Tíminn - 04.03.1992, Side 12
AUGLVSINGASIMAR: 680001 & 686300
HEIÐI
BILAPARTASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIÐI ■ BÍLAPARTASALA
Flugumýrl 18D ■ Mosfellsbœ
Sfmar 668138 & 667387
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
ððruvísi bílasala
BlLAR • HJÓL •
BÁTAR•VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BlLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 6T9225
ÞJONUSTA
MÁLARAR
geta bætt við sig
málningarvinnu úti sem inni
Vönduð og góð vinnubrögð
Sími 670269
ÞÉTTING OG KLÆÐNING
Timinn
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1992
Útflutningur iðnaðarvara nú ekkert meiri en fyrir EFTA og járnblendi, þ.e. eftir tvo áratugi:
Getur landiim ekki lært
á neitt annað en slor?
„Þær vonir, sem menn bundu við stóraukinn iðnaðarvöruútflutning
í upphafl áttunda áratugarins, hafa því algerlega brugðist,“ segir í
fréttabréfi Verðbréfaviðskipta Samvinnubankans. En þar er vakin
athygli á þeirri staðreynd að fara verður um tvo áratugi aftur í tím-
ann til þess að finna dæmi um hærra hlutfall sjávarafurða í útflutn-
ingi heídur en á síðasta ári. En þrátt fyrir allan aflasamdrátt, voru
sjávarafurðir þá 80% allra útflutningsvara landsmanna.
Um 11% vöruútflutnings síðasta
árs komu frá stóriðju. Allur annar
útflutningur var því aðeins um
9% — hvar af almennar iðnaðar-
vörur voru aðeins 6-7% heildar-
innar.
Og þar við bætist, að samfara
samdrætti í útflutningsiðnaði
hefur markaðshlutdeild innlendra
iðnaðarvara á heimamarkaði
einnig verið að minnka í mörgum
greinum. Má þannig segja að halli
hafi stöðugt farið vaxandi á „iðn-
aðarvöruskiptum" við útlönd.
Vart fer hjá því að sá, sem í ára-
tugi hefur hlustað á og lesið ótelj-
andi fréttir um nýjungar, upp-
byggingu og miklar fjárfestingar í
iðnaði, hrökkvi nánast í kút við að
sjá það svart á hvítu, að í rauninni
hefur samt ekkert breyst í tvo ára-
tugi — þ.e. síðan um það leyti sem
við vorum að ganga í EFTA (í
„gamla daga“ þegar tímakaupið
var innan við 100 kr. gamlar, eða
minna en ein nýkróna). Þrátt fyrir
samdrátt í sjávarafla eru afurðir
„sloriðnaðarins" nánast þær einu
sem þjóðinni hefur tekist að fram-
leiða og selja til annarra landa nú
undir lok tuttugustu aldarinnar.
Á árunum 1971-75 voru sjávaraf-
urðir að meðaltali um 75% af út-
flutningsvörum landsmanna. Iðn-
aðarvörur, að áli meðtöldu, voru
þá þegar 20% alls vöruútflutn-
ings. Síðasta árið, sem ísal var
eina stóriðjan (árið áður en Járn-
blendiverksmiðjan tók til starfa),
1979, var þetta hlutfall líka nán-
ast hið sama. Þar af var álið
13,4%, en aðrar iðnaðarvörur
6,3% heildarvöruútflutnings (þ.e.
nánast sama hlutfall og í fyrra).
Hæst komst hlutfall iðnaðarins í
vöruútflutningi í 29,3% árið
1983. En þar af komu nær 21% frá
stóriðjunni, en aðeins 8,4% frá
öðrum iðnaði. Síðan hefur hlutur
almenna iðnaðarins aftur dalað —
niður í sömu 6-7% og hann skil-
aði til vöruútflutningsins fyrir
tveim áratugum, eins og áður
sagði.
Af þessum litla hluta iðnaðarins
skapar sjávarútvegurinn þó líka
stærstu liðina. Því að í útflutn-
ingstölum Hagstofunnar er nið-
ursuða og niðurlagning ásamt
framleiðslu fiskfóðurs talin með
iðnaðarframleiðslu en ekki sjáv-
arafurðum. Ef svo væri, hefði
hlutur sjávarútvegsins í vöruút-
flutningi orðið í kringum 82% og
Ýmis athyglisverð tíðindi má lesa út úr þessu línuriti, þótt sviplaust sé við fyrstu sýn. Fyrir þjóð, sem
annars vegar verður að minnka veiðikvóta og hins vegar stefnir að verulegum innflutningi nýrra vöru-
flokka (m.a. að nýta sér ódýr GATT-matvæli), hlýtur það að vera alvarlegt mál að útflutningur iðnaðar-
vara, að stóriðju meðtalinni, var minni á síðasta ári en nokkru sinni s.l. tvo áratugi. f annan stað sýn-
ir línuritið að verðmæti stóriðjuframleiðslunnar rokkar ennþá meira heldur en verðmæti sjávarútvegs-
ins.
Forsætisráðherra:
Skipar nefnd
sérfræóinga
hlutur almenns iðnaðar innan við
5% á síðasta ári.
Hin hliðin á þessari þróun er
hinn nánast árvissi halli á vöru-
skiptajöfnuði, þar sem þjóðin er
síður en svo þess sinnis að láta
takmarkaðar útflutningsafurðir
draga nokkuð úr innflutningnum.
Það er því að vonum að greinar-
höfundur telur það eitt brýnasta
verkefnið í íslenskum efnahags-
málum að auka útflutning lands-
manna. - HEI
FJÓRAR KONUR Á ÞINGI
FYRIR FRAMSÓKNARFLOKK
Tvær konur sitja nú á Alþingi sem
varaþingmenn fyrir Framsóknar-
flokkinn. Þær eru Þuríður Bernód-
usdóttir úr Vestmannaeyjum, sem
kemur inn í stað Guðna Ágústs-
sonar, og Elín Líndal, sem kemur
inn í stað Páls Péturssonar. Alls
sitja því um þessar mundir fjórar
konur á þingi fýrir Framsóknar-
flokkinn og eru þær hér saman
komnar á myndinni. Lengst til
vinstri er Þuríður Bernódusdóttir,
þá Ingibjörg Pálmadóttir, Valgerð-
ur Sverrisdóttir og loks Elín Lín-
dal. Tímamynd: Árai Bjama
Forsætisráðherra hefur skipað
nefnd sérfræðinga til þess að vinna
að undirbúningi almennrar stjórn-
sýslulöggjafar. Skipun nefndarinnar
er í samræmi við stefnu og starfs-
áætlun ríkisstjórnarinnar þar sem
segir að unnið verði að undirbún-
ingi löggjafar á sviði stjórnsýslunn-
ar. Markmið þeirrar löggjafar sé að
tryggja réttaröryggi einstaklinga
gagnvart ákvörðunum stjórnvalda
og gera athafnir framkvæmdavalds-
ins skýrari og traustari. Þá verða
jafnframt í þeim lögum ákvæði um
uppiýsingaskyldu stjómvalda.
Kannað verði hvort æskiíegt sé að
setja á laggirnar sérstakan stjórn-
sýsiudómstól, og sé þetta gert til að
tryggja nauðsynlegt eftirlit með
framkvæmdum og ákvörðunum
stjórnvalda, en nokkuð hafi þótt
skorta á að farið væri eftir ábending-
um umboðsmanns Alþingis.
í nýskipaðri nefnd sitja þeir Eiríkur
Tómasson hrl., formaður, Gunnar
Jóhann Birgisson hdl. og Páll
Hreinsson lögfræðingur. -PS
Ráðstefna á Akureyri:
Sjávarútvegs-
stefna framtíðar
Þann 14. mars verður haldin ráð-
stefna á 4. hæð Alþýðuhússins á veg-
um Stafnbúa, félags sjávarútvegs-
fræðinema við Háskólann á Akur-
eyri. Setningarávarp flytur Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
og meðal annarra flytja erindi á ráð-
stefnunni þeir Guðjón A. Kristjáns-
son formaöur Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands. Kristján
Ragnarsson formaður LÍÚ, Arthúr
Bogason formaður Landssambands
smábátaeigenda, og fulltrúar stjórn-
málaflokkanna: Jón Sigurðsson,
Össur Skarohéðinsson, Halldór Ás-
grímsson, Árni Johnsen, Steingrím-
ur J. Sigfússon og Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir. Ráðstefnustjóri
verður Sigurður J. Sigurðsson, for-
seti bæjarstjórnar Akureyrar. Ráð-
stefnan hefst kl. 10.30 og stendur
allan daginn. -PS