Tíminn - 23.05.1992, Page 1

Tíminn - 23.05.1992, Page 1
Laugardagur 23. maí 1992 98. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Einar Oddur Kristjánsson, formaður VSÍ, spurði hvað við ættum að gera ef mögru árin á ís- landi verða sjö eins og í Egyptalandi og hann svaraði sjálfur: UEKKUM LAUNIN Einar Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveitendasambands ís- lands, sagði á aðalfundi þess, að ef samdráttur og erfiðleikar í efna- hagslífinu haldi áfram verði að lækka laun í landinu með beinum samningum við verkalýðshreyfinguna. Það sé betra að gera það með beinum samningum heldur en að launalækkunin komi fram í geng- isfellingu eða eftir öðrum leiðum. Einar Oddur lét af formennsku í VSÍ á fundinum, en í hans stað var kjörinn Magnús Gunnarsson, ffamkvæmda- stjóri. Fundurinn lýsti yfir afdráttarlaus- um stuðningi við samninginn um evr- ópskt efnahagssvæði. Einar Oddur sagði í ræðu sinni að það væri sín skoðun að með tilkomu evrópska efnahagssvæðis- ins væri komin framtíðarskipan mála á öllu samneyti og samskiptum íslands við Evrópuþjóðir. Það álit breyttist ekki þó öll aðildarríki EFTA nema ísland gengju í EB. Sem kunnugt er hefur framkvæmdastjóri VSÍ, Þórarinn V. Þór- arinsson, haft aðrar skoðanir á þessum máium og sagt að við ættum að skoða al- varlega hvort ekki sé rétt að við göngum í Evrópubandalagið. Einar Oddur ræddi nokkuð um ný- gerða kjarasamninga í ræðu sinni. Hann minntist sérstaklega á að í samningnum væri engin kaupmáttartrygging. „Slíkar tryggingar hafa heldur aldrei verið nema til að blekkja. Þær eru í raun gagnslaus- ar eins og allar aðrar verðtryggingar. Á ég þá ekki hvað síst við verðtryggingu fjárskuldbindinga. Þetta er í raun allt uppfinning manna sem heldur vilja lifa með verðbólgu en beijast gegn henni með oddi og egg. Það var því afar mikil- vægt í þessum samningum að fa laun- þega í raun til að staðfesta, að það er verðmætasköpunin sjálf, sem er eina tryggingin sem völ er á. Vonandi verður þetta til þess, að aðrar slíkar tryggingar verða afnumdar og upp ljiikist augu þeirra, sem haldnir eru verðtiyggingar- blindunni," Einar Oddur sagði að vinnuveitendur tefldu á tæpast vað með þeim kjara- samningum sem gerðir hefðu verið. Sjávarútvegurinn væri rekinn með tapi og samdráttur væri í iðnaði, verktaka- starfsemi, verslun og fleiri greinum. „Og þá er ekki nema eðlilegt að spurt sé: Hvað ef það hörmulega gerist að ytri að- stæður verða áffam andsnúnar okkur? Hvað ef mögru árin verða sjö eins og í Egyptalandi forðum? Hvað verður ef afli dregst enn saman og viðskiptakjörin Árekstur á Akureyri: Ekið á móti rauðu Ijósi Þriggja bfla árekstur varð á Akur- eyri um kl. 11:40 í gær á mótum Vallarstrætis og Mýrarvegar. Bfll sem ók gegn rauðu Ijósi rakst á annan með þeim afleiðingum að hann valt á kyrrstæðan bfl. Eldri maður sem var ökumaður bflsins sem valt viðbeinsbrotnaði og meiddist á höfði. —GKG. halda áffam að versna? Eru þá ekki allar þessar vonir að engu orðnar, verður þá ekki gengisfelling óhjákvæmileg, og heldur þá ekki verðbólgan, með allri sinni vitleysu og sóun,innreið sína á ný áður en nokkum varir? En jafhvel þó að hin verstu ótíðindi dynji yfir okkur, þá er brýnt að hvika hvergi ffá settum mark- miðum um stöðugleika og alls ekki að grípa til gömlu gengisfellinganna. f flest- um hagkerfúm eru breytingar á gengi eðlilegt hagstjómartæki, en á íslandi eru þær löngu orðnar gagnslausar. Gengis- fellingar hafa verið ofhotaðar svo lengi og svo mikið, að allir ættu að kunna að bregðast við þeim. Kostnaðurinn æðir upp og samkeppnisgreinamar, sem áttu að njóta góðs af breytingunni, sitja eftir í sömu súpunni fyrr en varir, bara enn skuldugri en áður. Vandamálið er að ísland er of dýrt land. Brýnasta verkefnið er því að lækka kostnaðinn á öllum sviðum. Ef tekjur þjóðfélagsins minnka enn, verður að lækka kostnaðinn enn meira. Þegar allt þrýtur er ekki annað að gera en að setj- ast niður með launþegasamtökunum og freista þess að semja um lækkun launa. Þetta er ekki fjarstæða. Það er vel hægt að sýna fram á með óyggjandi rök- um, að ef tekjur þjóðarinnar skerðast, þá er það af tveimur slæmum kostum mun skárra fyrir launþega landsins að Einar Oddur Kristjánsson, fráfarandi formaður VSÍ, á aðalfundi sambandsins í gær. Timamynd Ámi Bjama lækka laun beint heldur en að þeir þoli kaupmáttarskerðingu af völdum geng- isfellingar. Við skulum hvorki vantreysta né vanmeta verkalýðshreyfinguna, heldur gera ráð fyrir að þar á bæ viti menn sínu viti. Og ef við teljum, að ein- hver árangur hafi náðst, þá var það fyrst og fremst vegna frjálsra samninga við verkalýðshreyfinguna. Hægt og bítandi kemst íslenskt efhahagslíf út úr þeim ógöngum sem það nú er í. Þegar betur árar, þegar batnandi tíð fer í hönd þá skulum við ekki heldur deila við verka- lýðshreyfinguna heldur semja við hana um skynsamlega skiptingu þess ávinn- ings. Við verðum alltaf að fara framan að viðsemjendum okkar, ekki aftan að þeim. Menn treysta best þeim sem þeir þekkja og án gagnkvæms trausts semja menn trauðla," sagði Einar Oddur. Einar Oddur gagnrýndi Landsvirkjun fyrir hátt verð á raforku og sagði óeðli- legt af fyrirtækinu að miða raforkuverð við að virkjanir séu afskrifaðar á fjörutíu ámm en ekki sjötíu til áttatíu eins og í öðrum löndum. Hann vakti athygli á því að Landsvirkjun hefur fjárfest fyrir 13 milljarða á sama tíma og orkusala hefur verið að minnka. Einar Oddur sagði að ef litið væri á fjárfestingar Landsvirkjun- ar virtist sem fyrirtækið héldi að það þyrfti ekki á því að halda að leita mark- aðar fyrir vöru sína. -EÓ Menn með ólæti á Höfn á Homafirði: Tveir drukknír menn léku sér að því að brjóta rúður á Hiifn i Homafirði aðfararnótt fóstu- Rúour voru brotnar i ráðhús- inu, stmaldefa, endurvarps- stöðinni og skrifstofum Eystrahoms. Málið hefur þegar verið afgreitt af lögreglu stað- arins. Mennimir eru eínnlg gntnað- ir um að hafa klifrað upp í 75 m hátt masiur og tekið þaðan lukt. —GKG. £íanóhátíð á Akureyri: Islensk tón- sköpun Píanóhátíð verður haldin af Kammerhijómsveit Akureyrar mánudaginn 25. maí n.k.. Pí- anóleikararair Kristinn Öm Kristinsson og Þórarinn Stef- ánsson spila með hljómsveit- innl og hljómsveitarstjóri verð- ur Guðmundur óil Gunnars- son. 35 hljóðfæraleikarar og söngvarar taka þátt í flutningn- um og verður áheyrendum leyft að kynnast fiölbreytni íslenskr- ar nútímatónsköpunar. —GKG. Árekstrar I Hafrtarfirði: Tveririt á slysadeild Fimm árekstrar urðu í Hafnar- firði í gær þrátt ffyrír ágætís akshirssldlyrði þar, að sögn lög- reglu. Hjón vom flutt á slysadeild eftir árekstur sem varð á mót- um Reykjavíkurvegar og Hjalla- brautar. Ekki er vitað hve rdvar- leg sár þeirra erti. Ekki þurfti að flytja aðra á sfysadeild. —GKG. Um 7. hver grunnskólanemi slasast í skólanum árlega og þar af þarf þriðjungurinn að leita læknishjálpar: Skólaslys 7 sinnum tíðari í Reykjavík en Stokkhólmi Hlutfallslega verða um sjö sinnum fieiri grunnskólakrakkar fyrir alvarlegum slysum í skólanum hér á landi heldur en í Stokk- hólmi í Svíþjóð. Alvarlegt slys miðast þá við það að leita þurfi læknis vegna slyss eða áverka. í nýrri skýrslu skólayfirlæknis „Skólaslys" kemur m.a. í ljós að nær 5% íslenskra grunnskóla- nema þurfa árlega að leita læknis vegna slysa eða kringum þriðj- ungur allra sem slasast í tengslum við skólagöngu. Meðal skóla- barna í Stokkhólmi sé samsvarandi hlutfall um 0,7%. Athyglisvert er hvað mikill munur er á tíðni skólaslysa á milli fræðsluumdæma (hæst í Reykjavík og Akureyri) og sömuleiðis mikill munur á milli einstakra skóla inn- an sama sveitarfélags. Áætlað er að kringum 6.200 grunnskólaböm, eða 7. hver nem- andi, slasist í tengslum við skóla- göngu á hverju skólaári (tæplega 15% nemenda). Þar af slasast kringum 2.000 börn (tæplega 5%) það alvarlega að senda þarf þau til læknis til rannsóknar og meðferð- ar. Af hinum slösuðu eru strákar fleiri (55%) heldur en stelpur (45%). Miðað við öll skólaslys kemur fram allt að sexfaldur munur milli fræðsluumdæma og skóla. Hæst slysatíðni í einstökum skóla kom fram í grunnskóla í Reykjavík, tæplega 30% nemenda. En hlut- fallslega fæstir nemendur slösuð- ust í skóla á Akranesi, tæplega 5% nemenda. Enn meiri munur, eða ellefufald- ur, kemur í ljós þegar litið er á al- varlegu skólaslysin. Hæst var hlut- fallið rúmlega 14% nemenda í ein- um grunnskólanna á Akureyri, en hins vegar lægst aðeins 1,3% í ein- um skóla í Eyjafjarðarsýslu. Framangreindar upplýsingar byggja á skráningu slysa í skólum sem skipulögð er af skólayfir- lækni, Hrafni V. Friðrikssyni. Til- ganginn segir hann þann, að sam- ræma skráningu skólaslysa og skýrslugerð í öllum skólum landsins, að auðvelda rannsókn á orsökum skólaslysa og efla for- varnir og skipuiag slysavarna í skólum. Nærri lætur að kringum 42.000 börn og unglingar 6-16 ára séu í 213 grunnskólum á landinu öllu miðað við skólaárið 1990-1991. Misjafnt er hvernig slysaskráning- unni hefur verið framfylgt í ein- stökum skólum. En þetta skólaár náði skráning skólaslysa til rúm- lega þriðjungs allra grunnskóla- nemenda í landinu og um fimmt- ungs skólanna. Skólayfirlæknir kynnti sér einn- ig slysatölur hjá Slysadeild Borg- arspítalans. Miðað við að svæði hennar nái til tæplega helmings 6-16 ára barna á landinu, svara tölurnar til þess að um 15.600 börn á þessum aldri á landinu öllu þurfi að leita læknis vegna slysa ár hvert. - HEI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.