Tíminn - 08.01.1992, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Bl LAPART ASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIÐI • BÍLAPARTASALA
Flugumýrl 18D * Moslellsbæ
Sfmar 668138 & 667387
Lausnin er: Enzyjnol
^Nýtt í Evrópu
m r
n \ m “E
■ jiV bE
_ mm c
EUBO-HAIR
á Islandi
■ Engin hárígræðsla
■ Engin gerfihár
lEngin lyfjameðferð
■ BEinungis tímabundin notkun
B Eigið hár með hjálp lífefna-orku
■ p!g!£m88 021 Rvik @ 91 • 676331 e.w.16.00
Áskriftarsími
Tímans er
686300
Tíniinn
Norræn vetrarráðstefna jarðvísindamanna stendur yfir í Reykjavík. Hreinn Halldórsson jarðfræðingur:
ISLAND, GOSENLAND
JARÐVISINDAMANNA
í gær hófst í Háskólabíói í Reykjavík 20. vetrarfundur nor-
rænna jarövísindamanna. Þessir fundir eru haldnir annað
hvert ár og að þessu sinni sækja hann 250 vísindamenn og um
20 stúdentar.
Fundarmenn koma frá öllum
‘Norðurlöndum en auk þess eru
fulltrúar frá m.a. Þýskalandi, Bret-
landi, Bandaríkjunum, Kanada og
víðar. Flestir ráðstefnugesta eru
íslendingar en frá einstökum
löndum öðrum en íslandi koma
flestir frá Noregi, eða um 50. Þá
eru um 25 manns frá Svíþjóð, 30
frá Finnlandi og svipaður fjöldi frá
Danmörku.
„Ráðstefnan var síðast haldin hér
á landi fyrir tíu árum og var þá
mjög tengd nafni dr. Sigurðar Þór-
arinssonar jarðfræðings sem átti
sjötugsafmæli um svipað leyti og
ráðstefnan stóð yfir," sagði Hreinn
Halldórsson, jarðfræðingur hjá
Vegagerð ríkisins, en hann hefur
unnið að undirbúningi og skipu-
lagningu ráðstefnunnar.
Hreinn sagði að þar sem ráð-
stefnan er nú haldin á íslandi
lægi í hlutarins eðli að meiri
áhersla væri lögð á eldvirkni og
skyld málefni, heldur en þegar
ráðstefnan er haldin á öðrum
Norðurlöndum.
Fjöldi fyrirlestra verður haldinn
þá þrjá daga sem ráðstefnan
stendur og oftast þrír samtímis
og verða einkum kynntar niður-
stöður grunnrannsókna, en síður
niðurstöður rannsókna sem hafa
verið gerðar með bein hagnýt
markmið í huga.
Mjög mikil aðsókn var að ráð-
stefnunni sem skýrist af því að
jarðvísindamenn hvaðanæva úr
heiminum telja mjög eftirsóknar-
vert að komast til íslands sem er í
þeirra huga allsherjar rannsókna-
vettvangur. „Almennt séð eru ráð-
stefnur af þessu tagi á íslandi í
hugum ungra norrænna jarðvís-
indamanna mikið tækifæri sem
þeir sækjast mjög eftir að geta
nýtt sér þar sem ísland er eins
konar allsherjar tilraunastofa
jarðfræði og jarðeðlisfræði sem
snertir flestöll svið þessara
greina," sagði Hreinn.
Ráðstefnan heldur áfram í dag
og á morgun í Háskólabíói. Henni
lýkur um kl 17 á morgun. —sá
Deilan í álverinu í Straumsvík:
Ekki verið óskað
liðsinnis frá VSÍ
„Við erum vissulega aðilar að
þessu máli hvað varðar kjara-
samninga og framkvæmd þeirra,
en við erum hins vegar ekki ráð-
gefandi stofnun um það hvort
menn eigi heldur að borða kökur
eða brauð.
Þannig að bakkelsisdeilan ógur-
lega er okkur enn sem komið er
óviðkomandi," sagði Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSÍ, í gær aðspurður um hvort
óskað hafi verið eftir afskiptum
Vinnuveitendasambandsins af
þeirri deilu sem risið hefur í álver-
inu í Straumsvík m.a. vegna þess
að hætt hefur verið að bera fram
brauð í kaffitímum og einungis
kökur eru á boðstólum. Þórarinn
sagði að þrátt fyrir að ákveðið
verkalýðsfélag hafi haft uppi yfir-
lýsingar í þessu máli hafi ekki verið
farið fram á liðsinni VSÍ í málinu.
„Við erum hins vegar ævinlega í
Í'óðu sambandi við forráðamenn
SAL, bæði er það stór aðili að
Vinnuveitendasambandinu og
feiknastór aðili í okkar efnahagslífi.
Við íylgjumst því mjög grannt með
því sem þar er að gerast. Það er
ekkert launungamál að við höfum
áhyggjur af stöðu ÍSAL,“ sagði Þór-
arinn. Hann taldi ekki hættu á að
fyrirtækið lokaði en sagði að menn
gætu ekki horft framhjá því að alls
staðar hafi verið dregið úr fram-
leiðslu hjá fyrirtækjum í Alusuiss-
hringnum og horfurnar f greininni
væru enn mjög dökkar. „Það er
ekkert sem segir það að þessara
áhrifa muni ekki gæta hér líka,“
sagði Þórarinn. Hann benti á að
allur samdráttur hjá ÍSAL hafi
áhrif út fýrir fyrirtækið því starf-
semi þess tengist bæði orkusala og
ýmis þjónustustarfsemi. „Ef þau
ósköp gerðust nú að ÍSAL lokaði þá
væru það ekki eingöngu þeir lið-
lega 550 manns sem þar eru sem
myndu missa vinnuna, helur
a.m.k. tvöföld sú tala,“ sagði Þórar-
inn. - BG
Fréttaljósmynd ársíns hefur verið valin úr 11.521 mynd frá 1.390 Ijós-
myndurum og verður til sýnis í Listasathi ASÍ frá og með næsta laug-
ardegi ásamt úrvali mynda sem bárust f hina áriegu keppni um bestu
fréttafjósmyndina — keppnina Worid Press Photo.
Fréttaljósmynd ársins heitir Sorg í Kosovo og var tekin 28. janúar i
fyrra af Georges Merillon, en hann hefur myndað fyrir Time, Stem,
Newsweek og Parfs-Match.
Vandræði í umferð á Akureyri:
Hálfs metra jafn-
fallinn snjór féll
Ámi Gunnarsson.
Umskipti
á toppi
SVFÍ
Sú breyting varð á daglegri fram-
kvæmdastjórn Slysavarnafélags ís-
lands um áramótin að Hannes Þ.
Hafstein, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri SVFÍ frá því 1973,
lét af störfum. Við starfi hans tók
Árni Gunnarsson, fyrrverandi al-
þingismaður.
Hannes Þ. Hafstein.
Þegar íbúar á Akureyri vöknuðu í
gærmorgun brá þeim heldur í brún,
því um nóttina hafði kyngt niður
snjó í bænum og nágrenni og sköp-
uðust af því töluverð vandræði í um-
ferðinni. Höfðu fallið um 50 sm af
jafnföllnum snjó og er það meira en
venjulegir fólksbflar eru gerðir fyrir,
en aðeins var fært fyrir stærri bfla.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri
voru vandræðin mest á milli 06.00
og 09.30 og varð lögreglan að að-
stoða marga ökumenn sem höfðu
farið af stað á fólksbflum og stóðu
fastir á götum borgarinnar. Þá sinnti
lögreglan einnig akstri á starfsfólki
sjúkrahússins og skyldra stofnana til
vinnu sinnar. Það voru þó ekki allir
sem voru morgunfúlir vegna snjóal-
aga, því börn bæjarins á öllum aldri
tóku ástandinu fegins hendi.
-PS