Tíminn - 08.01.1992, Side 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 8. janúar 1992
Enn hefur ekkert ríki boðið Gamsakhurdia, hinum falina forseta, hæli. Uppreisnarmenn í Georgíu:
MUNUM DRAGA GAMSA-
KHURDIA FYRIR RÉTT
Tiblisi—7. jan. Georgískir uppreisnarleiðtogar sögðu í gær
að þeir mundu elta Zviad Gamsakhurdia forseta uppi og draga
hann fyrir dóm.
Gamshakhurdia, sem er 52 ára gamall, flúði til grannríkis-
ins Azerbadjan í fyrradag eftir að hafa tapað völdunum í Ge-
orgíu í blóðugum átökum. Enn hefur ekki frést að neitt rfld
muni veita honum viðtöku og um hádegi í gær var hann hæl-
islaus á landamærum Azerbadjan og Armeníu. „Veiti einhver
Gamsakhurdia hæli munum við krefjast framsals hans sem
glæpamanns,“ sagði Jaba Ioseliani í útvarpi, en hann er einn
fremsti foringi uppreisnarmanna.
forsetahallarinnar meðan á um-
sátrinu stóð. „Margt, margt fólk
var líflátið í hallarkjallaranum,"
segir hann. „Við vitum enn ekki
hve margir, en við munum komast
að því.“ Georgíska sjónvarpið hef-
ur sýnt myndir af rústum forseta-
hallarinnar. Þar má sjá myrkvaða
ganga, handjárn er hanga í vatns-
pípum og búnað sem sagður er
hafa verið notaður til þess að veita
raflost.
Tengiz Sigua, sem uppreisnar-
menn hafa augastað á sem forsæt-
isráðherra í bráðabirgðastjórn,
hvetur til þjóðarsamstöðu. „Það
mega engar hefndaraðgerðir eiga
sér stað,“ sagði hann í ávarpi til
þjóðarinnar, en hún telur 5,4 millj-
ónir manna. „Við verðum að standa
sameinuð að stjórnmálalegri end-
urskipulagningu." Hátíðarhöld
vegna jóla rétttrúnaðarkirkjunnar
og vegna falls forsetans runnu
saman í eitt, en ekki er ákveðið
hvernig að myndun nýrrar stjórnar
verður staðið. Einn meginand-
stæðingur Gamsakhurdia, Chant-
uria, segir að Sigua muni brátt fá
völd herráðs byltingarmanna í
hendur, en segir að það muni taka
sinn tíma. Hann segir og að ekki
beri að hraða kosningum um of.
Gamsakhurdia var kosinn í maí sl.
og hlaut þá 87 prósent greiddra at-
kvæða.
í sama streng tekur Georgy Chant- flokksins. Hann ásakar Gamsak-
uria, foringi stjórnarandstöðu- hurdia og menn hans um að hafa
flokksins, Lýðræðislega þjóðar- drepið og pyndað fanga í kjallara
Óttast um að gengið hafi verið að lýðræði dauðu í
Georgíu. Shevardnadze vill byggja það upp á ný:
Utlægur kóngur
vill í hásætið
Tiblisi 7. janúar — Sigurreifir,
vopnaðir menn óku um götur Tiblisi
í gær og í fyrradag og fögnuðu falli
Gamsakhurdia eftir tveggja vikna
vopnuð átök. Tvö hundruð manns
eru sögð hafa fallið. Forsetinn yfir-
gaf borgina snemma á mánudags-
morgun og hugðist fá hæli í Azerba-
djan, en var snúið frá á landamær-
unum. Hann er nú staddur á landa-
mærum Azerbadjan og Armeníu í
boginni Gyandzha, en ólíklegt er tal-
ið að Armenar veiti honum viðtöku,
því þeim er í mun að halda góðu vin-
fengi við Georgíumenn, vegna deiln-
anna við Azera. Hverfandi líkur eru
taldar á að Gamsakurdia reyni að
brjótast til valda á ný með stuðningi
fylgismanna í sveitum landsins, sem
þó munu margir.
Shevardnadze, fyrrum utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, hefur lýst
því yfir í sjónvarpi að hann muni
ekki skorast undan ef til sín verður
leitað um að byggja upp lýðræði í
landinu. Shevardnadze er Georgíu-
maður. Uppreisnarleiðtogar hafa
ekki hafnað liðsinni hans, þótt þeir
taki tilboðinu með varúð.
Útlægur konungur Georgíumanna,
Jorge Bagration sem býr á Spáni,
hefur og lýst sig tilbúinn að taka við
völdum í Iandinu sem höfuð í nýju
lýðveldi.
Útlegðardómur ísraelsmanna eyðileggur ekki enn
viðræður um frið í Miðausturlöndum:
Samþykkt SÞ bjargar
friðarviðræðunum
Nicosia 7. janúar — Fordæmingu
Öryggisráðs SÞ gagnvart þeirri
ákvörðun ísraelsmanna að gera 12
Palestínumenn burtræka af her-
numdu svæðunum hefur verið
fagnað af PLO- mönnum, sem segja
að niðurstaðan hafi bjargað viðræð-
unum um frið í Miðausturlöndum.
Samþykktin hefur gert aröbum sið-
ferðilega kleift að hefja viðræðurnar
á ný, en ísraelskir harðlínumenn
kveðast munu halda áfram að knýja
á um brottvísun mannanna. í gær
var tilkynnt um að von væri á heim-
ild frá Yassir Arafat þess efnis að við-
ræðurnar mættu hefjast. Palestínu-
menn, Sýrlendingar, Jórdaníumenn
og Líbanir höfðu frestað för sinni til
viðræðnanna, sem áttu að hefjast í
gær, uns niðurstaða SÞ lægi fyrir.
„Öryggisráð SÞ hefur bjargað við-
ræðunum og við erum þakklátir
ráðinu og þeim þjóðum sem hér
áttu hlut að máli,“ segir talsmaður
PLO í Túnis, Ahmed Abderrahman.
ísraelskir embættismenn sögðu að
fordæming öryggisráðsins á burt-
rekstrinum, sem var samþykkt með
15 atkvæðum gegn engu, væri ein-
strengingsleg og átöldu Bandaríkja-
menn fyrir að hafa tekið undir hana.
„Hér er í engu tekið tillit til morða á
ísraelskum borgurum að undan-
förnu,“ segir talsmaður Yitzhak
Shamirs, Ehud Gol. Hann segir að
ákvörðunin um brottvísunina hafi
verið tekin þar sem litið er á um-
rædda menn sem þátttakendur í
fjögurra ára uppreisn íbúa á her-
numdu svæðunum gegn ísrasels-
mönnum. Fjórir ísraelsmenn hafa
verið drepnir á svæðunum frá því er
viðræðurnar hófust.
Fimm hermenn
EB láta lífið
í Júgóslavíu
Feitabollurnar í álverinu
Einbver undirfuröulegasta frétt ný-
hafins árs var flutt á Stöð 2 sl.
föstudagskvöld. Lengi framan af
fréttaflutningi þessum taldi Garri
aö um einhvers konar síðbúiö ára-
mótaskaup væri að ræða, en þegar
fráttamaðurinn hélt viðstöðulaust
áfram og hafði dregið fram eina
þijá viðmælendur kom í Ijós að hér
var alls ekki á ferðinni létt spaug,
heldur fúlasta alvara. Fréttin fjall-
aði um „alvarlegt ástand í álverinu í
Straumsvík þar sem samskiptaörð-
ugleikar starfsmanna við stjóm-
endur fyrirtækisins iíktust púðurt-
unnu sem sprungið gæti þá og þeg-
ar."
Þetta virtist ætla að verða hin
áhugaverðasta firétt, en trúlega hef-
ur enginn áhorfandi búist við að
hún yrði eins áhugaverð og raun
varð síðan á. Eftir kynningu á frétt-
inni birtist fréttamaðurinn á skján-
um og hélt á sjálfu aðaldeihiefni
starfsmanna og stjóraenda í ts-
lenskri álframleiðslu: köku!
Óhollar kökur og
fitandi
Uppistandið í álverinu, sem líktist
púðurtunnu samkvæmt iýsingum
fréttamanns, er tilkomið vegna
þess að hluti starfsmanna álvers-
ins, sem hingað til hafa fengið bæði
smurt brauð og kökur í kaffltímum,
fá nú eingöngu kökur. Við þetta
geta starfsmenn engan veginn sætt
sig og í frétt Stöðvar 2 á föstudag-
inn birtist trúnaðarmaður fyrir
framan mynda-
vélarnar og sagðl
að þetta gæti ekki
gengið svona,
auk þess sem
fram kom að
sætabrauð er
óhoHt og fitandi. Síðan var kallaður
tíl sögunnar framkvæmdastjóri ál-
versins og hann spurður hvort það
gæti skipt sköpum fyrir rekstur ál-
vers aö gefa hluta starfsfólksins
brauð með kafflnu. Framkvæmda-
stjórinn benti á að í rekstrarharð-
indum munaöi um allt; auk þess
komu fram þær fróðlegu upplýsing-
ar f máli hans að miðað við starfs-
menn í norskum álverum væru ís-
lensku álversstarfsmennimir feita-
bollur og því má ætla að þeim ætti
að duga að borða kökur, þó þeir séu
ekki að úða í $ig smurðu brauði
Kka.
Það hefur raunar komið fram í
fréttum, bæði á Stöð 2 og annars
staðar, að þessi slagur um kaffl-
meðlætið er aðeins hluti af víðtæk-
ari erjum í álvcrinu. Það er þvf e.Lv,
tilviljun að kaftimeðlætið verður sá
dropi sem fyllir mælinn. Hins vegar
er það vægast sagt broslegt að
starfsmenn álvers þar sem enn hef-
ur ekki komlð til
fjöldauppsagna,
þrátt fýrir stór-
felldan taprekst-
ur, skull opinbera
óánægju sina á
vinnustað með
því að rífast yfir meölætinu með
kaffinu. Ekki þurfa þeir að búast við
að það fjölþjóðlega fyrirtæki, sem
að þessu álveri stendur, muni sýna
samningaUpurð þegar kröfurnar
eru með þessum hættL Þvert á
móti fagna cflaust stjóraendur fyr-
irtækisins því ef deilur um furðu-
legustu hluti ná að þróast upp í al-
menna óánægju og pirring og jafn-
vel verkföll. Þá gætu þeir með góðri
samvisku lokað sjoppunni og slopp-
ið með skrekkinn. Því Garri man
ekki betur en að ef vericsmiðjunnl
er lokað vegna vinnudeilna losnar
Álfélagið undan kvöðum um kaup á
raforku eða „raforkuskaðabótum",
sem það þarf aö greiða ef verk-
smiðjan er ektó í rekstri. Þess
vegna gæti óánægja starfsmanna
með kaffimeðlætið eflaust hljómað
eins og tónlist í eyrum þeirra
stjómenda sem Ieitað hafa ódýr-
ustu leiða til að loka þessu álveri,
eins og gert hefur verið svo víða viö
álver í öðrum löndum upp á síð-
kastið.
Baráttan um brauöið
Verkalýðsbaráttan hefúr lengi ver-
ið kölluð baráttan um brauðið. Það
má í orösins fyllstu merkingu segja
um baráttuna í álverinu núna. En
það þýðlr þó ektó að þar heyi menn
raunhæfa verkalýðsbaráttu eða bar-
áttu sem einhvetju máli skiptir.
Starfsmenn ættu að setja kröfur
sínar og óánægju fram með skipu-
lagðari hætti og reyna að vega og
meta hvað stóptir þá raunverulegu
máli og hvað ekkL Það kann ekki
góðri lukku að stýra fyrir launabar-
áttu almennt í landinu að starfs-
menn ijúki upp til handa og fóta og
hóti öilu ÍUu, þó þeir séu kailaðir
fcitabollur af stjómendum fyrir-
tækis, sem tala raunar undir rós og
í hálfkveðnum vísum. Garri
Fjórir ítalskir hermenn og
einn franskur létu lífið í
Júgóslavíu í gær þegar
þyrla sem þeir voru í var
skotin niður. Hermennirnir
voru í friðargæslusveitum
Evrópubandalagsins.
Ekki var í gærkvöld Ijóst
um tildrög árásarinnar á
þyrluna en ríkisstjórnir Ítalíu
og Frakklands hafa krafið
stjórnina í Belgrad um skýr-
ingar. Þá hafa ítalir krafist
fundar með utanríkisráð-
herrum Evrópubandalags-
landanna.
Stjórn Króatíu hélt því fram
í gær að MIG 21 orrustuþota
júgóslavneska sambands-
hersins hefði ráðist á tvær
þyrlur friðargæslusveita EB,
skotið aðra niður en þvingað
hina til að brotlenda.
Talsmenn bresku stjórnar-
innar sögðu í gær að for-
sætisnefnd EB væri enn að
rannsaka málið, en svo virt-
ist sem önnur þyrlan hefði
tæst í sundur á flugi um 40
km norðaustur af Zagreb.
(talirnir og Frakkinn, sem
um borð í henni voru, hefðu
farist. Líklegt væri að flug-
skeyti hefði hæft hana.