Tíminn - 06.05.1992, Page 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 6. maí 1992
Mörgum Svíum, sem þó eru ýmsu vanir, farið að ofbjóða reglugerðafarganið í
Brussel og yfirþjóðlegt vald EB:
Verður Svíþjóð kjarn-
orkuruslahaugur EB?
Það ætlar ekki að ganga þrautalaust fyrir EFTA-ríkin að laga sig að
þeim nýju lögum og reglugerðum, sem fylgja í kjölfar samkomu-
lagsins um EES. Þetta á einkum við um þau ríki EFTA, sem sótt
hafa um aðild að EB og gera sér vonir um að verða fullgildir með-
limir bandalagsins þegar á árinu 1995. Á miklu ríður fyrir þau að
aðlaga sig að reglum EB eins fljótt og kostur er á.
í Svíþjóð, sem raunar hefur getið
sér orð fyrir boð og bönn um allt
milli himins og jarðar, hefur fólki
blöskrað allt það skrifræði, sem rík-
ir innan EB og Svíar neyðast nú til
að tileinka sér.
Þeir hafa þó ákveðið að taka þátt í
Ieiknum frá upphafí og hefur fjöldi
sænskra sveitarfélaga opnað skrif-
stofu í Brússel til að geta haft áhrif á
þær ákvarðanir, sem þar eru teknar
um þeirra eigin málefni á heima-
velli.
Þá þykir sænskum gróðurhúsa-
bændum tími til kominn að kynna
sér agúrkureglugerð EB. Sú reglu-
gerð er um 190 blaðsíður og er í
henni kveðið á um hvaða kröfur ag-
úrkur þurfa að uppfylla til að geta
staðið undir nafni og þar með að
mega seljast í EB-Iöndum. Meðal
annars þarf lengd gúrknanna, um-
mál og ekki síst beygjan á þeim að
vera innan ákveðinna marka.
Hér þykir mörgum skjóta skökku
við, því að nú liggur lagafrumvarp
fyrir Evrópuþinginu þar sem lagt er
til að matvælaframleiðendur þurfi
ekki að gera grein fyrir innihaldi
framleiðsluvara sinna, heldur ein-
ungis hvert aðalhráefnið sé.
Neytendum innan EB verður, nái
frumvarpið fram að ganga, gert tor-
velt að gera sér grein fyrir efnasam-
setningu daglegra neysluvara. En á
hinn bóginn geta þeir gengiö að því
vísu að engar of bognar gúrkur
lenda í innkaupakörfunni.
Það eru þó ekki einstök lög og
reglugerðir EB, sem vekja ugg hjá
mörgum Svíum, heldur sú stað-
reynd að sænska velferðarþjóðfélag-
ið kemur til með að gjörbreytast
með EB-aðild, vegna nýrra laga frá
Briissel sem koma til með að verða
æðri sænskum lögum.
Þannig getur Svíþjóð vegna EB-
laga neyðst til þess að taka við kjarn-
orkuúrgangi frá Evrópu í framtíð-
inni. Innan EB er litið á allan úr-
gang sem hverja aðra vöru og því
getur ekkert land innan bandalags-
ins neitað að taka við úrgangi, hvort
sem það er kjarnorkuúrgangur eða
annars konar sorp. Mál af þessu tagi
liggur nú fyrir EB-dómstóInum,
vegna þess að Vallóníuhérað í Belgíu
neitaði að taka við efnaúrgangi.
Dóms í málinu er að vænta í haust
og má gera ráð fyrir því að dómsnið-
urstaðan verði leiðbeinandi fyrir
mál af þessu tagi í framtíðinni.
Eins og margt annað innan EB er
þó óljóst hvort kjarnorkuúrgangur
verður skilgreindur sem hver önnur
vara á hinum innri markaði EB. í
dag eru í gangi 130 kjamakljúfar
innan EB og uppfylla þeir um 34%
af raforkuþörf landanna. öll þau
ríki, sem hafa kjamorkuver innan
landamæra sinna, hafa vissulega
gert áætlanir um hvernig úrgangin-
um frá þeim verði komið fyrir til
Iangframa. Áætlunum þessum er
víða ábótavant og oftar en ekki er
geislavirkur úrgangur geymdur ár-
um saman í vömgeymslum í von
um að erlendir aðilar taki við hon-
um.
Af þessum ástæðum hefur vaknað
hræðsla meðal Svía um að Svíþjóð
neyðist til að taka við kjarnorkuúr-
gangi verðandi bandamanna sinna í
Evrópu. Þessi ótti er vissulega ekki
ástæðulaus, því að varla er nokkurt
ríki annað innan EB betur fallið til
þess að verða atómruslahaugur fyrir
heila heimsálfu. Landið er strjálbýlt
og með stöðugan og harðan berg-
gmnn og samgöngur um það em
góðar. Ekki mun það heldur draga
úr áhuga EB-landa á Svíþjóð í þessu
sambandi, að Svíar em Evrópuþjóða
hvað Iengst komnir í því að koma
fyrir eigin kjarnorkuúrgangi. í því
skyni hafa verið sprengdir gríðar-
stórir hellar og göng djúpt niðri í
berggrunninum þar sem geislavirk-
um úrgangi er ætlaður samastaður
um ókomna framtíð.
Sænsk stjórnvöld hafa lýst því yfir
í þessu sambandi að Svíþjóð komi
ekki til með að taka við geislavirk-
um úrgangi annarra ríkja til varan-
legrar varðveislu. Umhverfismála-
ráðherran Olof Johansson segir að
allir stjórnmálaflokkar landsins séu
einhuga í þessu efni, og ef með þurfi
séu sænsk stjórnvöld reiðubúin að
ganga æði langt í því skyni að halda
landinu hreinu og lausu við úrgang
frá öðmm.
Ákvarðanir um það hljóta þó eðli
málsins samkvæmt að verða teknar í
Brússel en ekki í Stokkhólmi, þegar
þar að kemur. Þó munu allnokkur ár
líða þar til Svíþjóð verður fullgildur
meðlimur í EB og ákvörðunarvaldið
um úrganginn komið úr þeirra
höndum. En á þeim tíma, sem líður
þangað til, munu birgðir kjarnorku-
úrgangs í EB vaxa til muna frá því
sem nú er, því að hér er um vanda-
mál að ræða sem flest EB-löndin
hvorki geta né vilja ráða bót á.
—IVJ, Svíþjóð
Nú stcndur yfir hörkuspennandi anum í markið í svokölluðum „vall- sambandi, cn Hafnarfjörður kemur um að kenna að samleikur ríkis-
úrslitakcppni í íslandsmótinu í armöifcum". einmitt nokkuð við sögu í þessu stjómarinnar gengur ekki upp og
handbolta. Hafnfirðingar og Sel- eins og í handboltanum. Hjá kröt- að frá henni kemur tóm endaleysa.
fyssingar elda þar grátt silfur, og Váííimennina inil á um ^e^ur VCI® um ^ ,ýma í röðum sjálfstæðismanna heyrast
þegar þessar Hnur eru ritaðar hafa þingsæti fyrir Guðmund Áma, bæj- Hka kröfur af varamannabekknum
Hafnfirðingar vinninginn, þó í dag Það verður ekki annað sagt en að arstjóra í Hafnarfirði og FH-ing. í um að brýnt sé oröið að skipta nýj-
geti Selfyssingar jafnað metin og áhuginn og spennan i kringum ís- því skyni er ýmist talað um að um mönnum inn L Á varamanna-
viðhaldið spennunni í mótinu fram landsmótið í hand- sldpta Jóni Sig. út bekk Sjálfstæðisflokksins eru
til þess síóasta. bolta hafi smitað út og senda hann í nokkrir víðfrægir íþróttamenn af
1 handboltanum er nú farið að frá sér, og virðist H j 1 l 1 i J ■ Seðlabankann, mikJum íþróttaættum, þó svo að
stunda það í miklu ríkari mæli en hann nú vera farínn I 1 F 1 i 1 i 1 leðaþá jafhvel að leikstjómandinn og fyrirliðinn hafi
áður að skipta mönnum inná eftir að hafa áhrif á ólík- taka Kari Steinar aldrei þótt skllja gildi samleiks til
þri hvort liðin eru í vörn eða sókn. legustu stöðum. út og leggja hon- hlítar.
Sumir leikmenn eru því flokkaðir Garri fær ekki betur séð en að tak- um uppi í Tryggingastofnun. í það Það er því e.tv. ekki að furða þó
sem góðir vamarieikmenn, aðrir tíldn, sem beitt hefur vcrið með svo minnsta er ljóst að Jón Sig. á að margir tejji að rekja megi slaka
eru góðir sóknarieikmcnn, og svo góðum árangri í handboita, sé nú fara úr þeim ráðherrastól, sem frammistöóu stjómarinnar til fyrir-
eru enn aðrir sem þykja frambæri- að iyója sér til rúms í pólitfidnnl hann nú vermir, og í hans stað gæti liðans, og því mióur virðast Htlar
legir bæði i vöra og sókn. Hka, einkum og sér í lagi þjá rikis- komið formaður flokksins eða þá líkur á að hann hafi í hyggju að
Að þessu leyti er handboltinn stjórnarflokkunum.Fátt hefur einhver annar í þingliðinu. Hvort skipta sjálfum sér út af. Hins vegar
farinn að minna nokkuð á amerfsk- gengið upp hjá þessari rödsstjóm það verður össur Skarphéðins, hefur heyrst að jafnvel Haildór
an fótbolta þar sem séthæfingin er og engarafleikfléttum hennar hafa Rannveig Guðmunds eða jafnvel Blöndal eðaþá ÓlafurG. verði látn-
slík að í raun era mörg Hð f sama vcrið glæsilegar. Þvcrt á móti hefur sjálfur FH-ingurinn úr Hafnarfiröi ir hvíla sig í næstu lotu og þeir Geir
Hðinu. hún böðlað þessum fáu málum sín- ráeðst af þvi hvers konar leikkerfi á Haarde og nýliðinn Bjöm Bjaraa-
Þannig er td. sérstakt vamarUð, um áfram með yfirgangi og alh að að spila. Þannig er fióst að Guð- son fái að spreyta sig.
sem samanstendur af kraftajötoum því líkamlegu valdi. Og úr því að mundur Árai og Rannveig myndu Það verður þó að segjast eins og
miklum sem allir vega að iágmarid ekkert gengur upp með þeirri Hðs- henta betur í léttu spili, en búast er að miðað við það, sem á undan er
100 kQó. Siðan er sérstakt sóknar- skipan, sem nú er innl á veilinum, má við aö Össur væri stericur í gengið og þá tegund stjómmáia
llð, sem samanstendur af sneggri, fara menn í smiðju til handboltans. gegnumbrotum. sem ríkisstjómin og fyrfriiðar
léttari og liprari mÖnnum, og loks Á stjómarheimilinu er nú verið t _ hennar reka, þá er afar ólikicgt að
er sérstakur sparkari sem oftar en að tala um í alvöru að skipta inn á LeÍksfjÓmandÍtUl Og Hðið nái nokkura tíma þeim árangri
ekki er veimiltítuicgasti niunginn í nýjum mönnum, sem Ukiegri eru cn»viloil««v4*i»i aö geta stjóraað landinu skamm-
liðinu, enda kemur hann eingöngu til afreka í ríkisstjóminni. Margir sdmitlKUnnil laust
inn á leikvanginn til að sparka bolt- eru nefhdir til sögunnar í þessu En það er ekki einungis krötun- Gani
Sarajevo
Vígamenn múslima hafa sett her
Júgóslavlu úrslitakosti um að
hann verði búinn aö hypja sig á
brott frá Sarajevo fyrir miðnætti í
kvöld. Mjög harðir bardagar voru
i fym'nótt í borginni og neyddust
sendimenn EB til að yfirgefa
borgina.
Lissabon
Evrópubandalagið hvetur alla
deiluaöila í hinni harönandi
þrætu ( Bosníu Herzegóvinu að
hafa á sér hemil. Jafnframt var
stjómarher Júgóslavíu hvattur til
að styðja við bakið á forseta Bo-
sníu, Alija Izetbegovic.
Helsinki
RÖSE neyðarráðstefna um Bo-
sniudeiluna hefst í Helsinki á
morgun. Þar verður leitað leiða til
að stöðva þegar í stað bardaga í
Bosníu.
Kabúl
Edflaugar skæruliða urðu minnst
17 manns að aldurtila og særðu
flölda fólks í Kabúl höfuðborg
Afghanistan um það leyti sem hin
nýju stjómvöld landsins og
skæruliðar settust niður til að
ræða um frið.
Phnom Penh
Rauðir Khmerar hafa gert árásir
á fjölmörg landsvæði sem lúta
stjóm stjómvalda i Phnom Penh.
Friðargæsluliðar SÞ segja að
árásirnar séu verstu brot til
þessa á friöarsamkomulagi þvl
sem batt enda á borgarastyrjöld-
ina I Kambódíu.
Los Angeles
Lögregla liggur nú undir ámæli
fyrir aö hafa ekki brugðist nógu
snöggt við þegar götubardagar
voru 1 uppsiglingu og leyft þeim
að vaxa sér upp fyrir höfúö og
verða aö verstu óeiröum í
Bandaríkjunum á þessari öld.
Simferopol, Úkraínu
Forseti þingsins á Krímskaga
segir að rétt sé að þrýsta á með
að skaginn verði stjómmálalega
og efnahagslega óháður Úkrainu
enda þótt að sá róður verði fyrir-
sjáanlega mjög þungur.
Moskva
(ran mun hýsa friðarviðræður Az-
era og Armena sem hefjast í
þessari viku. í þeim verður reynt
að ná samkomulagi I deilu þjóð-
anna um Nagomo-Karabakh.
Bonn
Kjaradeila og verkföll opinberra
starfsmanna i vesturhluta Þýska-
lands hafa nú staöiö í niu daga
og i gærmorgun lokaðist flugvöll-
urinn i Frankfurt, einn stærsti al-
þjóðaflugvöllur veraldar. Sósial-
demókrataflokkur Þýskalands
sem er í stjórnarandstöðu hefur
lýst því yfir að forsenda þess að
leysa deiluna sé aö rjúfa þing og
boða til nýrra kosninga.
Moskva
Rússlandsstjóm hyggst gera
rúbluna gjaldgenga á alþjóðleg-
um fjármagnsmarkaði frá og með
júlí nk. og festa síðan gengi
hennar mánuði síðar að sögn
háttsettra embættismanna 1 rúss-
neska stjómarráðinu.