Tíminn - 15.04.1992, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
HEIÐI
BILAPARTASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIÐI ■ BÍLAPARTASALA
Flugumýrl 18D ■ Mosfellsbæ
Sfmar 668138 & 667387
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Öðruvísi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 6T9225
^■annel
HÖGG-
j DEYFAR
4Verslið hjá fagmönnum
Gi varahlutir
■Uí. Hamarsböfða I - s. 67-6744J;
Tíminn
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1992
Engar líkur eru taldar á að Sjömannanefnd komist að samkomulagi um leiðir til að ná fram hagræðingu í mjólkuriðnaði:
Sjömannanefnd óstarf-
hæf vegna ósamkomulags
Horfur eru á að ekkert samkomulag náist í Sjömannanefnd um
hagræðingu og endurskipulagningu í mjólkuriðnaði. Mikið
ósamkomulag er í nefndinni og hafa sumir nefndarmenn
meira og minna dregið sig út úr starfi nefndarinnar. Búist er
við að eftir páska hefjist viðræður milli forystumanna bænda
og iandbúnaðarráðuneytisins um breytiugar á skipulagi fram-
leiðslu og úrvinnslu mjólkur í tengsíum við nýjan búvöru-
samning. Óvíst er um s'iuðning aðila vinnumarkaðarins við
niðurstöður þeirra viðræðna.
Sjömannanefnd heíúr síðustu tvö
ár verið meginvettvangur hreytinga í
landbúnaðarmálum. Nefndin skilaðí
á sínum tímum tillögum sem urðu
síðan grundvöllur að búvömsamn-
ingnum sem undirritaður var fyrir
ári. Nefndin hefur' síðasta hálfa ári
unnið að tillögum að breytingum í
mjólkuriðnaði. Auk þess hefur
nefndin skoðað leiðir til hagræðing-
ar í svína- og fúglarækL
f nefndinni sitja Guðmundur Sig-
þórsson frá landbúnaðarráðuneyt-
inu, Ögmundur Jónasson frá BSRB,
Ásmundur Stefansson frá ASÍ, Þór-
arinn V. Þórarinsson frá VSÍ, Hjörtur
Eiríksson frá VMS of, Haukur Hall-
dórsson og Hákon Sigurgrímsson
frá Stéttarsambandi bænda. Með
nefndinni hefur starfað fjöldi sér-
fræðinga. Hagfræðingar BSRB og
ASÍ hafa unnið mikið starf fyrir
nefndina og formaður Landssam-
bands kúabænda hefúr setið allflesta
fundi hennar sem fjallað hafa um
mjólkurframleiðslu og mjólkuriðn-
að.
Upphaflega átti nefndin að skila til-
lögum um hagræðingu í mjólkur-
iðnaði fyrir miðjan marsmánuð. Um
það leyti töldu menn ekki útilokað
að ná mætti samkomulagi um tillög-
ur sem Ámi Benediktsson og Hjört-
ur Eiríksson frá Vinnumálasam-
bandi samvinnufélaganna lögðu
fram til málamiðlunar. Það tókst
hins vegar ekki. Síðustu vikur hefur
ekkert þokast í samkomulagsátt og
má segja að ágreiningur um leiðir
hafi aukist frekar en hitL Síðustu
daga hafa Haukur, Þórarinn, Ás-
mundur og Hjörtur reynt að finna
einhvem flöttil samkomulags. Sam-
kvæmt heimildum Tímans em litlar
líkur taldar á að þessi hópur finni
einhverja samkomulagsleið. Heim-
ildarmaður Tímans sagði það krafta-
verk ef það tækisL Hann sagði jafn-
framt að ef nefndin sendi frá sér ein-
hveijar tillögur þá verði þær mátt-
litlar því að ljóst sé að ekkert
samkomulag sé um það sem máli
skipti, þ.e. endurskipuiagningu sjálfs
mjólkuriðnaðarins.
Hugmyndin var sú að tillögur Sjö-
mannanefndar yrðu grunnur að
samkomulagi milli bænda og land-
búnaðarráðherra um breytingar á
framleiðslu og vinnslu mjólkur.
Sáralítið stendur í búvörusamn-
ingnum um mjólkuriðraðinn vegna
þess að ekki vannst tími til að fara of-
an í málefni hans áður en samning-
urinn var undirritaður. Úr því átti að
bæta nú í vor. Ef ekkert kemur frá
Sjömannanefnd verða fúlltrúar
bænda og landbúnaðarráðuneytisins
að setjast niður og gera samning um
mjólkurframleiðsluna. Óvíst er
hvort það sem kemur út úr þeim við-
ræðum muni njóta stuðnings for-
ystumanna á vinnumarkaði. Full-
trúar bænda telja slæmt að njóta
ekki stuðnings aðila vinnumarkað-
arins í þeim breytingum sem fram-
undan eru í mjólkuriönaðinum. En
úr því sem komið er telja a.m.k.
sumir forystumenn bænda þýðing-
arlaust að halda áfram viðræðum á
vettvangi Sjömannanefndar.
Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra sagði í gær að hann vonaðist
enn eftir að fa í hendur tillögur frá
Sjömannanefhd. Hann viðurkenndi
að þaö hafi dregist úr hófi að nefndin
skiir.ði tillögum. Hann vildi ekki
svara því hver viðbrögð hans yrðu ef
ekkert kæmi frá nefndinni. -EÓ
Mjólkurbændur mega ekki færa milli verðlagsára:
t
Framleiösla umfram
kvóta er nú bömuö
Bændum sem stunda mjólkur-
framleiðsiu er óheimilt að færa
framleiðslu miili verðlagsára í
haust eins og verið hefur allt frá
því að kvótakerfi í mjólkurfram-
leiöslu var komið á. Ástæðan er sú
að 1. september tekur nýi búvöru-
samningurinn gildi og talið er
nánast óframkvæmanlegt að vera
með tvö kerfi í gangi á sama tíma.
Allt frá því að kvótakerfi í mjólkur-
framleiðslu var komið á hefur verið
reynt að hafa kerfið sveigjanlegt.
Bændur hafa því getað framleitt
upp í kvóta næsta árs. Heimilt hef-
ur verið að færa til 5-15% milli ára.
Þann 1. september næstkomandi
tekur nýr búvörusamningur gildi.
Samningurinn hefur í för með sér
m.a. þær breytingar að framleiðsl-
an tekur eingöngu mið af innan-
landsmarkaði og útflutningsbætur
verða felidar niður. Ekki er talið
mögulegt að hafa tvö kerfi í gangi á
sama tíma og því verður að byrja
með hreint borð þegar nýja kerfið
tekur gildi.
Hætt er við að það komi illa við
marga bændur að geta ekki fram-
leitt eitthvað upp í framleiðslu
næsta árs í haust eins og verið hef-
ur. Mjög erfitt er fyrir bændur að
stýra framleiðslunni svo nákvæm-
lega að nýtingin á kvótanum verði
100% og ekki lítra fram yfir það.
Um 87 milljóna hagnaður hjá UA
Á aðalfundi Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf., sem fram fór fyrir
skömmu, kom fram að hagnaður af
rekstri félagsins á síðasta ári nam
um 86,6 miljjónum króna, en það
er umtalsvert minni hagnaður en
árið á undan. Á fundinum var einn-
ig samþykkt að auka hlutafé félags-
ins um 100 milijónir króna, úr 480
milljónum í 580 milljónir. Þá var
einnig ákveðið að greiða hluthöfum
10% arð.
í skýrslu stjómar kom m.a. fram að
hagnaður af rekstri útgerðarfélags-
ins á síðasta ári nam um 86,6 millj-
ónum króna. Rekstrartekjur námu
rösklega 2,3 milljörðum króna og
rekstrargjöld 1,9 milljörðum króna.
Vergur hagnaður af rekstrinum er
því um 432,5 milljónir króna, en var
455 milljónir árið á undan. Bók-
færðar eignir félagsins í árslok
námu ríflega 3,3 milljörðum króna,
en skuldir þess voru um 1,8 millj-
arðar króna. Eigið fé félagsins í árs-
lok 1991 nam því 1,478 milljónum
króna og eiginfjárhlutfall í árslok
44,7% á móti 44,6% árið á undan.
Raunveruleg aukning eigin fjár á
síðasta ári var um 6%, en var um
17,2% árið á undan. Hreint veltufé
nam um 11,6 milljónum króna, en
var árið á undan um 174,5 milljónir
króna. Munar þar mestu um miklar
fjárfestingar félagsins á síðasta ári,
svo sem kaup á Árbak EA 308 ásamt
kvóta, mikil endumýjun á vinnslu-
búnaði, kvótakaup o.fl.
Heildarafli skipa félagsins nam ríf-
lega 23 þúsund tonnum á síðasta
ári, en það er liöalega 1000 tonnum
meiri afli en árið á undan. Megnið af
framleiðslu Útgerðarfélagsins á síð-
asta ári fór á 5 markaðssvæði. Stór
hluti fór til Bandaríkjanna, en samt
sem áður hefur sala þangað dregist
umtalsvert saman. Hins vegar jókst
útflutningur til Japans, Bretlands
og Þýskalands og útflutningur til
Frakklands stórjókst.
Starfsmenn Útgerðarfélags Akur-
eyringa voru að meðaltali um 500
talsins, fjölgaði um 50 frá árinu á
undan. Hluthafar í félaginu voru
um 1800 í árslok. Núverandi stjóm
félagsins skipa: Sverrir Leósson
stjórnarformaður, Halldór Jónsson,
Ásgeir Magnússon, Sigurður Jó-
hannesson og Pétur Bjamason.
hiá-akureyri.
Vorboðarnir
Henni stendur grelnllega ekkí á
sama um fyrstu afkvæmin sín,
þessari veturgömlu kind. Mynd-
ín var tékin á bænum Kelduiandi
i Skagafiröi er Tímamenn áöu
þar leið hjá fyrir skemmstu. Þaö
er heimasætan, Koibrún Siv
Jónsdóttir, sem er aö bjástra við
tvilembingana, en að sögn afa
hennar, Stefáns Hrólfssonar
bónda á Keldulandi, báru nokkr-
ar ær óvenju snemma í ár
vegna þess að þær heimtust
seint af afrétt í Austurdal i
Skagafirði þar sem þær voru i
„slæmum“ félagsskap af hinu
kyninu. -ÁG Tfmamynd Pétur