Tíminn - 06.05.1992, Qupperneq 7
Miðvikudagur 6. maí 1992
Tíminn 7
Embættismaður framkvæmdastjórnar EB telur EB hafa gert góðan samning við EFTA-ríkin:
VERÐA EFTA-RÍKIN
ÁHRIFALAUS í EES?
í greinargerð, sem opinber embættismaður framkvæmdastjórnar
Evrópubandalagsins, van der Pas, vann um samninginn um Evr-
ópskt efnahagssvæði í lok síðasta árs, segir að EFTA-ríkin hafi í öll-
um meginatríðum fallist á að taka upp lög og reglur EB við sköpun
hins svokallaða fjórfrelsis, svo og annarra mikilvægra þátta samn-
ingsins. T.d. gildi reglur EB um heilbrígði dýra og plantna, um-
hverfisvernd, tæknilegar viðskiptahindranir og um útboð.
Þá segir hann að EFTA-ríkin hafi vægt er að EFTA-ríkin fengju á tilfinn-
sáralítil áhrif varðandi stjóm Evrópska
efnahagssvæðisins, EB hafi þar öll tök.
Greinargerð van der Pas er innan-
hússplagg í EB. Með greinargerðinni
er hann að sannfera áhrifenenn í EB
um ágæti samningsins. Hann túlkar
samninginn og greinir frá honum
þannig, að lfldegt er að það láti vel í
eyrum EB-manna, sem hugsanlega
eru ekki sannferðir um ágæti samn-
ingsins og óttast að þar hafi EB borið
skarðan hlut frá borði. Fróðlegt er að
bera túlkun van der Pas á EES-samn-
ingnum saman við túlkun Jóns Bald-
vins Hannibalssonar utanríkisráð-
heria.
J fyrsta lagi hafa EFTA-ríkin sam-
þykkt í megindráttum viðeigandi lög
og reglur bandalagsins (EB) í heild
sinni, með tilliti til allra þátta sem em
mikilvægir við sköpun hins fjórþætta
frelsis: frelsis til vöruflutninga, frelsis
til flutninga fólks, frelsis til fjármagns-
flutninga, frelsis til flutninga fólks,
frelsis til fjármagnsflutninga og frelsis
til þjónustuviðskipta. EFTA-ríkin hafa
einnig gengist undir það að láta allar
reglur bandalagsins um samkeppni
gilda í EFTA-ríkjunum með sömu að-
ferð og beitt er í bandalaginu," segir
van der Pas í upphafi greinargerðar
sinnar.
Víða í greinargerðinni segir að EFTA-
ríkin hafi felist á að láta reglur EB
gilda. Tálað er um að EFTA-rfldn taki
upp reglur EB um heilbrigði dýra og
plantna. EFTA- rfldn samþykki að taka
upp reglur EB um tæknilegar við-
skiptahindranir. Sama gildi um reglur
EB varðandi útboð. Varðandi reglur
um vemdun umhverfis og heilsu-
vemd neytenda segir að þar sé mörg-
um spumingum ósvarað. EFTA-ríkin
telji að innan þeirra séu í gildi strang-
ari reglur í þessum málaflokki, sem
þau vilji ógjaman slaka á. Van der Pas
segir að EB hafi samþykkt aðlögunar-
tíma, svo að EFTA-ríÍdn geti lagað sig
að löggjöf EB á þessu sviði. Eftir 1.
janúar 1995 verði frelsi til flutninga að
ríkja í þessum efnum, hvað sem á dyn-
ur.
í greinargerðinni segir að EFTA- rík-
in hafi samþykkt að löggjöf EB gildi
um einkasölu. í þessu felist að við-
skiptastarfsemi slíkra einkasölufyrir-
tækja, sem byggir á mismun, skuli
lfeð niður.
I greinargerðinni er lítið fjallað um
sjávarútvegskafla samningsins. Tekið
er fram að fjárfestingar í sjávarútvegi í
Noregi og íslandi séu aJfeið háðar
innanlandslöggjöf landanna. Jafn-
framt er getið um tvíhliða samning EB
og íslands um sjávarútvegsmál og sagt
að í honum verði gert ráð fyrir gagn-
kvæmum fiskveiðiheimildum.
Van der Pas fjaflar um hvemig
ákvarðanir eru teknar innan EES.
Hann segir mikilvægt að hafa hugfast
að EES tekur yfir löggjöf EB og hefur
engan frumkvæðisrétt EES hafi held-
ur ekki tillögurétt upp á sitt eindæmi.
Hann segir td. að ákvarðanir sameig-
inlegu nefndarinnar, en hún tekur
ákvarðanir um stjómun og fram-
kvæmd EES-samningsins, grundvall-
ist allar á frumkvæði, sem fyrst hafi
leitt til ákvörðunar í EB. Með öðrum
orðum að nefndin geti í reynd ekki
tekið ákvörðun, nema fyrir Iiggi sam-
þykkiEB.
Um þetta segir van der Pas: ,Mikil-
inguna að þau ættu hlutdeild í þessu.
Ljóst er að það er afar óþægilegt fyrir
EFTA-ríkin að standa ffammi fyrir
gerðum hlut, en það hugtak heyrðist
oft á skotspónum meðan á umræðun-
um stóð. Málsmeðferð sú, sem sam-
þykkt hefur verið, þess efnis að EFTA-
ríkin taki eins mikinn þátt í innri starf-
semi okkar og hægt er án þess að þau
verði í raun með í spilinu, er sem hér
segin Framkvæmdastjómin (EB)
leggur ffam drög að tillögum, eins og
hún gerir nú, þ.e. í samráði við ein-
staka sérffæðinga í aðildarríkjunum,
til að komast að því hvaða aðferð hent-
ar best í framtíðinni lætur fram-
kvæmdastjómin sérfræðinga frá
EFTA-ríkjunum einnig taka þátt í
þessum óformlegu samskiptum.
Framkvæmdastjómin leggur síðan
fram tillögu, sem fær málsmeðferð
bandalagsins. Meðan á málsmeðferð
bandalagsins stendur, verða að sjálf-
sögðu samskipti á vettvangi sameigin-
legu nefndarinnar og við veitum
EFTA-ríkjunum upplýsingar um gang
mála og þær breytingar, sem farið hef-
ur verið fram á af hálfu Evrópuþings-
ins, efnahags- og félagsmálanefndar-
innar, ráðherraráðsins o.s.frv. Ef þörf
krefur og ef það er bandalaginu í hag,
má ffamkvæmdastjómin í framtíðar-
viðræðum sínum hafa hliðsjón af at-
hugasemdum sem EFTA- ríkin gera,
en að sjálfsögðu að teknu tilliti tii
málsmeðferðarbandalagsins.“ -EÓ
Ný kirkja og safnaðarheimili á Isafirði:
Á sama stað og sú gamla
Frá fréttaritara Tfmans á Isafirðl, Pétri
Bjamasynl:
Tilkynnt hafa verið úrslit í sam-
keppni um hönnun kirkju og safn-
aðarheimilis á ísafirði. Það voru
arkitektarnir Hróbjartur Hróbjarts-
son, Richard Ó. Briem, Sigríður Sig-
þórsdóttir og Sigurður Björgúlfs-
son, sem áttu vinningstillöguna.
I niðurstöðu dómnefndar segir
m.a.: „í tillögunni mynda kirkja og
safnaðarheimili samfellda heild.
Þrátt fyrir sérstæða lögun bygging-
arreitsins og smæð hans tekst höf-
undum að skapa byggingu, sem
bæði er vel heppnuð hvað ytra útlit
snertir og haganlega gerð hið
innra... Útlitið hæfir kirkju á fsa-
firði, þar sem lífsbjörg er sótt í sjó-
inn.“
Gamla kirkjan á ísafirði var reist á
árunum 1858-63 og vígð 1863. Þeg-
ar árið 1916 var þeirri hugmynd
hreyft að byggja nýja kirkju í stað
þeirrar gömlu. Vorið 1987 var sam-
þykkt á safnaðarfundi að stefna að
byggingu safnaðarheimilis og kirkju
á sama stað og kirkjan stóð á. Sum-
arið eftir skemmdist kirkjan í eldi,
svo hún varð ónohæf en stóð samt
uppi.
Allmiklar deilur fylgdu í kjölfarið
og var m.a. teiknuð kirkja, sem
standa átti á uppfyllingu fyrir fram-
an nýja sjúkrahúsið, en sú hugmynd
var felld með atkvæðagreiðslu árið
1989.1990 var síðan samþykkt að ný
kirkja skyldi standa á sama stað og
hin gamla, en áður hafði sóknar-
nefnd fellt tillögu Hjörleifs Stefáns-
sonar, sem hann vann á vegum Hús-
friðunarnefndar, um stækkun
gömlu kirkjunnar og byggingu safn-
aðarheimilis. Gamla kirkjan var svo
tekin ofan haustið 1991 og viðum
hennar komið fyrir til geymslu í
samráði við Húsfriðunarnefnd.
Það er von manna fyrir vestan að
heimamenn verði ánægðir með nýju
kirkjuna og safnaðarheimilið, en
samkvæmt upplýsingum Björns
Teitssonar, formanns sóknarnefnd-
ar, er fyrirhugað að hefja byggingu
þegar í sumar. —GKG.
ISLENSKUR
LANDBUNAÐUR
Ttllagan, sem bar
býtum í keppni um merki fs-
lensks landbúnaðar.
Landbúnaöur eign-
ast sameiningartákn;
r
Bjöm H. Jónsson teiknari átti
heiðurinn af vcrðlauiuunerkhm,
sem Markaðsnefnd Iandbúnað-
arins valdi sem merid bmdbún-
aðarins.
Í iýsingu á verðlai
segir; .Meridð
hlúa að stráum og nqntda tnn
leið hjarta utan um þau. Stráin
tákna grósku og bera ísieruku
fánalitína. Skiiaboð mericifins
eru umhyggja fyrir landinu
ásamt því að standa beri vörð
um það sem íslenskt er.“
Meridð verður notað tfl að auð-
kenna íslenskan landbúnað og
sérstöðu íslenskra landbúnaðar-
vara m.a. í væntanlegri sam-
keppni við innfluttar landbúnað-
arvörur. Alls bárust 192 tillögur
f samkeppnina og má berja þaer
augum á neðstu hæð Periunnar
fram til 10. maí n.k.
Bjöm H. Jónsson tekur við
verðlaununum úr höndum
Hauks Halldórssonar.
Akureyri:
Útflutningur janúar/febrúar aðeins
minni en á sama tíma í fyrra:
Innflutningur
minnkar hægt
Vöruútflutningur landsmanna
nam 11,5 mifljörðum fyrstu tvo
mánuði ársins. Hefur hann nán-
ast staðið í staft f fjögur ár og þó
minnkað nokkuð (um 500 m.lor.)
að raungildi frá 1989. Það sama
verður hins vegar ekki sagt um
innflutninginn. Ef marka má
þessa fyrstu tvo mánuði ársins,
virðist sú gtfuriega aukning <um
30%), sem varð á innflutningi
fyrstu tvo mánuði ársins 1991,
aðeins að takmörkuðu leyti geng-
in tfl baka enn sem komið er. En
influtningur nú var rúmum 4%
(500 m.kr.) minni en á sama
tímabili í fyrra.
Vöruskiptajöfnuður á fyrstu
tveim mánuðum ársins er nú nei-
kvæður annað árið í röð, kringum
80 m.kr. í ár og 560 m.kr. í fyrra.
Næstu tvö ár þar á undan var
hann hins vegar í kringum 2
mifljarða kr. á jákvæðu hliðina.
200 GESTIR A
VINABÆJAMÓT
í sumar, nánar tiltekið dagana 22,-
26. júní, verður haldið vinabæjamót
á Akureyri. Áætlað er að a.m.k. 200
gestir frá 5 norrænum vinabæjum
komi á mótið. Vinabæimir em: Ran-
ders í Danmörku, Álasund í Noregi,
Vásterás í Svíþjóð, Lahti í Finnlandi
og Narssaq á Grænlandi. Vinabæja-
vikan, sem ber heitið NOVTJ ‘92,
stendur í eina viku, og er meginvið-
fangsefni hennar bókmenntir.
í upphafi vikunnar verður ópnuð
sérstök sýning í Minjasafninu á
prentiðnaði fyrr og nú. Samhliða
verður þar dagskrá, sem kallast
„Hvernig verður bók til?“. Þá má
geta þess að öll kvöld vikunnar verða
ýmsar uppákomur í miðbænum,
bæði fyrir þátttakendur NOVU ‘92
sem og alla unglinga á Akureyri. Þá
var efnt til ljóða- og smásagnasam-
keppni, og munu sigurvegarar þeirr-
ar keppni á hverjum stað koma til
Akureyrar í sumar. Gestir mótsins
em flestir á aldrinum 14-20 ára, og
verður þeim skipt upp í dagskrár-
hópa sem þau sinna í aðalatriðum
alla vikuna. Má þar nefna: leiklist,
myndlist, golf og hestamennsku.
Auk ungmennanna munu fulltrúar
frá norrænu félögunum og fúlltrúar
bæjarstjórna vinabæjanna mæta til
leiks, og verður sérstök dagskrá fyrir
þá með umræðufundum, kynnis-
ferðum og fleiru.
f lok vikunnar munu fúlltrúar bæj-
arstjómanna taka ákvarðanir um
íramhald vinabæjasamstarfsins
næstu 5 árin, en vinabæjaheimsókn-
ir em hugsaðar til að efla tengsl
vinabæjanna. Vinabæjaheimsókn-
imar em haldnar árlega, og em þátt-
takendur valdir eftir þema viðkom-
andi viku, oftast í samráði við skóla.
Þess má að lokum geta að Norræni
menningarsjóðurinn hefúr styrkt
vinabæjavikur af þessu tagi mjög
myndarlega, og gert þannig mögu-
legt að bjóða uppá þá fiölbreytni sem
hér er stefnt að. hiá-akureyri.