Tíminn - 21.03.1992, Blaðsíða 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 &
HEIÐI
BÍ LAPART ASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIÐI ■ BÍLAPARTASALA
Flugumýrl 18D • Mosfellsbœ
Sfmar 668138 & 667387
ýO' HOGG-
> DEYFAR
VersJið hiá faemönnum
G) varahlut
Hamarsböfða 1 - s. 67-6744
ÞJONUSTA
MÁLARAR
geta bætt við sig
málningarvinnu úti sem inni
Vönduð og góð vinnubrögð
Sími 670269
ÞÉTTING OG KLÆÐNING
LAUGARDAGUR 21. MARS 1992
Stjórn Dagsbrúnar segist ekki
bera ábyrgð á láni Lífeyris-
sjóðsins til KRON:
Dagsbrún
afskrifar
„Þrastar-
milljónir“
Dagsbrún sem slíkt hefur enga fjár-
muni lánað og því engu tapað vegna
viðskipta Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar
og Framsóknar og KRON. Verka-
mannafélagið Dagsbrún lánar ekki
félögum og fyrirtækjum úti í bæ,
segir m.a. í yfirlýsingu frá stjóm
Dagsbrúnar.
Stjórnin sendi frá sér yfirlýsinguna
vegna frétta af láni Lífeyrissjóðs
Dagsbrúnar til KRON sem nam um
20 millj. kr. en stendur í um 32 millj.
kr. með tryggingu í 20. veðrétti í
Þönglabakka 1 í Reykjavík. Eignin
var boðin upp í janúarmánuði sl. og
var slegin Landsbankanum á 315
milljónir. Lífeyrissjóður Dagsbrúnar
bauð 314 milljónir.
í yfirlýsingu stjórnar Dagsbrúnar,
sem undirrituð er af Guðmundi J.
Guðmundssyni formanni félagsins,
segir að þegar ákveöið var að kaupa
skuldabréf með veði í Þönglabakka 1
hefði verið farið í einu og öllu eftir
ströngum reglum sjóðsins. Áhvíl-
andi veð á eigninni hefðu þá numið
innan við 45% af brunabótamati.
Síðan hefði markaðsverð á verslun-
arhúsnæði hríðfallið. Jafnframt
hefði KRON farið á hausinn og eign-
in verið boðin upp og lífeyrissjóðn-
um ekki tekist að tryggja hagsmuni
sína á uppboðinu.
Síðan segir í yfirlýsingu stjórnar
Dagsbrúnar: „Þetta er hiris vegar
fyrsta og eina tapaða veðskuld Líf-
eyrissjóðs Dagsbrúnar og Fram-
sóknar í yfir 20 ára sögu sjóðsins."
Dagsbrún stöðvaði uppskipun
úr þýsku leiguskipi í Sunda-
höfn í gærmorgun:
Verkamenn
úr Keflavík
við vinnu í
Sundahöfn
Verkamannafélagið Dagsbrún stöðv-
aði í gærmorgun uppskipun á rörum
úr þýsku leiguskipi í Sundahöfn, þar
sem við uppskipunina störfuðu
verkamenn frá Keflavík. Verktaki úr
Keflavík hafði átt Iægsta boð í upp-
skipunina og var mættur við Sunda-
höfn með tíu menn og þijá lyftara.
Þessu gátu Dagsbrúnarmenn ekki
unað, þar sem þeir eiga samnings-
bundinn forgangsrétt áallri vinnu við
höfnina. Það var mikill hiti í mönn-
um við Sundahöfn í gærmorgun og
hótaði verktakinn að senda mann-
söfnuð í bæinn gegn þeim Dagsbrún-
armönnum, en af því varð ekki og
leystist málið á friðsamlegan hátt.
Urðu málalyktir að Eimskipafélag ís-
lands tók að sér verkið, en fyrir mun
hærra verð en keflvísku verktakamir
fengu og þurfa sunnan menn að
greiða mismuninn. Allt bendir til að
verktakamir reyni að sækja mismun-
inn til Dagsbrúnar og er þar um tals-
verða upphæð að ræða. -PS