Tíminn - 23.05.1992, Blaðsíða 2

Tíminn - 23.05.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn Laugardagur 23. maí 1992d Formenn Caritas á Noröurlöndum þau Johan Gárde, Svíþjóð, Luc Troillard, framkvæmdastjóri Caritas f Evrópu meö aðsetri í Briissel, Pertti Ylinen, Finnlandi, William Kennedy biskup, Svíþjóö, Bemt Gulbrandsen, Noregi og Torben Juncker, Danmörku. Fyrir framan standa Guðrún Marteinsson og Anne Lise Timmerman. Fundur Caritas-samtaka Norðurlanda: Líknarsamtök kaþóisku kirkjunnar Fundur vegna breytinga í Evrópu: Noröurlönd og Evrópa „Norðurlönd í Evrópu breytinga“ er umræðuefnið á fundi sem haldinn verður 25. maí nk. Það eru félögin Varðberg og Samtök um vestræna samvinnu sem fyrir honum standa. Jaakko Iloniemi, sendiherra Finn- lands í Bandaríkjunum, flytur fram- söguræðuna en hann er formaður nefndar sem skipuð er fulltrúum allra forsætisráðaherra á Norður- löndum. Matthías Á. Mathiesen, fulltrúi íslands í nefndinni, mun hann kynna ræðumanninn. Fundurinn verður haldinn í Átt- hagasal Hótel Sögu. —GKG. Kynning á stangaveiöi: Kastkennsla Kynning á stangaveiði í siiungsvötnum fer fram í Norræna húsinu sunnudag- inn 24. maí. Kynnt verða lítt þekkt en fengsæl veiði- vötn, fluguhnýtingar og fiskverkun og kastkennsla verður við tjöm Norræna hússins. Auk þess munu landsfrægir veiðimenn fjalla um veiðiskapinn. Samstarfsnefnd um stangaveiði í sil- ungsvötnum stendur fyrir kynningunni en hún hefur unnið að því að undan- fömu að auka nýtingu silungsvatna. —GKG. Tvö prestaköll laus: ísafjarðar- og Ásaprestaköll Tvö prestaköll hafa verið auglýst laus til umsóknar. Ásar í SkaftafeUsprófasts- dæmi og ísafjörður í ísafarðarprófasts- dæmi. Séra Hjörtur Hjartarson þjónar Ása- prestakalli en hann var kallaður til þjón- ustu til eins árs en séra Magnús Erlings- son þjónar fsafarðarprestakalli og var kallaður til þjónustu á s.l. ári. Umsóknar- frestur um bæði prestaköllin er til 15. júní n.k. —GKG. Sameiginlegur fundur Caritas- samtaka Norðurlanda, hknarfélags kaþólskra er nú haldinn hér á landi og er það í fyrsta skipti sem sam- tökin halda slíkan fund hér. Formenn Caritas í Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Noregi komu til landsins á fimmtudaginn sl. ásamt William Kenney, kaþólskum biskupi í Svíþjóð og forseta Caritas í Evrópu, og Lux TVouillard, fram- kvæmdastjóra Caritas í Evrópu. Ætlunin er að ræða um vandamál, verkefni og gang mála Caritas í Evr- ópu og sérstaklega um mál Norður- landa. Guðrún Marteinsson er formaður Caritas á íslandi og segir hún alla kaþólikka vera félaga í samtökun- um; fjórir sjálfboðaliðar skipi síðan nefnd sem sjái um framkvæmdir hér á landi. Að sögn Guðrúnar voru íslensku samtökin stofnuð 1989 og hafa þeg- ar gengist fyrir tveimur viðamiklum verkefnum: Þau gáfu Rauða kross- húsinu peningagjöf til að geta hald- ið Grænu iínunni opinni og einnig gáfu þau Tindum, meðferðarheimili fyrir unglinga, fjárupphæð til að geta komið upp líkamsræktartækj- um. William Kenney segist afar ánægður með starf Caritas á íslandi á þeim stutta tíma sem samtökin hafa starfað og efast ekki um að þau muni láta fleira gott af sér leiða í framtíðinni. Eftir ströng fundarhöld í gær var hópnum boðið til móttöku í Höfða í boði borgarstjóra og var fulltrúum lútersku og kaþólsku kirkjunnar, sem og ríkisstjórnarinnar einnig boðið. Á morgun verður svo gestun- um boðið að berja Þingvelli, Gull- foss og Geysi augum en heimsókn- inni lýkur á mánudaginn. -GKG. Um 11% landsmanna burðast með þriðjung allra skuldanna og þar af 23.300 milljónir umfram eignir: Um 22 þúsund íslendingar skulda meira en þeir Tæplega 22 þúsund íslendingar töldu fram hærri skuldir heldur en eignir fyrir árið 1990. Þetta átti við um 10. hver hjón og um 8. hvern einhleyping. Samtals taldi þessi hópur fram 51 milljarð króna í skuldir á skattskýrslunum sínum í ársbyrjun í fyrra, eða nærri því þriðjung af öllum framtöldum skuldum hjóna og einstak- linga. Á móti átti sami hópur eignir, fyrst og fremst fasteignir og bíla, fyrir andvirði rúmlega helmings skuldanna. Skuldir þessa hóps um- fram eignir reyndust því rösklega 23 milljarðar króna. 4 þúsund með 13 milljarða skuld... Hvað fyrirkvíðanlegust virðist skuldastaðan hjá þeim rúmlega 4 þúsund einhleypingum sem hver og einn skuldaði meira en 1 milljón kr. umfram eignir. Heildarskuldir þessa hóps voru 13,2 milljarðar króna, eða um 3,3 milljónir króna að meðaltali á mann. Aðeins þriðjungurinn hafði þó eignast fasteign og ekki voru bílaeigendur fleiri. Skuldir þessa hóps voru því nær 9 milljörðum króna hærri en eignirnar, eða rúm- lega 2,2 milljónir að meðaltali á mann. Þar sem aðeins brot af þess- um skuldum getur verið til komið vegna húsnæðiskaupa má giska á að drjúgan hluta þeirra sé að finna á skuldabréfum Lánasjóðs náms- manna. Leggi síðan meginhluti þessa hóps í íbúðakaup, eins og flestir ís- lendingar gera, má sjá í hendi sér að skuldastaðan getur orðið mjög há hjá mörgum þegar íbúðakaupalánin bætast við lánin sem fyrir eru. Nær 7 þúsund einstaklingar til viðbótar skulda hver um sig að 1 milljón króna umfram það sem þeir eiga. Samtals taldi þessi hópur fram 8,6 milljarðaskuldir — hvaraf eign- ir vantaði á móti 2,8 milljörðum. Fasteignaeigendur voru þó hlut- fallslega ennþá færri í þessum hópi. Innan við fjórðungurinn taldi fram fasteign, en um 40% voru komin á bfl. 5.500 hjón undir núllinu... Af hjónum voru nær 3.300 sem töldu fram meira en milljón króna í skuldir umfram eignir. Samtals skuldaði þessi hópur yfir 21 millj- arð. Þar á móti áttu nærri 70% þess- ara hjóna íbúðir og 75% þeirra voru bfleigendur. Verðmæti þessa og ann- arra eigna svöruðu til helmings skuldanna. Nær 2.200 hjón til viðbótar voru allt að 1 milljón króna öfugu megin við núlið. Meðal þeirra var hlutfall íbúðaeigenda álíka hátt (tæp 70%) og bflaeign ennþá meiri (um 80%). Enda vantaði aðeins um 1 milljarð upp á að þessi hópur ætti eignir á móti þeim 8 milljörðum sem hann skuldaði um áramóti 1990/91. Gífurlegur skulda/eignamunur... Um 53.600 hjón og um 86.700 einhleypingar töldu fram til skatts fyrir árið 1990. Skattskýrslurnar sýndu rúmlega 163 milljarða króna skuldir. Þar á móti voru m.a. taldar fram fasteignir að verðmæti (fast- eignamati) um 433 milljarðar króna, hvar af 320 milljarðar voru í eigu hjónafólksins. Skuldir sam- svöruðu helmingi þriðjungi fast- eignaverðsins hjá hjónunum en hins vegar til 45% af fasteignum einhleypinga. Þessar tölur eru meðaltöl sem segja sáraiítið. Því upplýsingar úr framtölum leiða í Ijós gífurlegan mun á eignum og skuldum lands- manna, bæði giftra og einhleypra. Til viðbótar þeim 10% hjónafólks sem skulda mikið og eiga minna en ekki neitt koma önnur 10% sem eiga fremur lítið bæði af eignum og skuldum, en eru á biiinu 0-1 milljón réttu megin við strikið. Þetta er sá hópur hjóna sem á lang- minnst bæði af íbúðum og bflum. Aðeins 46% þeirra eiga íbúð og bara 60% eru bfleigendur. 88% hjóna eiga íbúð og 86% bíla... Af þeim rösklega 43 þúsund hjón- um (80% hjóna) sem áttu hreina eign upp á meira en eina milljón eru hins vegar 96% íbúðareigendur og 90% bfleigendur. Mikill meirihluti (um 3/4) telur fram skuldir — líka þeir sem eiga tugi milljóna í föstum og lausum eignum. Um helmingur þessa hóps á hreinar eignir á bilinu 3-8 milljónir króna og samtals á hann rúmlega þriðjunginn af hrein- um eignum íslenskra hjóna. Tæplega 4.000 hjón eiga yfir 15 milljónir í hreinum eignum, en alls hátt í 100 milljónir. Þessi 7,5% hjóna eiga því hátt í 30% allra hreinna eigna hjónafólks í landinu. Þar af eru 204 pör sem eiga yfir 50 hvert í hreinum eignum, samtals um 17 milljarða kr„ eða um 82 milljónir að meðaltali. Þar af er um fjórðungur í fasteignum. Þegar Iitið er á alla þá sem telja fram sem hjón kemur í ljós að yfir 88% þeirra eru eigendur fasteigna, um 86% eiga bfla, um 56% eiga pen- inga, verðbréf eða skuldabréf og tæplega 30% aðrar eignir. Á sama tíma eru 75% allra hjóna að borga af skuldum. Nær 50 þúsund skuld- og eignalausir Þótt um 11 þúsund einhleypingar eiga eigi minna en ekki neitt er sá hópur þeirra þó langsamlega stærstur sem telst réttu megin við strikið en á þó lítið sem ekkert. Tæplega 50 þúsund einhleypingar lenda í eignabilinu 0- 1 milljón í hreinum eignum, en að- eins um 140 þús.kr. að meðaltali. Aðeins 8% þessa stóra hóps á fast- eign og rúmlega fjórðungurinn bfl — en 88% hópsins voru líka skuld- laus. Sjálfsagt er þarna að drjúgum hluta um að ræða ungt fólk, sem enn er í foreldrahúsum og hvorki farið að safna skuldum (t.d. náms- lánum) né fjárfesta. 50 einhleypingar yfir 50 milljóna eignamarkinu... Aðeins um 30% einhleypinga eiga ví yfir 1 milljón í hreinum eignum. þessum hópi eru um 83% íbúða- eigendur. Hins vegar á aðeins rúm- lega helmingur hans bfl. Um helm- ingur þessa fólks er skuldlaus. Með- al einhleypinga er ekki síður að finna nokkur hundruð flugríka. Um 330 þeirra eiga hreina eign yfir 20 milljónir. Þar af eru um 50 sem komast yfir 50 milljóna markið, með 80 milljón- ir kr. að meðaltali á mann. Eigi að síður skuldar helmingur þessara margmilljónera 7-8 milljónir kr. hver að meðaltali. - HEl

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.