Tíminn - 06.05.1992, Blaðsíða 9
Tíminn 9
Miðvikudagur 6. maí 1992
■ DAGBÓK
Uppskeruhátíö Árs söngsins
í Laugardalshöll
Sönghátíð verður fyrir alla fjölskylduna f
Laugardalshöllinni á vegum fram-
kvæmdanefndar um Ár söngsins laugar-
daginn 9. maí kl. 15 til 17. Aðgangur er
ókeypis. AJlir þeir, sem hafa gaman af
söng, eru hvattir til að mæta og taka þátt
í söngskemmtuninni. Flestar tegundir
íslenskrar sönglistar munu fá að njóta
sín, allt frá rímnakveðskap til dægur-
laga- og óperusöngs, að ógleymdum kór-
söng. Fjöldasöngur verður stór þáttur í
sönghátíðinni og er fólk hvatt til þess að
taka vel undir f fjöldasöngnum. Af þessu
leiðir að dagskráin verður mjög fjöl-
breytt, og ættu allir að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi. Margir þekktir ein-
söngvarar, hljóðfæraleikarar, kórar og
söngfólk skemmta og gefa allir vinnu
sína í tilefni af þessari uppskeruhátíð Árs
söngsins. Dagur Evrópu, sem er 5. maí,
verður haldinn hátíðlegur 9. maí í ár, en
eins og menn muna er Evrópukeppni
sjónvarpsstöðva haldin þennan dag. Full
ástæða er til að íslendingar gefi þessum
degi meiri gaum en hingað til og verði
virkir þátttakendur á degi Evrópu, og má
þá sönginn ekki vanta á Ári söngsins.
Samstarf hefur tekist á milli fram-
kvæmdanefndar um Ár söngsins og
Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna
uppskeruhátfðarínnar. Hafa þeir hvatt
sveitarfélögin um allt land til virkrar
þátttöku. Munu þeir kynna starfsemi
sína og benda sérstaklega á stuðning
sveitarfélaga við tónlistarflutning og
aðra menningarstarfsemi í landinu.
Þá hafa Ijósvakamiðlar verið hvattir til
að kynna þjóðleg sönglög frá sem flest-
um löndum Evrópu, allt frá írlandi í
vestri til Armeníu í austri.
Aöalfundur ístex hf.
verður haldinn föstudaginn 8. maí kl. 14
í félagsheimilinu Þrúðvangi í Mosfells-
bæ.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Sauðfjárbændur, sem lagt hafa inn ull
hjá ístex hf., eru velkomnir á fundinn.
(Stjóm ístex hf.)
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Anna Kristín Arngrímsdóttir og Ragnheiður
Steindórsdóttir.
Veittir styrkir úr Menningarsjóöi Þjóöleikhússins
Sunnudaginn 26. apríl, í lok Hátíðardagskrár Laxness-veislu, voru leikkonunum Önnu
Kristínu Amgrímsdóttur, Lilju Guðrúnu Þorvaldsdóttur og Ragnheiði Steindórsdótt-
ur, veittir styrkir úr Menningarsjóði Þjóðleikhússins. Sjóðurinn var stofnaður á vígslu-
degi leikhússins 20. apríl 1950 af þáverandi þjóðleikhússtjóra, Guðlaugi Rósinkranz,
með framlögum 38 einstaklinga. Alls hefur verið veitt úr sjóðnum 29 sinnum til 53
einstaklinga og Þjóðleikhúskórsins.
Anna Kristín, Lilja Guðrún og Ragnheiður eru allar fastráðnar leikkonur við Þjóð-
leikhúsið og eiga að baki langan feril og mörg viðamikil hlutverk. f vetur hafa þær vak-
ið mikla og verðskuldaða athygli hver á sinn hátt: Anna Kristín sem frú Kapulett í
Rómeó og Júh'u og Jelena í leikritinu Kæra Jelena, sem nú er sýnt á Litla sviðinu; Lilja
Guðrún sem fóstran í Rómeó og Júlíu og Sesselja í Elínu, Helgu, Guðríði, sem nú er
sýnt á Stóra sviðinu; og Ragnheiður sem Sigríður í Gleðispilinu og Þórhildur, móðir
ísbjargar, í Ég heiti f sbjörg — Ég er ljón, sem nú er sýnt á Smíðaverkstæðinu.
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
um miðlunartillögu
ríkissáttasemjara
Allsherjaratkvæðagreiðslu um miðlunartillögu ríkis-
sáttasemjara, sem lögð var fram þann 26. apríl sl.,
verður framhaldið í dag, miðvikudaginn 6. maí, kl.
09:00 og lýkur kl. 21:00 í kvöld í húsakynnum félags-
ins, 9. hæð Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
Kjörstjóm
m
U0
Hafnarfjörður
Skrifstofa Framsóknarfélaganna að Hverfisgötu 25, er opin alla þriójudaga ffá kl.
17.00-19.00.
Litiö inn i kaffi og spjall.
Framsóknarfélögin I Hafnarfírðl.
Borgnesingar — Nærsveitir
Spilum félagsvist í Félagsbae föstudaginn 8. mai kl. 20.30.
Siöasta kvöldiö i þríggja kvölda keppni.
Mætum vel og stundvlslega.
Framsóknarfélag Borgamess.
Kópavogur— Umhverfismál
Almennur opinn fundur á vegum Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna I Kópavogi verð-
ur haldinn fimmtudaginn 7. mal n.k. kl. 20.30 aö Digranesvegi 12.
Dagskrá:
1. Haukur Ingibergsson, formaður umhverfisráös, kynnir umhverfisráö.
2. Einar E. Sæmundsen garðyrkjustjóri talar um sumarstarf vinnuskólans og
almennt um umhverfismál i Kópavogi.
3. Fyrirspumir og þeim svaraö.
Stjómln.
Bart Conner, sjátfur ólympíumeistarí í fimleikum, bjargaöi Nadiu og kom henni á réttan kjöl. Þau búa
nú saman í Venice I Kaliforníu.
Nadia Comaneci kemur
fótunum undir sig á ný
Fyrir 16 árum stóð heimurinn á
öndinni þegar hann fylgdist með
fimleikasnilld 14 ára fisléttrar rúm-
enskrar stúlku á Ólympíuleikunum
í Montreal. Síðan er mikið vatn
runnið til sjávar í Iífi þessarar fyrr-
um eftirlætisstúlku einræðisherr-
ans Nicolaes Ceausescu og sonar
hans, Nicu. Nadia Comaneci er nú
að koma fótunum undir sig á ný og
það f Bandaríkjunum.
Nadia komst við illan leik til
Bandaríkjanna rétt fyrir fall ein-
ræðisherrans. Hún var akfeit og illa
á sig komin, enda segir hún það
hafa verið viðtekið viðhorf í Rúm-
eníu og öðrum kommúnistalönd-
um, að þegar einhver hætti að
stunda keppnisíþróttir til að sigra,
væri sá hinn sami hættur allri lík-
amsþjálfún. Hún stendur nú á þrí-
tugu og ætti að vera sest í helgan
stein skv. þessari kenningu.
Það er þó öðru nær, hún er rétt að
ná sér á strik og er nú sem óðast að
komast í fyrra form. Hún tekur
þátt í farandfimleikasýningu og
hefur aftur komist í náðina hjá
bandarískum fimleikaáhugamönn-
um.
Vinsældunum átti hún ekki að
fagna fyrst þegar hún kom til
Bandaríkjanna. Hún komst þangað
á vegum dularfulls Rúmena,
Constantins Panait. Þó að hann
væri giftur gerðust þau elskendur,
enda hafði hún átt því að venjast í
Rúmeníu að láta að vilja ráða-
manna í þeim efnum og tilnefndi
þar sérstaklega Nicu Ceausescu. Og
Constantin Panait ráðskaðist með
líf Nadiu að vild. Henni tókst þó að
sleppa úr klónum á honum með
aðstoð annars rúmensks útlaga,
Nadia Comaneci var akfeit þegar hún kom til Bandaríkjanna. Nú
hefur henni tekist aö komast þvi sem næst f fyrra form.
rugbyþjálfarans Alexanders Stefú.
Þegar hann fórst af slysförum við
köfun var Nadia enn einu sinni
orðin ein á báti og vegalaus.
Og þá kom Bart til hjálpar. Smám
saman urðu þau ástfangin og tóku
saman þó aö það væri ekki átaka-
laust fyrir Bart sem hafði átt kær-
ustu í 6 ár, sem var mjög afbrýði-
söm.
En nú virðist sem sagt allt loks
horfa til betri vegar aftur fyrir fim-
leikastúlkunni snjöllu, sem var eft-
irlæti heimsins og yfirvalda í
heimalandi sínu, en síðan niður-
lægð og smánuð.
Stjörnuspekin eyði-
lagði ástarævintýrið!
Laura Dem er glæsileg pía í banda-
rísku sjónvarpsþáttunum Wild at
Heart. Hún var til skamms tíma í
tygjum við framleiðandann Renny
Harlin, en því sambandi lauk fyrir
skömmu og Laura er nú komin
með annan upp á arminn.
En máli þeirra Laum og Rennys
er ekki alveg lokið vegna þess að
togstreita er um hvort þeirra hafi í
rauninni bundið enda á ævintýrið.
Laura segist hafa gert það vegna
þess að Renny hafi ekki haft neinn
tíma fyrir hana, en hann ber harð-
Laura Dern tapaöi kærastanum
vegna þeirrar áráttu aö vitna
stöðugt I stjörnuspeki. En hún
fann fljótt nýjan.
lega á móti þessari útgáfu. Renny
segist hafa sagt henni upp vegna
þess að það sé „meiri vindur í
hausnum á henni en í vindgöng-
um,“ segir hann.
Vinir Rennys segja að hann hafi
losað sig við Lauru vegna þess að
hún hafi enga glóru í kollinum.
Þau hafi ekkert getað talað saman
af viti vegna þess að Laura hafi allt-
af komið með einhverja heimsku-
lega stjömuspekilega túlkun á efn-
inu, eins og t.d.: „Þú segir þetta
bara vegna þess að Merkúr er víkj-
andi!“
Það er nú ekki auðvelt að halda
uppi samræðum með svona and-
svömml