Tíminn - 25.04.1992, Page 1
Laugardagur
25. apríl 1992
79. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Rannsókn á meintu harö-
ræöi tveggja lögregiu-
manna á ölvuðum öku-
manni i Mosfeilsbæ:
Lögreglu-
mennirn-
ir til starfa
að nýju
Lögreglumennimir tveir, sexn
leystír voru frá störfum vegna
rannsóknar á meintum mis-
þyrmlngum á ökumanni sem
tekinn var vegna gruns um ölv-
im við akstur, hefur verið til-
kynnt að þeir getí hafið störf að
nýju. Að sögn Böðvars Braga-
sonar lögreglustjóra var ákvörð-
un þessi teldn með tíllití tíl þró-
unar rannsóknarinnar og þess
tíma, sem hún hefur tekið.
„Ég hef á þessu stígi, miðað við
það hvemig rannsókn máisins
miðar og svo framvegis, taiið að
mennimir getí hafið störf að
nýju og vinni þangað tíl málin
skýrast eitthvað frekar. Ákvörð-
unin er þessi, vegna þess hve
þetta hefur tekið langan tíma og
af fleiri ástæðum,“ sagði Böðvar
Bragason í samtali við Tímann.
Samkvæmt heimildum, sem
Tíminn telur öruggar, þá hefur
verulega verið dregið úr vitnis-
burði þeim, sem sjónarvottar
lögðu fram af atburðunum á
vettvangi í MosfeUsbæ. Vitnið,
sem sá atburðina út um glugg-
ann, hefur dregið framburö sinn
til baka, og sá, sem var í bílnum
með hinum meinta ölvaða öku-
manni, hefur samkvæmt sömu
heimildum dregið eitthvað til
baka. Bogi Nilsson rannsóknar-
lögreglustjóri sagðist ekki vUja
tjá sig um rannsókn málsins á
þessu stígi, en sagði þó að henni
væri að mestu lokið. Aðeins ættí
eftír að fá áverkavottorð frá
siysadeUd Borgarspítalans og
eftir því væri beðið nú. Maður-
inn, sem kærði lögreglumenn-
ina fyrir harðræði, er iögregl-
unni ekki ókunnur.
Lögreglumennir tveir, sem
kærðir hafa verið fyrir meint of-
beidi, eiga iangan starfsferii að
baki innan lögreglunnar í
Reykjavík og eru féiagar í Vík-
ingasveit lögreglunnar. „Þetta
eru afskaplega reyndir og traust-
ir lögreglumenn,“ sagði Böðvar
Bragason að lokum.
-PS
Vegagerðin mótmælir
uppsetningu skiltis:
Truflandi í
umferðinni
Vegagerðin hefur sent bæjarstjóm
Mosfellsbæjar bréf, þar sem farið er
fram á að auglýsingaskilti á Vestur-
landsvegi við hringtorgið í Mosfells-
bæ verði tekið niður.
Skiltið er ekki inni á svokölluðu
vegsvæði, sem mælist frá miðlínu
vegar og Vegagerðin hefur umsjón
með. Hún getur því ekki látið taka
það niður sjálf. Bæjarstjómin svar-
aði bréfi Vegagerðarinnar á þá leið
að þeir teldu skiltið ekki ógna um-
ferðaröryggi.
„Við emm mjög mikið á móti því að
þetta sé sett upp og sérstaklega við
gatnamót," sagði Rögnvaldur Jóns-
son, umdæmisverkfræðingur hjá
Vegagerðinni, „þar sem beinlínis er
verið að höfða til bílstjóra. Það ligg-
ur í augum uppi að þeir truflast við
aksturinn." —GKG.
Samningamenn, sem vinna að gerð nýs kjarasamnings, hafa setið á fundi nær samfellt í tvo sólarhringa:
Samningar um kaup
og kjör að takast?
Pundir um gerð nýs kjarasamnings hafa staðið nær stöðugt frá því
á fimmtudagsmorgun. Ýmislegt benti tíl þess í gærkvöldi að sam-
komulag myndi takast. Gert er ráð fyrir að launabreytingar verði
svipaðar og rætt var um, þegar upp úr viðræðunum slitnaði fyrir
þremur vikum. Búist er við að samningstíminn verði eitt ár. Ríkis-
stjórnin lýsti því yfir í gær að hún myndi senda frá sér yfirlýsingu í
vaxtamálum og atvinnumálum, en hún var ókomin síðdegis í gær.
Gert er ráð fyrir að sett verði á stofn sérstök nefnd, sem hefur það
verkefni að bæta atvinnuástandið.
Samningafundir hófust klukkan 10
í fyrradag og stóðu til klukkan 9 í
gærmorgun. Samningamenn ASÍ
funduðu með atvinnurekendum í
húsakynnum ríkissáttasemjara, og
samningamenn BSRB, KÍ og stjórn-
valda voru á fundi í Borgartúni 6.
Um nóttina virtist allt eins líklegt að
upp úr viðræðunum myndi slitna,
en þegar hlé var gert á fundi í gær-
morgun voru flestir á því að samn-
ingar myndu takast.
Skömmu fyrir hádegi í gær gengu
samningamenn ASÍ og atvinnurek-
enda á fund forsætisráðherra til að
ræða við hann um atvinnu- og
vaxtamál. Einnig var í gær rætt við
forsvarsmenn bankanna um vaxta-
mál. Um miðjan dag gengu síðan
forystumenn ASÍ, BSRB og KÍ aftur
á fund forsætisráðherra til að fá á
hreint nokkur atriði varðandi stefnu
ríkisstjórnarinnar í velferðar- og
efnahagsmálum.
Eftir hádegi í gær settust menn
niður við samningaborðið að nýju.
Þegar síðast fréttist stóðu samninga-
fundir enn yfir, en samningamenn
voru almennt sammála um samn-
ingar væru að takast.
Akveðið hefur verið að sett verði á
fót sérstök nefnd til að fjalla um at-
vinnumál. Nefndinni er ætlað það
hlutverk að draga úr atvinnuleysi. í
nefndinni munu sitja forystumenn á
vinnumarkaði og fulltrúi stjórn-
valda.
Hart hefur verið tekist á um samn-
ingstímann. Opinberir starfsmenn
og raunar launþegahreyfingarnar
allar hafa viljað hafa samningstím-
ann skamman, helst ekki mikið fram
yfir næstu áramót. Atvinnurekendur
vilja semja til Iengri tíma, helst út
næsta ár. Reiknað er með að niður-
staðan verði að samið verði til 12
mánaða.
Þegar slitnaði upp úr samningavið-
ræðum um síðustu mánaðamót, var
talað um að laun hækkuðu um 1% í
upphafi samnings og 0,5% 1. sept-
ember. í gær var rætt um að flýta
þessari síðari launahækkun þannig
að launahækkunin verði 1,5% við
undirskrift samninga.
Þegar slitnaði upp úr viðræðum,
var einnig rætt um að laun undir 80
þúsund krónum fengju á samnings-
tímanum launauppbót sem yrði
greidd í tvennu lagi, samtals hækk-
un upp á 0,4%. Rætt var um að or-
lofsuppbót hækkaði um 7.500 kr. í
8.000 kr. og að desemberuppbót
hækkaði úr 10 þúsund krónum í 12
þúsund. Þá var rætt um 1,25%
grunnkaupshækkun 1. apríl 1993
fyrir þá sem vildu framlengja samn-
ingstímann. Gert er ráð fyrir að ein-
hverjar breytingar verði á þessum
atriðum áður en skrifað verður und-
ir.
-EÓ
REYKVIKINGAR!
NÚ ERKOMINN
NAGLADEKKIN
FYRIR SUMARDEKKIN
SUMARDEKKIN Á
GATNAMÁLASTJÓRI fSfl