Tíminn - 15.04.1992, Page 9
Miðvikudagur 15. apríl 1992
Tíminn 9
DAGBÓK
Vortónleikar Stefnis
Karlakórinn Stefnir í Mosfellsbæ heldur
árlega vortónleika fyrir styrktarfélaga
kórsins og aðra tónlistarunnendur í Bú-
staðakirkju í kvöld, 15. aprfl, kl. 20.30,
og á morgun, skírdag, kl. 17, og í Hlé-
garði í Mosfellssveit þann 18. aprfl kl. 17.
Ennfremur heldur kórinn tónleika í Þor-
lákshöfn þann 25. aprfl kl. 14.
Stjómandi kórsins er Lárus Sveins-
son, en Margrét Pálmadóttir, raddþjálfari
kórsins, mun einnig stjóma kómum.
Undirleikari er Guðrún Guðmundsdóttir
píanóleikari. Einnig koma til liðs við
kórinn nokkrir blásarar úr skólahljóm-
sveit Mosfellsbæjar.
Einsöngvarar með kómum að þessu
sinni eru Sigrún Hjálmtýsdóttir ópem-
söngkona, og kórfélagamir Þórður Guð-
mundsson og Bjöm 0. Björgvinsson.
Efnisskrá vortónleikanna er hin fjöl-
breyttasta og em lögin af ýmsum toga,
einkum erlend en einnig innlend. Af inn-
lendum verkum á efnisskránni má nefna
íslenskt vögguljóð eftir Jón Þórarinsson,
Lífið hún sá í ljóma þeim eftir Inga T.
Lámsson og Sjá dagar koma eftir Sigurð
Þórðarson, en í því lagi syngur Sigrún
Hjálmtýsdóttir einsöng. í syrpu þriggja
laga eftir Þórarin Guðmundsson — Þú
ert, Minning og Dísa mín góð — munu
og einsöngvarar úr röðum kórfélaga,
þeir Bjöm Ó. Björgvinsson og Þórður
Guðmundsson, láta í sér heyra.
Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur einnig
einsöng í hinu sérstæða verki Vocalis eft-
ir Wilbur Chenoweth og í La Dansa eftir
Rossini. Af öðmm erlendum lögum má
nefna 0 Schutzgeist alles Schönen úr
Töfraflautunni eftir Wolfgang Amadeus
Mozart, La Montanara eftir Toni Ortelli
(einsöngur Bjöm Ó. Björgvinsson), og
Veiðimannakórinn eftir C.M. von Weber.
f síðastnefnda laginu munu blásarar úr
skólahljómsveit Mosfellsbæjar þeyta
lúðra sína að hætti veiðimanna.
Vortónleikar em einskonar uppskem-
hátíð vetrarstarfsins og em ekki hvað
síst tileinkaðir styrktarfélögum kórsins.
Aðrir velunnarar kórsins em hvattir til
að koma og njóta afraksturs vetrarstarfs-
ins, meðan húsrúm leyfir. Aðgöngumið-
ar fyrir aðra en styrktarfélaga verða seld-
ir í anddyri viðkomandi tónleikahúss fyr-
ir hverja tónleika.
Hafnarfjörður
Skrifstofa Framsóknarfélaganna að Hverfisgötu 25, er opin alla þriðjudaga frá kl.
17.00-19.00.
Lltið inn i kaffi og spjall.
Framsóknarfélögin I Hafharfírðl.
Kópavogur—
Heitt á könnunni
Skrifstofan að Digranesvegi 12 verður framvegis opin á laug-
ardögum kl. 10.00-12.00.
Lltiö inn og fáiö ykkur kaffisopa og spjalliö saman.
Framsóknarfélögin i Kópavogl.
Kópavogur —
Framsóknarvist
Spiluð verður framsóknarvist i Félagsheimili framsóknarmanna aö Digranesvegi 12,
fimmtudaginn 16. aprfl (skírdag) kl. 15.00.
Fjölmennið. Gott kaffi og verðlaun.
Freyja, félag framsóknarkvenna I Kópavogl.
Vorfagnaður Framsóknar-
félaganna í Árnessýslu
verður haldinn á Hótel Selfoss, miövikudaginn 22. apríl.
Skemmtunin hefst með borðhaldi kl. 20.30.
Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi.
Skemmtiatriði: Gullkorn á silfurfati.
Nánar auglýst I dagskránni.
Nefndln.
Sigurður Gelrdal
Kaffispjall í
dymbilviku
Formaður Framsóknarflokksins,
Steingrimur Hermannsson, og for-
maður Sambands ungra framsóknar-
manna, Siv Friðleifsdóttir, munu mið-
vikudaginn 15. þ.m. fá sér kaffisopa i
kaffistofunni á 2. hæð, Eiðistorgi, Sel-
tjamamesi, og spjalla við vegfarendur Steingrimur Stv
um heima og geima.
Framsóknarmenn og aðrir eru hvattir til að nota tækifærið og fá sér miðdegis-
kaffi með formönnunum og spjalla við þá. Steingrímur og Siv munu mæta Id.
15.00.
Framsóknarfélag Seltjamamess.
Páskabingó
F.U.F. I Ámessýslu gengst fyrir ninu ártega páskabingói laugardaginn 18. april f
Hótel Selfossi og hefst það kl. 14.00. Margt góðra vinninga.
Mætum öll.
Félag ungra framsóknarmanna / Ámessýslu.
Guðnl
Ágústsson
Vestur-
Skaftafells-
sýsla
Verðum til viðtals og ræöum þjóðmálin
i félagsheimilinu Kirkjuhvoli, Kirkju-
bæjarklaustri, þriöjudaginn 21. april kl.
21.
Jón
Helgason
Melanie Griffith (t.v.) leikur þýska gyöingastúiku í heföbundinni mynd frá nasistatfmanum. Joely Ri-
chardson (t.h.) setur bragö á myndina.
í klóm arnarins:
Njósnaþriller um
gamalt efni
Það hefur ekkert verið til sparað í
kostnaði við gerð myndarinnar „í
klóm amarins", sem eitt kvik-
myndahúsa borgarinnar hefur nú
hafið sýningar á, né val á leikurum
í aðalhlutverk, en samt þykir gagn-
rýnendum ekkert sérstakt til koma.
Melanie Griffith fer þar með hlut-
verk þýskrar gyðingastúlku, sem
bregður sér í hlutverk njósnara á
hættutímum í slagtogi við Michael
Douglas. Hún ræður sig m.a. í vist
til háttsetts nasista, sem írski leik-
arinn Liam Neeson leikur. Auðvitað
fellur hann kylliflatur fyrir fegurð
og einstökum töfrum stúlkunnar
og tekur ekkert eftir því hvað hún
er að gera.
Hefur slíkur söguþráður nokkru
sinni fyrr komið á hvíta tjaldið? Þar
við bætist að handrit er sagt heldur
slakt og það megi eingöngu þakka
afskiptum Sir Johns Gielgud og Jo-
ely Richardson í hlutverkum sín-
um, svo og óbilandi dugnaði Mel-
anie, sem alltaf er iátin taka rangar
ákvarðanir á vitlausum stundum
og hlaupa þess vegna stanslaust
dauðskelkuð um í ballkjólum, nátt-
kjólum og á ofsaháum hælum, að
myndin er samt sem áður spenn-
andi. Og sjálfsagt hafa einhverjir
gaman af.
Joely Richardson mætti á
frumsýningu myndarinnar I
London, háólétt aö fyrsta
barnabarni Vanessu Redgra-
ve, ásamt manni slnum Tim
Bevan.
Liam Neeson lét ekki svo lítiö
aö vera viö frumsýninguna I
London, heldur fékk sér
gönguferö I New York ásamt
Brooke Shields, sem ber „vin-
áttuhring" frá honum, á sama
tíma.