Tíminn - 23.01.1992, Page 5

Tíminn - 23.01.1992, Page 5
Fimmtudagur 23. janúar 1992 Tíminn 5 Tækniaðdáun tröllríður heiminum og nú á dög- um þurfa allir að bera eitthvert skynbragð á tölvur og notkun þeirra. TU að fyrirbyggja minnimáttarkennd gagnvart þessum töfra- tækjum þarf því að venja börn við óttalausa umgengni við þau sem fyrst og eru ýmsar að- ferðir tíl þess. Sumir álíta tölvuleiki vænlega aðferð fyrir byrjendur. Bandaríkjamenn velta þessu máU fyrir sér og er hér á eftir gripið nið- ur í grein í The New York Times nýlega um þetta uppeldismál. Vinur blaðamanns sem stundar vinnu sína heima komst að því einn morguninn að diskdrifið í einkatölv- unni hans neitaði að taka á móti diski. Þriggja ára sonur hans fylgdist með föður sínum yggla sig og tauta meðan hann reyndi hvað eftir ann- að, án árangurs, að fá tölvuna til að taka við diskinum. „Kannski það sé peningur í rif- unni,“ stakk sá litli upp á. Reyndar, pabbi grillti í einhverja mynt í þröngri rifunni og á endan- um tókst honum að ná henni út með flísatöng. En enn var drifið ekki tilbúið að taka á móti diskinum. Eftir að enn önnur vonbrigðamín- úta var liðin kom stráksi aftur með uppástungu. „Kannski er fúllt af peningum þama." Getur heimílístölvan bætt frammistööu bamsins í skólanum? Strákurinn fékk nú heilmikinn fyr- irlestur um umönnun og viðhald einkatölva og í ieiðinni lærði feðir- inn dýrmæta lexíu. Þeim tíma sem varið er með bömunum við tölvu getur verið vel varið á fleiri en einu sviði. Skv. nýlegri Gallup-könnun, sem gerð var fyrir fyrirtæki sem fram- leiðir prentara fyrir einkatölvur, er einkatölva á 25% bandarískra heim- ila. Af þeim kváðust 70% nota hana við vinnu tengda skólanum. Af öll- um foreldrum sem sögðust eiga eða ætla að fó sér heimilistölvu á næst- unni sögðust 78% trúa að hún gæti bætt frammistöðu bamanna í skól- anum. Enn eru margir efins en svo virðist sem flestir foreldrar og skólamenn hafi komist að þeirri niðurstöðu að einkatölvur séu mikilvægt tæki til menntunar. Aðrar skoðanakannanir um öll Bandaríkin komast að þeirri niður- stöðu að í því sem næst öllum skylduskólum Bandaríkjanna sé a.m.k. ein tölva notuð til kennslu. Fjárhagslegur raunveruleikinn hins vegar ræður því að það líða mörg ár áður en tölva verði komin á borð hvers nemanda. Tölvur eru einfaldlega of dýrar og jafnvel þó að þær væru á viðráðan- legu verði em í féum skólum nógu margar rafmagnsinnstungur fyrir allan þann útbúnað. Því er það að þeir foreldrar sem hafe ráð á heimil- istölvu eða geta gefið sér tíma til að leyfe bömum sínum að komast í kynni við tölvur á vinnustaðnum eða bókasafninu, leggja lóð á vogar- skálamar til að flýta fyrir því að böm þeirra fái aðgang að upplýsinga- tækni sem einhvem tíma á eftir að liggja alls staðar frammi. Það er hins vegar allt of algengt að foreldramir koma einfaldlega tölv- unni fyrir á borðinu í borðkróknum, eða setja bamið niður fyrir framan tölvu á skrifstofunni eða almenn- Tölvuupp- eldi bama ingsbókasafhinu og nota síðan tæk- ið sem kennara eða staðgengil sjón- varpsins. Mótleikur gegn sjónvarpinu „Tölvur eru oft kynntar sem mót- leikur gegn sjónvarpinu, vegna þess að fólk segir að sjónvarp leiði til óvirkni en tölvan til gagnkvæmrar virkni," segir Tom Snyder, forstjóri fyrirtækis sem þróar menntunar- hugbúnað. „Ég hef ekki enn séð óhagganlegar sannanir fyrir því að tölvan hafi til að bera það innsæi til gagnkvæmrar virkni að nokkurt gagn sé að.“ Hann segir að hins vegar sé víxl- verkun manns og tölvu á svipuðu stigi og ómerkilegustu samræður sem mætti eiga við heimskasta kött- inn sem maður hefur kynnst „Mað- ur er að velja kosti, en það er nokkuð svipað og að krakkinn eigi völ á mörg hundmð sjónvarpsrásum. Ef krakkamir skipta stöðugt um sjón- varpsrás, er það þá í rauninni vúd- verkun? Þar er ekki að finna neitt af því samhengi sem er í samræðum." Tom Snyder var áður kennari og er nú faðir. Hann vitnar til kenningar sem gengur í stuttu máli út á það að böm kunni að vera fær um að minn- ast þess í tölvuleik að ef talið er frá sólu komi mars strax næst jörðu og síðan júpiter. En sömu böm kunna að vera ófær um að rifja upp röð plánetanna í tali við fólk eða að skilja hana þegar þarf að nota hana við eitthvað annað en leik. „Tileinkun lærdómsins kemur fram þegar fólk fer frá tölvunni og prófer kenninguna á einhverjum öðrum," segir Tom Snyder. Hann nefnir sem dæmi ef tveir hjálpast að við að Ieika Pac Man með því að leið- beina hvor öðrum séu komin til sög- unnar orð sem festa raunverulegan lærdóm í sessi. „Þetta er nokkuð sem er hægt að gera með tölvu, en ekki sjónvarpi,“ segir hann. Þetta er að hluta til ástæðan til þess að margir skólamenn álíta að raun- verulegt gildi heimilistölvu felist í því að vera hvati til að hrinda af stað sameiginlegum aðgerðum foreldra og bams, eða innan hóps Ieikfélaga. Agætt að hittast við tölvuna Skólamenn leggja áherslu á að þátttaka foreldra skipti öllu máli í því að vel takist til með menntun bamanna, og einkatölvan er sérstak- lega góður staður til að hittast við til að vinna saman. Sumir foreldrar, sem kannski stendur ógn af tækninni, kunna að vera ófúsir að blanda sér inn á svið þar sem bamið hefur trúlega meiri kunnáttu en sá fullorðni. Andstæð- an er foreldrar sem kunna að um- gangast tölvur. Þeir eiga til að láta sem svo við bömin að þeir viti ná- kvæmlega allt um þessi undratæki. En mistök verða gerð og eru nauð- synleg til að læra dýrmætar lexíur, s.s. eins og þá staðreynd að þó að villur séu gerðar tekur tölvan ekki upp á því að springa og til eru leiðir til að jafna sig eftir þær. Oft ættu foreldrar að reyna að þjálfe böm í grunnatriðum þess að starfe við tölvu, rótgrónar notkunarreglur, og síðan styðja við bakið á baminu annaðhvort eins og tæknimaður sem kemur í eftirlit eða sem vinnu- félagi. Meðal grunnatriða má telja að kveikja á tölvunni, stilla skjáinn, lyklaborðið og lýsinguna, koma diskinum fyrir í drifinu, afrita og vista skjal, upphaf og frágang tölvu- notkunar og geymsla á diskum. Ekki gilda sömu reglur á öllum heimilum. Sums staðar er bannað að borða eða drekka við tölvuna. Það er líka mikilvægt að einkahelgi skráa annarra sé virL Sumir foreldrar fyr- irskipa að ekki sé slegið fest á lykla- borðið og engum peningum sé stungið inn í diskdrifið. .d’að erfiðasta sem foreldramir þurfe að berjast við er að draga sig í hlé og leyfa baminu að taka foryst- una,“ segir Judy Salpeter, höfundur handbókar fyrir foreldra um böm og tölvur. „Yfirleitt er það svo að ef for- eldramir eyða of miklum tíma í að segja kröWcunum sínum hvemig þeir eigi að nota tölvuna, snúast krakkamir öndverðir gegn afskipt- unum og fera að líta á tölvuvinnslu eins og hvert annað svið þar sem for- eldramir geta sagt þeim hvað þeir eigi að gera." Hún ráðleggur foreldrum sem e.tv. eru ekki mjög kunnugir tölvuleikj- um en eiga böm sem hafa yfirburði yfir þá á því sviði að nota tækifærið til að keppa við þau á jafhræðis- grundvelli eða jafnvel njóta þess að leyfe krakkanum að miðla þeim af þekkingu sinni. Hún segir jafhframt að jafnvel mjög ung böm geti haft gagn af þessu samstarfi. Þau geti skemmt sér vel við að sitja í kjöltu pabba eða mömmu þó að þau geti ekki enn sjálf fiktað í tölvunni af nokkru viti og samveran sé báðum góð. Tom Snyder sem fyrr er nefhdur ræður foreldrum til að velja mennt- unarhugbúnað sem veld áhuga þeirra sjálfra. Þá geti böm þeirra lært eitthvað af honum, með hjálp — jafnvel þó að ekki væri annað en að tölvunotkun geti verið skemmti- leg, þar sem þau sjái foreldra sína skemmta sér svona vel!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.