eða ekki.
Gerist ekkert, hlýtur hreyfingin að
nota þau vopn sem hún býr yfir,“
segir Björn Grétar Sveinsson, for-
maður Verkamannasambandsins.
Á fundi framkvæmdastjórnar
Verkamannasambandsins í fyrradag
var samþykkt að skora á þau verk-
lýðsfélög innan sambandsins, sem
ekki hafa aflað sér verkfallsheimild-
ar, að gera það sem allra fyrst og
ekki síðar en um næstu mánaða-
mót. Þá hefur Tíminn heimildir fyr-
ir því að Dagsbrún ætli að efna til
nýrra aðgerða innan skamms, til að
leggja áherslu á sérkröfur félags-
manna.
—sá
Landbúnaðarráðherra telur áfram ástæðu til að takmarka innflutning búvara:
GATT opnar fyrir inn-
flutning lifandi
Haildór Blöndal landbúnaðarráðherra sagði í gær á Alþingi við umræð-
ur utan dagskrár um GATT, að það væri nauðsynlegt íýrir íslendinga að
beita áfram innflutningstakmörkunum á iandbúnaðarvörur. Hins vegar
verði bændur að búa sig undir aukna samkeppni á næstu árum. Halldór
sagði að með þeim tollalækkunum sem gert er ráð fyrir í þeim sam-
komulagsgrunni sem nú er til umræðu væri með tollalækkunum kippt
grundvellinum undan opinberri verðskráningu búvara.
Eldur í
óhreina
tauinu
Slökkviliðið í Reykjavík var kvatt að
húsi við Sörlaskjó! klukkan 15.23 í
gær, en þar lagði dálítinn reyk úr
þvotthúsi í íbúð þar við götu. Þegar
slökkviliðsmenn komu inn í þvotta-
húsið sáu þeir reyk leggja út úr vél-
inn og reyndist hafa kviknað í þvott-
inum í vélinni. Hafði vélin verið stillt
á suðu og þvotturinn ekki þolað það.
Farið var með þvottavélina út og var
henni gefin væn skvetta og slökkt í
þvottinum. Má fastlega gera ráð fyrir
að þvotturinn sé ónýtur og að ekki
verði þvegið í þvottavélinni, í það
minnsta um sinn. -PS
Ungir listamenn
undir „Einum hatti“
Stofnað hefur verið félag á íslandi
með það að markmiði að skapa ung-
um listamönnum starfsgrundvöll á
erlendri grundu með samstarfi við
sambærileg félög víða um heim. Fé-
lagsskapurinn hefur hlotið nafnið
Einn hattur. Samstarfið hefur í för
með sér umfangsmikil skipti á lista-
mönnum af öllum gerðum. Fyrsta
verkefni félagsins er tónleikaferð
frönsku hljómsveitarinnar Dimitri
til landsins í janúar. Það eru frönsk
systursamtök Eins hatts sem standa
að komu hljómsveitarinnar hingað
til lands. Þeir sem hafa áhuga á að
kynna sér nýstofnað félag, er bent á
að skrifa til félagsins. Heimilisfangið
er: Einn hattur, Box 3373, 123
Reykjavík. -PS
Hann sagði jafnframt að ekki væri
tryggt að hægt yrði að koma í veg
fyrir innflutning á lifandi dýrum og
hráu kjöti ef samkomulagsdrögin
yrðu samþykkt.
Afstaða íslands til GATT- viðræðn-
anna var til umfjöllunar á ríkis-
stjórnarfundi í gær. Málið verður
rætt að nýju í ríkisstjórninni á föstu-
daginn og er búist við að þá liggi
endanleg afstaða stjórnarinnar fyrir.
Ef ísland vill gera athugasemd við
fyrirliggjandi drög að nýju GATT-
samkomulagi verður að gera það
fyrir næstkomandi mánudag.
Málið var rætt utan dagskrár á Al-
þingi í gær að frumkvæði Jóns
Helgasonar, fyrrverandi landbúnað-
arráðherra og núverandi formanns
Búnaðarfélags íslands. Jón gerði þar
ítarlega grein fyrir aðdraganda
GATT-viðræðnanna og núverandi
stöðu þeirra. Hann gerði einnig
grein fyrir afstöðu bændasamtak-
anna sem m.a. var sagt frá í Tíman-
um í gær.
Jón gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir
að hafa ekki gerst meðflutnings-
menn með tillögu sem Kanada-
menn, Norðmenn og fleiri þjóðir
fluttu, en þar eru gerðar alvarlegir
fyrirvarar við tillögu Arthur Dun-
kels, framkvæmdastjóra GATT, m.a.
um að löndin geti ekki sætt sig við
að fallið verði frá magntakmörkun-
um á innflutning á búvörum. Jón
sagði nauðsynlegt fyrir íslendinga
að gera fyrirvara við fyrirliggjandi
samkomulagsdrög og að slíka fyrir-
vara hefði átt að gera um leið og
Norðmenn og fleiri nágrannaþjóðir
okkar komu þeim á framfæri. Hann
sagði mikilvægt að afstöðu íslenskra
stjórnvalda verði komið á framfæri á
vettvangi GATT fyrir 13. janúar því
mikil hætta sé á að ekki verði tekið
mark á fyrirvörum sem koma fram
við lokaafgreiðslu málsins.
Landbúnaðarráðherra sagði m.a.
að samkvæmt fyririiggjandi sam-
komulagsdrögum væri ekki hægt að
ábyrgjast að við getum í öllum til-
vikum varist innflutningi á lifandi
dýrum og hráum sláturafurðum.
Hann sagði að við nytum ekki fjar-
lægðarverndar samkvæmt drögun-
um vegna þess að tollar yrðu reikn-
aðir á vörurnar á því verði sem þær
eru þegar þær eru komnar til Iands-
ins. Halldór sagði ljóst að sú tolla-
lækkun sem gert er ráð fyrir í drög-
unum kippi grundvellinum undan
opinberri verðskráningu búvara.
Landbúnaðarráðherra sagði að til-
laga Dunkels gerði ekki ráð fyrir að
tekið sé tillit til verðbreytinga, en
það geti haft þau áhrif að stuðning-
ur við landbúnaðinn verði að
minnka um 25% strax á fyrsta ári.
Ráðherra sagðist óttast að íslenskur
landbúnaður sé ekki nægilega vel
búinn undir frjálsan innflutning
búvara og því sé um hríð nauðsyn-
legt að halda sér við fyrri afstöðu
um innflutningstakmarkanir á bú-
vörum.
Ragnar Arnalds og fleiri mótmæltu
við umræðuna fullyrðingum utan-
rfkisráðherra sem hann hefur látið
falla um að GATT-tilboð fyrri ríkis-
stjórnar gangi jafnlangt eða jafnvel
lengra en þau samkomulagsdrög
sem nú eru til umræðu. Ragnar
sagði að fyrra tilboð hefði ekki gert
ráð fyrir ótakmörkuðum innflutn-
ingi heldur einungis 3% innflutn-
ingi og á þann innflutning átti að fá
að leggja á jöfnunargjöld þannig að
innflutta varan yrði jafndýr og sú
innlenda. Ákvæði um áhrif verð-
lagsbreytinga hefðu verið skýr í
fyrra tilboði en nú séu þau óskýr og
dýra
líklega verði ekkert tekið tillit til
verðbreytinga. í fyrra tilboði hafi
beinar greiðslur til bænda verið
flokkaðar sem grænar greiðslur og
því leyfilegar. í drögunum sem nú
eru til umræðu séu þær óleyfilegar
nema þær séu flokkaðar sem beinn
styrkur og óháðar framleiðslu. Að
auki hefði verið í fyrra tilboði fjar-
lægðarvernd þar sem toll átti að
reika af vöru á hafnarbakka í út-
lendri höfn.
Kristín Ástgeirsdóttir sagði að
Kvennalistinn tæki ekki afstöðu til
samningsdraganna á þessu stigi
málsins. Hún sagði hins vegar að
landbúnaðurinn yrði að aðlaga sig
vaxandi samkeppni. Hún vakti at-
hygli á baráttu íslensku þjóðarinnar
fyrir auknu verslunarfrelsi fyrr á
öldum og sagði að verslunarfrelsi
væri mikilvægara fyrir smáar þjóðir
en stórar.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson sagði
að með tillögu Dunkels væri verið
að koma á móts við sjónarmið EB
og Bandaríkjanna. Þessar ríku þjóð-
ir ætluðu eftir sem áður að verja gíf-
urlegum fjármunum til styrktar
sínum landbúnaði og því mætti bú-
ast við að ef opnað yrði fyrir inn-
flutning búvara til landsins yrðu
hingað fluttar niðurgreiddar búvör-
ur með útflutningsbótum. íslensk-
ur landbúnaður gæti alls ekki keppt
við slíkan innflutning. -EÓ